Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Side 29

Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.1990, Side 29
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 1990. Spakmæli 29 Skák Jón L. Árnason Búlgarski stórmeistarinn Kiril Georgi- ev þótti ljúka skák sinni viö Karpov á mótinu í Reggio Emilia á dögunum af miklu listfengi. Hann hafði hvítt og tókst aö þvinga fram jafntefli í þessari stöðu: Georgiev lék 53. g6 með það í huga að eftir 53. - fxg6 + 54. Dxg6+! Hxg6 er hvít- ur patt og skákin er jafnteíli. Eftir 53. - H£6 54. De5 sömdu kapparnir um jafn- tefli því að 54. - fxg6+ 55. Kg5 Hf4 56. Dxf4! Hxf4 57. Kxf4 leiðir til jafnteflis- stöðu. En Georgiev þurfti ekki að hafa svona mikið fyrir hlutunum. Frá stöðumynd- inni gat hann einfaldlega leikið 53. De5 +! Svartur neyðist til að þiggja drottningar- fómina og þá er pattstaða á borðinu. Bridge ísak Sigurðsson Fræg bridgekeppni var endurvakin fyrir skömmu í Bretlandi en þar er um að ræða Sunday Times tvimenninginn sem ávallt hefur veriö mjög vel skipaður. Spil dagsins er frá þeirri keppni þar sem Bob Goldman, sem sat í vestur, náði snilldarlegri vörn gegn þremur gröndum suðurs. Norður gaf, allir á hættu: * ÁK8 V 72 ♦ KD6 + D7653 ♦ 6432 V 986 ♦ Á1075 + G9 ♦ 975 ♦ KDG54 ♦ G32 + K4 * DGIO V Á103 ♦ 984 + Á1082 Norður Austur Suöur Vestur 1+ 1» 2 G Pass 3 G p/h Goldman spilaði eðlilega út hjarta í byij- im og sagnhafi gaf tvisvar áður en hann drap á ás. Spiliö lítur ekki sérstaklega vel út fyrir sagnhafa en hann verður að einbeita sér að þvi að halda austri út úr spilinu. Goldman sá aftur á móti að sagn- hafi stæði líklega spilið þar eð hann átti lykilspilið, tígulásinn (en sagnhafi vissi það reyndar ekki), og gæti ekki komið féiaga inn. Þvi var aðgerða þörf. Sagn- hafi spilaði í öðrum slag spaða á ás og fór af stað með laufdrottningu, kóngur frá austri, drepið á ás og Goldman setti gos- ann! Sagnhafi taldi sig nú geta fengið 9 slagi, 3 á spaða, einn á hjarta og fimm á lauf með svíningu þar eð hann taldi aust- ur hafa byijað með K94 i laufi. Hann spil- aði sig því inn á spaðakóng og svínaði laufáttu og Goldman fékk á niuna. Hann spilaði nú spaða og fríaði þar með fimmta slag vamarinnar, áður en tígulásinn var brotinn út. þ.OAS v <^ \\\ */«. o GETUR ENDURSKINSMERKI BJARGAÐ Úrval, ódýrara en áður. Náið í eintak strax. Urval tímarit fyrir alla /o-l* | |oEó1 | Ég var að líta á kjöthleifinn og það er betra af ® við fáum okkur einn enn. Lalli og Lína Slökkvilið-lögregla Reykjavík: Lögreglan sími 11166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Seltjarnarnes: Lögreglan sími 611166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Kópavogur: Lögreglan sími 41200, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100. Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166, slökkvilið og sjúkrabifreið sími 51100. Keflavík: Lógreglan sími 15500, slökkvOiö sími 12222 og sjúkrabifreið sími 12221. Vestmannaeyjar: Lögreglan sími 11666, slökkvilið 12222, sjúkrahúsið 11955. Akureyri: Lögreglan símar 23222,23223 og 23224, slökkvilið og sjúkrabifreið simi 22222. ísafjörður: Slökkvilið sími 3300, bruna- sími og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222. Apótek Kvöld-, nætur- og helgarþjónusta apótek- anna í Reykjavík 2. febrúar - 8. febrúar er í Árbæjarapóteki og Laugarnesapóteki. Það apótek sem fyrr er nefnt annast eitt vörsluna frá kl. 22 að kvöldi til kl. 9 að morgni virka daga en til kl. 22 á sunnudögum. Upplýsingar um læknis- og lyfjaþjónustu eru gefnar í síma 18888. Mosfellsapótek: Opið virka daga frá kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12. Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga- fóstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl. 11-14. Sími 651321. Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12. Hafnarfjörður: Noröurbæjarapótek er opið mánudaga til fimmtudaga frá kl. 9-18.30, Hafnarfjarðarapótek frá kl. 9-19. Bæði apótekin hafa opið föstudaga frá kl. 9-19 og laugardaga frá kl. 10-14 og til skiptis annan hvem helgidag frá kl. 10-14. Upplýsingar í símsvara apó- tekanna, 51600 og 53966. Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19 virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h. Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12. Apótek Vestmannaeyja: Opið virka daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokað laugar- daga og sunnudaga. Akureyrarapótei^ og Stjörnuapótek, Akureyri: Virka daga er opið í þessum apótekum á afgreiðslutíma verslana. Apótekin skiptast á sína vikuna hvort að sinna kvöld-, nætur- og helgidaga- vörslu. Á kvöldin er opið í þvi apóteki sem sér um þessa vörslu til kl. 19. Á helgidögum er opið kl. 11-12 og 20-21. Á öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak- vakt. Upplýsingar eru gefnar í síma 22445. Heilsugæsla Slysavarðstofan: Sími 696600. Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamames, sími 11166, Hafnar- fjörður, sími 51100, Keflavík, sími 12222, Vestmannaeyjar, sími 11955, Akureyri, sími 22222. Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé- lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414 Læknar Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn- arnes og Kópavog er í Heilsuverndar- stöð Reykjavíkuralla virka daga frá kl. 17 til 08, á laugardögum og helgidögum allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir, símaráðleggingar og tímapantanir í sími 21230. Upplýsingar um lækna og lyfjaþjónustu eru gefnar i símsvara 18888. Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla virka daga fyrir fólk sem ekki hefur heimilislækni eða nær ekki til hans (sími 696600) en slysa- og sjúkravakt (slysadeild) sinnir slösuðum og skyndi- veikum allan sólarhringinn (sími 696600). Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar- daga kl. 10-11. Sími 612070. Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes: Neyöarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar, sími 51100. Keflavík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta morgun og um helgar. Vakthaf- andi læknir er í síma 14000 (sími Heilsu- gæslustöðvarinnar). Vestmannaeyjar: Neyðarvakt lækna í síma 11966. Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu- gæslustöðinni í síma 22311. Nætur- og helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far- sími) vakthafandi læknis er 985-23221. Uppíýsingar hjá lögreglunni í síma 23222, slökkviliðinu í síma 22222 og Akureyrarapóteki í síma 22445. Heimsóknartími Landakotsspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 18.30-19. Bamadeild kl. 14-18, aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör- gæsludeild eftir samkomulagi. Borgarspítalinn: Mánud.-föstud. kl. 18.30-19.30. Laugard-sunnud. kl. 15-18. Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og 18.30-19.30. Fæðingardeild Landspítalans: Kl. 15-16 og 19.30-20.00. Sængurkvennadeild: Heimsóknartími frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30. . Fæðingarheimili Reykjavíkur: Alla daga kl. 15.30-16.30 Kleppsspítalinn: Alla daga kl. 15-16 og 18.30- 19.30. Flókadeild: Alla daga kl. 15.30-16.30. Grensásdeild: Kl. 18.30-19.30 alla daga og kl. 13-17 laugard. og sunnud. Hvitabandið: Fijáls heimsóknartími. Kópavogshælið: Eftir umtali og kl. 15-17 á helgum dögum. Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug- ard. kl. 15-16 og 19,30-20. Sunnudaga og aðra helgidaga kl. 15-16.30. Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16 og 19-19.30. Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16 alla daga. Sjúkrahúsið Akureyri: Alla daga kl. 15.30- 16 og 19-19.30. Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Alla daga kl. 15-16 og 19-19.30. Sjúkrahús Akraness: Alla daga kl. 15.30-16 og 19-19.30. Hafnarbúðir: Alla daga frá kl. 14-17 og 19-20. Vífilsstaðaspítali: Alla daga frá kl. 15-16 og 19.30-20. Vistheimilið Vífilsstöðum: Sunnudaga kl. 15-17, fimmtudaga kl. 20-23, laugar- daga kl. 15-17. Vísir fyrir 50 árum Þriðjudagur 6. febrúar. Finnar búast við nýrri sókn á Kyrjálanesi. Áhlaupunumá Mantsivirki hrundið. Það verður gaman að fylgjast með því hve lengi þeim hógværu helstá jörðinni þegar þeir hafa erft hana. Kin Hubbard. Söfnin Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag- lega kl. 13-16. Ásgrimssafn, Bergstaðastræti 74: Op- ið sunnudaga, þriðjudaga, fimmtudaga og laugardaga kl. 13.30-16. Árbæjarsafn: Opið eftir samkomulagi. Uppl. í síma 84412. Borgarbókasafn Reykjavíkur Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155. Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s. 79122, 79138. Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270. Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814. Ofangreind söfn eru opin sem hér segir: mánud.-fimmtud. kl. 9-21, föstud. kl. 9-19, laugard. kl. 13-16. Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið mánud.-laugard. kl. 13-19. . Hofsvallasafn, Hofsvallagötu 16, s. 27640. Opið mánud.-föstud. kl. 16-19. Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir víðs vegar um borgina. Sögustundir fyrir börn: Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgarbókasafnið í Gerðubergi, fimmtud. kl. 14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl. 10-11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12. Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8. Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18. Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7: er opið daglega nema mánud. ki. 11-17. Listasafn Einars Jónssonar er opið alla daga nema mánudaga kl. 13.30-16. Höggmyndagarðurinn er opinn alla daga kl. 11-17. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á Laugarnesi er opiö laugard. og sunnud. kl. 14-17 og þriöjudagskvöld kl. 20-22. Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg: Opið sunnudaga, þriöjudaga, fimmtu- daga og laugardaga kl. 14.30-16. Norræna húsið við Hringbraut: Sýn- ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19. Bókasafn'Norræna hússins: mánud. - laugardaga kl. 13—19. Sunnud. kl. 14-17. Sjóminjasafn íslands er opið laugar- daga og sunnudaga kl. 14-18 og eftir nánara samkomulagi í síma 52502. J. Hinriksson, Maritime Museum, Súðarvogi 4, S. 84677. Sjóminja- og vél- smiðjumunasafnið er opið frá kl. 13.-17 þriðjud. - laugard. Þjóðminjasafn íslands. Opið þriðjud., fimmtud., laugardaga og sunnudaga, kl. 11-16. Bilanir Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og Seltjamarnes, sími 686230. Akureyri, simi 24414. Keflavík, sími 15200. Hafnarfjörður, sími 51336. Vestmannaeyjar, sími 11321. Hitaveitubilanir: Reykjavík og Kópa- vögur, sími 27311, Seltjarnarnes, sími 615766. Vatnsveitubilanir: Reykjavík og Sel- tjamames, sími 621180, Kópavogur, sími 41580, eftir kl. 18 og um helgar, sími 41575. Akureyri, sími 23206. Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555. Vestmannaeyjar, símar 11322. Hafnarfjörður, sími 53445. Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi, Seltjamarnesi, Akureyri, Keflavík og Vestmannaeyjum tilkynnist í 05. Bilanavakt borgarstofnana, sími 27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17 síðdegis til 8 árdegis og á helgidögum er svarað allan sólarhringinn. Tekið er viö tilkynningum um bilanir á veitukerfum borgarinnar og í öðrum tilfellum, sem borgarbúar telja sig þurfa að fá aðstoð borgarstofnana. Tilkyriningar AA-samtökin. Eigir þú við áfengis- vandamál að stríða, þá er sími samtak- anna 16373, kl. 17-20 daglega. Líflinan. Ef þú hefur áhyggjur eða vandamál þá er til lausn. Hringdu í síma 62-37-00. Líflinan allan sólarhringinn. Sg'ömuspá Spáin gildir fyrir miðvikudaginn 7. febrúar. Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.): Þú ert tilfinningaríkur og gætir lenti í erfiðleikum með aö skflja skaplyndi einhvers. Afbrýðisemi gæti haft eitthvað að segja. Bíddu og láttu hlutina róast. Fiskarnir (19. febr.-20. mars.): Taktu dagimi snemma og byijaðu á að hreinsa tfl í fjármálun- um. Þetta verður mjög ruglingslegur dagur. Þú nærð þér ekki á strik fyrr en í kvöld. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): Hristu af þér allt þunglyndi, það hefur ekkert upp á sig. Vertu samvinnuþýöur og tilbúinn tfl að taka þátt í áætlunum annarra. Nautið (20. apríl-20. maí): Þér líður vel og þú hefur það á tilfinningunni að eitthvað gott gerist í dag. Farðu eftir innsæi þínu og metnaður þinni nær langt. Tvíburarnir (21. maí-21. júni): Hikaðu ekki viö að breyta áætlunum þínum ef þú færð óvænt tækifæri upp í hendumar. Happatölur eru 9, 24 og 29. Krabbinn (22. júní-22. júlí): Leggðu áherslu á sambönd eða fundi tengda viöskiptum. Gerðu þitt besta tfl að hafa sem mest áhrif á ákveðinn aðila. Ljónið (23. júlí-22. ágúst): Þú ert í ævintýralegu skapi. Það gæti borgað sig að takast á við verkefni tengd viðskiptum. Vertu samt orðvar því eitt vitlaust orð gæti kollvarpað öllu. Meyjan (23. ágúst-22. sept.): Þú átt í vændum mjög líflegan dag. Haltu þig með nánum vinum. Eitt gott leiðir að öðra góðu og einhver kemur þér skemmtilega á óvart. Vogin (23. sept.-23. okt.): Fjármálin standa vel ef þú ætlar að safna fyrir einhveiju ákveðnu. Það er rétti tíminn núna að hafa samband við fólk sem þú vflt að styðji þig. Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.): Árátta í breýtingar eða uppstokkun er mjög sterk hjá þér núna. Vertu samt ekki of stórtækur í að henda hlutum. Þú gætir séð eftir því seinna. Bogmaóurinn (22. nóv.-21. des.): Þú ert viðkvæmur í skapi og mjög þjartnæmur. Notaðu töfra þína tfl að töfra persónu sem þú lítur mjög upp tfl. Happatöl- ur eru 4, 19 og 34. Steingeitin (22. des.-19. jan.): Breytingar varðandi ákveðna vinnu gætu orðið mjögtil góða. Fréttir sem þú færð eru meira uppörvandi en þú gerðir ráð fyrir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.