Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1990, Qupperneq 28
36
FIMMTUDAGUR 10. MAÍ 1990.
Stjómmál
Spurt á Sauðárkróki:
Hver verða úrslit
kosninganna?
Ingimar Ellertsson rafvirki: „Eg held
aö þetta veröi svipað en þó hef ég trú
á aö Framsókn geti unniö á.“
Magnús Sverrisson kjötiðnaðarmað-
ur: „Þetta verður svipaö en þó er
spurning með einn mann til eða frá
hjá íhaldinu eða Framsókn."
Magnús Svavarsson atvinnurekandi:
„Þetta verður mjög svipað og síðast
nema að K-listinn gæti bætt við sig
manni.“
Auðbjörg Pálsdóttir, vinnur við
heimilishjálp: „Það er erfitt að spá
um úrslitin vegna þess að listarnir
hafa breyst mikið."
Svafar Helgason skrifstofumaður:
„Ég veit ekki neitt enda lítið rætt um
póhtík. Ætli þetta verði ekki
óbreytt."
Þórhallur Ásmundsson blaðamaðu
„Þetta verða tvísýnustu kosning:
hér lengi en þetta verður þó óbre>
þegar upp verður staðið.“
Sauðárkrókur:
Fjármálin í brennidepli
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Það er sammerkt með stærstu þétt-
býlisstöðunum þremur á Norður-
landi vestra aö þar er fjármálavandi
sveitarfélaganna það mál sem verður
fyrirferðarmest í kosningabarátt-
unni.
Á Sauðárkróki er fjármálastaða
bæjarins erfiö og bærinn greiddi yflr
90 milljónir króna í fjármagnsgjöld á
síðasta ári. Allir efstu menn fram-
boðslistanna setja fjármálin efst eða
mjög ofarlega á blað í stefnuskrá
sinni og leggja áherslu á að þau þurfi
að leysa.
Sjálfstæðismenn, kratar og óháðir
mynda meirihluta í bæjarstjórn
Sauðárkróks og hafa 5 af 9 bæjarfull-
trúum.
Alþýðubandalag:
Allt of há fjármagnsgjöld
„Við leggjum áherslu á félagsmál,
skólamál, umhverflsmál, hafnarmál
og atvinnumál í framhaldi af því sem
lækka þarf skuldir bæjarins," segir
Anna K. Gunnarsdóttir sem skipar
efsta sæti á lista Alþýöubandalags.
„Við viljum endurskipuleggja þá
starfsemi sem bærinn hefur haft með
unglingum og ráða starfsmann til
þess starfs. Höfnin okkar er sífellt
mikilvægari eftir því sem fyrirtækj-
um fjölgar og þau stækka.
Það þarf að hlúa að atvinnulífmu.
Við teljum sjálfsagt að styðja fyrir-
tækin þegar illa gengur en líka að
selja hlut bæjarins í fyrirtækjum
þegar betur fer að ganga ef viðun-
andi tilboð fást. Þannig má styðja
nýjar atvinnugreinar eða lækka
skuldir bæjarins sem ekki er vanþörf
á. Bærinn greiddi tæplega 91 milljón
króna í fjármagnsgjöld á síðasta ári
sem er allt of mikið.
Við teljum tvö mestu hagsmuna-
mál bæjarins að atvinnuvegirnir
standi vel og að grynnkað sé á skuld-
um þannig að fé fari til framkvæmda
en ekki til greiðslu víxla og aíborg-
ana.
Það er erfitt að spá um úrslit hér.
Það er mikið af nýju fólki á listunum
en við stefnum að því að fá tvo full-
trúa kjörna," sagði Anna K. Gunn-
arsdóttir.
Anna K. Gunnarsdóttir skipar efsta
sæti á lista Alþýðubandalags.
Björn Sigurbjörnsson skipar efsta
sæti á lista Alþýóuflokks.
Alþýöuflokkur:
Atvinnumálin
efst á baugi
„Atvinnumálin verða efst á baugi
hér næsta kjörtímabil, enda undir-
staöa velferöar sveitarfélagsins aö
hér sé næg atvinna," segir Björn Sig-
urbjörnsson sem skipar efsta sæti á
lista Alþýðuflokks.
„Við leggjum áherslu á að áfram
verði unnið að hafnarmálum. Við
erum með 18 kaupleiguíbúðir í bygg-
ingu og næst á dagskrá er bygging
þjónustuíbúða fyrir aldraða. Við vilj-
um að bóknámshús fjölbrautaskól-
ans rísi en það myndi festa skólann
í sessi.
En meginverkefni næstu bæjar-
stjómar verður að koma fjármálum
bæjarins í viðunandi farveg, lækka
skuldir og sýna aðhald í rekstri. Stað-
an er slæm, fyrst og fremst vegna
þess að gífurlegar upphæðir hafa
veriö settar í Steinullarverksmiðj-
una og í útgerðarmálin.
Jafnaðarmenn eru bjartsýnir á úr-
slit kosninganna,“ sagði Björn Sigur-
bjömsson.
Óháðir:
Mönnum blöskrar skuldafenið
„Það sem brennur brýnast á mönn-
um hér er að lækka skuldir bæjar-
ins, mönnum blöskrar skuldafenið.
Skuldirnar eru þó ekki meiri en hjá
mörgum öðrum stöðum af svipaðri
stærð,“ segir Hilmir Jóhannesson
sem skipar efsta sæti á lista óháðra.
„Þessar kosningar verða ekkert
öðravísi en aðrar, enda eru allir með
sömu stefnuskrána. Síðast vora hér
í gangi slagorð eins og „Gefum Fram-
sókn frí“ og það gekk eftir. Nú vill
Framsókn komast aftur í meirihluta
og það er erfitt að spá um hvað muni
gerast. Við vitum ekki hvað unga
fólkið gerir og allir spádómar eru
þvættingur. Ætli það megi ekki segja
aö það sé kosiö um Davíð hér eins
og alls staðar annars staðar.
Ég lét plata mig í 1. sætið en lifi
Hilmir Jóhannesson skipar efsta
sæti á lista óháðra.
það alveg af þótt eitthvað gerist. Það
er fyrst og fremst kosiö um menn því
að það eru allir með sömu stefnu-
skrána,“ sagði Hilmir Jóhannesson.
Framsóknarflokkur:
Dapurleg staða í fjármálunum
„Aðaláhersla okkar beinist að því
að hugaö verði að endurskipulagn-
ingu á fjármálum bæjarins, en staða
þeirra mála er dapurleg,“ segir Stef-
án L. Haraldsson sem skipar efsta
sætið á lista Framsóknarflokksins.
„Við þessar aðstæður er ekki hægt
aö fara fram með langan loforðalista
þótt eitt og annað þurfi aö gera. Sem
dæmi get ég nefnt byggingu 1. áfanga
bóknámshúss við Fjölbrautaskólann
en sú framkvæmd er háð fjárveitingu
frá ríkinu.
í umhverfismálum eru verkefni við
urðun sorps og áframhaldandi fegr-
un bæjarins. Bærinn hefur tekið þátt
í eflingu atvinnulífsins og lagt fram
fé bæði til Steinullarverksmiðjunnar
og útgerðarmálanna.
Ég treysti því að bæjarstjórn veljist
Stefán L. Haraldsson skipar efsta
sæti á lista Framsóknarflokksins.
eftir lýðræðislegum vilja fólksins,“
sagði Stefán.
Sjálfstæöisflokkur:
Þurfum að ná niður skuldum
Knútur Aadnegard skipar efsta sæt-
ið á lista Sjálfstæðisflokks.
„Við leggjum mesta áherslu á að
ná niður skuldum bæjarins sem stafa
fyrst og fremst af því að bærinn hef-
ur lagt mikið fé til atvinnulífsins, til
Steinullarverksmiðjunnar og út-
gerðarinnar, en þessi upphæð er
framreiknuð á verði í dag um 200
milljónir króna," segir Knútur
Aadnegard sem skipar efsta sætið á
Usta Sjálfstæðisflokks.
„Við teljum að það hafi verið rétt
stefna aö koma hér í veg fyrir gjald-
þrot og atvinnuleysi. Hins vegar telj-
um viö að bæjarfélagið eigi ekki að
standa í atvinnurekstri þótt nauð-
synlegt sé að hlaupa undir bagga
þegar illa árar. En ef aðstæður leyfa
og viö fáum hagstæð tilboð í hluta-
bréf bæjarins og trausta kaupendur
þá á bærinn aö selja.
í umhverfismálum þarf að vinna
að frárennslismálum og halda áfram
að vinna við útivistarsvæði og
göngustíga, t.d. í Hlíðahverfi. Af öðr-
um framkvæmdum má nefna bygg-
ingu þjónustuíbúða fyrir aldraða, 1.
áfanga bóknámshúss viö Fjölbrauta-
skólann, áframhaldandi uppbygg-
ingu íþróttahússins og skíðasvæðis.
Eg tel að staða okkar sjálfstæðis-
manna sé góð. Við teljum okkur vera
með sterkan lista þar sem á honum
er nýtt fólk,“ sagði Knútur Aadne-
gard.
x>v
KOSNINGAR 1990
Gylfi Kristjánsson
SAUÐÁRKRÓKUR
Úrslitin 1986
Sex listar buðu fram á Sauðárkróki
í kosningunum 1986. Alþýðuflokkur
(A) fékk 159 atkvæöi og einn mann
kjörinn, hafði engan. Framsóknar-
flokkur (B) fékk 441 atkvæði og þrjá
menn, hafði fjóra. Sjálfstæðisflokkur
(D) fékk 411 atkvæði og þrjá menn,
hafði þrjá. Alþýðubandalag (G) fékk
163 atkvæði og einn mann, hafði
einn. Óháðir (K) fengu 163 atkvæði
og einn mann, höfðu einn. Þá fékk
Nýtt afl (N) 53 atkvæöi og engan
mann en sá listi bauð ekki fram 1982.
Þessi voru kjörin í bæjarstjórn
1986:
Björn Sigurbjörnsson (A), Jón E.
Friðriksson (B), Magnús H. Sigur-
jónsson (B), Pétur Pétursson (B),
Þorbjörn Árnason (D), Aðalheiður
Arnórsdóttir (D), Knútur Aadnegard
(D), Anna Kristín Gunnarsdóttir (G)
og Hörður Ingimarsson (K).
D-lísti Sjáifstæðisflokks:
1. KnúturAadnegard
byggingameístari.
2. Steinunn Hjartardóttir
lyfjafræðingur.
3. Bjöm Bjömsson skólastjóri.
4. Gísli Sverrir Halldórsson
dýralæknir.
5. Sólveig Jónasdóttir.
6. Árni Egilsson sláturhússtjóri.
B-listi Framsóknarflokks:
1. StefánL.Haraldsson
skrifstofustjóri.
2. Viggó Jónsson rafvélavirki.
3. Herdís Sæmundsdóttir
lyfjatæknir.
4. Gunnar Bragi Sveinsson
verslunarmaður.
5. Magnús Sigfússon húsasmiður.
6. EinarGíslason,
tæknifræðingur.
G-llsti Alþýðubandalags:
1. AnnaK.Gunnarsdóttir
ketmari.
2. Ólafur Arnbjörnsson
aöstoðarskólameistari.
3. Karl Bjarnason
framleiðslustjóri.
4. Guðbjörg Guðmundsdóttir
skrifstofumaður.
5. Skúli Jóhannsson
iðnaðarmaður.
6. Kristbjöm Bjarnason
íðnaöarmaður.
A-listi Alþýðuflokks:
1. BjörnSigurbjörnsson
skólastjóri.
2. Pétur Valdimarsson
kaupmaöur.
3. EvaSigurðardóttir
skrifstofustúlka.
4. Friörik Jónsson
framleiðslustjóri.
5. Helga Hannesdóttir
afgreiðslustúlka.
6. María G. Ólafsdóttir
afgreiðslustúlka.
K-listi óháðra:
1. Hilmir Jóhannesson
mjólkurfræðingur.
2. Björgvin Guðmundsson
rafvirki.
3. Brynjar Pálsson kaupmaður.
4. Steinunn Erla Friöþjófsdóttir
húsmóðir.
5. Sigríður Aradóttir verkstjóri.
6. Kári Valgarösson
húsasmíöameistari.