Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Side 3
MÁNUDAGL'R 15. JANÚAR1990.
léf
Urvalsdeildin 1 körfuknattleik í gærkvöldi:
UMFN hafði betur
í nágrannaslagnum
Valur vann mjög óvæntan sigur á
Tindastól frá Sauöárkróki í úrvals-
deildinni í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 83-68 eftir að staðan í leikhléi
hafði ve(rið 34-25, Val í vil.
Tindastóll komst í 0-10 og Vais-
menn fóru ekki í gang fyrr en sjö
mínútur voru af leik. Stig Vals: Chris
Berhends 39, Ragnar Jónsson 21,
Matthías Matthíasson 9, Ari Gunn-
arsson 9, Guðni Hafsteinsson 2,
Hannes Haraldsson 2, og Svah Björg-
vinsson 1. Stig Tindastóls: Sturla
Örlygsson 20, Bo Heiden 20, Valur
Ingimundarson 14, Pétur Sigurðsson
5, Sverrir Sverrisson 4, Björn Sig-
tryggsson 2, Ólafur Adolfsson 2, og
Stefán Pétursson 1.
Stórtap hjá ÍR
KR-ingar unnu stóran sigur á ÍR-
ingum í úrvalsdeildinni í Seljaaskóla
í gærkvöldi, 63-83, eftir að staðan í
leikhléi hafði verið 23-46. Stig ÍR:
Tommy Lee 20, Kristján Einarsson
9, Jóhannes Sveinsson 8, Bjöm Leós-
son 6, Eggert Garðarsson 6, Sigurður
Einarsson 6, Márus Amarsson 4,
Björn Bollason 2 og Bjöm Steffensen
2. Stig KR: Anatolí Kouvton 14, Birg-
ir Mikaelsson 12, Guðni Guðnason
12, Páll Kolbeinsson 10, Böðvar Guö-
jónsson 8, Matthías Einarsson 8,
Hörður Gauti Gunnarsson 7, Lárus
Ámason 6, og Axel Nikulásson 6.
Mikið skorað á Akureyri
Keflvíkingar sigraðu Þór á Akureyri
í gærkvöldi í miklum stigaleik,
104-106, eftir að staðan í hálfleik var,
50-59, fyrir Keflavík. Leikurinn var
lengst af í jafnvægi, Þór komst yfir,
94-87, en Keflvíkingar skoruðu 13
stig í röð. Þór átti þrjú skot til að
jafna á síðustu tíu sekúndunum en
tókst ekki. Stig Þórs: Jón Örn Guð-
mundsson 34, Dan Kennard 18, Kon-
ráð Óskarsson 17, Eiríkur Sigurðs-
son 17, Jóhann Sigurðsson 10, Björn
Sveinsson 4, Ágúst Guðmundsson 2,
Davíð Hreiðarsson 2. Stig ÍBK: Guö-
jón Skúlason 34, Falur Harðarson 23,
Sandy Anderson 20, Nökkvi Jónsson
9, Sigurður Ingimundarson 6, Albert
Óskarsson 6, Magnús Guðfmnsson
5, Einar Einarsson 2.
Stórsigur Hauka
Haukar unnu stórsigur á Reyni úr
Sandgerði, 55-90. Staðan í hálfleik
var, 29-41, fyrir Hauka. Hafnfiröing-
ar höfðu mikla yfirburði frá upphafi
til enda eins og lokatölur leiksins
gefa glöggt til kynna. Stig Reynis:
David Grisson 18, Ellert Magnússon
15, Jón Ben Einarsson 8, Helgi Sig-
urösson 4, Sveinn Gíslason 4, Einar
Skarphéðinsson 2, Sigurþór Þórar-
insson 2, Anthony Stissy 2. Stig
Hauka: Henning Henningsson 21,
Jonathan Bow 14, ívar Ásgrímsson
12, Jón Arnar Ingvarsson 9, Pálmar
Sigurðsson 7, Ingimar Jónsspn 7,
Reynir Kristjánsson 6, Eyþór Árna-
son 6, Tryggvi Jónsson 4, Ivar Webst-
er 4.
Auðvelt hjá UMFN
ísak Tómasson átti stórleik er Njarð-
vík sigraði Grindavík, 68-84, í
Grindavík í gærkvöldi. Staðan í hálf-
leik var 29-48 fyrir Njarðvík. Þetta
var fyrsti ósigur Grindvíkinga á
heimavelh í vetur. Njarðvík var mun
betri aðilimi ahan leiktímann. Stig
Grindavíkur: Guðmundur Bragason
20, Ron Davis 20, Rúnar Árnason 11,
Hjálmar Hallgrímsson 8, Marel Guð-
laugsson 5, Steinþór Helgason 4.
UMFN: Teitur Örlygsson 22, Patrick
Releford 22, ísak Tómasson 18, Jó-
hannes Kristbjörnsson 12, Friðrik
Ragnarsson 5, Friðrik Rúnarsson 3,
Kristinn Einarsson 2.
-SK/JKS/GS/GK/ÆMK/VR
A-riðill:
Keflavík.......18 14 4 1808-1493 28
Grindavík......18 11 7 1457-1427 22
Valur..........18 7 11 1464-1468 14
ÍR.............18 6 12 1401-1556 12
Reynir.........18 1 17 1236-1663 2
B-riðill:
KR.............18 16 2 1391-1225 32
Njarðvík.......17 14 3 1513-1392 28
Tindastóll.....18 8 10 1523-1501 16
Haukar.........18 8 10 1593-1476 16
Þór............17 4 13 1438-1618 8
Iþróttir
• Teitur örlygsson til vinstri var
stigahæstur Njarðvikinga i gær-
kvöldi og skoraði 22 stig gegn
Grindavík.
• Guðjón Skúlason vardrjúgur sem
fyrr og skoraði 34 stig á Akureyri
fyrir Keflvíkinga gegn Þór.
Útlendingar í
NBA-boltanum
Fátt hefur vakið meiri athygli í íþróttaheiminum en „innrás“
leikmanna frá austantjaldslöndunum í NBA. Að visu á þetta
mál nokkum aðdraganda og Portland hefur t.d. í nokkur ár
átt valréttinn að hinum fræga miðherja Sabonis frá Sovétríkj-
unum, sem nú leikur reyndar á Spáni. Þegar samþykkt var að opna ólymp-
íuleikana fyrir atvinnumönnum opnuðust flóðgáttirnar og nú leika tveir
Sovétmenn og þrír Júgóslavar í NBA. Einnig stóð tíl að sá 6., Júgóslavinn
Dino Radja, léki með Boston en vegna deilna við eigin hð, Jugoplastika
Split, verður ekki af því fyrr en næsta haust. Þessum leikmönnum hefur
auðvitað vegnað misvel en óhætt mun að fuhyrða að þeir hafi allir stað-
ið undir nafni og sumir vel það.
Zarko Paspalj
Hann leikur með San Antonio og
þrátt fyrir takmarkaðan leiktíma
og meiðsli hefur hann náð að festa
sig nokkuð í sessi hjá liðinu. En
óvíst er um framtíð hans hjá þessu
sterka hði sem trónir nú á toppi
NBA-deildarinnar. Það vakti mikla
athygli á sínum tíma þegar Paspalj
skrifaði undir eins árs samning við
San Antonio fyrir „aðeins" 325.000
dohara (19.825.000 kr.) en hafnaði
600.000 dollara samningi viö Real
Madrid!!!
Alexander Volkov
Hann leikur með Atlanta og það
er ekki auðvelt fyrir þennan rúss-
neska framherja (208 cm) að vinna
sér sæti sem framherji í liði með
þá Dominique Wilkins, Kevin Wih-
is, Antonie Carr o.fl. innan sinna
raða! En Volkov er þohnmóður,
leikur sínar 10 mínútur í leik og
skorar að meðaltali 4-5 stig. Þó átti
hann stjömuleik á dögunum og
skoraði yfir 20 stig.
Drazen Petrovic
sem leikur með Portland var senni-
lega þekktastur þessaraleikmanna
og lengi vel var óvíst hvort hann
losnaði frá Real Madrid, sínu fyrra
félagi. Eftir löng málaferli komust
hðin að samningi fyrir 1.150.000
dollara en gerði jafnframt samning
til 3 ára við Portland fyrir rúmar
3.000.000 dohara. Hann átti við
meiðsl að stríða sl. sumar og hefur
átt í erfiðleikum með að tryggja sér
stöðu í Portlandhðinu sem er á
mikfili uppsighngu. Þessi skemmti-
legi bakvörður, sem frægur var
fyrir langskot sín, hefur aðeins
skorað tæp 5 stig að meðaltah í leik
og það sem verra er, hittni hans
er rétt rúm 44% í venjulegum skot-
um og aðeins 29% í 3 stiga skotum
sem hann var svo þekktur fyrir.
Vonandi verður þess ekki langt að
bíða að Petrovic nái sér á strik.
Vlade Divac
Hann leikur meö Los Angeles La-
kers og er ætlað það hlutverk að
fylla skarð hins dáða Kareem Abd-
ul-Jabbars. Auðvitað er ekki rétt-
látt að ætla honum það og víst er
að mörg ljón eru á veginum m.a.
tungumálaerfiðleikar en óhætt
mun að fullyrða að Divac hafi svo
sannarlega komið á óvart og Pat
RUey sagöi nýlega í blaðaviðtah að
• Sarunas Marciulionis sem leik-
ur með Golden State Warriors.
Divac kæmi til með aö gegna miklu
hlutverki í meistaradraumnum
liðsins. Hann leikur nú að meðal-
tah 18 mínútur í leik en.síðustu 12
leiki hefur hann leikiö yfir 25 mín-
útur. Þessar mínútur notar hann
til að skora tæp 9 stig að meðaltah
og taka 7 fráköst. Ekki svo slæmt
af nýliða!! Til gamans má geta þess
hér aö félagar hans hjá Lakers fuh-
yrða að fyrstu óbrengluðu setning-
arnar sem hann gat sagt á ensku
hafi verið (í lauslegri þýðingu)
„Gefðu mér boltann, Magic“ og
„Komdu þér í burtu, Laimbeer,
helv.... þitt“!!!!
Sarunas Marciulionis
Hann leikur með Golden State
Warriors og er af flestum talinn sá
besti af „innrásarhðinu". Þessi
skemmtilegi bakvörður, sem er frá
Litháen, er mikill skotmaður meö
góða hittni (54% frábært!) og hann
er yfirleitt fyrstur inn á hjá Golden
• Drazen Petrovic leikur meö
Portland Trailblazers i NBA.
State fyrir Mitch Richmond (besta
nýhðann í fyrra) eða Chris Mulhn.
Hann leikur tæplega 20 mínútur í
leik og er 4. stigahæstur í hðinu
með tæp 12 stig að meðaltah í leik.
Mikil barátta var á mUli Atlanta
og Golden State um þennan frá-
bæra leikmann en Don Nelson
hafði betur og Marciulionis skrif-
aði undir 3 ára samning sem trygg-
ir honum 1.300.000 dollara á ári en
reyndar tekur sovéska ríkið 75%
svo hann heldur „aðeins" eftir tæp-
um 20 miUjónum íslenskra króna.
Það má þó vel lifa af því!!!
• Hér hefur aðeins verið talað um
austantjaldsleikmennina í NBA.
Auðvitað era margir fleiri og til
gamans látum við hér fylgja með
lista yfir leikmenn í NBA, fædda
utan Bandaríkjanna. Rétt er þó aö
taka fram að sumir þessara leik-
manna hafa tekið upp bandarískan
ríkisborgararétt, t.d. Rolando
Blackman 1985. -EB
• Vlade Divac tók við míðherja
stöðunni af Jabbar hjá LA Lakers.
2