Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990. Afmæli Valur Páll Þórðarson Valur Páll Þóröarson, fjármálastjóri Pennans sf., til heimilis aö Víkur- bakka 6, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Valur Páll fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í vesturbænum hjá móður sinni og stjúpa, Jóni Bjarna- syni, en faðir Vals Páls drukknaöi ásamt þrjátíu öðrum er vélskipið Þormóður fórst í febrúar 1943. Eftir barnaskólanám og nám við Gagnfræðaskólann á Hringbraut stundaði Valur Páll nám við Versl- unarskólann. Hann lauk verslunar- prófi 1959 og stúdentsprófi 1961. Valur Páll var sölumaður hjá Hit- un hf. 1962, fulltrúi auglýsingastjóra Morgunblaðsins 1962-65, starfsmað- ur hjá IBM við bókhald og áætlunar- gerð 1965-83, deildarstjóri Tjóna- og tryggingadeildar Hafskips hf. 1983-86, starfaði hjá Húsasmiðjunni 1986-89 og er nú fjármálastjóri Pennans sf. Valur Páll æfði knattspymu með KR á unglingsárunum og sat í stjóm knattspyrnudeildar KR1967-68. Þá hefur hann verið virkur í starfl Oddfellowreglunnar. Kona Vals Páls er Erla Þórðardótt- ir, f. 19.2.1938, félagsráðgjafi, dóttir Þórðar Oddssonar læknis og Guðnýjar Sigurbjömsdóttur Fann- dal frá Seyðisfirði. Dóttir Erlu og kjördóttir Vals Páls er Jónína Valsdóttir, f. 22.2.1959, sem nú stundar framhaldsnám í efnafræði í Kanada. Önnur börn þeirra Vals Páls og Erlu eru Kristín, f. 26.6.1961, tónmenntakennari við Vesturbæjarskólann, í sambýli með Andrési Guðmundssyni kennara; Snorri, f. 6.2.1963, kvæntur Jó- hönnu Rútsdóttur kennaranema og eiga þau tvo syni, og Eyrún, f. 6.7. 1976, nemi í foreldrahúsum. Alsystir Vals Páls er Kristín, hús- freyja og skrifstofumaöur við Heilsugæslustöðina í Keflavík, ekkja eftir Magnús Axelsson, for- stjóra Dráttarbrautarinnar í Kefla- vík. Hálfsystir Vals Páls er Þórhildur Jónsdóttir, læknaritari í Reykjavík. Foreldrar Vals Páls voru Þórður Þorsteinsson, f. 26.10.1903, d. 18.2. 1943, skipstjóri í Reykjavík, og kona hans, Kristín Pálsdóttir, f. 29.6.1908, d. 17.7.1984, húsmóðir í Reykjavík. Meðal föðurbræðra Vals Páls má nefna Þorstein, föður Ingva Þor- steinssonar náttúrufræöings, og Gísla, foður Þorsteins, kaupmann og málarmeistara. Föðursystir Vals Páls var Vilhelmína, kona Auðuns Sæmundssonar skipstjóra og móðir hinna landskunnu skipstjóra og aflaklóa, Auöunsbræöra. Þórður var sonur Þorsteins, út- vegsb. á Meiðastöðum í Garði, Gísla- sonar, b. á Uppsölum og síðar á Augastöðum í Hálsasveit, bróður Páls, langafa Kjartans Ólafssonar, bmnavarðar og skálds. Gísli var sonur Jakobs Blom, b. á Búrfelli, Snorrasonar „sterka“, prests og skálds á Húsafelli, ættfoður Húsa- fellsættarinnar, Bjömssonar. Móðir Gísla var Kristín Guð- mundsdóttir. Móðir Þorsteins var Halldóra, dóttir Hannesar Sigurðs- sonar, b. í Norðtungu, og konu hans, Sigríðar Jónsdóttur. Móðir Þórðar var Kristín Þorláksdóttir, b. á Hofi á Kjalamesi, Jónssonar. Móðursystir Vals Páls var Jónína, móðir Jóns Guðnasonar, sagnfræð- ings og dósents, og Bjarna, prófessor ogfyrrv. alþingsmanns. Kristín, móðir Vals Páls, var dótt- ir Páls, hreppstjóra og formanns í Nesi í Selvogi, Grímssonar, b. á Ós- eyramesi, Gíslasonar, formanns á Kalastöðum, Þorgilssonar. Móðir Páls var Elín Bjamadóttir, hrepp- stjóra á Óseyramesi, Hannessonar, b. á Baugsstöðum, Árnasonar, hreppstjóra á Selalæk á Rangárvöll- um, Örmssonar, prests á Reyðar- vatni, Snorrasonar, prests á Mos- felli í Grímsnesi, Jónssonar, prests í Grímsnesi, Snorrasonar, smiðs á Hæringsstöðum í Flóa, Jónssonar. Móðir Bjama hreppstjóra var Elín Jónsdóttir, hreppstjóra á Stokks- eyri, Ingimundarsonar, b. í Holti og síðar á Hólum á Stokkseyri, Bergs- sonar, hreppstjóra í Brattsholti, ætt- föður Bergsættarinnar, Sturlaugs- sonar. Móðir Elínar Bjamadóttur var Sigríður Guðmundsdóttir, b. og for- manns á Stéttum og síðar Óseyrar- nesi, Jónssonar, skipasmiðs á Ás- gautsstöðum, Snorraspnar, b. á Hóli í Stokkseyrarhreppi, Ögmundsson- ar, b. í Kotleysu, Snorrasonar. Móð- ir Sigríðar var Margrét Haagens- dóttir, Jens Möllers, beykis á Skúm- stöðum á Eyrarbakka. Móðir Kristínar Pálsdóttur og önnur kona Páls í Selvogi var Val- gerður Hinriksdóttir, b. og for- manns í Ranakoti, Jónssonar, yngra, b. og formanns á Óseyrar- nesi, bróður Guðmundar á Stéttum. Móðir Hinriks var Ólöf Þorkels- dóttir, skipasmiðs og hreppstjóra á Stóru-Háeyri, Jónssonar, b. í Mundakoti, Pálssonar. Móðir Ólafar var Valgerður Aradóttir, b. í Neista- koti á Eyrarbakka, Jónssonar, b. á Valur Páll Þórðarson. Eystri-Rauðhóli, Bergssonar, hreppstóra í Brattsholti og ættfóður Bergsættarinnar, Sturlaugssonar. Móðir Valgerðar var Guðríður Adolfsdóttir, hreppstjóra á Stokks- eyri, Petersen. Valur Páll tekur á móti gestum milli klukkan 17 og 19 á afmælis- daginn í Oddfellowhúsinu við Von- arstræti. Til hamingju með afmælið 6. febrúar 85ára Hellum, Vogum. Hann verður að heimanídag. ArnbjörgL. Jónsdóttir, Rauðagerði 18, Reykjavík. 50ára 80 ára Ásdís Magnúsdóttir, Álfhólsvegi 141, Kópavogi. Sigurlaug Ámadóttir, Hraunkoti, Bæjarhreppi. Jónína Guðmundsdóttir, Rauðalæk 47, Reykjavík. Margrét Guðmundsdóttir, 75 ára Holtagerði 43, Kópavogi. Boga M. Kristinsdóttir, Skarði 2, Skarðshreppi. 40 ára Brynhildur Baldvinsdóttir, Ásenda 1, Reykjavík. Guðmundur Einarsson, Móaflöt 24, Garðabæ, 70 ára Guðrún Gunnarsdóttir, Stórholti9,ísafirði. Guðrún Björnsdóttir, Brekastíg28, Vestmannaeyjum. ’ GylflOmarHeðmsson, Birkihlið 18, Reykjavík. Sigurbjörn Þorleifsson, 60 ára Þórdís Hjálmarsdóttir, Norðurbrún 1. SevluhrenDÍ. Brynjólfur Brynjólfsson, ■ Húsgögn Skápar,sófar,borð og bekkir, betri kaup þú varla þekkir. LeitaÓu ei um hæóir og hóla, heldur skaltu á okkur..... smAauglýsingar SÍMI 27022 Aðalsteinn Magnússon Aðalsteinn Magnússon, Sólvöllum 5, Akureyri, er sjötugur í dag. Aðalsteinn er fæddur í Litla-Dal í Saurbæjarhreppi í Eyjafirði. Hann gekk í bamaskóla í Saurbæjar- hreppi og stundaði nám við Ai- þýðuskólann á Laugarvatni vetur- inn 1938-’39. Hann hefur sveinspróf í ketil- og plötusmíði. Aðalsteinn var bóndi í Hvassafelli í Saurbæjar- hreppi 1946-’50 og bóndi á Stokka- hlöðum í Hrafnagilshreppi 1950-’54. Hann starfaði við járnsmíðar á Ak- ureyri í 19 ár, en síðustu 17 árin hefur hann unnið við verslunar- og framleiðslustörf hjá Kaupfélagi Ey- firðinga á Akureyri. Aðalsteinn kvæntist þann 2.6.1946 ÁmýjuBjarnadóttur, f. 28.1.1923, d. 22.9.1957. Foreldrar hennar vora Bjarni Sigurðsson, b. á Fjallaskaga og síðar í Lambadal í Dýrafirði, og kona hans, Sigríður Gunnjóna Vig- fúsdóttir. Böm Aðalsteins og Árnýjar era fjögur: Ragnheiður Sæunn, f. 5.2.1947, búsett á Akureyri, gift Leifi Hall- dórssyni, og eiga þau þijú böm. Helga Sigríður, f. 13.7.1949, búsett í Borgamesi, gift Guðmundi Guð- marssyni, og eiga þau þrjú böm. Magnús Jón, f. 9.12.1950, búsettur á Akureyri. Bjarni, f. 9.11.1952, búsettur á Grund i Eyjafirði, kvæntur Hildi Grétarsdóttur, og eiga þau fjögur börn. Aðalsteinn kvæntist í annað sinn þann 10.10.1970 Sveinbjörgu Páls- dóttur frá Vatnsenda, f. 28.2.1918, d. 25.9.1987. Sveinbjörg átti fjögur börn frá fyrra hjónabandi. Foreldr- ar hennar voru Páll Jónsson og Stef- anía Einarsdóttir. Alsystkini Aðalsteins vora fjögur: Hildigunnur, búsett á Akureyri; Ragnheiður, dó ung; Ámi, látinn, bjó á Akureyri; og Freygerður, bú- settáAkureyri. Hálfsysktini Aðalsteins, samfeðra, era: Hrefna, búsett á Laugalandi; Þorgerður, búsett á Akureyri; Guðný, búsett á Öngulsstöðum; Guðrún, búsett í Reykjavík; og Aðal- mundur, búsettur í Reykjavík. Foreldrar Aðalsteins voru Magn- ús Jón Ámason, jámsmiður ogb. í Aðalsteinn Magnússon Litla-Dal og síðar á Akureyri, og kona hans, Helga Árnadóttir. Foreldrar Magnúsar Jóns vora Árni Stefánsson, jámsmiður og b. í Litla-Dal, og Ólöf Baldvinsdóttir. Foreldrar Helgu voru Árni Guðnason, b. á Skuggabjörgum í Dalsmynni, og Kristbjörg Bene- diktsdóttir. Aðalsteinn verður að heiman á afmælisdaginn. Hörður Johannsson Hörður Jóhannsson skipstjóri, Tún- götu 52, Eyrarbakka, er fimmtugur ídag. Hörður er fæddur að Oddgeirs- hólum í Ámessýslu og ólst upp í foreldrahúsum á Fossi í Grímsnesi hjá móður sinni og fóstra. Hann fór til sjós strax eftir fermingu og tók hið minna fiskimannapróf frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1964. Til 1970 starfaði hann sem bátsmað- ur og stýrimaður, en var svo með eigin báta frá Eyrarbakka til 1983. Þá byijaði hann með fiskverkun og fisksölu í Fiskvinnslu Harðar Jó- hannssonar. Eiginkona Harðar er Agnes Karls- dóttir, f. 23.6.1942. Hún er dóttir Karls Jónassonar vélsmiðs, sem nú er látinn, og Aðalheiðar Gestsdótt- ur. Böm Harðar og Agnesar era: Hjördís Heiða, f. 23.2.1962, bónda- kona í Unnarsholtskoti, gift Unnari Gíslasyni og eiga þau tvö böm. Amheiður Björg, f. 18.5.1964, hús- móðir á Eyrarbakka, gift Steingrími Ólafssyni sjómanni og eiga þau þrjú böm. Aðalheiður, f. 10.7.1967, húsmóöir á Eyrarbakka, býr með Kjartani Valdimarssyni stýrimanni og eiga Höröur Jóhannsson þaueinadóttur. Sædís Ósk, f. 22.6.1972, nemi, í foreldrahúsum. Kallý, f. 1980, nemi, í foreldrahús- um. Hörður á sex hálfsystkini sem öll era á lífi. Foreldrar Harðar: Jóhann Sveins- son frá Flögu, bókavörður, sem nú er látinn, og Amheiður Gísladóttir. Foreldrar Jóhanns vora Sveinn, b. á Flögu og Hólkoti í Hörgárdal í Eyjafirði, Jóhannsson, b. og smiður í Hvassafelii og víðar, og kona hans, Hallfríður Jóhannsdóttir, b. í Flögu- seli, Gunnlaugssonar. Guðrún Fjóla Sigur- bjömsdóttir Guðrún Fjóla Sigurbjömsdóttir, Brekkubraut 5, Keflavík, er sextíu áraídag. Hún og eiginmaður hennar, Gunnar Sveinsson, taka á móti gest- um að heimili sínu laugardaginn 10. febrúar nk. milli kl. 16 og 19. Guðrún Fjóla Sigurbjörnsdóttlr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.