Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 15.01.1990, Side 6
22 MÁNUDAGtJR 15: JANÚAR 1990. Iþróttir • Hér er Hannes Hilmarsson að leiðbeina yngsta nemandanum, Arnari Hallbjörnssyni, 10 ára. Arnar tilheyrir reyndar ekki þessum ald- ursilokki, en fékk að fljóta með, enda áhugasamur með afbrigðum. Byrj- endur eru með hvítt belti. DV-mynd Hson Umsjón: Halldór Halldórsson Fram meistari 2. flokks með miklum tilþrifum • Reykjavikurmeistarar ÍR i 3. flokki karla í innanhússknattspyrnu. Liðið er þannig skipað: Brynjar Arnarsson, Bjarki Stefánsson, Arnar Valsson, Arnar Jónsson, Aðalsteinn Richter, Helgi Hannesson, Kjartan Kjartansson, Guðjón Guðmundsson og Gunnar Gurfnarsson. Þjálfari er Kristján Guð- mundsson. DV-mynd Hson „Karate á auknum vinsældum að fagna, í það minnsta í Garðabæ. Hér æfa að staðaldri um 100 manns, þar af eru 40 byijendur. Aðsóknin er svo mikil að við urðum að vísa fólki frá. Þessir nemendur, sem eru nú að æfa, lofa mjög góðu og áhugi þeirra er mikill. Ég er viss um að þeir geta náð mjög langt haldi þeir áfram af sama krafti og hingað til,“ sagði Hannes Hilmarsson en hann var við kennslu fyrir byijendur þegar DV leit inn á æfmgu hjá karatedeild Stjörnunnar um áramótin. Hann sagði ennfremur að þeir nemendur, sem hann væri að þjálfa nú, væru í grunnkennslu eða 1. stigi en stigin væru 10 talsins fyrir ungl- ingaúlO kyu). Gaman að prófa eitthvað nýtt DV tók stúlkurnar tali eftir æfmguna og spurði þær hvað væri svona heill- andi við karate: „Þetta er mjög skemmtilegt og styrkjandi á allan hátt og gamán að prófa eitthvað nýtt,“ sagði Kristín Berghnd Valdi- marsdóttir. Stöllur hennar, Bryndís Garöarsdóttir og Elísabet María Stef- ánsdóttir, tóku undir þessi orð og bættu við að það væru allir í fótbolta eða handbolta. Þær hefðu allar spilað og æft handbolta en viljað breyta til. „Við ætlum að halda áfram og reyna að ná langt í íþróttinni," voru loka- orð stúlknanna. En hvað skyldi vera erfiðasta sparkið? „Það er „Yoga- Giri“, það er alveg bijálæðislegt en rosalega erfitt,“ var viðkvæði stelpn- anna. En nú gafst ekki lengri tími til að spjalla við stúlkurnar því að þjálfari þeirra kallaði á þær til að horfa á vídeómynd frá síðustu heimsmeist- arakeppni og slíka veislu var náttúr- lega engan veginn hægt aö láta fara fram hjá sér. Hson • Hluti af hinum stóra hópi sem stundar karate hjá Stjörnunni. Stúlk- urnar i aftari röð, frá vinstri eru: Kristín Berglind Valdimarsdóttir, El- ísabet María Stefánsdóttir og Brynd- ís Garðarsdóttir. Kennarinn, Hannes Hilmarsson, er annar frá vinstri í fremri röð. Aðrir eru Einar Einars- son, Viktor Davíö Sigurðsson, Þröst- ur Freyr Snæbjörnsson, Andri Ægis- son og Arnar Hallbjörnsson (10 ára). DV-mynd Hson Um 100 manns æfa karate í Garðabæ - litið inn á æfingu hjá Stjömunni - frammistaða ÍR-inga í Reykjavikurmótinu vekur athygli Tilþrif 2. flokks strákanna í Fram voru hreint stórkostleg í Seljaskóla sl. sunnudag en þá var leikið til úr- slita í Reykjavíkurmótinu í knatt- spymu innanhúss. Þeir sigruðu flest liðanna með miklum yfirburðum og unnu síðan KR í úrslitaleik, 6-3. KR-ingar stóðu sig nokkuð vel fram- an af leiknum en síðan ekki söguna meir. Staðan í hálfleik var 3-1 fyrir Fram. Tækni Framara er slík að það minnti einna helst á sirkusatriði, slík vom tilþrifin. Ljóst er að hér er í uppsiglingu stórÚð og verður gaman að fylgjast með framhaidinu. Mörk Fram skoruöu þeir Anton Markús- son 2, Ríkarður Daðason, Pétur Mar- teinsson, Guðmundur Gíslason og Guðbjartur Auðunsson. KR-liðið byijaöi nokkuð vel og skoruðu strákamir fyrsta mark leiksins en þeir áttu einfaldlega ekk- ert svar við fjölbreyttum leik and- stæöinganna. Þjálfari þeirra gerði og mistök í innáskiptingum, sem kost- aði í það minnsta eitt mark. Það gerði þó ekki gæfumuninn. KR-liðið er sterkt á pappírnum en að öllum lik- indum hafa þeir ekki imdirbúiö sig nógu vel í þetta sinn. Mörk KR gerðu þeir Ólafur Jóhannsson, Óskar Þor- valdsson, og Flóki Haildórsson. ÍR-ingar meistarar í 3. flokki Til úrslita í 3. flokki léku ÍR og Vík- ingur. Leikurinn var mjög spennandi alveg frá fyrstu mínútu tÚ þeirrar síöustu. Leikurinn var lengst af jafn í markatölu. Enþegar flautað var til leiksloka höfðu IR-ingar vinninginn, 6-5. ÍR-liðið var heilsteyptara og er sigurinn því réttlátur. Hjá Víkingum bar mest á Helga Sigurðssyni sem skoraði 3 mörk. Gauti Marteinsson 1 og Guðmundur 1. Mörk ÍR: Gunnar Gunnarsson 3, Kjartan Kjartansson 2, Amar Valsson 1. ÍR-ingar eru með góðan 3. flokk og em strákamir til alls vísir á leikárinu. Þessi liðskjarni varð Reykjavíkurmeistari 1986 (ut- anhúss) og náði 3. sæti á íslandsmót- inu (utanhúss) í 4. flokki 1988. Athygli vakti hin góða frammi- staða ÍR-inga í hinu nýafstaöna Reykjavíkurmóti. Félagið vann 2 meistaratitla og komust öll önnur karlalið félagsins í milliriðla og var ÍR eitt félaga sem hampaði þeim ár- angri. Það er mikill vakning innan félagsins um þessar mundir, ekki hvað síst er varðar yngri flokkana og ætti hinn nýi grasvöllur þeirra ekki að spilla fyrir á komandi sumri. Myndir af öðrum meisturum veröa að bíða næsta mánudags. -Hson • Reykjavíkurmeistarar Fram i 2. flokki karla. Aftari röó frá vinstri: Ólafur Orrason stjórnarmaöur, Pétur Marteinsson, Vilhjálmur Vilhjálmsson, Anton Markússon, Ríkharður Daðason, Þorsteinn Bender, Haukur Pálmason og Magnús Jónsson þjálfari. Fremri röð: Guðmundur Gíslason, Hrannar Hall- kelsson, Steinar Guðgeirsson, Friðrik Þorsteinsson, Guðbjartur Auðunsson og Þorri Ólafsson. DV-mynd Hson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.