Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Qupperneq 3
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989.
19
Dans-
staðir
Artún,
Vagnhöfða 11
Gömlu dansamir fóstudagskvöld kl.
21-3 og laugardagskvöld kl. 22-3.
Hljómsveitin Danssporið leikur fyrir
dansi bæði kvöldin.
Casablanca,
Skúlagötu 30
Diskótek fóstudags- og laugardags-
kvöld.
Dánshöllin,
Brautarholti 22, s. 23333
Hljómsveitir á fjórum hæöum fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
da
Duus-hús,
Fischersiuidi, simi 14446
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld.
Fjörðurinn,
Strandgötu 30, simi 50249
Hljómsveit leikur fyrir dansi á fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
Danshúsið Glæsibær,
Álfheimum, simi 686220.
Hljómsveit Hilmars Sverrissonar
leikur fyrir dansi um helgina.
Gömlu dansarnir með Reyni Jónas-
syni á sunnudagskvöld.
Hollywood,
Ármúla 5, Reykjavík
Hljómsveitin Giidran leikur fyrir
dansi fostudags- og laugardagskvöld.
Hótel Borg,
Pósthússtræti 10, Reykjavik, sími
11440
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld. Borgarkráin er opin til kl. 24
báða dagana. Gömlu dansamir
sunnudagskvöld.
Hótel Esja, Skálafell,
Suðurlandsbraut 2, Reykjavik, simi
82200
Dansleikir fostudags- og laugardags-
kvöld. Lifandi tónlist. Opið frá kl.
19-1.
Hótel Island,
Ármúla 9, simi 687111
Sýningin „Söngleikir og rokkóperur"
fóstudags- og laugardagskvöld.
Stjómin leikur fyrir dansi.
Ásbyrgi
„Kvöldið er fagurt", kabarettsýning
Hauks Morthens ásamt Erlu Þor-
steinsdóttur, Jóhönnu Linnet og
hljómsveit. Haukur Morthens og
hljómsveit leika fyrir dansi
Hótel Saga
Hin vinsæla skemmtun Ómars Ragn-
arssonar, Þjóðarspaug í 30 ár, sýnd á
laugardagskvöld. Hljómsveitin Eins-
dæmi leikur fyrir dansi.
Keisarinn
v/Hlemmtorg
Diskótek fostdags- og laugardags-
kvöld.
Staupasteinn,
Smiðjuvegi 14D, s. 670347
Hljómsveit leikur fyrir dansi fóstu-
dags- og laugardagskvöld.
Tunglið og Bíókjallarinn,
Lækjargötu 2, simi 621625
Diskótek fostudags- og laugardags-
kvöld.
ölver,
Álfheimum 74, s. 686220
Opið fimmtudags-, fóstudags-, laugar-
dags- og sunnudagskvöld. Hljóm-
sveitin Hrím leikur um helgina.
ÖLVUHABJAKSTUR
jSÍSÍÖ*
Glymur:
Nazareth með hljómleika
Fyrir fimmtán árum fyllti breska
rokksveitin Nazareth Laugardals-
höllina og hélt tónleika sem í minn-
um eru hafðir. Þá var hljómsveitin
ein allra vinsælasta rokksveit Bret-
lands. Mikið vatn hefur runnið til
sjávar síðan og mikið breyst í popp-
heiminum en Nazareth er samt enn
starfandi með sömu mönnum og
gerðu garðinn frægan á áttunda ára-
tugnum.
Nýverið sendi Nazareth frá sér
hljómplötuna Snakes and Ladders.
Mun sveitin flytja lög af þeirri plötu
og einnig lög sem hljómuðu á öldum
ljósvakans á veimektarárum hennar,
lög eins og Love Hurts, Razamanazz
og Bad, Bad Boys.
Nazareth mun halda tvenna tón-
leika í kvöld og annað kvöld og hefj-
ast þeir kl. 23 bæði kvöldin. Gildran
mun hita upp fyrir Nazareth. Að-
göngumiðar eru seldir í öllum hljóm-
plötuverslunum Steina og í Glym og
kostar miðinn 2.000 kr. Sömu menn skipa Nazareth nú og þegar hljómsveitin kom siðast til landsins fyrir fimmtán árum.
Hollywood:
Rottan er komin
á loftið
Atriði úr Gretti.
DV-mynd Ægir Már
Grettir í Keflavik
Ægir Máx Káiasan, DV, Suðumesjum;
Leikfélag Keflavíkur frumsýnir í
kvöld söngleikinn Gretti eftir þá
Ólaf Hauk Símonarson, Þórarin
Eldjáni og Egil Ólafsson og hefst
sýningin kl. 21. Edda Þórarinsdótt-
ir er leikstjóri.
Um 30 manns taka þátt í sýning-
unni og hafa æfíngar staðið yfir í
tvo mánuði. Uppsetning á söng-
leiknum hefur kostað yfir eina
milljón króna. Formaður Leikfé-
lags Keflayíkur er Hjördís Áma-
son.
Hamingja í
Kjallara keisarans
Nýjasti skemmtistaður borgar-
innar er Kjallari keisarans sem er
við Laugaveginn. Þar er danstón-
Ust í heiðri höfð og er ætlunin að
uppákomur ýmsar komi til með að
setja svip á staðinn um helgar þeg-
ar hamingjan ríkir í kjallaranum.
Hjómsveitir og tískusýningar
verða í hávegum höfð. Plötusnúðar
eru þrír: Arhór Bjömsson, Hörður
Ýmir Einarsson og Þorsteinn
Högni Gunnarsson. Munu þeir
leggja áherslu á nýja danstónhst
og krydda hana með gömlum og
góðum lummum.
Hljómsveitin Loðin rotta er mætt
til leiks í Hollywood að nýju. Hún
leikur á efri hæð veitingastaðarins,
Rottuloftinu, um þessa helgi og
tvær þær næstu.
Loðna rottu skipa þeir Richard
Scobie söngvari, Sigurður Gröndal
gítarleikari og Ingólfur Guðjónsson
hljómborðsleikari. Allir gátu þeir
sér gott orð með hljómsveitinni
Rikshaw. Á bassagítar leikur Jó-
hann Ásmundsson, þekktastur fyr-
ir leik sinn með Mezzoforte, og
trommuleikari er Halldór G.
Hauksson sem leikur með Sinfó-
níuhljómsveit íslands, auk þess að
leika með Loðinni rottu.
Meðan á dvöl Rottumanna stend-
ur ætla þeir að kveðja til hðs við
sig ýmsa mæta söngvara og hljóð-
færaieikara sem koma fram sem
gestir á Rottuloftinu.
Loðin rotta hefur starfað í nokkra
mánuði og getið sér gott orö á ölkr-
ám og dansstöðum jafnt í höfuð-
borginni sem úti á landi. Leika þeir
félagar tónlist sem höfðar til ólíkra
aldurshópa.
Þessi mynd sýnir kartöfluna sem lendir í miklum ævintýrum.
Norræna húsið:
Kvikmyndasýning
fyrir böm
Tvær danskar bamamyndir
verða sýndar í Norræna húsinu á
sunnudaginn kl. 15. Fyrri myndin
heitir Eventyret om den vidimderl-
ige kartoffel og er teiknimynd. Ein
af „hetjum hversdagslífsins" er
aðalpersónan í teiknimynd þessari
sem lýsir á fróðlegan og skemmti-
legan hátt sögu kartöflunnar frá
því hún var fyrst ræktuð í Andes-
fjöUunum í Suður-Ameríku, löngu
áður en Evrópubúar komu þangaö,
og þar til hún er færð upp á disk
hjá danskri fjölskyldu. Sýningar-
tími myndarinnar er 24 mínútur.
Síðar myndin heitir Natterytter.
FjaUar hún um Hönnu, tólf ára
telpu sem blandar gjaman saman
draumi og veruleika. Hún fer í
vetrarfrí tU móðurömmu sinnar
sem býr uppi í sveit. Dvölin í sveit-
inni eykur á hugmyndaflug hennar
og ótta við hið óþekkta. Hún kynn-
ist jafnaldra sínum, Tómasi, og
saman heyra þau frásögnina um
hauslausa reiðmanninn sem er á
sveimi í nærhggjandi kastalar-
ústum. Sýningartími er 35 mín.
Sálin hans Jóns míns verður norðan heiða um helgina.
Sálin á Sauðárkróki
og Dalvík
Hljómsveitin SáUn hans Jóns
míns heldur áfram hljómleikafór
sinni um landið þessa helgi.
Að þessu sinni sækir sveitin
Norðlendinga heim. Á fostudags-
kvöldiö verður leikið fyrir dansi í
félagsheimilinu Bifröst á Sauðár-
króki og á laugardagskvöldið verö-
ur hljómsveitin á Dalvík þar sem
leikið verður í Víkurröst.
Á báðum stöðum mun hljóm-
sveitin meðal annars kynna lög af
plötunni Hvar er draumurinn? sem
væntanleg er á markað innan
skamms.