Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Qupperneq 3
MIÐVIKUDAGUR 30. MAÍ 1990.
3
Fréttir
Deilur ísraela og Palestinumanna magnast stöðugt og nú er peningurinn
frægi, sem Arafat sýndi Steingrimi, kominn í spilið. Arafat, leiðtogi Palestínu-
manna, endurtók rökstuðning sinn um landakortið af Stór-ísrael, sem hann
flutti Steingrimi í Túnis, á fundi Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna í Genf
í síðustu viku. ísraelsmenn mótmæla enn og segja að „landakort" Arafats
sé steinbrot frá árinu 37 fyrir Krist. Reuter
Atvinnumiölun námsmanna:
Tíu bílasölur við Ártúnshöfða taka sig saman:
Ráða vaktmann
með hund til gæslu
að næturlagi
- vegna skemmdarverka á 30 bílum á svæðinu að undanfórnu
Aðstandendur tíu bílasölufyrir-
tækja við Ártúnshöfða hafa tekið
sig saman um aö ráða vaktmann á
svæðið vegna mikilla skemmdar-
verka sem voru framin á svæðinu
nýlega. Verður þá eftirht haft með
bílum allan sólarhringinn á við-
komandi bílasölum.
„Við teljum okkur verða að bjóða
viðskiptavinum upp á meira ör-
yggi. Við samþykktum því að ráða
til þess gæslumann með hund til
að vakta svæðið frá klukkan tíu á
kvöldin til átta á morgnana. Á okk-
ar svæði var nýlega farið á sex bíla-
sölur og þijátíu bílar skemmdir.
Við héldum því fund um máliö og
þar var samþykkt að leita tilboða
fyrir öryggisgæslumann með
hund, ljóskastara og tilheyrandi.
Þegar hann hefur störf ætti hann
að geta verið við hverja bílasölu á
10-15 mínútna fresti," sagði Ingi-
mar Sigurösson bílasali en hann
er í forsvari þeirra tíu bílasala sem
ætla að koma á sameiginlegri ör-
yggisgæslu við Ártúnshöfða.
Ingimar sagði í samtali við DV
að eitt tilboð hefði borist frá örygg-
isgæslufyrirtæki vegna útboðsins
og annað væri á leiðinni. Bílasal-
arnir gera ráö fyrir að kostnaður á
hvert fyrirtæki vegna gæslunnar
verði um 20 þúsund krónur á mán-
uði.
-ÓTT
Um 900 á skrá en
200 störf í boði
- álíka mörg störf 1 boði og í fyrra en 300 fleiri á skrá
„Málin hjá okkur standa þannig
að um 900 námsmenn hafa látið skrá
sig hjá Atvinnumiðlun námsmanna,
en það eru rétt rúm 200 störf í boði.
í fyrra voru álíka mörg störf í boði
en þá voru ekki á skrá hjá okkur
nema um 600 námsmenn. Ástandiö
er því til muna verra í ár en í fyrra,“
sagði Elsa Valsdóttir, hjá Atvinnu-
miðlun stúdenta í samtali við DV í
gær.
Hún sagðist ekki hafa heyrt neitt
ákveðið um hið svo kallaða náms-
mannaátak í ár en í fyrra var shkt
átak gert til að auka atvinnu náms-
manna. Hún sagðist þó vita til þess
að það hefði verið rætt hjá opin-
berum aðilum.
Óskar Hallgrímsson, hjá atvinnu-
máladeild félagsmálaráðuneytisins,
sagði að Jóhanna Sigurðardóttir fé-
lagsmálaráðherra hefði borið erindið
upp í ríkisstjórninni, en hann sagði
að það hefði enn ekki verið afgreitt.
Það er ljóst af ummælum Elsu
Valsdóttur að atvinnumál náms-
manna hafa ekki um árabil staðið
verr en um þessar mundir.
-S.dór
NÝTT SSiAeto)
Sérstakar LIBERO bleiur fyrir stráka,
sérstakar LIBERO bleiur fyrir stelpur.
Strákableiurnar eru þykkastar að
framan, stelpubleiurnar eru þykkastar í
miðjunni, þar sem þörfin er mest.
Nú er líka teygja að aftan, sem heldur
bleiunni á réttum stað.
Framhjóladrifinn 5 manna
fjölskyldubíll, fallegt útlit,
frábærir aksturseiginleikar,
spameytinn og á einstöku
verði.
L
Rúmgóður fjölskyldubíll með 1289 cc 63 hö
Hér er hugsað fyrir öllu til ferðalaga
og flutninga, tvískipt niðurfellanlegt aftursæti 60/40 og framsætið er einnig hægt að
leggja alveg niður að aftursætum. Lúxus innrétting, þurrka á afturrúðu, þokuljós ofl.
Verð kr. 510.400
vél, 5 gíra, 5 dyra.
Verðkr. 469.900
ÐŒiQU-LS
JÖFUR
ÞEGAR Í>Ú KAUPIR BÍL
Hafðu samband við söludeildina strax
í dag. Söludeildin er opin alla virka
daga kl. 9-12 og 13-18 og laugardaga
kl. 13-17. Síminn er 42600.