Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990. Utlönd Atlantshafsbandalagið: Helmingsfækkun skammdrægra kjarnavopna í Evrópu Vamarmálaráðherrar Atlants- hafsbandalagsins eru nú að und- irbúa helmingsfækkun skamm- drægra kjarnavopna í Evrópu vegna þeirra lýðræðisumbóta sem átt hafa sér stað í austurhluta álfunnar. Bandalagsþjóðirnar hafa samþykkt að ijarlægja kjarnavopn sem hægt er að skjóta úr fallbyssum, hvort sem það verður einhliða eða í samráði við yfirvöld í Moskvu. Kjarnavopn þessi eru hvort sem er svo skammdræg að þau ná ekki til Moskvu. Ólíklegt er þó talið að endanleg ákvörðun um málið verði tekin á fundinum, sem haldinn er í Kanan- askis í Kanada, um þetta mál eða einhver önnur atriði er viðkoma heildarhernaðaráætlun bandalags- ins. Ráðherrarnir telja að leiðtoga- fundur bandalagsríkjanna í júlí sem haldinn verður í London sé rétti stað- urinn til að taka slíkar ákvarðanir. Um 2000 kjarnavopn munu vera í Evrópu af þeirri tegund sem ráð- herramir vilja fjarlægja og er það um helmingur skammdrægra vopna á meginlandinu. Drægni vopnanna er á bilinu 15 til 30 km. Afgangurinn em Lance-flaugarnar sem ekki verða endumýjaðar og flugvélasprengjur. Flest þessara vopna geta aðeins hitt skotmörk í Austur-Evrópu en ekki í Sovétríkjunum. Vestur-þýskir, hollenskir og aðrir embættismenn á fundinum í Kanada sögðu að vopnin væm nú orðin bæði stjórnmálalega og hernaðarlega þarflaus en sendinefnd Breta lét þau orð falla að engin ástæða væri til að flýta sér að fjarlægja þau, ákvörðun gæti beðið þangað til lokið væri end- urskoðun á heildarvarnaráætlun bandalagsins. Margar þjóðir Nato, þar á meðal Vestur-Þýskaland, Belg- ía og Holland, vilja einnig að allar Lance-flaugamar verði fjarlægðar en Bretar kjósa að halda sumum. Búist er við aö Nato ákveði að í stað skammdrægra vopna muni koma sprengjur og kjarnavopn sem skotin verða úr lofti. En ekki hefur enn verið rædd sú viðkvæma spum- ing hvar þessum vopnum veröur komið fyrir. Reuter Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, Manfred Wörner, breski varnarmálaráðherrann Tom King og Ger- hard Stoltenberg, ráðherra Vestur-Þýskalands í varnarmálum, ræða saman við komuna til Kananaskis. Símamynd Reuter AUKABLAÐ GARÐAR OG GRÓDUR 4 Miðvíkudagínn 16. maí nk. mun aukablað um garða og gróður fylgja DV. Meðal annars verður fjallað um málningu utanhúss, áburðargjöf, hellulagnir, verðkönnun á garðverkfærum, illgresíseYðingu, trjáklíppingar o.fl., o.ff. Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi samband við auglýsíngadeíld DVhíð fýrsta í síma 27022. Athugíð að skílafrestur auglýsínga er fýrír fimmtudaginn 10. maí. Auglýsíngar, Þverholtí 11, sími 27022. Stjórn Michels Rocard, forsætisráðherra Frakklands, var ekki felld í gær- kvöldi er atkvæðagreiðsla um vantrauststillögu fór fram. Símamynd Reuter Frakkland: Kommúnistar björg- uðu Rocard Kommúnistar í Frakklandi ákváðu á síðustu stundu að greiða ekki at- kvæði gegn stjórn Rocards þegar at- kvæðagreiðsla um vantrauststillögu gegn stjórninni fór fram í gærkvöldi á franska þinginu. Nokkrum mínútum fyrir atkvæða- greiðsluna tilkynntu kommúnistar að þeir gætu ekki hugsað sér að greiða atkvæði með hægri flokkun- um og þar með var ljóst að ekki yrði nein stjómarkreppa. Fyrrum forsætisráðherra Frakk- lands, Jacgues Chirac, og- hægri ílokkarnir höíðu borið fram van- trauststiUögu gegn ríkisstjórninni vegna nýrra laga um sakaruppgjöf til handa stjórnmálamönnum sem aílað hafa fjár til flokka sinna með ólöglegum hætti. Lög þessi hafa vak- ið gremju margra embættismanna. Michel Rocard forsætisráðherra varði nýju lögin með því að segja að þau hreinsuðu til í því gamla kerfi sem ríkt hefði. Hins vegar yrði ekki um að ræða sakaruppgjöf í nýjum tilfellum. Kommúnistar, sem einir greiddu atkvæði gegn nýju lögunum, sögðu að vantrauststillaga hægri flokk- anna hefði átt að breiða yfir þá stað- reynd að þessir flokkar hefðu greitt atkvæði með nýju lögunum. Ef stjórnin hefði verið felld hefði Rocard neyöst til að segja af sér og að öllum líkindum hefði þurft að boða til nýrra kosninga. Reuter Fellibylur á Indlandi: Átján manns hafa farist Talið er að a.m.k. átján manns leggingvarðáuppskeruogeignum. hafi farist er fellibylur óö yfir suð- Fellibylurinn hélt innreiö sína í austurhlutalndlandsá240km/klst. landið í gær með því að fletja út Líklegt verður þó að tefiast að mun hús, draga tré upp með rótum og fleiri hafi farist eftir því sem emb- slíta rafmagnslínur. Vitað er að 15 ættismenn segja. manns létu lífið í Visahapapnam Að sögn starfsmanna veðurstof- og þrír létu lífiö á mánudag er veör- unnar í Andhra Pradesh höíðu að- iö fór yfir Madras. Yfiröld höfðu eins borist fréttir frá einu svæði ijarlægt um 125.000 manns írá af sjö, sem fellibylurinn hafði farið heimilum sínum í 40 þorpum áður yfir, og töldu þeir að fellibylurinn en veðrið skall á en búist er við hefði verið mun verri en sá sem fór miklum flóðum. yfir svæðið árið 1977 en þá létu Reuter 10.000 manns lifið og gifurleg eyði- FastafulHrúi hjá Nato grunaður um njósnir Fastafulltrúi Lúxemborgar hjá Nato er grunaður um njósnir fyrir Sovétríkin og hefur hann sagt af sér embætti sínu, að því er utanríkisráð- herra Lúxemborgar, Jacques Poos, tilkynnti í gær. Fastafulltrúinn, Guy De Muyser, hefur starfað hjá Nato og verið sendi- herra í Belgíu frá því í mars 1986. Talsmaöur Nato í Brussel vildi í gær ekkert tjá sig um málið og ekki hefur verið greint frá því hvort talið sé að sendiherrann hafi skaöað bandalagið mikiö meö meintum njósnum sínum. Embættismaður í Lúxemborg segir bandarísku leyni- þjónustuna hafa komið upp um Mu- yser. Reuter Guy de Muyser. Simamynd Reuter.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.