Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Page 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990. Uflönd Enn í flokknum Rúmenski stjórnmálamaðurinn Silviu Brucan tilkynnti í gær að hann væri enn félagi i Þjóðffeisishreyfingunni. Hann heföi aðeins sagt sig úr framkvæmdaráði flokksins. Haft er eftir heimildarmanni nánum Brucan að hann veröi áfram yfirmaður utanrikísmálanefndar Þjóöfrelsishreyf- ingarinnar. Það var á sunnudaginn sem Brucan, einn helsti hugmyndafræðingur hreyfingarinnar, tilkynnti að hann segði sig úr forystu flokksins þar sem stjómmálin í Rúmeníu einkenndust af metnaðargimd og framagræögi. Auk þess væm höfðingjasleikjur áberandi. Bmcan hefur lýst því yfir að menntamenn eigi aö stjórna landinu og að verkameftn séu ihaldsafl í stjómmálum. Námsmenn vantreysta Bruc- an og segja að skoðanir hans séu i anda Ceausescus. Selja nærbuxur eftðr vigt í verslun einni í Japan er nú reynt aö auka veltuna með því aö bjóða nærbuxur, btjóstahaldara og sundfatnað til sölu eftír vigt, rétt eins og sælgæti. Verður grammið selt á þtjátíu krónur og þar sem margt af þessum fatn- aði er fiöurléttur geta viðskiptavinimir gert ráð fyrir góðum kaupum. Boesak heimsækir Mandela Skotiö var á breska sendiráðiö i Pretoriu á sunnudaginn. Tallö er aö ölgasinnaöir hægrí menn hafi verið aö mótmæla yfírlýstum stuöningi breskra yfirvalda við umbótastefnu de Klerks, forseta Suöur-Afríku. Simamynd Reuter Mannréttindafrömuðurinn Allan Boesak sagði í gær aö hann ætlaði að heimsækja blökkumannaleiðtogann Nelson Mandela í dag. Kvaðst Boesak vonast til að fá nánari fregnir af því sem kæmi í veg fyrir iausn Mandela. Boesak er prestur og forseti alþjóðlegra kirkjusamtaka sem eru með aösetur i Genf. Stjómin í Suður-Afríku hvatti í gær Mandela og Afríska þjóöarráðiö til að tefja ekki viðræðumar um sameiginlega framtíð svartra og hvíta í landinu. Menntamálaráðherra Suöur-Afríku, Stoffel van der Merwe, sagði að ekki væri réttur timi til að setja ný skilyrði. Samkvæmt fréttum hefur Mandela neitað að yfirgefa fangelsið á meðan neyðarlög em enn í gildi. Walter Sisulu, einn leiðtoga Afríska þjóðarráösins, sem sleppt var úr fangelsi fyrir nokkm, er væntanlegur til Suður-Afríku í dag frá Svíþjóð þar sem hann var í heimsókn hjá Oliver Tambo, forseta þjóðarráðsins. Talið er aö Sisulu komi með opinbert svar forystu ráösins við ræðu de Klerks forseta frá fóstudeginum. Morðtilraun á Grænlandi Tvitugur Grænlendingur var handtekinn um helgina í Aasiaat, sakaður um morðtilraun á stúdentagarðinum í bænum. Maðurinn tók þátt í veislu á stúdentagarðinum á föstudagskvöld en á miönætti var honum fleygt út þar sem hann hafði gengiö berserksgang. Meðal annars hafði hann brotið sjónvarp og nokkrar rúöur, aö sögn lög- reglunnar. Tveimur klukkustundum síöar sneri maðurinn aftur með afsagaða veiðibyssu. Hótaði hann að myrða þá sem höfðu hent honum út. Tókst honum aö hleypa af einu skoti áður en hann var yflrbugaður. Enginn varð fyrir skotinu. Lofar fátækum hjálp Rafael Angel Calderon heilsar stuðningsmönnum sínum. Sfmamynd Reuter Frambjóðandi sljómarandstöðunnar í Costa Rica, Calderon Foumier, sem ailar likur benda til að taki viö forsetaembættinu af Oscar Arias, hét þvi í gær að hann myndi hjálpa fátækustu þegnum landsins. Sam- kvæmt lögum getur Arias ekki boðið sig fram aftur. Þegar búið var að telja 90 prósent atkvæða í kosningunum á sunnudag- inn haföi Calderon, sem bauö sig fram fyrir Einingarflokk jafnaðar- manna, hlotið 51,3 prósent atkvæðanna en helsti keppinautur hans, Cast- illo úr Þjóðfrelsisfiokknum, sem er við stjóm, 47,2 prósent. Reuter Shamir lofar við- ræðum áfram örvæntingarfullur ísraeli reynir aö komast framhjá óeinkennisklæddum lögreglumanni aö flugvél þeirri sem kom meö særðu feröamennina til ísra- els i gær. Ættingjar mannsins voru meðal þeirra sem særðust í árásinni á langferðabifreiö í Egyptalandi á sunnudaginn. Símamynd Reuter Yitzhak Shamir, forsætisráðherra ísraels, hefur lofað að halda áfram friðartilraunum í Miöausturlöndum þrátt fyrir árásina á ísraelska ferða- menn í Egyptalandi á sunnudaginn. Egypska lögreglan handtók í gær Palestínumann sem tahnn er hafa verið einn þeirra hryöjuverkamanna sem myrtu níu ísraelska ferðamenn og særöu sautján aðra sem voru í langferðabifreið nálægt Kaíró. Tveir egypskir öryggisverðir biðu einnig bana við árásina. Þaö vakti athygli að Shamir skyldi ekki saka Frelsissamtök Palestínu- manna, PLO, um árásina. En aðstoð- arutanríkisráðherra ísraels, Benj- amin Netanyahu, sagöi að samtökin Heilagt stríð, önnur þeirra samtaka sem lýst hafa yfir ábyrgð á árásinni, væru í tengslum viö Fatah-hreyfingu Arafats innan PLO. í yfirlýsingu sinni frá Túnis for- dæmdu PLO árásina og hvöttu til að friöarviðræðum yrði flýtt. Palest- ínskir leiðtogar á herteknu svæðun- um hafa einnig fordæmt árásina sem þeir óttast aö ísraelskir öfgamenn geti fært sér í nyt. Likudflokkurinn, flokkur Shamirs, ákvað að fresta fundi miðstjórnar flokksins sem ráögerður hafði veriö á miövikudaginn en á þeim fundi haföi forsætisráðherrann hugsaö sér að brjóta á bak aftur alla andstööu gegn áætlununum um kosningar Palestínumanna á herteknu svæöun- um. Fremstur í flokki harölínu- manna er Ariel Sharon, viöskipta- og iðnaðarráöherra. Hann sfjórnaði innrás ísraela í Líbanon 1982 sem gerö var í þeim tilgangi að uppræta starfsemi palestínskra skæruliða þar. Sharon notaði í gær tækifærið til að réttlæta andstöðu sína gagn- vart tillögu um viðræður ísraela og Palestínumanna í Kaíró undir eftir- lití Egypta og Bandaríkjamanna. í gær virtist hklegt aö fundi utan- ríkisráðherra Bandaríkjanna, ísra- els og Egyptalands, sem fyrirhugaö- ur var um næstu helgi, yrði frestað. Reuter Slobodan Milosevic, forseti Serbíu: Engin málamiðlun möguleg Ráöamenn í Serbíu, stærsta lýð- veldi Júgóslvaíu, hétu því í gær að láta ekki af hendi til Albana eina tommu af landsvæði sjálfstjómar- héraösins Kosovo en þar hafa nú staðið yfir átök í tæpan hálfan mánuð. „Serbar hafa mátt þola nógu mikil svik og niðurlægingu og munu ekki samþykkja neina málamiðlun hvað varðar Kosovo- hérað,“ sagði Slobodan Milosevic, forseti Serbíu, í gær. Þijátíu hafa týnt lífi í átökum í héraðinu og eitt hundrað og tutt- ugu slasast. Þar eigast við Albanir, búsettir í héraðinu, og lögregla. Albanimir fara fram á aukna sjálf- stjórn, afsögn ráöamanna og póhtí- skar umbætur. Sumir krefjast þess aö héraöiö fái stöðu lýöveldis og verði sjöunda lýðveldi Júgóslavíu. En Milosevic, sem er serbneskur, hefur vísað á bug öllum málamiðl- unum. í gær sagöi hann í ávarpi sínu til forystumanna lýðveldisins að hver einasti íbúi Serbíu væri reiðubúinn að flytja tíl Kosovo tíl að koma í veg fyrir að Serbía yröi að láta af hendi land. Hann varaði við því að Serbar hefðu boðist til að fara „og veija serbneskar konur og börn“ í héraðinu. Þessi ummæli forsetans eru þau harðorðustu síð- an rósturnar hófust í Kosovo. Átökin í Kosovo hafa ýtt undir deilur Serbíu annars vegar og lýö- veldanna Slóveníu og Króatíu hins vegar. Yfirvöld í Slóveníu og Króa- tíu hafa harðlega gagnrýnt Serba. Alríkisstjómin hefur varað við því aö eining ríkjasambands Júgóslav- íu kunni að vera í hættu haldi svo fram sem horfir. Reuter Langar raöir mynduðust við vatnstanka í Beirút í gær þegar langþráð þögn féll yfir borgina eftir margra daga bardaga. En friðurinn var fljótt úti, i morgun var vopnahléð sem náðist i gær rofið. Simamynd Reuter Vopna- hlé rofið í Beirút Bardagar hófust í Beirút, höfuö- borg Líbanons, í morgun á nýjan leik og var vopnahlé þaö sem náöist milli stríösaöila í gær þar með rofið. Vopnahléð var einungis í gildi í átta klukkustundir. Talið er að allt að þijú hundruð manns hafi fallið og þrettán hundruð særst í bardögum kristínna í borginni síðustu daga og em þetta meö hörðustu átökum sem íbúar Beirút hafa séö. í fjöllunum austur af borginni átt- ust stríösaðilar - hermenn hliðholhr Aoun, hershöíðingja kristinna, og þjóðvarðlið Líbanons undir stjórn Geagea - við í morgun, sjöunda dag- inn í röð. Sjónarvottar segja að nú sé barist í návígi í borgarhluta krist- inna í Beirút. Þúsundir borgarbúa hafa lokast inni í húsum sínum, matarlausir og vatnslitlir og eru von- litlir um að friður sé í nánd. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.