Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Qupperneq 5
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989. 21 s í íslensku óperunni: íikar síðast nú nýverið með Jessye Norman og nokkrar plötur með Olaf Bar. Parsons er heiðursfélagi í bæði Royal Academy og GuildhaU School of Music og aðili að Royal College of Music. Hann hefur hlotið sérstaka viðurkenningu frá Elísabetu Englandsdrottningu fyrir framlag sitt til tónlistarmála. Aðgöngumiðar eru seldir í íslensku óperunni. irmyndir einkasýning Aðalheiðar en hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin stendur er opin frá kl. 14-20. Fjögur dansverk í Iðnó Lára Stefánsdóttir og hany Hadaya sjást hér dansa i verkinu Orante. Haldið verður áfram að sýna Fjögur dansverk, Pars Pro Toto í Iðnó um helgina, en þetta mun vera í fyrsta skipti sem sérstök danssýn- ing er sett upp þar. Að Paris Pro Toto standa félagar úr íslenska dansflokknum og fleiri. Verða sýn- ingar á fostudags- og laugardags- kvöld kl. 20.30. Verkin fjögur eru eftir fjóra höf- unda sem hafa ólíkan bakgrunn. Markmið sýningarinnar er að fanga ólika strauma nútímadans- ins í sjálfstæð verk sem mynda heild. Enda er Pars Pro Toto komið úr latínu og þýðir hluti fyrir heild. Dansarar eru Auður Bjarnadótt- ir, Birgitte Heide, Friðrik Thorar- ensen, Björgvin Friðriksson, Helga Bernhard, Hany Hadaya, Guð- munda Jóhannesdóttir, Katrín Þórarinsdóttir, Ingólfur Björn Sig- urðsson, Lálja Ingvarsdóttir, Lára Stefánsdóttir, Margrét Gísladóttir og Ólafía Bjamleifsdóttir. Einnig koma fram leikararnir og hljóð- færaleikararnir Árni Pétur Guð- jónsson, Jón Aðalsteinn Þorgeirs- son, Richard Korn og Óskar Ing- ólfsson. Málþing Trésmiðafélags Reykjavíkur: Verkalýðshreyfing á nýrri öld Trésmiðafélag Reykjavíkur, sem er 90 ára um þessar mundir, boðar til málþings laugardaginn 11. nóv- ember kl. 12.30-18.00 undir yfir- skriftinni Verkalýðshreyflng á nýrri öld. Á málþinginu munu sjö einstakl- ingar flytja stutt erindi um efnið og síðan munu fjórir þeirra sitja við pallborð og taka þátt í alménn- um umræðum. Pallborðsumræð- um stýrir Stefán Jón Hafstein út- varpsmaður. Þeir sem flytja erindi eru: Ás- mundur Stefánsson, forseti ASÍ, Guðmundur J. Guðmundsson, for- maður Verkamannasambands ís- lands, Sigurður Líndal lagaprófess- or, Svanhildur Kaaber, formaður Kennarasambands íslands, Víg- lundur Þorsteinsson iðnrekandi, Vilborg Þorsteinsdóttir, formaður verkakvennafélagsins Snótar, og Ögmundur Jónasson, formaður BSRB. Málþing Trésmiðafélagsins er opið öllu áhugafólki um málefni launafólks og stéttarsamtakanna meðan húsrúm leyfir. Tilgangur málþingsins er að ræða stöðu verkalýðshreyfmgarinnar og starfshætti með tilliti til næstu framtíðar. Landvemd: Rádstefna nm umhverfisráðuneyti Landvernd mun halda ráðstefnu um umhverfisráðuneyti í Félags- heimih Kópavogs. Ráðstefna hefst kl. 13.30 og er öllum opin. Daginn eftir verður aðalfundur Land- vemdar á sama stað. Framsögumenn á ráðstefnunni verða: Oddmund Graham, ráðu- neytisstjóri norska umhverfimála- ráðuneytisins. Hann mun segja frá uppbyggingu þess ráðuneytis en Normenn hafa haft sérstakt ráðu- neyti fyrir umhverfismál frá 1972. Júlíus Sólnes ráðherra mun gera grein fyrir fyrirætlunum íslenskra ráðmanna um verkefnasvið vænt- anlegs ráðuneytis hér á landi. Hall- grímur Indriðason framkvæmda- stjóri Skógræktarfélags Eyfirðinga mun velta upp spurningunni hvort skógrækt á Islandi sé landbúnaður eða umhverfismál og Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt seg- ir frá hugmyndum áhugamanna um verkefni þessa ráðuneytis. Það er von Landvemdar að sem flestir, lærðir og leikir, sem áhuga hafa á umhverfi og náttúruvernd komi á ráðstefnuna og taki þátt í umræðum um þetta mikilvæga málefni. Bíósalur MIR: lifi Mexíkó Sergei Eisenstein. Lifi Mexíkó nefnist kvikmyndin sem sýnd verður í bíósal MÍR, Vatnsstíg á sunnudaginn kl. 16. Mynd þessi er byggð á hugmyndum og myndefni sem Sergei Eisenstein, kvikmyndatökumaðurinn Edward Tisse og kvikmyndaleikstjórinn Grígorí Alexandrov söfnuðu á ferð sinni til Mexíkó 1932. Eisenstein auðnaðist aldrei að vinna úr efnivið sínum en Alex- androv hefur sett þessa mynd sam- an úr því myndefni sem til var. Skýringar eru á engku með myndinni. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Erindi í Neskirkju Dr. Hjalti Hugason lektor flytur erindi um trúarllf íslendinga áöur fyrr í safiiað- arheimili Neskirkju tvo næstu sunnu- daga, 12. og 19. nóvember. Fyrra erindið ber yfirskriftina „Þá þú gengur í Guðs hús inn“ og fjallar um guðsþjónustuvald í kirkjum. Síðara erindið fiallar um guð- rækni á heimilum forfeðra okkar. Erind- in er um sama efni og þáttur dr. Hjalta í ritverkinu „íslensk þjóðmenning - trú- arþættir" sem nýlega er komið út. Dr. Hjalti Hugason lauk embættisprófi í guö- fræði ffá HÍ árið 1977 og doktorsnámi í kirkjusögu í Uppsölum 1983. Hann er nú lektor við Kennaraháskóla íslands. Er- indin hefjast að lokinni guðsþjónustu kl. 15.15. Veitingar verða á boðstólum. Öll- um er að sjálfsögðu heimill aðgangur. Tónleikar Tónlistardagar Dómkirkjunn- ar Tónleikar Dómkórsins verða í Dómkirkj- unni laugardaginn 11. nóvember kl. 17. Tónleikamir verða einnig á sunnudaginn 12. nóv. kl. 17 og verður þá frumflutt m.a. kórverk eftir Jónas Tómasson. Flytj- endur verða auk Dómkórsins Margrét Bóasdóttir, Ami Arinbjamarson og Jos- eph Ognibene. Stjómandi Dómkórsins er Marteinn H. Friðriksson. Ferðalög Útivist um helgina Dagsferð sunnudag 12. nóv. Skemmtileg gönguleið í landi Mosfells- bæjar: Reykjaborg - Æsustaðafiall. Brottfór kl. 13 frá Umferðarmiðstöð, bensinsölu. Stoppað við Árbæjarsafn og í Mosfellsbæ við kaupfélagið. Kvöldferð mánud. 13. nóv. Tunglskinsganga og fjörubál á Álfta- nesi. Brottfór kl. 20 frá Umferðarmið- stöð-bensínsölu Ferðafélag íslands Dagsferð sunnudag 12. nóv. kl. 13 Mosfell. Ekið að Hrísbrú í Mosfells- dal og gengið þaðan á Mosfell (276 m) Létt gönguferð. Munið hlý föt og þægilega skó. Brottfór frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir böm að 15 ára aldri. Verð kr. 600. Ath: Kvöldvaka verður í Sóknarsainum mið- vikudaginn 22. nóvember nk. Leikhús „Láttu ekki deigan síga, Guðmundur“ Leikfélagið Allt milli himins og jarðar í Verslunarskólanum sýnir leikritið „Láttu ekki deigan síga, Guðmundur" eflir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, sunnudaginn 12. nóv., mánud. 13. nóv. og miðvikud. 15. nóv. Sýnt er kl. 20.30 öll kvöldin í Verslunar- skólanum, Ofanleiti 1. Litli leikklúbburinn ísafirði friunsýnir Þrjá ærslaleiki í félagsheimil- inu í Hnífsdal laugardaginn 11. nóvember kl. 21. Einþáttungamir em 15. Þetta er frumflutningur þessara verka á íslandi en þýðandi er einn félagi Litla leikklúbbs- ins, Guðjón Ólafsson. Er þetta í þriðja sinn sem L.L. frumflytur verk sem hann hefur þýtt. Leikstjóri sýningarinnar er Ámi Blandon. Önnur sýning verður sunnudaginn 12. nóvember ki. 21. Ræðukeppni JC Hafnarfjarðar Sunnudaginn 12. nóvember mun fara fram ræðukeppni milli JC Hafnarfiarðar ogJC Akureyrar í fyrstu umferö mælsku- og rökræðukeppni JC íslands. Keppnin verður háð í félagsmiðstöðinni Vitanum við Strandgötu í Hafnarfirði og hefst stundvislega kl. 14. JC félagar og aðrir áhugamenn um ræðumennsku em ein- dregið hvattir til að mæta á spennandi keppni. Rætt verður um tillögu JC Hafn- arfiarðar, þar sem þeir leggja til að ald- urstakmörk innan JC hreyfingarinnar veröi lögð niður. Skaftfellingafélagið efnir til kvikmyndasýningar og kaffisölu í Skaftfellingabúð, Laugavegi 178, sunnu- daginn 12. nóvember kl. 14. íþróttafélag fatlaðra í Reykjavík verður með kökubasar í Blómavah í Sig- túni sunnudaginn 12. nóvember kl. 14. Kvenfélag Fríkirkjunnar í Reykjavík heldur sinn árlega basar á morgrm, laug- ardag, kl. 14 að Laufásvegi 13. A boðstól- um verða handunnir jólakransar, körfur og fleiri munir til jólagjafa, kökur og happdrætti. Tekið er á móti munum á basarinn í dag, fóstudag, í safnaðar- heimilinu frá kl. 17-21 og í fyrramálið frá kl. 9. Neskirkja -félags- starf aldraðra Samvemstund á morgun, laugardag, kl. 15 í safnaðarsal kirkjunnar. Guðrún Jónsdóttir syngur einsöng. Upplestur. Munið kirkjubíhnn. Dagur lyfjafræðinnar 1989 Lyf og aldrað fólk Laugardaginn 11. nóvember nk. gengst Lyfiafræðingafélag íslands fyrir Degi lyfiafræðinnar í stofu 101 í Odda, Háskóla íslands. Dagur lyfiafræðinnar ber að þessu sinni yfirskriftina Lyf og aldrað fólk og verður rætt um máhð frá ýmsum sjónarhornum. Dagskráin hefst kl. 13. Ollum, sem áhuga hafa á þessu efni, er heimU þátttaka. Fjarskipti ’89 sýning og kynning í söludeild Pósts og síma, Ármúla 27 í Reykjavík, verður sýrúng og kynning dagana 11., 13., 14., og 15. nóvember. A sýningunni verður fiölbreytt úrval fiar- skiptatækja, þar á meðal símatæki, síma- kerfi, telefaxtæki og farsímar. Gagna- ílutningsnet Pósts og sima verður einrúg kynnt. Þá fá gestir að kynnast nýjvmg hjá Pósti og síma, svoköUuðu boðkerfi. Þar er um að ræða sendingu skilaboða með tölum eða texta til UtUs tækis sem menn bera á sér. Ennfremur verður kynntur nýr farsími sem unnt er að tengja við telefaxtæki og símakerfi. Fjar- skipti '89 er sýning sem á sérstakt erindi við fyrirtæki. Starfsfólk söludeUdar mun veita leiðbeiningar og gefa ráð. Fyrir- lestrar verða fluttir, m.a. um boðkerfið nýja. Rithöfundurinn og íslands- vinurinn Síló heimsækir landið í dag kemur hingaö tU landsins íslands- vinurinn Mario Rodrigues Cobos, argent- inumaður sem þekktur er undir rithöf- undarnafninu SUo. Þessi þriðja heimsókn SUós er í tengslum við útkomu bókar hans „Að gera jörðina mennska", sem bókaútgáfan HUdur gefur út. Bókin hefur fengið góðar viðtökur í öðrum löndiun og seldist m.a. upp á einni viku á Spáni en þar var hún gelin út hjá einum stærsta útgefanda landsins, Plaza Y. Janes. Laug- ardaginn 11. nóvember kl. 12.30 mun hann árita bókina í Kringlunni. Mánu- daginn 13. nóvember mun Síló flytja fyr- irlestur á Kjarvalsstöðum. Þar fiaUar hann rnn efni bókarinnar og túlkun sína á Hávamálum og Völuspá sem undir- stöðu evrópskrar menrúngar. Tveir prestar vígðir á sunnudag Biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, vigir tvo guðfræðinga til prestsþjónustu á sunnudag, 12. nóv., í Dómkirkjunni og hefst athöfnin kl. 11. Vígsluþegar eru Bragi Jóhann Uigibergsson, kjörinn prestur í SiglufiarðarprestakalU, Eyja- fiarðarprófastsdæmi. Þar hefur sr. Vigfús Þór Árnason, sem nú hefur fengið veit- ingu fyrir GrafarvogsprestakaUi, Reykja- víkurprófastsdæmi, þjónað frá 1976. Bragi er 27 ára og lauk guðfræðiprófi frá Háskóla íslands sl. vor. Kona hans er Stefanía Ólafsdóttir kennari; Eirikur Jó- hannsson, kjörinn prestur í Skinnastaða- prestakalU, Þingeyjarprófastsdæmi, tek- ur við af sr. Sigurvin EUassyni, sem hef- ur þjónað prestakaUinu í 23 ár en lætur nú af störfum vegna aldurs. Eiríkur er 29 ára og lauk guðfræðiprófi nú í haust. Unnusta hans er Þóra Sigríður Ingólfs- dóttir háskólanemi. Sr. Ingiberg J. Hann- esson prófastur, faðir Braga lýsir vígslu. Leikfélag Reykjavíkur Sýningar í Borgarleikhúsi Ljós heimsins verður sýnt fóstudags-, tlaugardags- og sunnudagskvöld kl. 20 á Litla sviðinu. Á stóra sviðinu er Höll sumarlandsins sýnt fostudags-, laugardags- og sunnudagskvöld kl. 20. Frú Emilía, leikhús, Skeifunni 3 Haust með Gorki. Leiklestur á helstu verkum Maxims Gorki í leikstjórn Ey- vindar Erlendssonar. Sýnt í Djúpinu 11. og 12. nóvember kl. 15. Alþýðuleikhúsið verður með aukasýningu á leikritinu ís- aðar gellur sunnudag kl. 16. Nemendaleikhúsið sýnir Grímuleik laugardags- og sunnu- dagskvöld kl. 20.30. Þjóðleikhúsið frumsýnir Lítið fiölskyldufyrirtæki í kvöld kl. 20. Næstu sýningar á laugar- dags- og sunnudagskvöld kl. 20. Leikfélag Hafnarfjarðar sýnir Hafnarfiarðarrevíuna Leitin að týnda brandaranum í Bæjarbíói. Sýn- ingar verða á fóstudag, sunnudag og þriðjudag kl. 20.30. Miðapantanir í síma 50184 allan sólarhringinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.