Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Page 24

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990. Sviðsljós Ólyginn sagði... Cher sem er oröin 43 ára tilkynnti í síðustu viku aö hún væri ófrísk, komin þrjá mánuöi á leið. Faðir- inn er gítarleikari hljómsveitar- innar Bon Jovi, Richie Sambora. Lýsti hún yfir mikilli ánægju meö gang mála hjá þeim og sagðist örugg um að Sambora yrði frá- bær faðir. Ekki var Sambora, sem er 30 ára, jafnákafur í gleðilátun- um og sagði þegar hann var spurður um hjónaband aö ekkert slíkt væri á döfinni. Cher á fyrir tvö börn; Chastity, sem er tvítug, og Elijah Blue sem er 13 ára. Illar tungur sögðu að bameign Cher væri í raun aðeins enn ein leiðin til að halda sér ungri en hún hef- ur ekkert verið feimin viö að segja frá yngingaraðferðum sem hún notfærir sér. Bill Cosby sem leikur hinn fullkomna föður í þáttum sínum og hefur skrifað bók um foðurhlutverkið varð að viðurkenna að ekkert samband væri lengur á milli hans og dóttur hans, Erinn, sem er 23 ára, og sagði að hún væri ekki velkomin á sitt heimili. Erinn, sem er næst- elst barna Cosbys, hefur átt við eiturlyfj avandamál að stríða og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir Cosbys hefur honum ekki tekist að venja hana af eiturlyfjunum. „Hún hefur aldrei viljað vinna og eftir að hún flutti að heiman hefur hún ekki tollað í neinni íbúð í meira en sex mánuði," seg- ir Cosby. Sean Connery varð mjög undrandi á dögunum þegar hann fékk fréttir af því að eitt vinsælasta vikurrit í Banda- ríkjunum, People, hefði valiö hann kynþokkafyllsta mann í heimi. Þessi úrslit eru samkvæmt lesendakönnun. Connery, sem er 58 átta ára gamall, sagði að hann hefði sjálfsagt verið ánægður með þennan titil þegar hann var að hefja leikferil sinn í James Bond myndunum en í dag yrði hann fyrst og fremst feiminn þegar minnst væri á titilinn viö hann. Eins og sjá má á þessari mynd koma sum listaverkin áhorfandanum spánskt fyrir sjónir. Það má kannski reyna aö leika sér inni i þessu furðuverki, gæti unga stúlkan verið að hugsa með sér. Listaverkið heitir Mungando og er eftir Germain Ngoma sem kemur frá Noregi. DV-mynd Brynjar Gauti Norræn myndlistar- samvinna Lars-Áke Engblom, forstöðumaður Norræna hússins, og eiginkona hans, Christina Engblom, ásamt tveimur sænskum listamönnum sem eiga verk á sýningunni, Jan Svenungsson og Cecilia Edefalk. í Norræna húsinu var á laugardag- inn opnuð samnorræna sýningin Aurora 3. Er hér um að ræða verk eftir tuttugu unga norræna mynd- listarmenn, fjóra frá hverju Norður- landanna. Sýningin kemur frá Norrænu lista- miðstöðinni á Sveaborg við Helsinki. Voru verkin valin af listfræðingum frá hverju landi og er markmiðið að sýna það sem er efst á baugi hjá yngstu kynslóð norrænna lista- manna. Sýningin verður í Norræna húsinu til 11. febrúar. Brekkurnar nýttar þegar snjórinn er til staðar Ljósmyndari DV var á ferð einn daginn í fyrri viku og rakst þá á þessa fjörugu krakka þar sem þeir voru að leika sér í brekkunni við Breiðagerö- isskóla en þar er ein fjölmargra smá- brekkna í Reykjavík sem krakkar nýta til hins ýtrasta þegar snjór er. Þeir hafa meira að segja gefiö ein- staka brekkum nafn. Má taka sem dæmi Krummabrekku sem er á milli Heiðargerðis og Miklubrautar. Brekkan er aldrei kölluð neitt annað þótt engin viti hver það var sem gaf henni nafn. Hér er komin glansandi rennibraut sem krakkarnir láta sig renna niður eftir. Athygli barnanna hefur beinst að Ijósmyndaranum og er veifað til hans. DV-myndirGVA Orri Vigfússon hefur komið viða við siðustu daga og var mættur á hátíð- ina. En hér heldur Ólafur H. Ólafsson á ávísun frá blaðamanni á Trout and Salmon. En ávísunina fékk greinarhöfundurinn fyrir grein um úthafsveiðarn- ar. Orri og Ingvi Hrafn Jónsson bíða spenntir eftir hvað sé að gerast. Árshátíð Stangaveiðifélags Reykjavíkur: Hinn sanni veiðiandi sveif yfir yötnunum „Árshátíðin tókst vel, verðlaunaf- hendingin var glæsileg og skemmti- atriðin voru góð. Veiðimenn og kon- ur skemmtu sér vel á hátíðinni," sagði Stefán Á. Magnússon, formað- ur skemminefndar Stangaveiðifélags Reykjavíkur, er 46. árshátíð félagsins lauk á Hótel Sögu um helgina. Átta bikarar og Gull og Silfur flugan voru veitt fyrir stóra fiska. í fyrsta skipti var veittur afreksbikar kvenna og hlaut Guðmunda Kristinsdóttir hann fyrir 19 punda lax sem hún veiddi á Skipakletti í Hvitá. Það var Stanga: veiðiárbókin sem gaf bikarinn. „Það er alltaf viss stemmning hér á þessari árshátíð, hér þekkjast margir vel og sumir hafa veitt mörg- um sinnum saman,“ sagði eldri mað- ur og sagðist aðeins veiða á maðk. Veislugestir skemmtu sér feiknavel Og áfram hélt geimið og því lauk og hér eru þau Lydia Guðmunds- skömmu seinna. dóttir og Þorlákur Jónsson. -G.Bender DV-myndir G.Bender

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.