Dagblaðið Vísir - DV - 07.05.1990, Síða 27
MÁNUDAGUR 7. MAÍ 1990.
35
Afmæli
Sigríður S. Sigurjónsdóttir
Sigríður Sóley Sigurjónsdóttir,
Eyjabakka 15, Reykjavík, er sextug
í dag. Sigríður Sóley er fædd á
Steinavöllum í Fljótum í Skagafirði
og ólst upp í Fljótum. Sigríður flutt-
ist til Reykjavíkur 1951. Sigríður
giftist 1947 Stefáni Jóhannssyni, f.
12. desember 1912, verkstjóra. Þau
skildu. Börn Sigríðar og Stefáns eru:
Inga Jóna, f. 1948, gift Kristni Her-
mannssyni, b. og bifvélavirkja á
Molastöðum í Fljótum, Jóhann Sig-
urður, f. 1950, kennari á Álftanesi.
Sambýliskona hans er Sigrún Þór-
arinsdóttir kennari, Helga Kristín,
f. 1951, gift Guðmundi Ó. Baldurs-
syni, rafvirkja í Rvík, Sæmundur
Jón, f. 1954, leigubílstjóri í Rvík,
kvæntur Ásthildi Sigurjónsdóttur,
Þórður, f. 1958, garðyrkjumaður í
Rvík, Linda María, f. 1962, sjúkra-
liði, í framhaldsnámi, sambýlismað-
ur hennar er Valgarður Einarsson,
rekur eigið fyrirtæki, og Dóra Mjöll,
f. 1965, garðyrkjumaður á Flúöum,
sambýlismaður hennar er Rafn
Emilsson, garðyrkjub. á Flúöum.
Barnabörn Sigríöar eru 14. Systkini
Sigríðar eru: Þórunn, húsmóðir á
Blönduósi, Fjóla, húsmóðir í Rvík,
María, húmóðir á Siglufirði, Rafn,
b. í Neskoti í Fljótum, Dúi, trésmið-
ur í Rvík, og Benedikt, trésmiður á
Siglufirði. Fósturbræður Sigríðar
eru: Þorgrímur Bjarnason, búsettur
í Neskoti, og Bragi Óskarsson, pípu-
lagningamaður í Rvík.
Foreldrar Sigríðar eru: Sigurjón
Gíslason, f. 27. september 1901, d.
1977, b. á Steinavöllum í Fljótum,
og kona hans, Ingibjörg Þorgríms-
dóttir, f. 26. maí 1893, d. 1975. Ingi-
björg var dóttir Þorgríms, b. í Mikl-
hóli, Helgasonar, b. á Svínavatni,
Benediktssonar, b. á Eiðsstöðum í
hamingju með
afmælið 7. maí
90 ára
70ára
50 ára
Margrét Kristjánsdóttir,
Efstasundi 14, Reykjavík.
Anna P. Loftsdóttir,
Vegamótum 1, Seltjarnarnesi.
Guðrún Kristinsdóttir,
Lónabraut 5, Vopnafjarðarhreppi.
Þórunn Guðmundsdóttir,
Hólavegi 15, Siglufxrði.
Sigurður Kristmundsson,
Karlsbraut 2, Dalvík.
Ólafur Níelsson,
Brimnesbraut 3, Dalvik.
Þór Oddgeirsson,
Einiteigi 1, Mosfellsbæ.
80 ára
60 ára
Steingrímur Björnsson,
Ytri-Tungu 2, Tjömeshreppi.
75 ára
Brynjólfur Vilbogason,
Gautlandi 17, Reykjavík.
Guðrún Ágústsdóttir,
Vallargötu 1, Siglufirði.
BaldurÁrnason,
Holtsgötu 6, Miðneshreppi.
Svavar Lárusson,
Espigerði 4, Reykjavík.
Edda S. Skagfield,
Páfastöðum, Staðarhreppi.
Guðrún Jakobsdóttir,
Smáragrund 12, Sauðárkróki.
Sigríður Sóley Sigurjónsdóttir,
Eyjabakka 15, Reykjavík.
40 ára
Eleanor Secong Skarphéðinsson,
Tjarnargötu 4, Njarðvík.
Sveinn Rögnvaldsson,
Brunnum 22, Patreksfjarðar-
hreppi.
Vilhelm Einarsson,
Krummahólum 2, Reykjavík.
Björg Skarphéðinsdóttir,
Stapasíðu 1, Akureyri.
Blöndudal, Tómassonar. Móðir Þor-
gríms var Ingibjörg Arnórsdóttir,
prests á Bergsstöðum, Árnasonar,
biskups á Hólum, Þórarinssonar.
Móðir Ingibjargar var Margrét
Björnsdóttir, prests í Bólstaðarhlíð,
Jónssonar, ættfóður Bólstaðarhlíð-
arættarinnar. Móðir Ingibjrgar Þor-
grímsdóttur var Salbjörg Jónsdótt-
ir. b. í Stórholti í Fljótum, Þorleifs-
sonar, og konu hans, Ólafar Einars-
dóttur.
Sigríður Sóley Sigurjónsdóttir.
SMÁAUGLÝSINGAR
Mðnudaga (ostudaga.
9 00 22 00
Laugardaga. 9 00 14 00
Sunnudaga 18 00 22 00
OPIO!
s: 27022
ATH! Auglýsing í helgarblað þarf að berast
fyrir kl. 17.00 á föstudag.
Kl
Stíft hár-gel
hentar fyrir allar
hártegundir
RAKARASTOFAN
KLAPPARSTÍG
SÍMI 12725
Andlát________________
Sverrir Júlíusson
Sverrir Júlíusson, fyrrv. alþingis-
maður, lést 30. apríl. Sverrir fæddist
12. október 1912 í Keflavík og ólst
þar upp. Hann sótti námskeið í bók-
haldsfræðum við HÍ1941 og var í
námi í Bandaríkjunum 1946. Sverrir
var símstöðvarstjóri í Keflavík
1928-1940, útgerðarmaður og hlut-
hafi í útgeröarfélögum frá 1934 og
stjórnarformaður fyrir Snæfell hf.,
Röst hf. og ísver hf. Hann var fram-
kvæmdastjóri fiskvinnslu- og út- V.
gerðarfyrirtækisins Garðs hf. í
Sandgeröi 14. júlí 1941 -nóvember
1942 og stofnandi og annar eigandi
heildsölufyrirtækisins Jónsson og
Júlíusson í Keflavík 1941-31. des-
ember 1946. Sverrir stofnaði með
öðrum sameignarfyrirtækið Hilmi
sf. á Fáskrúðsfirði 1962 og tók síöan
þátt í rekstri þess. Hann var stofn-
andi og framkvæmdastjóri Hrað-
frystistöðvar Keflavíkúr sf. 1942-31.
júlí 1947 og rak síðan fyrirtækið
ásamt öðrum til 1952. Sverrir var í
viðskiptanefnd 1947-1950 og for-
stjóri sölunefndar innflutningsrétt-
inda bátaútvegsins mars 1951 til árs-
loka 1956. Hann var varaforstjóri
Innflutningsskrifstofunnar 1954-
1960 og forstjóri verðlagsráðs sjáv-
arútvegsins 1961-1963. Sverrir varð
forstjóri Fiskveiðasjóðs íslands
1970-1983-, formaður Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna
1944-1970 og hefur verið heiðurs-
félagi sambandsins frá 1970. Hann
var í stjórn Fiskimálsjóðs frá 1947
og formaður 1951-1956 og frá 1959.
Sverrir var skipaður í verðgæslu-
nefnd og stjórn skuldaskilasjóðs út-
gerðarmanna 1950 og var í stjórn
útflutningssjóðs 1957-1960. Hann
var í fiskimatsráði frá 1960 og var
alþingismaður 1963-1971. Sverrir
var í bankaráði Landsbankans
1965-1968 ogí bankaráði Seðlabanka
íslands 1969-1983, þar af formaður í
tvö ár. Hann var einn af frumkvöðl-
um Ungmennafélags Keflavíkur og
heiðursfélagi þess og umdæmis-
stjóri Lionsklúbbsins Þórs í Reykja-
vík 1977-1978.
Sverrir kvæntist 29. október 1932
fyrri konu sinni, Kristínu Ágústu
Agústsdóttur, f. 14. september 1908.
Foreldrar Kristínar eru: Ágúst
Sveinbjörnsson, sjómaður í Vest-
mannaeyjum, og kona hans, Kristín
Ólafsdóttur. Sverrir og Ágústa slitu
samvistum. Sambýliskona Sverris
um nokkurt skeið og barnsmóðir
var Hrönn Antonsdóttir, verkfræð-
ings í Svendborg, Rasmussen, f. 2.
febrúar 1921, talsímavörður í
Reykjavík. Sverrir kvæntist 20. júní
1954 seinni konu sinni, Ingibjörgu
Þorvaldsdóttur, f. 25. júní 1925, vefn-
aðarkennara. Foreldrarlngbjörg
eru: Þorvaldur Böðvarsson, b. og
hreppstjóri á Þóroddsstöðum í
Hrútafirði, og kona hans, Gróa
Oddsdóttir. Ingibjörg og Haraldur
lektor Ólafsson eru systrabörn. Með
fyrri konu sinni átti Svei rir tvo syni
og eina dóttur en synirnir, Kristinn
og Sigurður Júlíus, létust báðir ung-
ir menn. Dóttirin er Alma Valdís,
gift Agli Jónssyni byggingaverk-
fræðingi, en hann starfar hjá
Garðabæ. Með Hrönn átti Sverrir
þrjá syni: Gunnar Axel, bygginga-
verkfræðing hjá Hitaveitu Rvík,
sem giftur er Hrafnhildi Garðars-
dóttur, ÓskarFinnboga, bygginga-
verkfræðing hjá Almennum verk-
tökum á Keflavíkurflugvelli, tví-
burabróður Gunnars, en kona hans
er Sigurveig Jóna Einarsdóttir, og
Garðar, vélaverkfræðing Sölustofn-
Sverrir Júlíusson.
unar lagmetisins, kvæntan Camillu
Harðardóttur. Með seinni eiginkonu
sinni á Sverrir fiögur börn: Elst er
Anna Gunnhildur, skrifstofustjóri á
Stöö 2, gift Sigurjóni Einarssyni
matvælafræðingi sem starfar við
Tölvuþjónustu fatlaðra; Oddný
Guðrún, doktor í þýskum fræðum:
Ólafur, viðskiptafræðingur og sveit-
arstjóri í Grundarfirði, kvæntur
Ragnheiði Gunnarsdóttur hjúk-
runarfræðingi, og Pétur Örn, lög-
fræðinemi.
Tvær systur Sverris eru á lífi: Lára,
gift Helga Jónssyni, fyrrv. bifreiðar-
stjóra í Keflavík, og María, gift Guö-
mundi Ingi Guðmundsyni, fyn"v.
verkamanni í Keflavík. Foreldrar
Sverris voru Júlíus, f. 25. júlí 1852,
d. 5. september 1928, sjómaður í
Keílavík, Björnsson, verkamanns í
Hafnai'firði, Björnssonar, og kona
hans, Sigríður Sverrína, f. 2. desemb-
er 1882, d. 21. nóvember 1963, Sveins-
dóttir, sjómanns í Keflavík, Einars-
sonar.
Skrifstofur
lögreglustjórans
I Reykjavík hafa fengið nýtt
símanúmer:
69900.
Lögreglustjórinn í Reykjavík.
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í lagningu
11 kV jarðstrengs á milli aðveitustöðvar við Hóla í
Hornafirði og ratsjárstöðvar á Stokksnesi.
Lengd strengs er u.þ.b. 12,7 km.
Verktími: júní og júlí.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns-
veitna ríkisins við Álaugareyjarveg 11, Höfn, og
Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með mánudeginum
7. maí 1990 gegn kr. 5.000,- í skilatryggingu.
Þrátt fyrir að útboðið sé opið eru einungis tilboð
tekin til greina frá verktökum sem taka þátt í skoðun-
arferð um væntanlegt vinnusvæði þann 11. maí nk.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitnanna
á Höfn fyrir kl. 14.00, mánudaginn 21. maí 1990,
og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda
sem þess óska.
Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu „RARIK-
90004, Strenglögn Hólar - Stokksnes".
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi118
105 Reykjavík