Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.1989, Blaðsíða 7
23
FÖSTUDAGUR 10. NÓVEMBER 1989.
Valur mætir Raba Eto
í Evrópukeppninni
t .
- fjórir leikir í 1. deild karla í handknattleik um helgina
Jakob Sigurðsson og félagar hans i Val verða heldur betur að sýna
klærnar ætli þeir sér að slá ungversku meisturana Raba Eto Györ út
úr Evrópukeppninni.
Valur leikur síðari leik sinn í
Evrópukeppni meistaraliða gegn
ungversku meisturunum Raba Eto
Györ í Laugardalshöllinni á sunnu-
dagskvöld kl. 20. Fyrri leikinn
unnu Ungverjarnir með sex marka
mun, 29-23, svo Valsmenn þurfa
heldur hetur að sýna klærnar ætli
þeir'sér að slá Ungveijana út úr
keppninni. Heimavöllur í Evrópu-
keppni hefur mikið að segja og með
góðum stuðningi áhorfenda gætu
Valsmenn náð góðum leik og tryggt
sér áframhaldandi þátttöku.
í 1. deild karla í handknattleik
eru fjórir leikir um helgina. Hún
hefst í kvöld með leik KA og ÍBV á
Akureyri. Bæði þessi lið unnu góða
sigra um síðustu helgi og ætla sér
örugglega að halda áfram á þeirri
braut. Þrír leikjanna eru á morgun,
laugardag, kl. 16.30. Stórleikur er í
Garðabæ þar sem Stjarnan fær FH
í heimsókn. Bæði þessi hð eru tap-
laus í deildinni. Stjarnan hefur
unnið alla íjóra leiki sína til þessa
og hð FH hefur unnið fjóra leiki
og gert eitt jafntefli. ÍR og KR mæt-
ast í Seljaskóla og má búast við
hörkuviðureign. A Seltjarnarnesi
fá heimamenn í Gróttu hð HK í
heimsókn og verður áreiðanlega
ekkert gefið eftir í þessum botn-
slag.
í 1. deild kvenna eru fiórir leikir
um helgina. í kvöld leika í Hafnar-
firði FH og Víkingur kl. 19. Á morg-
un, laugardag, kl. 15, eru svo þrír
leikir. í Garðabæ mætast Stjarnan
og Haukar, í Laugardalshöh leika
KR og Fram og á Seltjarnarnesi fær
Grótta hð Vals í heimsókn.
Njarðvík fær UBK í heimsókn í
2. deild karla í kvöld kl. 20. Á
sunnudag mætast svo í Hafnarfirði
FH-b og Valur-b kl. 14.
Körfubolti
Ekkert verður leikið í úrvals-
deildinni í körfuknattleik þar sem
íslenska landshðið er í kepp.nisferð
í Bandaríkjunum. í 1. deild karla
eru fimm leikir um helgina. í kvöld
eru þrír leikir. Kl. 20.30 leika á
Akranesi ÍA og Léttir, kl. 20 leika
í Kópavogi UBK og Víkveiji og á
sama tíma leika á Laugarvatni
UMFL og UMFB. Á laugardag kl.
14 eru tveir leikir. í Grundarfirði
mætast Snæfell og ÍS og í Haga-
skóla leika Víkveiji og UMFB.
Blak
Keppni í meistaraflokkum karla
og kvenna í blaki liggur niðri um
helgina. Á Akureyri leikur KA síð-
ari leik sinn í Evrópukeppninni
gegn Strassen frá Lúxemborg.
Strassen vann fyrri leikinn, 3-0.
Leikurinn fer fram á laugardag og
hefst kl. 15.30 í íþróttahöhinni. Um
helgina verður leikið í yngri flokk-
um á Neskaupstað.
Fimleikar
Norðurlandamót drengja í fim-
leikum fer fram hér á landi í fyrsta
sinn. Mótið verður haldið á Laug-
arvatni og hefst á laugardag kl. 14.
Tveir íslenskir drengir, Guðmund-
ur Brynjólfsson og Jón Finnboga-
son, báðir úr Gerplu, munu keppa
fyrir hönd fslands. Mót þetta er
fyrir unga fimleikaiðkendur sem
ekki hafa keppnisrétt á alþjóðleg-
um vettvangi vegna aldurs.
Badminton
í kvöld og á morgun fer fram á
Akranesi svonefnt Atlamót í bad-
minton. Þetta mót er ætlað spilur-
um 21 árs og yngri. Á sunnudag fer
fram firmakeppni TBR og verður
leikið í TBR-húsinu.
Pílukast
Á morgun, laugardag, fer fram
seinni hluti forkeppni karla á ís-
landsmótinu í pílukasti og éinnig
fara fram forkeppni og undanúrsht
í kvennaflokki. Eftir þessa leiki um
helgina verður það ljóst hverjir
spila til úrshta um íslandsmeist-
aratitihnn um næstu helgi. Keppn-
in á morgun og á sunnudag hefst
kl. 10 og verður spilað í húsnæði
Fríklúbbsins að Súðarvogi 7.
f þróttir í
sjónvarpinu
íþróttaþátturinn í ríkissjónvarp-
inu hefst kl. 14 á laugardag. Frá kl.
14 til 15 verða sýndar myndir frá
tennismóti í Frakklandi, Evrópu-
keppninni í knattspyrnu og rall-
keppni. Kl. 15 verður sýndur í
beinni útsendingu leikur í ensku
knattspymunni, leikur QPR og Li-
verpool. KI. 17 verður sýnt beint frá
1. deild íslandsmótsins í hand-
knattleik og lýkur útsendingu kl.
18.
íþróttaþátturinn á Stöð 2 hefst kl.
17. Byrjað verður á síðustu mínút-
um í beinni útsendingu í einhveij-
um 1. deildarleikjanna sem fram
fara á laugardag. Síðan verða sýnd-
ar myndir frá leikjum Víkings og
Vals og KA og ÍBV. Klukkan 18.10
verður sýnt frá amerískum fótbolta
á íslandi en þar eigast við hð frá
tveimur fiölbrautaskólum. Klukk-
an 18.20 verða sagðar stuttar íþrótt-
afréttir og klukkan 18.35 verður
umraeða um íslenskan handknatt-
leik. íþróttaþættinum á Stöð 2 lýk-
ur síðan með úrslitum dagsins
laust fyrir klukkan 19.
Sýningar
Stofnun Árna Magnússonar
Handritasýning Stofnunar Áma Magn-
ússonar er í Árnagarði við Suðurgötu á
þriðjudögum, fimmtudögum og laugar-
dögum kl. 14-16.
Póst- og simaminjasafnið,
Austurgötu 11
Opið á sunnudögum og þriðjudögum kl.
15-18. Aðgangur ókeypis.
Vinnustofa Ríkeyjar,
Hverfisgötu
Þar eru til sýnis og sölu postulínslág-
myndir, málverk og ýmsir litlir hlutir.
Opið er á verslunartíma þriðjudaga, mið-
vikudaga, fimmtudaga og fostudaga og á
laugardögum kl. 10-16.
Þjóðminjasafnið
Safniö er opið alla daga nema mánudaga
kl. 11-16. í Bogasal stendur yfir sýning
sem ber yfirskriftina „Ljósmyndin 150
ára - saga ljósmyndunar á íslandi". Sýn-
ingin stendur til nóvemberloka og er að-
gangur ókeypis.
Myntsafnið á Akureyri,
Aðalstræti 58, s. 24162
Opið er kl. 13.30-17 alla daga vikunnar.
Rafn Stefánsson sýnir
| Bókasafni Kópavogs
í Bókasafni Kópavogs stendur yfir sýning
á blýantsteikningum og málverkum
Rafns Stefánssonar. Á sýningunni eru 17
myndir og er hún opin á sama tima og
bókasafnið, mánudaga til fostudaga kl.
10-21 og á laugardögum kl. 11-14 út nóv-
embermánuð.
Sýning í húsgagnaverslun
Kristjáns Siggeirssonar
FÍM-salurinn og húsagnaverslun Krist-
jáns Siggeirssonar standa að myndlistar-
kynningu í húsakynnum verslunarinnar
að Hestliálsi 2-1. Myndlistarmaður nóv-
embermánaöar er Björg Örvar. Björg
hefur haldið 7 einkasýningar. Auk þess
hefur hún tekið þátt i samsýningum hér
heima og erlendis.
Myndlistarsýning
á Landspítalanum
Helgi Jónsson sýnir vatnshtamyndir á
göngum spítalans til 11. nóvember nk.
Helgi er fæddur 1923 og byijaði snemma
að fást við myndUst og naut um skeið
tilsagnar Kristins Péturssonar, var í
MyndUstarskóla Félags íslenskra frí-
stundamálara (síðar MyndUstarskóla
Reykjavikur) á fyrstu árum skólans og
hefur á síðari árum verið þar nemandi í
ýmsum greinum.
Slunkaríki,
Isafirði
Guðbjartur Gunnarsson sýnir í Slunka-
ríki. Myndimar á sýningunni eru ýmist
hreinar grafíkmyndir eða þær eru unnar
með blandaðri tækni. AHar eru myndim-
ar handþrykktar með silkiprenttækni.
Sumar þeirra em síðan handUtaðar með
vatnsUtum, akríl- eða pastelUtum. Mynd-
imar 30 em aUar tíl sölu. Sýningin stend-
ur til sunnudagskvölds 19. nóvember.
Jasmin við Barónsstíg
VERSLUNIN HÆTTIR
Allar vörur með 30% afslætti af gömlu, góðu verði.
Jasmin sími 11625
10% AFSLÁTTUR
Eldhús-, bað- og fata-
ÍLitt -•* ifmf’ skápar. Komið og
skoðið úrval innrétt-
‘■i,;:;: „j, inga í sýningarsal okk-
ar að Síðumúla 32.
10% afsláttur.
INNRÉTTINGAR HF. Simi 678118 Opið mánud.-föstud. ki. 9-18, laugard. 11-15.
á veginn!
Blindhæð
framundan.
Við vitum ekki hvað
leynist handan við
hana. Ökum eins
langt til hægri og
kostur er og drögum
úr hraða.
Tökum aldrei
áhættu!
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
Trósmiðja Agústar Magnússonar
93-41330
utan vinnut. 93-41239 og 93-41137
BUÐARDAL
Arfeilsskilrúm =
fegurð + notagildi
ÞAÐ STYTTIST TIL JOLA
Söluumboð
Betri-kaup
Síðumúla 22, sími 686070
Sýning
laugardag og sunnudag
frá kl. 14-17.
t
1'