Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Side 16
16
íþróttir
Cr h5nttnrcí
EnT nctriiiii
Akvörðun Asgeirs Sigurvinssonar stendur
Krisíján Bemburg, DV, Belgíu;
lenska Zico“ og honum líkt vað
brasilíska töframenn í knattspyrn-
Frá því Ásgeir Sigurvinsson lék unni.
meö Standard Liege í belgísku Þá er sagt að Willi Entenmann,
knattspyrnunni á árunum 1973- yarþjálfariStuttgart.hafitalaðfyr-
1981 hafa belgísku dagblöðin jaíhan ir daufum eyrum þegar hann hafi
fylgst með honura og birt greinar reynt að fá Ásgeir til aö skipta um
um gengi hans í vestur-þýsku skoöun og leika áfram með félag-
knattspymunni. inu. Haft er eftir Ásgeiri: „Stjóm
Het Nieuwsblad, eitt stœrsta dag- Stuttgart hefði átt að hugsa út í það
blað landsins, fjailaði í gær um fyrr að reyna að fá mig til að vera
Ásgeirááberandistaðítilefhiþess lengur. Nú er það of seint, ég er
að hann hyggst leggja skóna á hill- búinn að taka ákvörðun. Ég er orð-
una eftir leík Stuttgart gegn Homb- inn þreyttur á knattspymunni og
urg á laugardaginn. Þar er einu ætla að snúa mér að þeim hlutum
sinni sem oftar talað um „hinn ís- sem ég hyggst fást við í framtíðinni.
Sportstúfar
síðastliðnum, hefur tekið sæti í
nýrri stjóm 1 Brasílíu. Zico, sem
heitir réttu nafni Arlhur Antunes
Coimbra, er orðinn íþróttamála-
ráðherra landsins. Zico lék kveðju-
leik sinn með félagi sínu, Fiamen-
co, og voru um 95 þúsund áhorfend-
ur mættir á leikvanginn til að
kveðja átrúnaöargoð sitt. Zico lék
1047 knattspyrnuleiki á sínum ferli,
þar af í fjögur ár meö ítalska liöinu
Udinese.
Golfmót á Hellu
á sunnudaginn
Golfklúbburinn á Hellu
stendur fyrir goifmóti á
sunnudaginn kemur á
' Jaðarsvellinum. Ræst
verður út frá klukkan átta um
morguninn. Skráning keppcnda fer
fram á föstudag og laugardag í goif-
skála félagsins.
Þrír austur-þýskir landsliðs-
menn í knattspymu hafa í þessari
viku gengið frá samningum við
úrvalsdeildarfélög í Vestur-Þýska-
landi. Hamburger SV hefur keypt
Thomas Doll og Frank Rohde frá
FC Berlin fyrir samtals 2,5 milljón-
ir marka eða um 90 milljónir ís-
lenskra króna. Austur-þýska félag-
ið fær síðan ágóðahlut ef Hamburg-
er selur leikmennina síöar. Þá hef-
ur Bayer Leverkusen keypt Ulf
Kirsten frá Dynamo Dresden fyrir
um 125 milljónir króna en áður
hafði Leverkusen krækt f Andreas
Thom frá FC Berlin sem þá hét
Dynamo Berlin.
Knattspyrnustjan
iþróttamálaráöhí
jarnan
íerra
Hinn heimsþekkti knattspyrnu-
maöur, Brasibumaðurinn Zico,
sem lagði skóna á hilluna í febrúar
Stofna stuðningsmannaklúbb
Ákveðiö hefur verið að stofna stuðningsmannaklúbb íslensku landslið-
anna í handknattleik. Aö stoftiuninni standa nokkrir „Tékkóslóvakiufar-
ar“ með stuðningi frá HSÍ.
á laugardaginn kemur, 12. maí, kl. 17. A fundinum verður rætt um tilurð
og tftgang klúbbsins. Fulltrúar HSÍ og íslensku landshðanna flytja ávarp
og væntanlegir klúbbfélagar verða skráðir auk hefðbundinna fundar-
starfa. Allir handknattleiksaðdáendur eru hvattir til þess að mæta á fúnd-
inn og kynna sér yæntanlegan stuöningsmannakiúbb.
_ Iðr voru heldur betur sígursælir á islands-
móti lögregluliða i "innanhússknattspyrnu sem lauk á dögunum. Lið
þeirra félaga er lögreglulið Gullbringusýslu og sigraói liðið með yfirburð-
um í öllum 9 leikjum sínum á mótinu. Markatalan var 58-9. Liðið skipa
þekktir íþróttamenn, talið frá vinstri i aftari röð; Karl Hermannsson,
Gunnar Schram, Guðmundur Sighvatsson, Arnar Daníelsson, og Ellert
Magnússon. Fremri röð frá vlnsfri: Einar Ásbjörn Ólafsson, Hjálmar
Hallgrímsson, sem kosfnn var maður mótsins, Hjörtur Daviðsson fyrir-
liðl og Gunnar Björnsson. DV-mynd Ægir Már Kárason
ÍBR _____________________________ KRR
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
Úrslitaleikur
KR-FRAM
kl. 20.30
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
Miðaverð: Fullorðnir kr. 550, börn kr. 200.
jT
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
DV
Amór bestur í Gautaborg, segja belgísku blöðin
„Itölsk lið hi
mikinn áhuc
- á Amóri Guðjohnsen, segir dagblaðið Het Laas
• Arnór Guðjohnsen snýr á leikmann Sampdoria í eitt skiptið af mörgum i Gau
Kristján Bemburg, DV, Belgiu:
Dagblöðin í Belgíu vqto á einu máli
um það í morgun að Amór Guðjohnsen
hefði verið besti leikmaður Anderlecht
er liðið tapaði, 2-0, fyrir Sampdoria í
úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa í
Gautaborg í gærkvöldi og missti þár
meö þriðja og síðasta tækifærið á
keppnistímabilinu til að hampa bikar.
Het Laaste Nieuws, Gazet Van Ant-
werpen og Het Nieuwsblad völdu öll
Amór mann leiksins hjá Anderlecht og
Het Laaste Nieuws sagði um hann: „Ar-
nór Guðjohnsen var án efa besti leik-
maður Anderlecht, sóknaflega séð, og
eina leið ítalanna til að stöðva hann var
að brjóta á honum og fyrir það fengu
þeir tvö gul spjöld. Hann kunni greini-
lega vel við að leika aftur á miðjunni,
keyrði vel upp kantana en fyrir því lágu
ákveðnar ástæður. ítölsk lið munu hafa
mikinn áhuga á að ná í kappann. En
hann náði þó ekki að skapa sér neitt
verulega hættulegt marktækifæri.“
Þetta var óhappa-
dagur, segir Arnór
Amór sagði í viðtali við sama blað: „Ég
hefði getað orðið fyrsti íslenski leik-
maðurinn til að vinna Evrópubikarinn.
Þar sem það tókst ekki finnst mér þetta
hafa verið óhappadagur.“ Þess má geta
að Amór og Georges Grún fyrirliði voru
valdir til að gangast undir lyfiapróf eft-
ir leikinn.
í fyrirsögn í Het Volk í morgun mátti
lesa: „Síðasti leikur hjá Guðjohnsen og
Jankovic," en blaðið sagði ekkert frekar
um hvert þeir fara.
Aad de Mos gerði í útvarpsviðtali í
morgun þá undantekningu frá vinnu-
reglu sinni að hann hælir einum leik-
manni Anderlecht, Amóri Guðjohnsen.
„Arnór lék geysilega vel í Gautaborg,“
sagði þjálfarinn. Forseti Anderlecht er
ekki heldur vanur að nefna einstaka
leikmenn en í Het Nieuwsblad er haft
eftir honum: „Amór lék af fingrum
fram.“
*
Reynir Anderlecht
að halda í Arnór?
Eftir þessa frammistöðu Arnórs í gær-
kvöldi er erfitt að ímynda sér annað en
Anderlecht reyni af öllum mætti að
halda honum. Fyrr í vetur sagði Arnór
að hann væri tilbúinn að gera fimm ára
samning við félagið en það er ljóst að
Amór hefur farið fram á mun hærri
laun en Anderlecht er reiðubúið til að
borga. Forseti félagsins sagði í sjón-
varpsviðtali í gærkvöldi að hann hefði
sett hámark í launagreiðslum sem ekki
Arnór var
mjög góður
- er Sampdoria vann Anderiecht, 2-0
Italska felagið Sampdoria varö í
gær Evrópumeistari bikarhafa í
knattspymu þegar liðiö sigraði belg-
íska liðið Anderlecht í úrslitaleik á
Ullevi leikvangnum í Gautaborg með
tveimur mörkum gegn engu. Staðan
eftir venjulegan leiktíma var, 0-0, og
þurfti aö framlengja leikinn um
tvisvar sinnum 15 mínútur og það
nægði ítölunum til aö skora tvö
mörk.
Gianluca Vialli var hetja liðs
Sampdoria, þessi marksækni ítalski
landsliðsmaður, skoraði bæöi mörk
Sampdoria. Það fyrra undir lok fyrri
hálfleiks framlengingarinnar og það
síðara á 2. mínútu síðari hálfleiks
framlengarinnar og skoraði hann
samtals sjö mörk í keppninni. Liö
Sampdoria var allan tímann mun
sterkari aðilinn í leiknum og björg-
uðu leikmenn Anderlecht ekki
ósjaldan á síðustu stundu.
Arnór yf Irburðamaður
hjá Anderlecht
Amór Guðjohnsen var langbesti
leikmaöur Anderlecht í leiknum og
í fyrri hálfleik var hann einn besti
maður vallarins. Þurftu leikmenn
Sampdoria að beita öllum brögðum
til að stöðva hann og fengu tveir
þeirra að líta á gula spjaldið eftir
gróf brot á Amóri í fyrri hálfleik. í
síðari háfleik bar ekki eins mikið á
Arnóri enda hugsuðu leikmenn And-
erlecht fyrst og fremst um varnar-
leikinn og reyndi liðið lítið að sækja.
Amór átti þó eitt besta tækifæri liðs-
ins í síðari hálfleik þegar hann skaut
föstu skoti með vinstra fæti að marki
Sampdoria en markvörður ítalanna
varði vel.
Kveðjuleikur hjá
Arnóri um helgina
Það er Ijóst að Arnór Guðjohnsen
leikur sinn síðasta leik með liði And-
erlecht um næstu helgi þegar félagið
leikur síðasta leikinn í belgisku 1.
deildinni. Arnór hefur leikið með
Anderlecht viö góðan orðstír í sjö ár
og vill nú breyta til. Amór hefur
þegar fengið tilboð frá vestur-þýska
liðinu Núrnberg, en þar er Ari Haan
við stjórnvölinn, og einnig hafa fleiri
lið veriö nefnd svo sem skoska liðið
Glasgow Rangers og vestur-þýska
liðið Köln hefur sýnt honum áhuga
lengi.
-GH
• Gianluca Vialli hampar Evrópubikarnum
i úrslitaleiknum gegn Anderlecht í gærkvöldi.