Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Qupperneq 13
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990.
13
Lesendur
„Gott væri að hafa banka opinn á laugardögum, segjum frá kl. 9.30-12,“ segir m.a. í bréfinu.
Bankalokun og vinnusvik
Ólöf Ólafsdóttir skrifar:
Bankaþjónusta hér á landi hefur
talsvert verið til umræðu undanfar-
ið. Aðallega er fólk að tala um vaxta-
mál, háa vexti og kostnað ýmislegan
sem bankastofnanir taka í þóknun
fyrir þjónustu - sem sumum fmnst
þó ekki vera of mikil. Ég ætla ekki
að dæma þann þátt sérstaklega,
nema hvað varðar afgreiðslutímann
hjá bönkum og öðrum innlánsstofn-
unum.
Það var þannig fyrir ekki mörgum
árum að bankar voru opnir einu
sinni í viku síðdegis, held milh kl.
17 og 19 og þá sparisjóðsdeildirnar
eingöngu. Þetta er liðin tíð, utan
hvað Landsbanki íslands og Spari-
sjóður vélstjóra hafa enn opið síðdeg-
is. - Landsbankinn sama dag og fyrr,
fimmtudaga, og Sparisjóðurinn á
fostudögum - og þá alveg frá því um
morguninn frá 9.15 til 18 að kvöldi.
Aðrir bankar, t.d. íslandsbanki og
Sparisjóður Reykjavíkur, veita ekki
þessa þjónustu. - Það eru því aðeins
tveir hankar sem hafa opið síðdegis
og það aðeins einn dag í viku hverri
hvor banki. Aðra daga er afgreiðslu-
tími banka aðeins frá kl. 9.15 til kl.
16. - Um helgar er engin bankaþjón-
usta svo ég viti. Það er mjög bagalegt
fyrir útlendinga yflr sumartímann.
Þeir geta hvergi skipt erlendum pen-
ingum sínum nema á hótelum og í
leigubílum. Minnir á gjaldeyrisvið-
skiptin í austantjaldslöndunum.
En svo er það vandamál okkar ís-
lendinga sjálfra sem ég ætla ekki að
gleyma og varðar bankalokunina kl.
16. Þessi venjulegi afgreiðslutími frá
9.15 til 16 þýðir að fólk, sem er í vinnu
alla virka daga, hefur engan tíma til
að sinna bankamálum sínum nema
í vinnu- og matartíma. Matartími er
nú orðinn aðeins hálftími víðast
hvar, svo hann nægir ekki til að fara
í banka, enda hópast fólk í bankana
á þessum tíma, svo að þar er mikil
þröng á þingi, einkum um mánaða-
mót.
Þetta opnunarkerfi bankanna, sem
nú er við lýði, skapar mikinn eril á
vinnustöðum og menn eru að fá að
skreppa í bankann í tíma og ótíma.
Af þessu hljóta að skapast talsverð
vinnusvik. En ekki er hægt að kalla
það öðru nafni að fara úr vinnu til
að sinna bankastörfum ef það er í
vinnutíma gert. Ég skora á forráða-
menn banka og innlánsstofnana að
koma málum þannig fyrir að allir
bankar séu opnir hvern dag vinnu-
vikunnar milli kl. 5 og 6 síðdegis.
Einnig væri gott að einhver banki
væri opinn á laugardögum, segjum
frá kl. 9.30-12. Það hlýtur að vera
hægt að koma slíku kerfi á og bjóða
upp á bankaþjónustu sem er í takt
við tímann.
Samkvæmt upplýsingum, sem les-
endasíða DV aflaði sér, mun vera
opinn eins konar gjaldeyrisbanki á
vegum Landsbankans á Hótel Loft-
leiðum og er hann opinn frá morgni
til kvölds hvern dag vikunnar.
KERTAÞRÆÐIR
ípassandi settum.
Leiðari úr stáibiöndu. Sferkur og þoiif
að leggjast ( kröppum heygjum. ViA-
nám aðeins 1/10 af viðnðmi
Margföld neistagaði.
Kápa sem deyflr fruflandl rafbylgjur.
5. leikvika - 3. febrúar 1990
Vinningsröðin:111 -X1X-X1X-2XX
1.120.086- kr.
1 var meö 12 rétta - og fær hann: 784.071 kr. á röö
25 voru meö 11 rétta - og fær hver: 11.5864 kr. á röð
Munið hópleikinn
- allar upplýsingar í síma 91 -688322.
j SSP&É& i ;
£*
Nú er hægt að hringja inn
smáauglýsingar og greiða
með korti.
Þú gefur okkur upp:
' ■■ - Nafn pitt og heimiiisfang,
sima, nafnnúmer og
S-pm&c>rt gildistfma og númer
mmm*t greiðstukorts.
Hámark kortaúttektar
í síma kr. 5.000,-
• .
_ ] SMÁAUGLÝSINGADEILD
j Aimm i ÞVERHOLTI 11
SIMI 27022
VfSA
Því ekki Tannhauser?
Einar Sturluson skrifar:
í framhaldi af umræðu um upp-
færslu á óperunni Manon Lescaut á
Listahátíð datt mér eftirfarandi í
hug. - í fyrra var hér hljómleikaupp-
færsla á einni fegurstu óperu Wagn-
ers, Tannháuser, sem misheppnaðist
að hluta vegna þess að hinn erlendi
tenór var illa fyrirkallaður.
Engu að síður er hér fyrir hendi
kór, þjálfaður í Tannhauser, svo og
íslenskir söngvarar með reynslu af
þessu verki. Mætti ekki færa þessa
óperu upp aftur með sama hætti? -
Það yrði bæði ódýrt og vinsælt.
Síðan mætti reyna að fá heims-
fræga Wagnertenóra, eins og René
Kollo eða Peter Hoffmann, til að vera
með. - Kristján Jóhannsson er hins
vegar ekki Wagnertenór og myndi
því ekki koma til greina við flutning
þessarar óperu.
Húsaleiguokur
í Reykjavík?
Leigjandi skrifar:
Ég veit um fólk sem leigir miðl-
ungsíbúð á 40 þús. krónur á mánuði.
Aö vísu vinna bæði hjónin úti en
ástandið er ekki gott hjá þeim. Þau
eru að gefast upp og tala um að flýja
land. - Þau munu vera fleiri ung-
mennin sem eru að reyna að stofna
heimili en verða fyrir barðinu á
húsaleigu, og henni hárri.
Hvenær ætlar ríkisvaldið að
sporna við hrikalegri húsaleigu sem
er að sliga margt fátækt fólk? Hve-
nær ætlar ríkisvaldið að skattleggja
þetta okur og sjá til þess að þeir sem
greiða leigu fái að telja hana fram
sem frádrátt á skattframtali. - Slíkt
er réttlætismál. Það er til skammar
fyrir ASÍ og BSRB að hafa ekki þessi
mál til umræðu í almennun kjara-
samningum og ná fram úrhótum í
málum leigjenda.
En betra er seint en aldrei. Ég skora
á ráðamenn ASÍ og BSRB að vakna
af dvalanum. Hjálpum þeim sem eru
neyddir til að greiða háa húsaleigu.
- Stöðvum landflóttann!
Þingraunir í raun
Haraldur Guðnason skrifar:
Áður en okkar menn á Alþingi
yfirgáfu leiksviðið og fóru í langa
jólafríið, sýndi sjónvarpið þá hug-
ulsemi að lyfta fortjaldinu eina
kvöldstund. - Jón krataforingi veð-
urtepptur heima, eða svo gott sem.
Því var verr hans vegna. Jón er
heimspólitíkus eins og ÓRG.
Nú langar þessa pólitísku pönk-
ara að rugla saman reytum, svo
mjög sem þeim hefur tekist að
minnka flokka sína. Ólafur gæti
lagt í bú með sér ljósálfa sína og
aðstoðarráðherra.
Tal Stefáns Valgeirssonar var þó
nokkuð skondið og minnti helst á
Ragnar Reykás - með stjórninni í
fyrri hluta ræðunnar - á móti í
hínum seinni. Illa var honum laun-
uð fylgispektin þegar mest á reið,
settur út af sakramenti í musteri
Mammons.
Tímabært hjá Borgurum að gera
kaup við „þrenninguna“. Bæði var
að þar var komiö hiö þráða tæk-
ifæri til ráðherradóms, sem varla
kemur aftur, og svo veitti nú ekki
af að fá tvo heimaráðherra. - Júlíus
fær vonandi sinn rétta ráðherratit-
il áður en 25% ríkisstjórn vor gefur
upp öndina. - Rennur mörgum góð-
um rekka til rifja lækkandi stjama
landsfeðra í könnunum, en flóa-
markaðsfólk er að nálgast efstu
þrep vinsældanna.
Nú eru margir okkar glápara
miðnæturþingfrétta í sjónvarpi all-
reiðir út í fjölmiðlavaldið. - Sá
prúði piltur, Ingimar, hættur. Eng-
inn veit hvað átt hefur fyrr en misst
hefur. - Nú er og næsta vonlítið að
Guðrún forseti SÞ hlaupi undir
hagga (eða út undan sér) með þing-
fréttir, því slík framtakssemi hefur
ill áhrif á geðheilsu sjálfstæðis-
manna. - Forseti lét það raunar
ekki á sig fá og var ægihress - að
sögn Tímans.
(Meira á morgun...)
HASLITANIR
OPIÐ LAUGARDAGA
HÁRGREIÐSLUSTOFAN
ÓÐINSGÖTU 2.
Sími 22138,