Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990. Utlönd Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna: Réttur flokksins til einræðis ekki í samræmi við umbætur Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna og leiðtogi kommúnistaflokksins, á fundi með kolanámumönnum á föstudag. A fundinum sagði forsetinn að kommúnistaflokkurinn gerði ekki tilkall til valdaeinræðis. Símamynd Reuter ZMikhail S. Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna og leiðtogi kommúni- staflokksins, hefur hvatt félaga sína í flokknum að láta af valdeinræði flokksins og ryðja þar með veginn fyrir tjölflokkakerfi í landinu. í ræðu sem forsetinn hélt á allsherjarfundi miðstjórnar flokksins í gær sagði hann að þróunin á stjórnmálasvið- inu gæti leitt til þess að aðrir flokkar en kommúnistaflokkurinn - sem verið hefur einráður í Sovétríkjun- um í rúm sjötíu ár - verði settir á laggirnar. Forsetinn sagöi að stjórn- arskrárlegur réttur flokksins til valdaeinræðis væri ekki í samræmi við úmbætur og gaf þar með í skyn að fjölflokkakerfi yrði tekið upp. En hann sagði einnig að í raun væri fjöl- flokkakerfi við lýði í Sovétríkjunum. Hann hefur áður sagt að fjölflokka- kerfi sé engin töfralausn og gefið þar með í skyn að kommúnistar vilji áfram vera ráðandi í sovésku þjóö- félagi. En fréttaskýrendur segja ræðu for- setans í gær, þar sem kynnt var uppkast að tUlögum sem veröur tekið til umræðu á fyrirhuguðu þingi flokksins, vera djarfasta kænsku- bragð hans á fimm ára valdaferli og fundur miðstjómarinnar tímamóta- fundur. Með ræðunni í gær hefur Sovétforsetinn lagt til að fallið verið frá þeim grundvallarkenningum stjómskipunar landsins sem veriö hafa við lýði frá því árið 1917 þegar rússneska byltingin átti sér stað. Fjölflokkakerfi? Samkvæmt fréttum Tass, hinnar opinbem fréttastofu, lagði forsetinn að flokksfélögum sínum að kasta frá sér áratugulöngum kreddum. Þróun- in kann að leiða til þess að aðrir stjómmálaflokkar verði settir á lag- girnar, sagði forsetinn á fundi með rúmlega þijú hundmð fulltrúum miðstjómarinnar. En íhaldssamari öfl á þinginu gagnrýndu forsetann og sögðu að slökun á aga hafi örvað stofnun „and-sósíalískra stofnana“. Þessar tillögur forsetans gefa í skyn að hann sé hlynntur því aö tek- ið verði upp fjölflokkakerfi í Sovét- ríkjunum eftir 72 ára stjóm komm- únista. Síðustu vikur hefur mátt merkja sívaxandi óánægju almenn- ings með einræði flokksins. Frétta- skýrendur segja að ummæli forstans geti orðið til þess að sovéskt þjóðfélag nái nágrönnum sínum í Austur- Evrópu en þar hafa umbótavindar blásið. Sovétríkin eru nú eina þjóðin í Austur-Evrópu þar sem ekki hefur verið lofað fjölflokkakerfi en þrátt fyrir þaö segja margir að umbótaá- ætlun Gorbatsjovs sé undirrót um- bótabylgju austantjaldsríkjanna. Forsetinn lagöi til að fyrirhuguðu flokksþingi verði flýtt og haldið í júní eða júlí næstkomandi í stað október eins og í fyrstu var áætlað. Á því þingi munu fulltrúar íhuga og grand- skoða allar reglur og lagabálka kommúnistaflokksins og má búast við að mikilsverðar ákvarðanir um framtíð flokksins verði teknar. Sjötta grein stjórnarskrárinnar I ræðu sinni á allsherjarfundinum í gær hvatti Gorbatsjov ekki til þess að sjötta grein stjórnarskrárinnar, sem tryggir valdaeinokun kommúni- staflokksins, verði afnumin. í grein- inni er kveðið á um að flokkurinn sé „leiöandi afl“ í þjóðfélaginu. En þrátt fyrir aö Gorbatsjov hafi ekki hvatt til þess að greinin verði felld úr gildi gaf hann í skyn svo vart verð- ur um villst að valdaeinræði flokks- ins sé úrelt við núverandi kringum- stæður. Gorbarsjov gaf í skyn róttæka upp- stokkun í forystuliði kommúnista- flokksins, þar á meöal að harðlínu- manninum Jegor Lígachev, verði vikið til hiiðar. Sagði forsetinn að breytinga væri þörf til að vernda umbætur frá þeim sem vildu þær feigar. En hann var orðfár um fram- kvæmd slíkrar uppstokkunar. í morgun var skýrt frá því í sovésk- um fjölmiðlum aö háttsettur íhalds- maður í flokknum, Leonid Bobykin, hafi sagt af sér. Bobykin, flokksleið- togi í Sverdlovsk, var andvígur um- bótahugmyndum Sovétforseta og einn þekktasti íhaldsmaður í mið- stjórn flokksins. Eins og við var að búast gagnrýndu bæði harðlínumenn og umbóta- sinnar forsetann fyrir tfllögur sínar og gáfu þar með til kynna að búast megi við harðvítugum deilum á kom- andi þingi. Tímamótafundur Tveggja daga fundur miðstjórnar- innar, hófst í gær, daginn eftir fjöl- menn mótmæli fyrir utan Kremlar- múra. Um tvö hundruð þúsund manns komu saman til að krefjast umbóta og að ráðamenn grípi til upp- stokkunar hið snarasta. Hvatning forsetans um svo viðamiklar breyt- ingar sem hann lagði tfl í ræðu sinni í gær kemur mitt í mikilli pólitískri og efnahagslegri ólgu; Gorbatsjov hefur ekki tekist sem skyldi að koma til framkvæmda efnahagsumbótum sínum, flokkurinn hefur misst stuðn- ing meðal almennings og þjóðern- iskröfur fara vaxandi. Reuter Dómari í íran-kontra málinu hefur nú fyrirskipað að Reagan, fyrrum Bandarikjaforseti, verði yfirheyrður og að yfirheyrslurnar verði teknar upp á myndband. Simamynd Reuter Dómari 1 íran-kontra málinu: Ronald Reagan verði yf irheyrður Ronald Reagan, fyrrum Banda- ríkjaforseti, bar fyrir sig í gær stjómarskrárlegan rétt sinn sem fyrrverandi forseti tfl að hindra að dagbækur hans yrðu lagðar fram í réttarhöldunum yfir John Po- indexter, fyrrum öryggisráögjafa. Dómari í iran-kontramálinu kvað upp þann úrskurð að yfirheyrslur yfir Reagan, teknar upp á mynd- band, myndu tryggja réttlát réttar- höld yfir Poindexter. Dómarinn fór hins vegar ekki fram á að Reagan kæmi fyrir réttinn. Dómarinn ít- rekaði einnig kröfuna um að Reag- an legði fram dagbækur sínar frá 1985 og 1986 um Iran-kontra málið og gaf honum frest fram á kvöld. Lögfræðingar Reagans sneru sér strax tfl réttarins til aö leggja áherslu á friðhelgi forsetans. Tals- maður Reagans, Mark Weinberg, sagöi í gær að lögfræðingar forset- ans fyrrverandi væru að kanna skipun dómarans um yfirheyrslur á myndbandi. Talið er að dagbækur Reagans og yfirheyrslur yfir honum gætu varpaö nýju ljósi á hlutverk hans í íran-kontra málinu. Þaö fjallar um leynflega sölu vopna til írans og flutning á ágóðanum til kontra- skæruliða í Nicaragua þegar Bandaríkjaþing hafði samþykkt bann við hernaöaraðstoð Banda- ríkjanna. Af þeim 184 spurningum, sem verjendur Poindexters vfldu leggja fyrir Reagan vegna málsins, samþykkti dómarinn 154. Reagan hefur hvað eftir annað fullyrt að honum hafi verið ókunn- ugt um aö kontraskæruliöar hefðu hlotið ágóðann af vopnasölunni. Verjendur Poindexters halda því hins vegar fram að Reagan hafi vitaö um eða heimilað þær aðgerð- ir sem Poindexter er ákæröur fyr- ir. Poindexter kemur fyrir rétt 20. febrúar. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.