Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Side 17
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990.
25
Spurt í Neskaupstað:
Hverju spáir þú um
úrslit kosninganna
Elísabet Þórarinsdóttir: Alþýöu-
bandalagiö heldur meirihlutanum.
Hjörvar Sigurjónsson: Meirihluti Al-
þýöubandalagsins fellur.
sagt annaö en aö Alþýðubandalagið
heldur meirihlutanum.
Kristín Valgarðsdóttir: Alþýðu-
bandalagiö veröur sigurvegari - aö
sjálfsögðu.
Sigurður Björnsson: Þaö er ekki gott
að segja. Eg hef grun um að þetta
verði óbreytt.
Óskar F. Jónsson: Hinir koma ekki
viö sögu.
Neskaupstaður:
Alþýðubandalag með
meirihluta í 44 ár
Þaö setur mikinn svip á bæjar-
málapólitíkina í Neskaupstað aö Al-
þýðubandalagiö hefur haft meiri-
hluta í stjórn sveitarfélagsins frá ár-
inu 1946. Níu bæjarfulltrúar skipa
bæjarstjórn Neskaupstaðar. Alþýöu-
bandalagiö hefur fimm þeirra, Sjálf-
stæöiflokkur tvo, Framsókn einn og
óháöir einn.
Andstæöingar Alþýðubandalags-
ins viröast ekki vera vongóðir um
að meirihlutinn falli í kosningunum
26. þessa mánaöar. Það sem helst er
nefnt gegn ráöandi meirihluta er að
Alþýðubandalagið hafi komiö sínum
mönnum í allar stöður - sem eitthvað
kveður aö.
Atvinnumálin eru ekki kosning-
amál í Neskaupstað - ólíkt því sem
er víða annars staöar. Atvinnumálin
virðast vera í góöu lagi. Næg atvinna
og frekar aö vanti fólk en hitt. Það
veröa umhverflsmálin sem koma til
meö að setja einna mestan svip á
umræðuna fyrir kosningarnar. Þá
deila minnihlutamenn á íjárhags-
stöðu bæjarsjóös og segja að fariö
hafi veriö of geyst.
Eins og fyrr segir er Alþýöubanda-
lagið eitt í meirihluta í bæjarstjórn
Neskaupstaðar.
Á kjörskrá eru 1.214. Karlar eru 621
ogkonur593. -sme
Stella Steinþórsdóttir, Sjálfstæðisflokki:
Það þarf nýjar
atvinnugreinar
„Við sjálfstæöismenn setjum at-
vinnumálin númer eitt. Það þarf að
auka fjölbreytni í atvinnulífinu -
þannig að ekki byggist allt á flski,“
sagði Stella Steinþórsdóttir sem skip-
ar efsta sæti framboðslista Sjálfstæð-
isflokks.
„Það þarf nýjar atvinnugreinar í
viðskiptum og iðnaði. Góð atvinna
er forsenda blómlegs bæjarfélags.
Við leggjum áherslu á vatnsveitu-
málin. Það þarf að afla meira vatns.
í umhverfismálum er sitthvað
ógert. Gatnagerð er ekki lokið hér í
bænum. Eins þarf að rækta upp og
snyrta innan bæjar sem utan. Það
þarf að hressa upp á útlit bæjarins
og þétta byggðina í gamla bænum.
Holræsamálin eru í ólestri. Þá er
sorpið eilífðarvandamál.
Barnaskólinn er of lítill. Húsið var
byggt 1931 og það liggur fyrir að það
þarf að stækka hann. Viöbyggingin,
sem byggð var á sínum tíma, dugar
ekki lengur. Þá er félagsaðstaða fyrir
unglinga í gamla gagnfræðaskólan-
um ekki til framtíöar.
Stóra málið er skuldastaða bæjar-
sjóðs. Það er nauðsynlegt aö bæta
þá stöðu.
Samgöngumál eru mál málanna.
Það þarf að gera ný jarðgöng. Sam-
göngurnar ráða þróun byggðarinn-
ar.“ -sme
Stella Steinþórsdóttir skipar efsta
sæti framboðslista Sjálfstæðis-
flokks.
Smári Geirsson skipar efsta sæti
framboðslista Alþýðubandalags.
Smári Geirsson, Alþýöubandalagi:
Ótvíræð
kosningabarátta
„Kosningabaráttan hér er ótvíræð-
ari en annars staöar. Alþýðubanda-
lagiö hefur haft meirihluta frá árinu
1946. Það er kosið á milli okkar eða
íhalds og Framsóknarflokks,“ sagði
Smári Geirsson sem skipar efsta
sæti á framboðslista Alþýðubanda-
lags.
„Við leggjum áherslu á uppbygg-
ingu íþróttaaðstöðu. Bæði hvað varð-
ar íþróttahús og skíðalandið í Odd-
skarði. Þá þarf að halda áfram fram-
kvæmdum við íbúöir fyrir aldraða.
Það er mjög mikil þörf á endurbótum
vatnsveitunnar. Þá þarf aö halda
áfram þeim framkvæmdum og
rekstri sem sveitarfélagið fæst við.
Sveitarfélagið veitir mjög mikla
þjónustu miðað við stærð þess.
Við viljum gera Neskaupstað að
skólabæ. En öll þau verk sem þarf
að sinpa verða að miðast viö íjárhag
bæjarins hverju sinni. Við skuldum
of mikið án þess að staðan sé fjarri
því að vera slæm.
Við leggjum mikið upp úr því aö
grundvöllur atvinnustarfsemi verði
byggður upp félagslega. Samt viljum
við að smærri fyrirtæki verði í eigu
einstaklinga.
Norðfirðingar búa við meira at-
vinnuöryggi en gengur í sjávarpláss-
um.“
Benedikt Sigurjónsson, Framsóknarflokki:
Ekki mikið svigrúm
„Fjárhagsstaða bæjarsjóðs er
slæm og það er ekki mikið svigrúm
til framkvæmda," sagði Benedikt
Sigurjónsson sem skipar efsta sæti
framboðslista Framsóknarflokks við
bæjarstjórnarkosningarnar á Nes-
kaupstað.
„Við viljum að átaki í umhverfis-
málum verði fylgt eftir. Ástand gatna
er frumstætt og það vantar víða end-
anlegan frágang. Það vantar til dæm-
is víða að ganga frá gangstéttum og
fleiru.
Við höfum átt erfitt með vatnsöfl-
un. Það þarf að finna endanlega
lausn á því máli þannig að hér verði
nægt vatn allan ársins hring.
Húsnæðismál skólanna þarf að
leysa - þá sérstaklega barnaskólans.
Þá erum við illa sett í sorpmálum,
eins og margir aðrir. Það þarf að
finna lausn til framtíðar í þeim efn-
um.
Fjárhagsstaða og skuldir bæjar-
sjóðs eru þannig að ekki er hægt að
ráðast í íjárfrekar framkvæmdir.
Þaö er nauðsynlegt að allir geri sér
grein fyrir þeirri staðreynd," sagði
Benedikt Sigurjónsson.
-sme
Benedikt Sigurjónsson skipar efsta
sæti framboðslista Framsóknar-
flokks.
StjómmáJ
KOSNINGAR 1990
Haukur L Hauksson og Sigurjón Egilsson
NESKAUPSTAÐUR
Úrslitin 1986.
Framsóknarflokkur fékk 190 at-
kvæði ög einn mann við kosning-
arnar 1986. Hafði tvo áður. Sjálfstæð-
isflokkur fékk 199 atkvæði og tvo
menn. Hafði tvo áður. Alþýðubanda-
lag fékk 524 atkvæði og fimm menn.
Hafði fimm áður. Óháðir kjósendur
fengu 142 atkvæði og einn mann. Þau
buðu ekki fram 1982.
Þessi voru kjörin í bæjarstjórn
1986.
Gísli Sighvatsson frá Framsóknar-
flokki. Stella Steinþórsdóttir og Elín-
borg Eyþórsdóttir frá Sjálfstæðis-
flokki. Frá Alþýbandalagi; Kristinn
V. Jóhannsson, Sigrún Geirsdóttir,
Smári Geirsson, Elma Guðmunds-
dóttir og Þórður M. Þórðarson. At'
H-lista var kjörin Brynja Garðars-
dóttir.
Framboðslisti
Framsóknarflokks:
1. Benedikt Sigurjónsson
umsjónarmaöur.
2. Þórarinn V. Guönason
verkamaður.
3. María Kjartansdóttir
húsmóðir.
4. SigrúnJúlíaGeirsdóttir
bankastarfsmaöur.
5. GuðröðurHákonarson
bifreiðastjóri.
6. MariaBjarnadóttirfóstra.
7. IngvarFreystemsson
sjómaður.
8. SigríðurWiumhúsmóðir.
9. RagnaMargrét
Bergþórsdóttir húsmóðir.
10. Anna Björnsdóttir
verslunarmaður.
11. GuömundurSkúlason
vélvirki.
12. Guðrún Ásgeirsdóttir
húsmóðir.
Framboðslisti
Sjáifstæðisflokks:
1. Stella Steinþórsdóttir *
verkakona.
2. MagnúsSigurðssonverktaki.
3. Magnús Daníel Brandsson
fulltrúi.
4. Jón Kr. Ólafsson rafvirki.
5. Guðmundur H. Sigfússon
tæknifræðingur.
6. Kristján J. Kristjánsson
bankastarfsmaður.
7. PálmiÞórStefánsson
tannlæknir.
8. Þórunn Halldórsdóttir
fulltrúi.
9. TómasZoega
rafvirkjameistari.
10. PéturG. Óskarsson
húsasmíöameistari.
11. Helgi Magnússon vélvirki.
12. GuðríöurSigurðardóttir.
Framboðslisti
Alþýðubandalags:
1. Smári Geirsson kennari.
2. Guðmundur Bjarnason
starfsmannastjóri.
3. Sigrún Geirsdóttir
skrifstofustjóri.
4. Klara Sveinsdóttir
verkamaður.
5. EinarMárSigurðarson
kennari.
6. Magnús Jóhannsson
verkamaður.
7. Guðmundur R. Gíslason
nemL
8. KatrinJónsdóttirsjúkraliði.
9. Steinunn Aðalsteinsdóttir
yfirkennarL
10. GuðjónB.Magnússon
sjómaður.
11. JónaKatrínAradóttir
húsmóðir.