Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1990, Blaðsíða 5
LAUGARDAGUR 28. APRÍL 1990.
35
dv____________________________________________________________________________________Bflar
Eftir „þíðima í austri":
Vestrænir bílaframleiðendur
í sókn á austurvigstöðvunum
Þrátt fyrir aö fyrirhuguð samein- kiassa og Panda í verksmiðjum í
ing þýsku ríkjanna tveggja virðist
ætla að hafa í fbr með sér ýmis
stjómmálaleg og félagsleg vandamál
eru menn komnir af stað og á fulla
ferð með sameiginlega framleiðslu á
bflum í löndunum.
Búist er við mikilli eftirspum eftir
bílum á næstunni í Austur-Þýska-
landi og á því sviði er talið að full
sameining verði hvað fyrst raun-
veruleg. Strax á næsta ári er búist
við að vestrænir bílar rúfli af færi-
böndunum í áustri.
Það em Volkswagen-verksmiðj-
umar sem eru komnir einna lengst,
en þær stofnsettu í desember nýtt
fyrirtæki í Austur-Þýskalandi sem
nefnist Volkswagen-IFA GmbH, í
samvinnu við austurþýska fyrirtæk-
ið IFA sem í dag framleiðir Trabant.
Helsta verkefni þessa nýja fyrirtækis
er að byggja upp nútímalega bíla-
framleiðslu í Austur-Þýskalandi.
Strax á þessu ári verður hafist handa
um að smíða verksmiðju í Zwickau.
Heildarfjárfestingin við þessa nýju
verksmiðju er talin verða um 180
milljarðar ísl. króna.
í upphafi er reiknað með daglegri
framleiðslu á bíl svipuðum VW Polo
til sölu í Austur-Þýskalandi. Á næsta
stigi framleiöslunnar er reiknað með
að auka dagsframleiðsluna stig af
stigi þar tfl hún nær um 400 bílum á
dag, þannig að heildarframleiðslan á
ári mun nema um 100 þúsund bflum
í árslok 1992. Allir hlutar tfl smíðinn-
ar munu koma frá verksmiðjum VW
í V-Þýskalandi og á Spáni. Frá árinu
1994 er reiknað með því að verk-
smiðjan í Austur-Þýskalandi mun
sjálf framleiða alla helstu hluti til
smíðinnar og þá muni dagsfram-
leiðslan komast í 500 bíla sem þýðir
um 125.000 bíla á ári. Á lengri tíma
verður dagsframleiðslan aukast í
1.000 bíla eða 250.000 á ári.
VW og IFA munu einnig koma á
laggirnar sameiginlegu sölukerfi í
Austur-Þýskalandi sem á að sjá um
sölu á bflurn frá IFA, VW, Audi og
Seat.
Sóknin í austur
Það er ekki bara í Austur-Þýska-
landi sem vestrænir bílaframleið-
endur eru í sókn, en þar eru menn
Volkswagen þegar komnir af stað í
Zwickau með allt að 250.000 bíla
framleiðslu á ári. í Eisenach er Opel
að skoða möguleika á að smíða um
150.000 bíla í flokki lítilla eða miðl-
ungstórra bfla. í Ludwigsfelde er
Daimler-Benz að kanna möguleika á
að smiða bæði stóra og btla vöru- og
sendibfla.
Tékkóslóvakía:Renault og bresk
samsteypa eru í samkeppni um fyrir-
ætlaða smíði á vörubílum í Brati-
slava.
Skoda er að kanna samvinnu við
fleiri en einn af vestrænu bílafram-
leiðendunum.
Fiat er í viftræðum við Skoda um
sameiginlega smíði á bílvélum.
Búlgaría:Rover-samsteypan í Bret-
landi er í viðræðum við VAMO Mot-
or Compagni um samvinnu, senni-
legast smíði á Maestro.
Pólland:Fiat á í viöræðum við
pólska bílaframleiðandann FSO í
Varsjá um smíði á Fiat Tipo. Búist
er við því að botn fáist í þær viðræð-
ur í sumar. FSM-verksmiðjurnar í
Bielsko-Biala munu á árinu 1991
hefja framleiðslu á smábíl fyrir Fiat,
sem sumir kalla Micro, en aðrir To-
pobno bkt og „gamb“ Fiat 500 var
kabaður í eina tíð.
Sovétríkin:Fiat á í samningum um
smíði á 300.000 bílum í svipuðum
Yelabuga. Smíðin á að hefjast á árinu
1992. Þá á Fiat einnig í viðræðum viö
Sovétmenn um samvinnu um smíða
á smábílnum Oka sem þegar hefur
verið kynntur í Sovét.
Ungverjaland:Opel mun hafa geng-
ið frá samningum um smíði á 200.000
bílvélum og samsetningu á um 30.000
Opel Kadett á ári í verksmiðjum í
Szentgotthard.
Suzuki hefur gert samning um
smíði á abt að 100.000 smábílum á
ári í verksmiðjum í Esztergom. Frá
og með árinu 1992 er reiknað með
15.000 bílum þaðan á ári.
Fleiri í kjölfarið
Þetta er aðeins toppurinn á ísjak-
anum. Vitað er að fleiri eru á leiðinni
austur. Ford var í viðræðum við Sov-
étmenn um sitiíði á Scorpio í Gorkí,
en þær viðræður fóru í strand en
gætu eflaust farið af stað aftur.
Bandarískir bílaframleiðendur hafa
beint sjónum sínum í austurveg und-
anfarið og eflaust eiga þeir eftir að
fylgja í fótspor evrópsku framleið-
endanna.
BILALAKK
Við eigum litinn á
bílinn á úðabrúsa.
orlco
FAXAFEN 12 (SKEIFAN).
1
Timarltfyríraua
ra
Viltu:
GÆÐI
ENDINGU
OG
ÖRYGGI
Hjolbarðar fyrir allar
tegundir bíla.
Góðir hjólbarðar á réttu verði.
V/SA
Greiðslukjör;
VISA - EURO afborganir
t.d. ekkert út
og hitt á 4 mánuðum.
(Eitt dekk á mánuði?)
JOFUR HF
Nýbýlavegi 2. Sími 42600
Hjólbarðadeild opin 9—6 virka daga.
PORhilDUR'SIa