Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 4
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. Fréttir i>v Málílutningi í Hafskipsmálinu lokið í Sakadómi Reykjavikur: Það er búið að mæla hér milljónir orða - sagði Ragnar Kjartansson og afþakkaði að taka til máls „Ég á aðeins um tvennt að velja, að tala og tala þá í sólarhring eða taka ekki til máls. Ég kýs seinni kostinn. Það er búið að mæla hér milljónir orða og ætli sé ekki nóg komið,“ sagði Ragnar Kjartansson, fyrrum stjórn- arformaður Hafskips, þegar honum var gefmn kostur á að taka til máls í lok málflutnings í Hafskipsmálinu. Tveir aðrir ákærðir voru viðstaddir, Björgólfur Guömundsson og Lárus Jónsson, fyrrum bankastjóri Útvegs- bankans. Þeir afþökkuðu einnig að taka til máls. Einhveijum lengsta málflutningi í réttarsögu landsins er lokið. Hann hófst í Sakadómi Reykjavíkur fyrir einum mánuði. Það segir ekki alla söguna þar sem vitnaleiðslur hófust í desember í fyrra og þær stóðu linnulítið þar til málflutningurinn hófst. Ákærur voru gefnar út í nóv- ember 1988. Fyrst voru fnnmtán lög- menn sem unnu að vörnum í málinu en þeim fækkaði nýlega um einn. Jónatan Þórmundsson lagaprófess- or, og sérstakur ríkissaksóknari í málinu, hefur haft tvo lögmenn sér til aðstoðar og dómararnir eru þrír. Það hefur því mikill fjöldi löglærðra verið upptekinn vegna þessa máls svo mánuðum skiptir. Málsvarnarlaun Verjendumir fluttu seinni ræður sínar á miðvikudag. Einn þeirra gerði í dómsalnirrn Sigurjón M. Egilsson þá kröfu að sér yrðu dæmd rífleg málsvamarlaun. Hann sagði svo komið að fólk væri hætt að hringja á skrifstofu sína - þar sem hann væri aldrei við. Hann sagði ekki vanþörf á, nú þegar hlé verður á málinu, að rífa upp starfsemi síns fyrirtækis á ný. Tveir ákærðu, Ragnar Kjartansson og Björgólfur Guðmundsson, hafa verið í Sakadómi nær óslitið þann tíma sem máhð hefur verið til með- ferðar þar. Njáll, Bangsimon og guð I upphafi ræðu sinnar á miðviku- dag rakti Guðmundur Ingvi Sigurðs- son, verjandi Björgólfs, í hvaöa per- sónur lögmenn hefðu vitnað í ræðum sínum. Þar mátti heyra nöfn eins og; Njáll, Bergþóra, Halldór Laxness, Charles Dickens, Þyrnirós og Bangsimon. Þessi upptalning var aöeins upphit- un hjá Guðmundi. Hann vék næst að málatilbúnaði ákæmvaldsins. Hann sagði að hefði ákæruvaldið eða rannsóknarar skilið launakjör for- stjóranna hefðu þeir aldrei verið Fjölmiðlar og umfjallanir þeirra hefur oft borið á góma í Hafskipsmál- inu. Guðmundur Ingvi sagöi það ekki verjandi að ákæruvaldið léti stjórn- ast af þrýstingi fjölmiðlafárs sem kallar á blóð, kallar á ákærur. Guðmundur herti enn á gagnrýni sinni í garð saksóknara og sagði að þessi ákæra væri tilraunastarfsemi fræðimanns sem væri að láta reyna á þanþol laganna. Hann sagöi að svo virtist sem ákærðu væru ágætir til tilraunastarfsemi en það mætti ekki gleymast að þeir væru menn með til- fmningar og að Jónatan Þórmunds- son ætti ekki að hafa heimild til þannig tilraunastarfsemi. „Jafnvel sýknudómur getur ekki Nýtt sjónvarpstækí Notað upp í nýtt! Víð sendum ykkur nýja tækíð og sækjum það gamla Ef ætlunin er að fá sér nýtt litsjónvarpstæki á næstunni þá býðst ykkur eftirfarandi: * Lengsta ábyrgð í Evrópu. * Grundig - Vestur-þýsk hágæða litsjónvarpstæki í sérflokkí. 5 ára ábyrgð á myndlampa og 3ja ára ábyrgð á öðrum hlutum. * Orion - Vönduð og fullkomin lítsjónvarpstækí frá Japan. 5 ára ábyrgð á mynd- lampa og 3ja ára ábyrgð á öðrum hlutum. * Sendum ykkur nýja tækíð - sækjum það gamla (Frí þjónusta). * Allar gerðír af eldrí sjónvarpstækjum teknar upp ný. * Sjónvarpstækí í öllum stærðum: 14", 16", 20", 22", 25", 28". Komíð og skoðíð okkar {jölbreytta úrval. Lipurt starfsfólk er ávallt til staðar. Velkomín. Símínn okkar er 687720 Tílboðíð gíldír fýrir alla landsbyggðína! Fjölskyldur úti á landí: Hringið og fáíð nánarí upplýsingar. (Keyrum heím aðeíns á höfuðborgarsvæðinu.) Tveir ákærðir. Ragnar Kjartansson og Garðar Sigurðsson, en hann átti sæti i bankaráði Útvegsbankans. ákæröir. Guðmudur Ingvi sagði að ekki heíði vantað aö ákæruvaldinu væri bent á þessa hluti. Hann sagði að þeir hefðu ekki skihð málið, eða ekki viljað skilja það. Hann sagöi launasamninga forstjóranna vera fyrir utan reynsluheim rannsóknar- anna og þeir því ekki getað skhið þá. „Þetta er uppgjörsmál og ekkert ann- að,“ sagði Guðmundur Ingvi Sig- urðsson. Þá sagði hann að ef dómendur sak- felli fyrir notkun jaðarreikninganna, sem hann sagðist reyndar ekki hafa trú á að gert verði lokuðu þeir augun- um fyrir þeim heimildum sem Ragn- ar og Björgólfur höföu samkvæmt samningum viö stjórn Hafskip. Verjandinn sagði aö Björgólfur hefði verið í góðri trú þegar hann notaði jaðarreikninginn fyrir sig per- sónulega - enda hafi hann átt inni hjá Hafskip umtalsverðar fjárhæðir. Þá neitaði Guðmundur Ingvi því al- farið sem Jónatan Þórmundsson hafði sagt, að síðbúnar skýringar á 60 prósent reglunni hefðu kviknað eftir yfirheyrslur yfir Sveini R. Ey- jólfssyni hjá rannsóknarlögreglunni. Guðmundur benti á að á árinu 1983 hefðu verið valdir sérstakir menn af stjórn Hafskips til að semja við Björgólf og Ragnar vegna innstæðna sem þeir áttu hjá félaginu. „Rannsóknurum og ákæruvaldinu hefur gengið illa að skilja þessa reglu og þá sérstaklega orðalagið „mætir að hluta kostnaði". Laun eru að sjálf- sögðu kostnaður fyrirtækis," sagði hann. Kallaráblóð „Ég efast ekki um að sérstakur rík- issaksóknari er dugmikill fræðimað- ur og hann hefur leitað um aht dóma- safn íslands, dómasöfn Norðurlanda og víðar án þess að finna nokkurt fordæmi.“ Þetta sagði Guðmundur Ingvi þegar hann var að sýna fram á hversu mikla sérstöðu Hafskips- málið hefur. Guðmundur benti Jónatan á að enn hefði hann tækifæri til aö komast á spjöld sögunnar og það gerði hann með því að viðurkenna að ákæran standist ekki lengur og draga máhð frá dómi. „Þaö er enn lag,“ sagði hann. bætt þann mikla miska sem Björgólf- ur og fjölskylda hans hafa orðið fyr- ir. Meö ákærunni var hann brenni- merktur fyrir lífstíð. Hann hefur tek- ið út sína refsingu og sína afplánun. Þetta verðið þið, virðulegu dómend- ur, að hafa í huga þegar þið setjið saman dóm,“ sagði Guðmundur Ingvi í lok ræðu sinnar. Reynslulítill kennari Jón Magnússon, verjandi Ragnars Kjartanssonar, sagði það vera gott að Jónatan segði þetta mál mikla reynsu fyrir sig. Jón sagði það gott að reynsluhtill háskólakennari heíði getað lært af þessu máli. Jón Magnússon og Jón Steinar Gunnlaugsson töluðu báðir um gögn málsins. Þeir komu báðir inn á hversu samvinnufúsir ákærðu hefðu verið og aö þeir hefðu oft átt frum- kvæði að gagnaöflun. Þeir nefndu sérstaklega Ragnar Kjartansson í því sambandi. Jón Magnússon sagði að það yrði að taka öll gögn ákæruvaldsins með fyrirvara þar sem þau hefðu verið rofin í sundur ásamt fleiri athuga- semdum. Jón Magnússon sagði að það skorti allan ásetning ákærðu til þeirra brota sem þeir eru ákærðir um. Jón Steinar sagði, þegar hann var að fjalla um ákærur á hendur Helga Magnússyni, að það vantaði sjálft afbrotið. Því stæðist ákæran hvergi. Aðrir verjendur Aðrir verjendur gagnrýndu vinnu- brögð saksóknara mjög. Jónas Aðal- steinsson sagði ákæruna vera byggða á misskilningi. Skúli Pálsson sagði að ákæruvaldinu heföi ekki tekist aö sanna ásetning. Helgi V. Jónsson sagði að ósannað væri að bankastjórarnir hefðu sýnt af sér vanrækslu og hirðuleysi. Þessar tilvitnanir eru aðeins hluti þess sem verjendurnir höfðu um vinnubrögð og málflutning ákæru- valdsins að segja. Dómur verður væntanlega kveðinn upp um næstu mánaðamót. Öruggt er, sama hver niðurstaða Sakadóms Reykjavíkur verður, að málið kemur til kasta Hæstaréttar. Hvenær þaö veröur er óvíst á þessari stundu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.