Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Blaðsíða 7
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990.
7
Fréttir
Sérfræðingar OECD:
Fjármagnsmarkaður
verði einkavæddur
- 65 prósent hans eru ríkisrekin
Eitt af þeim atriðum sem sérfræð-
ingar Efnahags- og framfarastofnun-
arinnar í París (OECD) hafa bent á
í mörgum undanförnum skýrslum
sínum um ísland og hamra enn á í
nýrri skýrslu er óeðlileg afskipti rík-
isvaldsins af fjármagnsmarkaðinum.
Ríkisafskipti af dreifmgu flármagns
koma í veg fyrir hagkvæmni, hamla
þróun bankamála og draga úr vexti
framleiðslugetunnar að mati sér-
fræðinga OECD.
Ef hlutur ríkisins í fjármagns-
markaðinum er skoðaður kemur í
ljós að í gegnum ríkisbankana tvo
og fjölda sjóða í eigu ríkisins renna
um 65 prósent af útlánum banka-
kerfisins. Það er nálægt 260 miiljörð-
um króna sem þannig er stýrt í gegn-
um fjárfestingarlánasjóöi einstakra
atvinnuvega, byggðasjóði, húsnæðis-
sjóöina og ríkisbankana þar sem
pólitískt valdir menn sitja við stjóm-
völinn. Um 20 prósent af fjármagns-
markaðinum er síðan stjórnað af
aðilum vinnumarkaðarins í gegnum
lífeyrissjóðina. Aöeins 15 prósent,
eða um 65 milljarðar af fjármagns-
markaðinum, eru síðan í höndum
hlutafélaga; viðskiptabanka, verð-
bréfasjóða, kaupleiga og trygginga-
félaga.
Það er því engin furða þótt sérfræð-
ingar OECD leggi áherslu á að mikið
verk sé enn eftir við að frelsa fjár-
magnsmarkaðinn þrátt fyrir að þeir
bendi á að viss árangur hafi náðst á
níunda áratugnum.
í skýrslu þeirra segir:
„Það er mikilvægt að ljúka endur-
bótum á fjármagnsmarkaöinum með
því að draga enn frekar úr áhrifum
ríkisins í banka- og fjárfestingarlána-
kerfinu. Stuðla þarf að aukinni
einkavæðingu í bankakerfinu og
kanna þarf hagkvæmni fjárfesting-
arlánasjóðanna. Eins og bent hefur
verið á koma þessir þættir í veg fyrir
hagkvæma dreifingu fjármagns, þró-
un bankamála og vöxt framleíðsl-
unnar.“
-gse
Hverjir stjóma lánamarkaðnum
Sigurður Símonarson, bæjarstjóri á Egilsstöðum, flytur ræðu á almennum
borgarafundi. DV-mynd Sigrún
Egilsstaðir:
Sorpeyðing vandamál
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egiisstööum:
Á almennum borgarafundi á Egils-
stöðum nýverið kom fram gagnrýni
á sorpeyðingarmál. Sorpi er nú
brennt um tvo km frá bænum og
leggur reykinn frá brennslunni yfir
næstu sveitabæi.
Á sl. ári fóru fram viðræður við
nokkur sveitarfélög á Mið-Austur-
landi um sameiginlega sorpeyðingu.
Sú hugmynd varð að engu og nú leit-
ar Egilsstaðabær að heppilegum stað
til aö urða sorp. Á fundinum kom
fram í máh bæjarstjóra, Sigurðar
Símonarsonar, að lögð yrði áhersla
á að flýta lausn þessa máls og þar
sem núverandi sorpeyðing ylli óþæg-
indum í nágrenninu myndi verða
gripið til þess ráðs að urða sorpið.
Egilsstaöir:
23 milUónir til æsku-
lýðs- og íþróttamála
Sigrtin Björgviiisdóttir, DV, Egilsstööum;
Fjárhagsáætlun Egilsstaðabæjar var
kynnt á almennum borgarafundi 24.
apríl sl. Niðurstöðutölur eru tæpar
170 millj.
Af einstökum verkefnum fá æsku-
lýðs- og íþróttamálin stærstan skerf,
eða tæpar 23 mihj. Þar af eru um 13
mihj. til sundlaugar, en bygging 25 m
útisundlaugar mun hefjast á þessu
ári. Annar stór póstur er viðhald og
nýbygging gatna. Til þess verkefnis
eru ætlaðar 12-13 millj. kr. og verða
m.a. byggðar tvær nýjar íbúðagötur
austan Arskóga, Hléskógar og Rana-
vað út við Eyvindará. Þetta er veru-
lega meira fé en varið hefur veriö til
gatnagerðar undanfarin ár.
Nefndu það, við eigum þaó á besta verði í bænum
Stafrænir multi-mælar i
miklu úrvali. Verð frá kr.
2.960,-
' með visi.
1.575,-
500 watta flóðljós. Verð kr.
2.490,-
AVO mælar
Verð fra kr.
12 V diskótekaraljós
eða lesljós i bilinn,
bátinn eða á nátt-
borðið I sumarhúsinu.
Verð kr. 565,-
Þennan þekkja allir. Frá-
bæri Quick Shot turbo
stýripinninn. Verð kr.
1.980,-
Hreinsispólur
fyrir video.
Verð kr. 505,-
12 V fluorsentljós i miklu úrvali í sumarbústað-
inn, bilinn, bátinn og jafnvel tjaldið. Ekki
verra? . . . Verð frá kr. 1.505,-
Mic-standar á borð,
gólf, veggi og
allt. Verð frá kr. 625,-
Hljóðnemar fyrir áhugamenn
sem atvinnumenn. Úrvalið er
ekki hægt að tíunda hér i þess-
um litla reit. Komdu og skoð-
aðu. Verð frá kr. 1.050,-.
Hlægilegt en satt.
Hreinsitæki fyrir geislaplötur. Handdrif-
ið. Verð kr. 1.160,-. Rafdrifið. Verð kr.
4.015,-
TV snúrur, video og audio snúrur i úrvali. Verö frá
kr. 180,-
Gitarsnúrur og effektasnúrur. Verð frá kr. 250,-.
f\dOlO
Ármúla 38, símar 31133 og 83177,
Mikið úrval af allavega
spennugjöfum. Verð frá kr.
1.165,-
Hreinsispray, frystispray,
silikonspray o.fl. o.fl. Verð
frá kr. 295,-
«lb Mk ,C',
Loftnetsmagnarar fyrir rás eitt og
stöð tvö. Verð frá kr. 2.450,-
Vorið er komið og börnin sofa úti.
Barnapian vinsæla tilbúin til að
passa. Verð kr. 1.570,-
Flnn stýripinni á finu
verði. Verð kr. 2.970,-
Flassperur i mörgum litum. Verð
kr. 1.685,-
Gitarstillir fyrir kassa- og
rafgítara. Verð kr. 3.625,-
Mic-mixer, tekur fjóra mica og
mixar á eina rás. Verð kr. 2.810,-
«9^
Útrúlcga mikið úrval af
heyrnartólum. Verð frá kr.
300,- og upp úr.
Landsins mesta úrval af
Ijósasjóvum og Ijósamix-
erum. Verðfrá kr. 4.355,-
Átta rása hörkumixer, notaður af þeim sem gera
kröfur um gæði. Verð kr„ já, ótrúlegt, 32.258,-
bæði fyrir diskótek og heimili. Verð frá
kr. 4.545,-
Heyrnartólstapp-
ar með hreint
svakalegu sándi.
Verðfrá kr. 355,-
Hleðslutæki fyrir allar rafhlöður. Verð kr.
1.060,-. Hleðslurafhlöður. Verð frá kr. 230,-
Breyttu vasadiskóinu eða ferðaspil
anum i finustu græjur með þe:
hátalarapari. Innbyggður magni
Verð kr. 1.930,-
Smáborvél kr. 1.175,-
Prufujárn kr. 110,
Skótöng kr. 2.145,-
Lóðstöð kr. 11.550,-
Lóðbolti kr. 625,-
Hjálparhönd kr. 1.115,-
TV loftnet á bila kr. 1.980,-
CO rekki kr. 860,-
CD veski kr. 670,-
Standborvél kr. 16.125,-
Ótrúlegt úrval af sjónvarps .
audio-, video- og tölvutengjum.
Einnig breytistykkjum alls konar á
hlægllegu verði.