Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1989, Blaðsíða 8
24
FÖSTUÐAGUR 3. NÓVEMBER 1989.
★★
ám
Bamalegir ræningjar
COHEN & TATE
Útgefandi: Arnarborg
Leikstjóri og handritshöfundur: Eric
Red. Framleiðendur: Anthony Rufus
Isaacs og Jeff Young. Tónlist Bill Conti.
Aóalhlutverk: Roy Scheider, Adam
Baldwin, Harley Cross.
Bandarisk 1988. 86 mín. Bönnuö yngri
en 16 ára.
Það virðast ætla að verða örlög
þessarar myndar að standa ekki
undir þeim vonum sem til hennar
eru gerðar. Þó að hér safnist saman
hörkuiið sem vanalega hefur getað
búið til bærilega þrillera þá skortir
margt upp á að myndin smelli sam-
an.
Myndin segir frá tveim glæpa-
mönnum sem ræna ungum pilti til
þess að koma honum í hendur ann-
arra glæpamanna sem vilja fræðast
af honum. Mennirnir tveir eru kal-
driijaðir morðingjar en þar með er
samlíkingunni lokið. Ferðalagið
tekur á taugarnar og uppgjör er
óumflýjanlegt.
Það er einfaldlega ekkert nýtt í
þessari mynd og sá fjarstæðu-
kenndi hörkuheimur sem Red
byggir upp (og hefur áður gert í
The Hitcher) gengur ekki upp.
Þrátt fyrir að innilokunarkennd
svífi að áhorfendum eftir tveggja
tíma bíltúr með hálfgeðveikum
moröingum og barni þá upphefst
aldrei almennileg samúð með
barninu enda stendur sá stutti sig
illa í hlutverkinu. Það er helst leik-
ur Scheiders sem er einhvers virði
en hann má muna sinn fífil fegurri.
-SMJ
Mynd-
bönd
Umsjón.
Sigurður M.
Jónsson
Hilmar Karlsson
Sjaldan hefur eins mikill stöðug-
leiki verið á toppnum eins og þessa
vikuna. Fimm efstu myndirnar
ha'.da allar sínum sætum. Það er
aftur á móti enginn stöðugleiki þar
fyrir neðan. Tvær nýjar myndir,
sem líklegar eru til vinsælda, koma
inn á listann. Báðar eru sakamála-
myndir, þótt ólíkar séu. Róman-
tíska spennumyndin Tequila Sun-
rise með Mel Gibson í aðalhlut-
verki fer í 6. sætið og hin rómaða
mynd Alan Parkers, Mississippi
Buming sem segir frá sönnu saka-
máli, fer í 8. sætið. Þá kemur inn á
hstann óvænt aftur gamanmyndin
Overboard er stingur sér inn á
milli nýju myndanna.
DV-LISTINN
1. (1) A Fish Called Wanda
2. (2) Twins
3. (3) Die Hard
4. (4) Willow
5. (5) The Accused
6. (-) Tequila Sunrise
7. (-) Overboard
8. (-) Mississippi Burning
9. (6) Dead Ringers
10. (7) Cocktail
★★Í4
Leiddur í gildru
■tHBmil
BIG TOP PEE WEE
Utgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Randal Kieiser.
Aðalhlutverk: Pee-Wee Herman, Kris
Kristofferson og Susan Tyrrell.
Bandarisk, 1988 - sýningartími 90 min.
Pee-Wee Herman er þekktur
grínisti í Bandaríkjunum sem slær
um sig í kvikmyndum eftir að hafa
gert það gott á sviði. Það getur ver-
ið að Bandaríkjamönnum fmnist
þessi uppskrúfaði náungi fyndinn
en undirritaður gat varla kreist
fram bros yfir myndinni sem fjallar
um mislukkaöan sirkusferil Pee-
Wee.
Kris Kristofferson leikur einnig
stórt hlutverk í myndinni. Hann
má muna sinn fífil fegri en hér leik-
ur hann sirkusstjóra sem giftur er
nokkurra sentímetra hárri konu.
-HK
ONASSIS
Útgefandi: Steinar hf.
Leikstjóri: Warris Hussein.
Aðalhlutverk: Raul Julia, Jane Seymo-
ur, Francesca Annis og Anthony Quinn.
Bandarisk, 1988 - sýningartimi 180 min.
(2 spólur).
Leyfð til sýninga fyrir alla aldurshópa.
Onassis var um tíma talinn rík-
asti maður heimsins. Og vegna þess
hversu mikið hann barst á var
hann ávallt mjög umdeildur mað-
ur. Saga Onassis-fjölskyldunnar er
engin gleðisaga. Þetta er saga um
einstakling sem notaði allar að-
ferðir til að verða ríkur og tróð á
fólki í eigin þágu.
í þessari tveggja hluta kvikmynd
sem heitir Onassis og hefur undir-
titilinn The Richest Man in the
World er meiri áhersla lögð á kon-
umar í lífi hans og samband hans
við þær en hvemig hann fór að því
að verða ríkasti maður heims.
Besti hluti myndarinnar er í byrj-
un þegar hann er ungur og kæru-
laus og hefur ekki áhyggjur af
neinu. Þaö breytist þegar Tyrkir
gera innrás í Grikkland og öll hans
fjölskylda er handtekin, meira að
segja faðir hans sem hafði þó reynt
að haga samböndum sínum þannig
að enginn myndi græða á að hand-
taka hann. Vegna kynna sinna af
tyrkneskum liðsforingja sleppur
Ónassis við fangelsisvist.
Hann flýr til Argentínu þar sem
hann græðir sína fyrstu milljón.
Upp frá því fáum við aðeins óljósa
hugmynd um það hvers vegna On-
assiss varð eins ríkur og raun bar
vitni.
Aðaláhersla er lögð á að sýna
samskipti hans við fyrstu eigin-
konu sína sem var dóttir ríks skipa-
eiganda, hið stormasama samband
hans við Mariu Callas og síðast en
ekki síst hjónaband hans og Jac-
queline Kennedy sem allur heim-
urinn stóð á öndinni út af á sínum
tíma.
Enginn efast um peningavit On-
assis. Hann varð ótrúlega fljótt rík-
ur, en það nægði honum ekki, hann
þurfti ávallt að fá það sem enginn
annar gat gert sér vonnir um. Eftir
að hafa sigrað Mariu Callas var
hann ekki ánægður fyrr en enn
stærri biti varð hans, ekkja forseta
Bandaríkjanna. Ólíkt því sem mað-
ur hafði búist við er ekki farið mild-
um höndum um Jacqueline
Kennedy. Hún hefur sína galla eins
og allir aðrir er koma við sögu.
Það er samt aðeins í byrjun sem
persónurnar eru lifandi, sérstak-
lega á Anthony Quinn góðan leik í
hlutverki föður Onassis. Eftir því
sem líður á myndina verða persón-
umar fjarlægari og þegar mynd-
inni lýkur er manni nokkurn veg-
inn sama um örlög þeirra. Einn
galli við myndina er Raul Julia í
hlutverki Onassis. Þeir sem þekkja
til vita að hann var mjög lítill mað-
ur.en hinn myndarlegi Julia gefur
okkúr falska mynd af Onassis.
-HK
3RD DEGREE BURN
Útgefandi: Háskólabió.
Leikstjóri: Roger Spottiswoode.
Aðalhlutverk: Treat Williams og Virginia
Madsen.
Bandarisk, 1988 - sýningartími 97 min.
Bönnuö börnum innan 12 ára.
3rd Degree Burn sækir mikið í
meistara sakamálamyndanna, Al-
fred Hitchcock, og undir styrkri
leikstjóm Roger Spottiswooode,
sem meðal annars gerði Under
Fire, skapast rafmagnað andrúms-
loft sem helst alla myndina.
Aðalpersónan er einkalöggan
Sam Weston sem getur sjálfum sér
rnn kennt að vera í mikilli ónáð hjá
lögreglunni þar sem hann starfaði
áður. Ekki er alltof mikið að gera
hjá honum og því grípur hann feg-
inshendi starf sem eiginmaður
fyrrverandi konu hans lætur hann
fá, en það er fólgiö í að fylgjast með
fagurri eiginkonu riks manns sem
fer ein í frí. Eiginmaðurinn gmnar
hana um að halda framhjá sér og
vill að fylgst sé með henni.
Það sem eiginmaðurinn veit ekki
er að Weston er sérstaklega veikur
fyrir fallegum konum og er það
ástæðan fyrir misjöfnu gengi hans
í starfi. Enda fellur Weston strax
fyrir eiginkonunni og áður en hann
veit af er hann ákæröur fyrir morö
á eiginmanni hennar....
3rd Degree Burn er hinn ágætasti
þriller/ Söguþráöurinn er flókinn
en þó aldrei svo að áhorfandinn
geti ekki rennt grun í endinn.
Treat Williams er vanur löggu-
hlutverkum og bætir hér ágætri
persónu við safn sitt. Weston er
veikur á svellinu og engin sérstök
hetja þótt haröur sé og heiðarlegur
og Virginia Madsen er tælandi og
fögur og leikur ekkjuna vel megnið
af myndinni en vantar nokkuð á
aö vera sannfærandi í lokin.
-HK
BURNING SECRET
Útgefandi: Arnarborg.
Leikstjóri: Andrew Birkin. Aðalhlutverk:
Fay Dunaway, Klaus Maria Brandauer.
Bresk. 103 mín. öllum leyfö.
Myndin gerist á heilsuhæli í
Austurríki skömmu eftir fyrri
heimsstyrjöldina. Þar hitta sendi-
herrafrú og sonur hennar dular-
fullan aðalsmann sem þau bæði
hrífast af. Hann á eftir að hafa mik-
il áhrif á líf beggja.
Það eru ekki mikil átök í kringum
þessa mynd sem byggist á kyrra-
lífsmyndum og fógru landslagi
öðru fremur. Þó að Brandauer og
Dunaway séu fær um að spenna
upp hlutverk (alveg fram í ofleik)
halda þau aftur af sér í þessari
mynd og veita hlutverkum sínum
fyrst og fremst fágun. Hlutverkin
verða þó engan veginn forvitnileg
sem er í raun einkenni myndarinn-
ar í heild. Hún ber þó yfir sér þokka
og er greinilegt að áhrifa Merc-
hant/Ivory-hópsins gætir hér.
-SMJ
BAGDAD CAFE
Útgefandi: Myndbox.
Leikstjóri: Percy Adlon. Handrit: Percy
og Elanor Adlon. Aðalhlutverk: Mar-
ianne Sagebrecht, Monica Calhoun,
George Aquilar, C.C. Pounder.
V-þýsk, 1988. 90 mín., öllum leyfö.
Það er sérkennilegt andrúmsloft
sem bærist í þessari mynd enda
ekki nema von þegar þess er gætt
að Þjóðverjar eru komnir til Amer-
íku að gera mynd. Myndataka og
lýsing er oft hin furðulegasta og
ýtir það undir þann fjarstæðu-
kennda frásagnarmáta sem hér má
finna.
Eftir rifrildi við eiginmann sinn
ákveður hin þéttvaxna Jasmin að
freista gæfunnar í eyðimörkinni.
Henni skolar fljótlega upp að litlu
kaffihúsi þar sem furðulegt fólk
hefur safnast saman. Þrátt fyrir
tortryggni í upphafi tekst henni að
vinna traust og ást flestra að lok-
um.
Bagdad Café mun vera fyrsta
mynd leikstjórans Adlon á ensku
sem ekki á nein þekkt afrek að
baki fyrir utan mynd að nafni Sug-
arbaby (ef einhver skyldi kannast
við hana). Hann leggur hér af staö
út í það erfiöa ferðalag að lýsa ólík-
um heimum og ólíku fólki. Það
tekst bærilega enda hefur hann
fengið ágæta leikara í hð með sér.
Framvinda myndarinnar er
óvenjuleg en þó þannig að hún vek-
ur ávallt forvitni. Persónurnar eru
ýkjukenndar en falla skemmtilega
að þeim furðuheimi sem hér er
kallaður fram.
-SMJ
★★
O
Ríkur og ófyrirleitinn
lA
f framandi kaffihúsi
Ófyndinn Pee Wee
★★
Ást á heilsuhæli