Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990.
11
DV
Austur-Þýskaland:
Átök í
Leipag
- ný bráðabirgðastjóm samþykkt í gær
Hundruð austur-þýskra ungmenna
gengu gæsagang um götur Leipzig í
Austur-Þýskalandi í gærkvöldi,
hrópuðu „Sieg Heil“, slagorð gegn
gyðingum og brutu rúður. Rétt eins
og brúnstakkar Hitlers, sem áttu
þátt í að koma nasistum til valda á
fjórða áratugnum, lentu þeir í átök-
um við friðsama mótmælendur í
borginni. Um eitt hundrað þúsund
manns höfðu safnast þarna saman,
eins og þeir gera í hverri viku, til að
krefjast sameiningar þýsku ríkj-
anna. Að minnsta kosti tveir hlutu
meiðsl í þessum átökum.
Þá urðu einnig róstur þegar nokkr-
ir mótmælenda snerust gegn félög-
um í flokki hægri öfgamanna sem
þarna voru að aö dreifa flugritum.
Á stjórnmálasviðinu í gær tók að
lokum við samsteypustjórn komm-
únista og sfjórnarandstöðu og eru
þeir fyrrnefndu í minnihluta í stjórn-
inni. Er það í fyrsta sinn í sögu lands-
ins sem svo er.
Á þingi samþykktu þingmenn full-
trúa átta stjómmálahópa í hina nýju
bráðabirgðastjórn Hans Modrows
forsætisráðherra. Ráðherrarnir taka
sæti við hhð þeirra'26 ráðherra sem
þegar áttu sæti í ríkisstjórn þeirri
sem tók við af harðlínumönnum í
nóvember. Allir hinir nýju ráöherrar
í stjórninni eru fulltrúar þeirra hópa
sem nú eiga í viðræðum við stjórnar-
flokkana flmm. Hin nýja bráða-
birgðastjóm er þjóðstjóm andófsafla
og stjórnarflokka landsins og er ætl-
að að tryggja stöðugleika í Austur-
Þýskalandi þar til að afloknum kosn-
ingum 18. mars næstkomandi.
Reuter
Útlönd
Austur-þýsk ungmenni gengu um götur Leipzig í gær og trufiuðu frið-
samlega mótmælagöngu landa sinna sem þar voru til að krefjast sameining-
ar þýsku ríkjanna. Símamynd Reuter
. L'eádíefctísu!
HIGH-DESERT
BL0MAFRJ0K0RN
Úrval
tímarit fyrir alla
lm Su-Kyong á leið í réttarsal i
Seoul. Símamynd Reuter
Til yfir 190
borga
Frá Schiphol-flugvelli í
Amsterdam fljúga yfir 60
flugfélög til meira en 190
borga í öllum heimshlutum.
Eitt þeirra er hollenska
flugfélagið KLM sem
Arnarflug hefur aðalumboð
fyrir. Vegna sérstakra samn
inga við KLM getur Arnar-
flug boðið mjög hagstæð
fargjöld til allra heimshorna.
Tíu ára fangelsi
fyrir heimsókn
til Norður-Kóreu
Þrátt fyrir að yfirvöld í bæði Norð-
ur- og Suður-Kóreu leggi nú áherslu
á leita sátta var suður-kóreska náms-
konan Im Su-Kyong dæmd í gær í tíu
ára fangelsi fyrir aö hafa farið til
Norður-Kóreu án leyfis. Hún hafði
að engu bann yfirvalda í Seoul við
ferðum til Norður-Kóreu og fór þang-
að í fyrrasumar til að taka þátt í
heimsmóti æskunnar í Pyongyang.
Im fór sem fulltrúi róttækra náms-
mannasamtaka og var í Norður-
Kóreu í einn og hálfan mánuð. Hún
var handtekin samstundis er hún
sneri aftur heim í ágúst. Vinir henn-
ar og félagar hafa Utið á hana sem
sameiningartákn en það virtist ekki
hafa nein áhrif á dómarana í Seoul.
Henni og ferðafélaga hennar, prest-
inum Moon Kyu-Hyun, sem hlaut
átta ára fangelsisdóm, var gefið að
sök að hafa brotið lög sem kveða á
um að einungis stjórn Suður-Kóreu
eða þeir sem fengið hafa leyfi yfir-
valda megi hafa samband við Norð-
ur-Kóreu. Niöurstaða réttarins var
að Im og Moon hefðu verið blekkt til
að reka áróður fyrir yfirvöld í Norð-
ur-Kóreu sem væru staðráðin í því
að sigra suðrið með valdi og sameina
landið undir fána kommúnismans.
Stuðningsmenn og vinir hinna hand-
teknu mótmæltu hástöfum í réttar-
salnum þegar dómurinn var lesinn
upp.
Allt á sama
stað
Schiphol-flugvöllur hefur
um árabil verið kjörinn besti
tengiflugvöllur í heimi. Ein
ástæðan er sú að þar er allt
undir einu þaki og því
einstaklega auóvelt að fara
á milli véla. Fjölbreytni
þjónustu þeirrar sem
farþegar njóta er líka meiri
en annars staðar. Og í
fríhöfninni eru yfir 50.000
vörutegundir.
Sætisnúmer
alla leið
Ef þú notfærir þér
sérfargjöld Arnarflugs og
KLM er ferðin um leið eins
auðveld og hugsast getur.
Þú færð strax í Keflavík
sætisnúmer alla
leið á áfangastað
og þarft ekki aó
hugsa um farangur fyrr en
komið er á endastöð.
L.
Frá Amsterdam
um allan
heiminn
ARNARFLUG HF.
Lágmúla 7, sími 84477, Austurstræti 22, sími 623060,
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, sími 92-50300
TT