Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 6. FÉBRÚAR 1990.
Fréttir
Ferðaskrifstofuslagurinn að byrja:
Sólarlandaferðir hækka
sama og ekkert í verði
- spönsk flugfélög sækja stíft í leiguflugið
Nú er kominn sá tími að ferða-
skrifstofumar fara að auglýsa
sumaráætlanir sínar. Er búist við
að flestar þeirra muni kynna verð
sólarlandaferðanna um næstu
helgi. Að vanda verður um harðan
slag milli skrifstofanna að ræða
enda þótt þær muni allar minnka
sætaframboð sitt frá síðasta ári.
Helgi Jóhannsson, forstjóri Sam-
vinnuferða, sagði í samtali við DV
í gær að verð á sólarlandaferðum
á þessu ári yrði mjög svipuð og í
fyrra. „Það verður fínt verð í boði,“
sagði Helgi.
Helgi sagöist vera með mjög áht-
legt tilboð frá Flugleiðum hf. í
leiguflugið næsta sumar. Hann
sagðist einnig vera með hagstæð
tilboð frá spönskum flugfélögum í
leiguflugið og til að mynda væri
nú staddurt hér á landi fulltrúi frá
einu slíku með tilboð í höndunum.
„Við hjá Samvinnuferðum höfum
ákveðið aö taka bara hagstæðasta
tilboöi sem við fáum. Viö höfum
enn ekki gengið frá neinum samn-
ingum, en erum með í höndunum
nokkur tilboð sem við erum að
skoða,“ sagði Helgi.
Ástæðan fyrir því að ferðaskrif-
stofumar geta boðið lítt breytt verð
í sólarlandaferðir í ár er meðal
annars sú að nú bjóðast mjög hag-
stæðir hótelsamningar á Spáni. Þar
hefur orðið slíkur samdráttur á síð-
ustu tveimur árum að hægt er að
ná hagstæðari samningum nú en
verið hefur um langt árabil. Og ef
ofan á bætast hagstæðir samningar
í leigufluginu ætti spá Helga Jó-
hannssonar um „fínt verð“ að ræt-
ast.
-S.dór
Flugvirkjar vinna við Boeing 737 þotuna sem Arngrimur Jóhannsson keypti at rikinu. Tæring kom í ijós eftir aö
þotan kom heim úr skoðun í Bandarikjunum. DV-mynd Ægir Már
■ *Jj Lf.. T 1 | | f I
V . • {/ '■
Tæring 1 stjómklefa „rikisþotunnar“:
Kostnaður við viðgerðina
talinn skipta milljónum
- 9000 vinnustunda skoðun í Bandaríkjunum nýlokið
Talið er að kostnaður ríkissjóðs
vegna óvæntrar viðgeröar á Boeing-
þotunni, sem það seldi Arngrími Jó-
hannssyni nú eftir áramótin, geti
numið 5 til 10 milljónum.
Áður en ríkið afhenti Amgrími
þotuna formlega í síðustu viku kom
fram tæring í áli í stjómklefa vélar-
innar. Enn er óljóst hver ber kostn-
aðinn því að þotan telst enn í umsjón
ríkisins
Tæringin er einkum í hliðum
stjómklefans og undir honum en
einnig kom fram aö bitar í gólfi á
klósettum vora tærðir í sundur.
Þrátt fyrir þetta er ekki talið aö þotan
sé hættuleg. Hún var nýkomin úr
skoðun 1 Bandaríkjunum þar sem
flugvirkjar lögðu 9000 vinnustundir
í allsherjarskoðun á véhnni. Þá
fannst engin tæring.
Emil Eyjólfsson, formaður flug-
virkjafélagsins og einn þeirra sem
unnið hafa við þotuna, sagði í sam-
tali við DV að í það minnsta hluti af
tæringunni hefði átt að koma fram
við skoðunina úti. Reiknað er meö
að viðgerðin hér taki allt aö hálfan
mánuð sem er mun lengri tími en
áætlað var þegar viðgerðin hófst.
Allt að fimmtán flugvirkjar frá Flug-
leiðum hafa unnið við þotuna.
Skoðunin, sem nú stendur yfir, er
gerð eftir kröfu frá bandaríska loft-
ferðaeftirlitinu sem vill að allar vélar
af þessari gerð verði skoðaöar. Fyrir
utan beinan kostnaö við viðgerðina
verða tafir á að þotan verði afhent í
leigu til Finnlands en þangað átti hún
aö vera komin.
-GK
Kron verður Mikligarður
Niðurskurður Qárlaganna kynntur í dag:
Hörð andstaða
fagráðherra gegn
hugmyndinni
Á ríkisstjómarfundi í dag mun
Ólafur Ragnar Grímsson fjármála-
ráðherra kynqa hugmyndir sínar að
niðurskuröi fjárlaga upp á einn milij-
arð króna. Eins og DV skýröi frá á
laugardaginn er komin upp mikil og
hörð andstaða fagráðherranna gegn
niðurskurðarhugmyndum Olafs
Ragnars. Þeir hafa hver á fætur öör-
um lýst því yfir að ekki sé hægt að
skera niöur hjá sér.
Steingrímur J. Sigfússon land-
búnaöarráðherra, Guðmundur
Bjarnason heilbrigðisráðherra, Jón
Baldvin utanríkisráðherra og Svavar
Gestsson menntamálaráðherra hafa
allir lýst því yfir aö þeir séu andvígir
niðurskurði í sínum ráðuneytum.
Hugmyndir Ólafs Ragnars ganga
út á það að skera niður í hlutfalli viö
heildarútgjöld ráðuneytanna. Eða
eins og hann sagði í samtali viö DV
að skera niður 50 til 100 milljónir á
nokkram stöðum en síðan um minni
upphæðir hér og þar.
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra hefur sagt í viðtali viö DV
að skorið verði niður fé tíl uppbygg-
ingar Bessastaðastofu. í það verk
áttu aö fara um 200 milljónir króna
í ár og má búast viö að það fé verði
skorið að mestu leyti niður. Svavar
Gestsson hefur sagt að hann leggi
stól menntamálaráðherra að veði
fyrir því að ekki verði skorið af við-
gerðarfé Þjóðleikhússins. Samt er
talið víst að það verði skorið niður
ef niðurskuröarleiðin verður á ann-
að borð farin. Þó af litlu sé að taka
mun einnig vera hugsað til að skera
niður fé til framkvæmda við Þjóðar-
bókhlöðuna.
Þá er ljóst að skorið verður niður
fé til végaframkvæmda, tíl Bygginga-
sjóðs ríkisins og Lánasjóðs náms-
manna. Einnig verður lagt tíl að
skera niður framkvæmdafé og mun
það koma harðast niður á byggingu
hafna og sjúkrahúsa í landinu. Og
svo eins og Ólafur sagði, minni upp-
hæðir hér og þar.
Viðbrögð ráðherranna viö hug-
myndinni að niðurskurði hjá hinum
ýmsu ráðuneytum era á þann veg
að ráðherraslagur er óumflýjanlegur
í máhnu. Gæti allt eins orðið til þess
að niðurskurðurinn verði minni en
stefnt er að og lán, innlend eöa er-
lend, tekin í staöinn. -S.dór
Bílaborg hf.:
Nýir hluthafar á leið inn?
„Fyrirtækið reynir nú að sjálf-
sögðu að bjarga sér,“ segir Haraldur
Jónsson, framkvæmdastjóri Bíla-
borgar hf., Mazda-umboðsins, en fyr-
irtækinu hefur verið synjað af
Skiptarétti Reykjavíkur um fram-
lengingu á þeirri greiðslustöðvun
sem það hefur haft síðastliðna tvo
mánuði og rann út á sunnudag.
Að sögn Haraldar Jónssonar eru
nú viðræður við bæði innlenda og
erlenda aðila um að koma inn í fyrir-
tækið sem nýir hluthafar. „Það er
ekkert ákveðiö í þeim efnum og
raunar eru þessar viðræður á viö-
kvæmu stígi, eins og gefur aö skilja."
-JGH
Stöö 2:
Hlutafé fyrri aðal-
eigenda greitt
Miklagaröi hf. hefur verið hreytt í
almenningshlutafélag. Félagið mun
yfirtaka allan verslunarrekstur
Kaupfélags ReyKjavíkur og nágrenn-
is. Hlutafé í Miklagarði verður aukið
um 200 til 250 milljónir króna. Það
er nú 15 milljónir. Samband ís-
lenskra samvinnufélaga hefur þegar
skrifað sig fyrir 100 milljónum króna.
Til stendur að fara í almenna hluta-
fjársöfnun. Rætt verður viö starfs-
fólk, félagsmenn í Kron, verkalýðs-
félög og fleiri aðila.
Nú eru um 500 manns á launaskrá
hjá Miklagarði. Þar af eru 300 fast-
ráðið starfsfólk. Engum hefur verið
sa|i upp vegna þessara breytinga.
A fiölmennum starfsmannafundi
var samþykkt svohljóöandi ályktun:
„Sameiginlegur fundur starfsmanna
Kron og Miklagarðs fagnar þeirri
ákvörðun aö rekstur þessara tveggja
fyrirtækja skuli nú endanlega hafa
veriö sameinaður í einu öflugu hluta-
félagi. Starfsfólkið heitir því aö leggja
sitt af mörkum til þess að árangurinn
veröisembestur.“ -sme
Fyrri aðaleigendur Stöövar 2, Olaf-
ur H. Jónsson, Jón Óttar Ragnarsson
og Hans Kristján Ámason ásamt
nokkram öðrum athafnamönnum
greiddu í gær 150 milljónir inn á hók
í íslandsbanka sem greiðslu á hlutafé
í Stöð 2. Frestur þeirra tíl að greiöa
þetta umsamda hlutafé rann út í
gær, 5. febrúar.
Þetta 150 milljóna hlutafé skiptist
þannig að Ólafur H. Jónsson lagði
fram 50 milljónir, Jón Óttar Ragnars-
son 15 milljónir, Hans Kristján Árna-
son 10 milljónir, Húsvirki hf. 26 millj-
ónir, Sólning hf. 18 milljónir, Teppa-
búöin 14 milljónir, Hörður Jónsson
verktaki, 15 milljónir og Hallgrímur
Sandholt 2 milljónir. -JGH