Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990. 3 Fréttir Afkoma togaraflotans 1989: Guðbjörg ÍS áfram í sérflokki ísfisktogara - Akureyrin og Örvar hæst frystitogara Guöbjörg ÍS var sem fyrr í algerum sérflokki ísfisktogara á síðasta ári, bæöi hvaö aflamagni og aflaverð- mæti viðkemur. Skipið veiddi 6.189 lestir í fyrra og brúttóverðmæti þess afla var 357,6 milljónir króna. Sá minni togaranna sem varð í 2. sæti er Breki VE sem fiskaði 5.586 lestir og brúttóaflaverðmætið var 214,5 milijónir króna. Af frystitogurunum var Akureyrin EA hæst með 6.247 lestir og aflaverð- mætið var 510,3 milljónir króna. Örv- ar HU varð í 2. sæti með 5.515 lestir og aflaverðmæti 453,1 milljón króna. Og svo furðulegt sem það er, þá eru engir aðrir frystitogarar fyrir ofan Guðbjörgu ÍS, hvaö aflaverðmæti viðkemur. Af stóru togurunum er útkoman best hjá Viðey RE sem veiddi 4.210 lestir og aflaverðmætið varð 242,6 milljónir króna. Ögri RE varð í 2. sæti með 2.454 lestir og aflaverðmæti upp á 220,3 milljónir króna. Ef allur togaraflotinn er tekinn kemur í ljóst að meðalskiptaverð- mæti á hvert kíló var í fyrra 33,36 krónur en var 27,06 árið áður. Aftur á móti varð meðalafli á hvern út- haldsdag minni í fyrra en áriö áður eða 12,3 lestir á móti 13,1 lest árið 1988. Meðalskiptaverð á hvern út- haldsdag var í fyrra 408.426 krónur en var áriö áður 347.236 krónur. -S.dór Atkvæðagreiðsla um kjarasamningana: Félögin hafa frest til 16. febrúar Meðalskipta- verðmæti skuttogaranna 1989 Minni skuttogarar 'I. Vestm. - Snæfellsnes 2. Vestfirðir 3. Norðurland 4. Austurland 1989 1988 Mismunur milliára 28,70 21,70 32,23% 30,44 25,73 18,31% 30,21 25,73 17,41% 33,22 26,97 27,92% !i. Meðaltal allra minni skuttogara 30,64 24,19 26,67% Stærri skuttogarar 1. Hafnarfjörður og Reykjavik 2. Akureyri 42,19 30,80 22,79 19,02 36,98% 19,78% 3. Meðaltal allra stærri togara 32,49 24,91 30,41% Aðildarfélög Alþýðusambandsins sem voru aðilar að kjarasamningun- um, sem gengið var frá aðfaranótt síðastliðins föstudags, hafa frest til 16. febrúar að láta atkvæðagreiðslu fara fram í félögunum um samning- ana. Eitt félag hefur þegar samþykkt samningana. Það er verkalýðsfélagið á Blönduósi sem samþykkti þá með 30 atkvæðum gegn 2. Eskfirðingar voru með fund í gær- kveldi, Verkalýðsfélagið Jökull á Höfn í Homafirði boðar fund í kvöld og í Neskaupstað er boðaður fundur á fostudaginn. Stóru verkalýðsfélögin á Reykja- víkursvæðinu hafa enn ekki ákveðið hvenær fundir verða haldnir um samninganan. Talið er að auðveldara verði að fá nýju kjarasamningana samþykkta út á landi en á höfuðborgarsvæðinu. Það er því ekki ólíklegt að félögin þar bíði fram á síðustu daga með að halda fundi til aö geta bent á að samning- arnir hafi verið samþykktir um allt land. -S.dór Meðaltal allra frystiskipa 53,65 45.85 17,01 Alljr togarar, meðaltal allt landið 33.36 27,06 23,23

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.