Dagblaðið Vísir - DV - 20.04.1990, Page 1
Háskólabíó kl. 14.00 á morgun:
60 ára afmælistónleikar
Lúðrasveitarinnar Svans
Lúðrasveitin Svanur var stofnuð
þann 16. nóvember 1930 og minnist
sextíu ára afmælis með tónleikum í
Háskólabíói laugardaginn 21. apríl
kl. 14.00. Hljómsveitina skipa nú um
60 hljóðfæraleikarar og hefur lúðra-
sveitin aldrei verið íjölmennari.
Af verkum á efnisskrá tónleikanna
má nefna Concerto fyrir blásara og
ásláttarhljóðfæri eftir Pál P. Pálsson.
Það verk hefur aðeins einu sinni ver-
ið flutt áður. Þá veröur frumflutt
verk eftir Össur Geirsson. Nefnist
það Sögur af sæbjúgum og var samið
sérstaklega fyrir lúðrasveitina í til-
efni afmælisins.
Einnig verða flutt verk eftir J.P.
Sousa, Rossini, Brahms, Gordon
Jacob og fleiri þekkt tónskáld.
Fjórir einleikrarar koma fram á
tónleikunum. Stjórnandi Lúörasveit-
arinnar Svans er Róbert Darling.
Lúðrasveitin Svanur heldur 60 ára
afmæiistónleika i Háskólabiói kl.
14.00 á morgun.
Kjarvalsstaöir:
Sigurður Örlygsson
opnar 18. sýninguna
Sigurður Örlygsson opnar á morg-
un, laugardaginn 21. apríl, kl. 14.00
sýningu á málverkum á Kjarvals-
stöðum. Sýningin verður opin dag-
lega frá kl. 11.00 til 18.00 og lýkur
sunnudaginn 6. maí.
Verkin eru öll unnin á síðustu 12
mánuðum með akrýl og olíulitum á
striga en hlutirnir eru unnir úr
timbri, pappa og trémassa.
Öll verkin á sýningunni eru stór
eins og venja er hjá Sigurði. í allt eru
þau sjö og heita Framfarir, Vitund
þjóðarinnar, Tímamót, Á frama-
braut, Orkustöð, Opinber heimsókn
og Óvissa.
Sigurður er fæddur í Reykjavík 28.
júlí 1946. Hann lærði fyrst við Mynd-
Hsta- og handíðaskóla íslands á árun-
um 1967 til 1971. Þá var hann á Kon-
unglegu dönsku listaakademíunni
1971 til 1972 og síðan við Art Stud-
ents League í New York 1974 til 1975.
Sigurður hefur verið stundakenn-
ari við Myndlista- og handíðaskólann
frá árinu 1980. Hann hefur verið í
félögum myndlistarmanna og þar á
meðal formaður FÍM 1984 til 1985.
Hann var einn af stofnendum og eig-
endum Gallerí Sólon íslandus 1976
til 1978 og Gallerí Gangskör 1986.
Sigurður hefur haldið fjölda sýn-
inga hér heima og einnig í öðrum
löndum. Sýningin nú er 18. einkasýn-
ing hans.
Sigurður hlaut Menningarverð-
laun DV fyrir sýningu sem hann
hélt á Kjarvalsstöðum árið 1988.
Sigurður Örlygsson heldur nú 18. einkasýningu sína. Hún verður opnuð á
Kjarvalsstöðuin á morgun kl. 14.00.
Á Vorvindum i Borgarleikhúsinu sýnir íslenski dansflokkurinn fjögur verk eftir þrjá höfunda. Önnur sýning er í
kvöld kl. 20.00.
íslenski dansflokkurinn:
Vorvindar í Borgarleikhúsi
íslenski dansflokkurinn frum-
sýndi á sumardaginn fyrsta list-
danssýninguna Vorvinda i Borgar-
leikhúsinu. Á sýningunni eru fjögur
verk eftir þrjá sænska danshöfunda,
þau Birgit Cullberg, Per Jonsson og
Vlado Juras.
Þrír erlendir gestadansarar taka
þátt í sýningunni. Það eru Per Jons-
son, Kenneth Kvarnström og Joac-
him Keuch. Aðeins verða fimm sýn-
ingar á Vorvindum. Þær næstu eru
í kvöld kl. 20.00 og á sunnudagskvöld-
ið 22. apríl einnig kl. 20.00.
Birgitt Cullberg er íslendingum aö
góðu kunn því íslenski dansflokkur-
inn sýndi árið 1983 Fröken Júlíu eft-
ir hana. Þegar Fröken Júlía var sýnd
hér dansaði Vlado Juras sem gestur
í nokkrum sýningum. Hann er nú
listdansstjóri í Norrköping. í fram-
haldi af heimsókn sinni hingað
samdi hann Myndir frá íslandi. Þaö
verk fjallar um fimm sjómannskonur
sem bíða komu manna sinna. Þetta
er hálftíma verk fyrir fimm kven-
dansara.
Per Jonsson er talinn einn athygl-
isverðasti danshöfundur Svía af
ungu kynslóðinni. Á sýningunni eru
tvö verk eftir hann. Annað heitir
Schakt og er um 25 mínútna ballett
fyrir þrjá karldansara. Hitt er styttra
verk, samið sérstaklega fyrir kven-
dansara íslenska dansflokksins.
Vorvindar eru tímamótasýning í
sögu íslenska dansflokkins þar sem
nú er í fyrsta sinn samvinna milli
hans og Leikfélags Reykjavikur.
Tónskáldakynning
í listasafni Sigur-
jóns Ölafssonar
- sjá bls. 29
Alltumíþróttir
helgarinnar
- sjábls. 31
—
Mosfellingar sýna
Þið munið hann
Jörund
- sjábls. 19
Sýning
Braga Hannessonar
í Gallerí Borg
- sjábls. 20
—
Kvikmyndahúsin
umhelgina
- sjábls.30
Vinsælustu
myndböndin
- sjábis.32