Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Side 16
16
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990.
Stjómmál
Spurt í Bolungarvík:
Hver veröa úrslit
kosninganna?
Valdimar Valdimarsson verkamað-
ur: Ég hef ekki kynnt mér framboðin.
Sævar Guðmundsson fiskverkunar-
maður: Sjálfstæöismenn fá þrjá
menn, kratar einn og samstöðumenn
þrjá.
Níelsína Þorvaldsdóttir fiskverkun-
arkona: Ég er ekkert farin að hugsa
út í það ennþá.
Einar Pétursson vörubilstjóri: D-listi
fær þrjá menn, A-listi einn og F-listi
þrjá.
Benedikt Egilsson fiskverkunarmað-
ur: Ég hef ekki kynnt mér framboöin
ennþá og því lítið farinn að spá i
úrslitin.
Málfríður Sigurðardóttir póstfreyja:
Það er erfitt að spá um úrslitin en
ætli sjálfstæðismenn fái ekki þrjá
fulltrúa.
Bolungarvík:
Þrír listar takast á
Þrír listar bjóða fram í Bolungar-
vík, A-listi jafnaðarmanna og frjáls-
lyndra, D-listi Sjálfstæðisflokks og
F-listi Samstöðu, samtaka um bæjar-
mál. í síðustu kosningum buðu fimm
listar fram en þær breytingar, sem
orðið hafa nú, eru þær að Alþýðu-
bandalag, Framsóknarflokkur og
Óháðir bjóða ekki fram. F-listi Sam-
stöðu er borinn fram af Alþýöu-
bandalagi og Óháðum auk einhverra
af öðrum listum.
Þetta kjörtímabil hefur verið meiri-
hlutasamstarf milli Alþýðuflokks og
Sjálfstæðisflokks.
í Bolungarvík snýst allt atvinnulíf
um sjávarútveg. Nokkur stöðnun
hefur að sögn heimamanna verið í
atvinnulífi Bolvíkinga síðastliðin ár.
Fólki hefur fækkað um tæplega eitt
hundrað á nokkrum árum. Atvinnu-
mál og hafnarmál verða ofarlega á
baugi næsta kjörtímabil. Bolvíkingar
vilja aukinn kvóta og fleiri atvinnu-
tækifæri. lega 1200. Á kjörskrá eru 773, 415
íbúar í Bolungarvík eru nú rúm- karlar og 358 konur. -hlh
Olafur Þór Benediktsson, A-lista:
Fjölga þarf
atvinnutækifærum
„Við þurfum að halda áfram með
þau verkefni sem í gangi eru og ljúka
þeim. Þar eru viðbygging grunnskól-
ans og þjónustuíbúðir fyrir aldraða
efst á blaði. Þá er mjög brýnt að
áfram verði haldið viö uppbyggingu
hafnarinnar sem er og verður lífæð
Bolvíkinga. Atvinnumálin hafa því
miöur þróast til verri vegar síðastlið-
in ár og þarf bæjarstjórn því að beita
áhrifum sínum og stuðla að fjölgun
atvinnutækifæra í bænum,“ sagði
Ólafur Þór Benediktsson sem skipar
efsta sæti á A-lista jafnaðarmanna
og frjálslyndra.
„Það þarf að vinna áfram að fegrun
bæjarins og þá sérstaklega gerð
grænna svæða. Þá þarf að betrum-
bæta og fjölga leiksvæðum fyrir
börn. Æskulýðsstarf þarf að efla í
samráði og samvinnu við unglinga
bæjarins. Við leggjum sérstaka
áherslu á að áfram verði hagsmuna
aldraðra og fatlaðra gætt og að þeim
hlúð sem best.“
-hlh
Ólafur Þór Benediktsson skipar
efsta sæti á A-lista jafnaðarmanna
og frjálslyndra.
Kristinn H. Gunnarsson, F-lista:
Atvinnumálin
; efst á baugi
„Atvinnumálin eru efst á baugi.
Það þarf að styrkja sjávarútveginn,
fá hingað fleiri skip eða báta og þar
með meiri kvóta til að treysta þá at-
vinnu sem hér er. Það þarf að skapa
störf í þjónustugreinum og standa
vörð um þau þjónustustörf sem fyrir
eru í plássinu. í húsnæðsmálum þarf
að standa að uppbyggingu íbúðar-
húsnæðis sem er í samræmi við þarf-
ir og eftirspurn og nýta þá það íjár-
mögnunarkeríi sem húsnæðiskerfið
býður upp á. í húsnæðis- og atvinnu-
málum þarf að snúa vörn í sókn,“
sagði Kristinn H. Gunnarsson sem
skipar efsta sæti á F-lista Samstöðu,
samtaka um bæjarmál.
„Fjármál bæjarins eru orðin
ískyggileg en skuldirnar hafa nær
sexfaldast á tveimur árum. í íjármál-
um þarf að snúa af braut skuldasöfn-
unar. Varðandi höfnina þarf að
knýja á um að framkvæmdir við
brimvarnargarð hefjist 1991. Skipu-
lagsmál eru í miklum ólestri í Bol-
ungarvík en ljúka þarf gerð deili-
skipulags í nokkrum hverfum. End-
urskoða þarf aöalskipulag sem átti
aö gerast fyrir þremur árum. Loks
þarf að koma upp vatnsmiðlunar-
geymi og endurskoða bæjarmála-
samþykktir sem tryggja eiga bæj-
arbúum upplýsingar með reglu-
bundnum hætti og rétt bæjarfulltrúa
til þátttöku í starfi helstu ráða og
nefnda." -hlh
Kristinn H. Gunnarsson skipar efsta
sæti á F-lista Samstöðu, samtaka
um bæjarmál.
Ólafur Kristjánsson, D-lista:
Sjávarútvegsmálin og
uppbygging hafnarinnar
Olafur Kristjánsson skipar efsta
sæti D-lista Sjálfstæðisflokks.
„I fyrsta lagi þurfum við að halda
áfram þeirri uppbyggingu sem hafin
er við höfnina en þar er verið að lj úka
við dýpkun. Þá leggjum viö áherslu
á gerð brimvarnargarðs. Þá þarf að
halda áfram byggingu 14 þjónustu-
íbúða fyrir aldraða sem og grunn-
skólabygginguna sem er langt kom-
in. Viö munum sinna umhverfismál-
um og gatnagerðarmálum á sama
veg og gert hefur verið á þessu kjör-
tímabili. Við viljum halda því á lofti
að Bolungarvík sé menningarlegur
bær,“ sagði Ólafur Kristjánsson bæj-
arstjóri sem skipar efsta sæti á D-
lista Sjálfstæðisflokksins.
„í atvinnumálum leggjum við
áherslu á að skip verði ekki seld úr
bænum. Við Bolvíkingar þurfum aö
fá aukinn kvóta. Það að tala um auk-
iö atvinnulíf er hjóm eitt ef sjávarút-
vegurinn stendur ekki traustum fót-
um. Því er uppbygging hafnarinnar
og sjávarútvegur mál númer eitt, tvö
og þrjú fyrir Bolvíkinga.
Við viljum stuðla að auknu sam-
starfi við nágrannasveitarfélögin og
leggja um leið áherslu á aukið um-
ferðaröryggi um Óshlíð. Við sjálf-
stæðismenn viljum gera bæinn
þannig að það sé fýsilegt frá atvinnu-
legu og menningarlegu sjónarhorni
að hafa fasta búsetu i Bolungarvík.“
-hlh
KOSNINGAR 1990
Haukur L. Hauksson og Sigurjón Egllsson
BOLUNGARVÍK
Úrslitin 1986
Fimm listar buðu fram í Bolungar-
vík í kosningunum 1986. Þá fékk Al-
þýðuflokkur (A) 95 atkvæði og einn
mann kjörinn, Framsóknarílokkur
(B) 50 atkvæði og engan mann, Sjálf-
stæðisflokkur (D) 224 atkvæði og þrjá
menn, Alþýðubandalag (G) 217 at-
kvæði og tvo menn og Öháðir (H) 107
atkvæði og einn mann kjörinn.
Þessi voru kjörin í bæjarstjórn:
Valdimar L. Gíslason (A), Ólafur
Kristjánsson (D), Einar Jónatansson
(D), Björgvin Bjarnason (D), Kristinn
H. Gunnarsson (G), Þóra Hansdóttir
(G) og Jón Guðbjartsson (H). 1982
buðu fjórir listar fram. Þá fékk D-
listi íjóra menn, B-listi tvo menn,
H-listi tvo menn og G-listi einn mann
kjörinn.
A-listi jafnaðarmanna og
frjáislyndra
1. ÓlafurÞórBenediktsson
verkstjórí.
2. Magnús Ólafs Hanson
verslunarmaður.
3. Martha Sveinbjörnsdóttir
húsmóðir.
4. Sigríður L. Gestsdóttir
húsmóðir.
5. Svavar Geir Ævarsson
sjómaður.
6. Kristín Sæmundsdóttir
húsmóðir.
7. Hlíðar Kjartansson
matsveinn.
8. Guðmundur Sigurðsson
verkamaður.
9. Hólmfríður Guðjónsdóttir
húsmóðir.
10. Daði Guðmundsson,
varaformaður VFSB.
11. Helga Sigurðardóttir
hjúkrunarfræðingur.
D-listi Sjálfstæðisflokks
1. ÓlafurKristjánsson
bæjarstjóri.
2. Anna G. Edvardsdóttir
kennari.
3. Ágúst Oddsson
heilsugæslulæknir.
4. Þóra Hallsdóttir.
5. Sölvi Rúnar Sólbergsson
véltækmfræðingur.
6. Hálfdán Óskarsson sjómaður.
7. Jón S. Ásgeirsson verkstjóri.
8. GunnarHallsson
verslunarstjóri.
9. Sigurður B. Hjartarson
skipstjóri.
10. Jón E. Guðfinnsson,
svæðisstjóri O.V.
11. Jensína Sævarsdóttir
húsmóöir.
F-listi Samstöðu, samtaka
um bæjarmál
1. Kristinn H. Gunnarsson
bæjarfulltrúi.
2. Jón Guöbjartsson
bæjarfulltrúi.
3. Valdemar Guðmundsson
lögregluþjónn.
4. Helga Jónsdóttir kennari.
5. Anna Björgmundsdóttir
sjúkraliði.
6. Ketill Elíasson vélvirki.
7. Ágúst Sverrir Sigurðsson
bifreiðastjóri.
8. Elsa Jóhannesdóttir
verslunarmaður.
9. GuölaugÁrnadóttir
skrifstofumaður.
10. Guðmundur Óli Kristinsson
trésmíðameistari.
11. Þórður Vagnsson
námsmaður.