Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1989, Page 7
FÖSTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1989.
23
• Héðinn Gilsson leikur stórt hlutverk í FH-liðinu en á morgun leika FH og Grótta í Hafnarfirði á Islandsmótinu
í handknattleik.
Hörkuleikir
víðast hvar
Helgin sem nú gengur í garð er
nokkuð viðburðarík á sviði íþrótta.
Ekkert verður leikið í kvöld en á
laugardag og sunnudag verða
höruleikir.
1. deild karla
í handknattleik
Fíórir leikir verða á laugardag í 1.
deild karla og hefjast þeir allir kl.
16.30. HK og KA leika í Digránesi.
Norðanmenn hafa enn ekki hlotið
stig í deildinni til þessa en HK-
menn hafa á hinn bóginn sigrað í
einni viðureign. Má því ætla að
þessi viðureign liðanna í Kópavogi
verði jöfn og spennandi og ekkert
gefið eftir.
FH og Grótta eigast við í íþrótta-
húsinu við Strandgötu. Hafnfirð-
ingarnir eru í öðru sæti eftir íjórar
umferðir, hafa aðeins tapað einu
stigi. Gróttu hefur hins vegar ekki
gengið eins vel og er með þrjú stig.
Grótta er upprennandi lið og á góð-
um degi getur liðið komið FH-
ingum í opna skjöldu. FH hefur
sýnt það í leikjunum til þessa að
liðið verður í baráttunni um ís-
landsmeistaratitilinn.
Víkingur og ÍR leika í Laugar-
dalshöllinni en félögin standa jöfn
að vígi í 1. deild, bæði með þrjú
stig. Miklu var búist við af Víking-
um í upphafi keppnistímabilsins en
fram að þessu hefur liðið ekki ver-
ið nógu sannfærandi í leikjum sín-
um. ÍR-ingar eru með ungt og
skemmtilegt lið og geta á góðum
degi velgt Víkingunum undir ugg-
um. Miðað við stöðu þessara liða
ætti þessi leikur að geta orðið besta
skemmtan fyrir áhorfendur.
Eyjamenn taka á móti KR- ingum
og þar gæti oröiö um hörkuviður-
eign að ræða. Eyjamenn eru erfiðir
heim að sækja og tapa ekki oft leikj-
um á heimavelli. KR-ingar hafa
spræku liði á að skipa og þurfa
örugglega að hafa fyrir hlutunum
í Vestmannaeyjum á morgun.
Leik Vals og Stjörnunnar hefur
verið frestað vegna þátttöku Vals-
manna í Evrópukeppninni um
helgina. Valur leikur gegn ung-
verska liðinu Raba Eto Györ og
veröur viðureignin í Ungverja-
landi.
Úrvalsdeildin í
körfuknattleik
Fjórir leikir verða í úrvalsdeildinni
í körfuknattleik á sunnudag.
Grindavík og Valur leika í Grinda-
vík, Njarðvíkingar, sem eru ósigr-
aðir í deildinni til þessa leika gegn
Haukum í Njarðvík. Báðir leikirnir
hefjast kl. 16.
Um kvöldið kl. 20 verða tveir leik-
ir, annars vegar viðureign KR og
Þórs á Seltjarnarnesi og hins vegar
leikur ÍBK og Reynis.
Blak
Fram og Þróttur frá Neskaupstaö
leika í 1. deild í blaki í Hagaskóla
á laugardag kl. 14. Á sama stað kl.
15.15 leika ÍS og HK. Tveir leikur
verða í 1. deild kvenna, ÍS og HK
leika í Hagaskóla kl. 16.30 og í
Digranesi leika UBK og Þróttur frá
Neskaupstað.
-JKS
Sjóminjasafn íslands,
Vesturgötu 8,
Hafnarflrði, s. 52502
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14 18
eða eftir nánara samkomulagi í síma
52502.
Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis
í útibúinu Álfabakka 14, Reykjavík, eru
til sýnis myndir eftir Ragnheiði Jóns-
dóttur. Sýningin stendur til 10. nóvember
nk. og er opin frá mánudegi til fimmtu-
dags frá kl. 9.15-16 og fóstudaga frá kl.
9.15-18. Sýningin er sölusýning.
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Stofnunar Árna Magn-
ússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 14-16.
Póst- og símaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriöjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar,
Ilverfisgötu
Þar em til sýnis og sölu postulinslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fóstudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safnið er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16. í Bogasal stendur yfir sýning
sem ber yfirskriftina „Ljósmýndin 150
ára - saga ljósmyndunar á íslandi". Sýn-
ingin stendur til nóvemberloka og er að-
gangur ókeypis.
Myntsafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, s. 24162
Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar.
Rafn Stefánsson sýnir
í Bókasafni Kópavogs
í Bókasafni Kópavogs stendur yfir sýning
á blýantsteikningum og málverkum
Rafns Stefánssonar. Á sýningunni em 17
myndir og er hún opin á sama tíma og
bókasafnið, mánudaga til föstudaga kl.
10-21 og á laugardögum kl. 11-14 út nóv-
embermánuð.
Myndlistarsýning
á Landspítalanum
Helgi Jónsson sýnir vatnslitamyndir á
göngum spítalans til 11. nóvember nk.
Helgi er fæddur 1923 og byrjaði snemma
að fást við myndlist og naut um skeið
tilsagnar Kristins Péturssonar, var í
Myndlistarskóla Félags íslenskra frí-
stundamálara (síðar Myndlistarskóla
Reykjavíkur) á fyrstu ámm skólans og
hefur á síðari árum verið þar nemandi í
ýmsum greinum.
Slunkaríki,
ísafirði
Guðbjartur Guimarsson sýnir í Slunka-
ríki. Myndirnar á sýningunni em ýmist
hreinar grafíkmyndir eða þær em unnar
með blandaðri tækni. Allar em myndirn-
ar handþrykktar með silkiprenttækni.
Sumar þeirra em síðan handlitaðar með
vatnslitum, akril- eða pastellitum. Mynd-
irnar 30 em allar til sölu. Sýningin stend-
ur til sunnudagskvölds 19. nóvember.
Jasmin við Barónsstíg
VERSLUNIN HÆTTIR
Allar vörur með 30% afslætti af gömlu, góðu verði.
Jasmin sími 11625
TAFLFÉLAG SELTJARNARNESS
AÐALFUNDUR
félagsins verður haldinn sunnudaginn 5. nóvember
kl. 14.00 í Valhúsaskóla.
Félagsmenn eru hvattir til að mæta stundvíslega.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Ný stjórn kjörin
og rætt um starfsemi félagsins í vetur.
LANDVARI
ALMENNUR FÉLAGSFUNDUR
verður haldinn að Hótel Holiday Inn, Reykjavík,
föstudaginn 10. nóvember næstkomandi og hefst
kl. 19.30. Á dagskrá eru almenn félagsmál.
Fundinum verður framhaldið kl. 10.00 að morgni
laugardagsins 11. nóvember á sama stað en þá mun
fulltrúi ríkisskattstjóra gera grein fyrir lögum og regl-
um um virðisaukaskatt.
Stjórn Landvara
VIÐBOTARHAR
sem er sérhannað fýrir þig.
Þú syndir, þværð þér um hárið, þurrkar
það og greiðir - svo eðlilegt sem þítt eigið
hár.
Leitið upplýsinga án nokkurra skílyrða og
i fullum trúnaði.
Verð frá kr. 15.000,-
Hársnyrtistofan
$
ö
Hringbraut 119
Sími 22077
Basar
verður haldinn á Sólvangi í liafnarfirdi (anddyri)
á morgun, laugardag, kl. 14.
Þar verða á boðstólum fallegarjólagjafir og margt
fleira.
Allt unnið af vistmönnum Sólvangs.
BLAÐ
BURDARFÓLK
t, ■■
Laufásveg
Óðinsgötu
Njálsgötu
Eiríksgötu
Barónsstíg
Skaftahlíð
Úthlið
Bólstaðarhlíð
, Aragötu
ft n ft
Hörpugötu
Fossagötu
Rauðalæk
Kleppsveg
Kleppsholt
Sporðagrunn
Selvogsgrunn
Hólmgarð
Hæðargarð
Réttarholtsveg
í\ í\ í\
ÞVERHOLTI 11
AFGREIOSLA
SÍMI 27022