Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990.
27
Fréttir
Hreppsnefndar-
raunir í Tálknafirði
Lúövíg Thorberg, DV, Tálknafirði:
Margir Tálknfirðingar eru þegar
farnir að velta framboösmálum
vegna næstu sveitarstjórnarkosn-
inga fyrir sér, sumir í fúlustu alvöru
en aðrir með snert af léttúö. Farið
er að stinga upp á nöfnum væntan-
legra framboðslista og hafa heyrst
nöfn eins og kvennalistinn, karlalist-
inn, listi háðra kjósenda, listi óháðra
íhaldsmanna, AA-listinn, listi Þjóð-
arflokksins og fleira. En kannski
verður bara boðið fram klofið.
í frétt í DV 24. janúar sl. var sagt
frá því að hreppsnefndarmeirihluti
sjálfstæðismanna í Tálknafirði væri
endanlega klofinn. í fréttinni kom
einnig fram að klofningurinn hefði
byrjað þegar í upphafi kjörtímabils-
ins. Minnihluti hreppsnefndar,
„Óháðir“, missti fljótlega ó-ið og nú
er svo komið aö þriðjungur fyrrver-
andi meirihluta er orðinn endanlega
háður „Óháðum" og má þvi segja að
meirihluti hreppsnefndar sé nú skip-
aður háðum.
Hvort bókhald sveitarfélagsins er í
óreiðu eður ei kemur sjálfsagt fljót-
lega í ljós og þá jafnframt hvort sveit-
arstjórinn verður rekinn því þess var
krafist á hreppsnefndarfundi nýlega
en ákvörðun í brottrekstrarmálinu
var frestaö.
Loðdýrabænd-
ur óhressir með
stjórnvöld
Akraborgin við bryggju á Akranesi sl. sumar.
DV-mynd Garðar
Jarðgöng endalok Akraborgar:
Til bóta fyrir alla
- segir Helgi Ibsen, framkvæmdastjóri Skallagríms
Geir A. Guðsteinsson, DV, Dalvfic
Loödýrabændur við Eyjaíjörð eru
mjög óánægöir með að fyrri ákvörð-
unum ríkisstjórnar og Alþingis frá
síðasta sumri um aðstoð viö búgrein-
ina skuli ekki framfylgt. Sumir
bændur ganga jafnvel svo langt að
fullyrða að stjórnvöld ætli að bíða
það lengi með ákvarðanatöku að
menn hreinlega gefist upp. Vandi
Framleiðnisjóðs, sem á aö leysa
vanda loðdýrabúanna, mun þá verða
minni, en væntanleg mun vera reglu-
gerð frá landbúnaðarráðuneytinu til
lausnar vanda loðdýrabænda.
Að sögn Jóns Hjaltasonar, for-
manns Loödýraræktarfélags Eyja-
fjarðar, var loðdýrabúunum uppá-
lagt að gefa upp skuldastöðu til
Framleiðnisjóös fyrir 20. janúar
vegna fyrirhugaðrar skuldbreyting-
ar á lausaskuldum í langtímalán, en
áætlað er að þessar lausaskuldir séu
rúmar 280 milljónir króna.
Lítils háttar hækkun varð á refa-
skinnum en óbreytt verð á minka-
skinnum nú nýlega á danska upp-
boðsmarkaðnum. Þó seldust aðeins
um 20% þeirra skinna sem í boði
voru. Framboð af refaskinnum í
heiminum hefur minnkað úr 5 millj-
ónum í 3 milljónir skinna og um 40
milljónir minkaskinna verða á upp-
boðsmörkuöunum nú. Ekki er gert
ráð fyrir að verð á loöskinnum verði
komið í jafnvægi fyrr en í fyrsta lagi
árið 1992.
25 bú eru nú á félagssvæði Loð-
dýraræktarfélags Eyjafjarðar og á
þeim eru nú 6 þúsund ásettar minka-
læður og 1500 refalæður. Pörun
(mökun) hefst nú innan tiðar svo
ákvarðanatöku stjórnvalda er beðið
með óþreyju.
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesú
„Það er alveg ljóst að það rekur eng-
inn skip við hliðina á jarðgöngum
eða brú yfir Hvalfjörð en ég er sann-
færður um að göng verða til bóta
fyrir alla landsbyggðina," sagði Helgi
Ibsen, framkvæmdastjóri Skalla-
gríms, en Skallagrímur á og rekur
Akraborg.
Ríkið er stærsti hluthafinn í Skalla-
grími og styrkir reksturinn beint.
Akraborg fær um 20 milljóna króna
styrk frá ríkinu á þessu ári.
„Hugmyndir um gerð brúar eða
ganga eru okkur alls enginn þyrnir
í augum - þetta hlýtur að vera fram-
tíðin. En þeim framkvæmdum verð-
ur ekki lokið fyrr en eftir nokkur ár
og við munum reka Akraborgina
þangað til. Skipið verður þá orðiö
nokkuð gamalt en söluhæft," sagöi
Helgi.
Félag aldraðra á Höfn kaupir hús:
Verkalýðsfélagið Jökull gaf eftir-
stöðvar kaupverðsins, 1,8 milljón
Akranes:
Tímabært að hætta
- segir Andrés Ólafsson hjá Framsókn
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Andrés Ólafsson, einn þriggja bæjar-
fulltrúa Framsóknarflokksins á
Akranesi, hefur ákveöið að stefna
ekki að endurkjöri í kosningunum í
vor. Jón Hálfdánarson eðlisfræðing-
ur tekur að öllum líkindum þriðja
sætiö á B-listanum.
„Ég hef starfað lengi að bæjarmál-
um og finnst tímabært að hætta, taka
mér hvíld frá þessu,“ sagði Andrés í
samtali við DV.
Andrés er þriðji bæjarfulltrúinn
sem ákveður að hætta, en áður hafa
Jóhann Ársælsson Alþýðubandalagi
og Guðjón Guðmundsson Sjálfstæð-
isflokki ákveðið að láta af setu f bæj-
arstjórn.
Framsóknarmenn á Akranesi hafa
ekki gengið endanlega frá framboðs-
lista sínum, en allar líkur eru á að
Ingibjörg Pálmadóttir og Steinunn
Sigurðardóttir verði áfram í tveimur
efstu sætum listans.
Stöðvarqörður:
Nýja kirkjan fokheld
Ægir Kristinsson, DV, Fáskrúðsfirði:
Bygging nýrrar kirkju á Stöðvarfirði
hófst á síðasta ári og nú er byggingin
fokheld. Arkitekt kirkjunnar er
Björn Kristleifsson á Egilsstöðum,
byggingameistari er Ævar Ármanns-
son á Stöðvarfirði en bróðir hans,
Örvar Ármannsson, gerði raflagna-
teikningar. Verkfræðistofa Austur-
lands á Egilsstöðum sá um hönnun-
arvinnu.
Kirkjan er með nýstárlegu útliti,
um 300 m2 að grunnfleti, og þar verð-
ur mjög góð aöstaða fyrir kirkju-
gesti, kirkjukór og prest. Byggingar-
kostnaður a siðasta an var um 8
milljónir króna. Nú er verið að und-
irbúa framkvæmdir á þessu ári og
tryggja fjármagn, m.a. hjá jöfnunar-
sjóði sókna sem úthlutað er af Bisk-
upsstofu. Stöövarhreppur hefur ekki
lagt fram fjármagn til kirkjubygging-
arinnar ennþá, hvað sem síðar verð-
ur, enda ekki í hans verkahring, að
sögn Bjöms Hafþórs sveitarstjóra.
Til aö gera kirkjuna nothæfa þarf
8-10 milljónir króna, helst á þessu
ári. Ef það tekst ætti að vera hægt
að messa í kirkjunni í lok þessa árs,
aö sögn sveitarstjóra.
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Félag aldraðra á Höfn hefur flutt fé-
lagsstarfsemi sína í eigiö húsnæði í
Miðgarði sem Verkalýðsfélagiö Jök-
ull átti áður en þegar Jökull flutti í
nýtt húsnæði í haust var eignarhluti
þess, 2A í Miðgarði, til sölu. Stjórn
Félags aldraðra ákvað þá að leita
leiða til að kaupa þetta húsnæði og
voru þeir Hörður Júlíusson formað-
ur og Gísli Arason ritari kosnir til
að annast húsakaupin. Það samdist
fljótt um verðið, 2,8 millj. kr. með
milljón í útborgun. Eftirstöðvar
vaxtalausar, greiddar eftir getu fé-
lagsins.
Eftir þessa niðurstööu var leitaö
liðsinnis bæjarstjórnar meö útborg-
unina og var það auðsótt mál. Bæjar-
stjórn afhenti félaginu ávísun upp á
eina milljón kr. Þegar húsið var af-
hent nýju eigendunum tilkynnti
Björn Grétar Sveinsson, formaður
Jökuls, að verkalýðsfélagið ætlaði að
gefa félagi aldraðra eftirstöðvar
kaupverðsins, 1,8 millj. kr„ og bað
það vel að njóta.
Á Höfn eru 125 ellilífeyrisþegar og
af þeim dvelja 40 á elli- og hjúkrunar-
heimilinu Skjólgarði. Þátttaka f fé-
lagsstarfi aldraöra er nokkuð góð,
komið saman á laugardögum og farið
í gönguferðir eða stutt ferðalög ef
veður leyfir. Annars er spilað, sungið
eða önnur skemmtun innandyra.
Hótel Höfn heldur þorrablót fyrir
eldri bæjarbúa, sem eru fjölsótt.
Meðeigandi í Miðgarði er Kvenfé-
lagið Tíbrá.
Kirkjubyggingin nýja á Stöðvarfirði
DV-mynd Ægir