Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.1990, Blaðsíða 25
FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 1990. 49 Sviðsljós Það reynir á jafnvægislistina þegar fjórir drengir reyna í sam- einingu að hreyfa sig á þessum spýtum. Beint skai það verða. Þessi drengur ætlar sér greinilega að pútta golfkúlunni ofan í holuna í einu höggi. Þessar ungu stúlkur létu sig ekki muna um að brosa framan í Ijósmyndarann i blíðunni á laugardaginnn. DV-myndir GVA Útihátíð í Austurbæjarskóla Það var mikil ásókn í að fá andlitið litað en boðið var upp á andlitsförðun í porti Austurbæjarskólans. Meðan fólkið beið í biðröð fengu Kim Larsen og félagar sér snæðing innan- dyra og gátu ekki stillt sig um að taka eitt lag undir borðum. DV-myndir GVA Kim Larsen er vinsæll Frá því á laugardaginn hefur Kim Larsen ásamt hljómsveit sinni, Bell- ami, verið á þeysireið yfir landið og skemmt í íþróttaskemmum á Akra- nesi, Akureyri og Hafnarfirði. Hann hélt sína fyrstu skemmtun á laugar- daginn á Gauk og Stöng og var það greinilega allt of lítill staður fyrir svo vinsælan söngvara, því eins og sjá má af annarri myndinni myndaðist löng biðröð við Gauk á Stöng löngu áður en hljómleikarnir hófust. Kim Larsen sannáöi það í þessari íslandsferð sinni að hann er vinsæl- asti norræni söngvarinn á íslandi. Löngu áður en farið var að hleypa inn á tónleika Kim Larsen hafði mynd- ast löng röð fyrir framan Gauk á Stöng. í tilefn'i af sextíu ára afmæli Aust- urbæjarskóla var haldin útihátíð í porti skólans um síðustu helgi. Til- efnið var sextíu ára afmæli skólans. Foreldrafélag skólans sá um undir- búning og tókst þessi hátíð framar vonum. Mikið var um skemmtanir í skólaportinu eins og myndirnar sýna og mættu núverandi og fyrrverandi nemendur og áttu saman góða stund. Fimm ættlið- ir í karllegg Á þessari mynd má sjá fimm ættliði í karllegg sem er einstakt. Ættfaðir- inn, sem situr fremst, er Ólafur J. Guðmundsson frá Laugardal í Tálknafirði. Hann er orðinn 89 ára og dvelur á Hrafnistu i Hafnarfirði. Við hlið hans er yngsi ættliðurinn, Heimir M. Jökulsson. Það er faðir hans, Jökull S. Barkarson, sem heldur á honum. Að baki þeim standa Guömundur J. Ólafsson, sonur Ólafs, og sonur hans, Börkur A. Guðmundsson. Vinna á kjördag Sjálfstœöisflokkinn íReykjavík vantar sjálfboóaliða til margvíslegra starfa á kjördag, laugardaginn 26. maí. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Sjálfstœöisflokksins í Valhöll, Háaleitisbraut 1, eöa í síma 82900frá kl. 9 til 22 vifka daga ogfrá kl. 13 til 18 um helgar. Sjálfstæðisflokkurinn íReykjavík Borgar stj órnarkosningar 26. maí 1990 <-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.