Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Blaðsíða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1990. Fólk í fréttum Guðrún Zoéga Guörún Zoega verkfræðingur, Lerkihlíð 17, Reykjavík, er einn hinna nýju borgarfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins. Guðrún fæddist í Reykjavík 4. september 1948 og ólst þar upp í for- eldrahúsum. Hún lauk stúdents- prófi frá MR1967, fyrri hluta prófi í verkfræði við HÍ1970 og prófi í byggingaverkfræði frá Danmarks Tekniske Höjskole 1974. Guðrún var verkfræðingur hjá verkfræðistofunni Fjarhitun hf. 1974-1987, aðstoðarmaður Friöriks Sophussonar iðnaðarráðherra 1987- 88, stundaöi húsmóðurstörf 1988- 89 og hefur verið fram- kvæmdastjóri Félags ráðgjafaverk- fræðinga frá 1989. Guðrún sat í aðalstjórn Verk- . fræðingafélags íslands 1981-83 og var þá jafnframt formaður stéttarfé- íags verkfræðinga. Hún hefur setið í stjórn Hvatar frá 1985 og verið for- maður Hvatar frá 1988. Þá á hún sæti í orkunefnd Sjálfstæöisflokks- ins frá 1987, og var formaður jafn- réttis- og fjöldskyldunefndar 1988-89. Hún var varaborgarfulltrúi í Reykjavík 1986-90, hefur setið í skólamálaráði og á sæti í stjórn veitustofnana. Guðrún giftist 3. júlí 1973 Ernst Torben Hemmingsen, f. 17. maí 1947, hagfræðingi. Foreldrar hans eru Vagn Hemmingsen, verkfræðingur í Óðinsvé, og kona hans, Karna Hemmingsen. Börn Guðrúnar og Ernst eru Jó- hannes Þorgeir, f. 8. mars 1974, og Karen Kristjana, f. 20. júní 1976. Systkini Guðrúnar eru Tómas, f. 3. júlí 1946, geðlæknir, kvæntur Fríði Bjarnadóttur hjúkrunarfræð- ingi og eiga þau fjögur börn; Bene- dikt, f. 4. maí 1955, tölvufræöingur, kvæntur Vigdísi Jónsdóttur, skjala- verði Alþingis, og eiga þau þrjú börn og Siguröur, f. 26. október 1961, hag- fræðingur í Reykjavík. Foreldrar Guðrúnar eru Jóhannes Zoega, fyrrv. hitaveitustjóri í Rvík, og kona hans, Guðrún Benedikts- dóttir. Jóhannes er sonur Tómasar Zoéga , sparisjóösstjóra á Norðfirði, Jó- hannessonar Zoega, skipstjóra í Rvík, bróður Geirs, afa Geirs Hall- grímssonar seðlabankastjóra. Jó- hannes var sonur Tómasar Zoega, formanns á Akranesi, Jóhannesson- ar Zoega, glerskera í Rvík, Jóhann- essonar Zoega, tuktmeistara í Rvík, ættföðurZoegaættarinnar. Móðir Tómasar var Guðný Hafliöadóttir, tómthúsmanns í Rvík, Nikulásson- ar, systir Ólafar, móður Bjarna Jónssonar vígslubiskups. Kona Haf- liða var Guðfmna Pétursdóttir, b. i Engey, Guðmundssonar, langafa Guðrúnar, móður Guðrúnar Zoega. Móðir Jóhannesar hitaveitustjóra var Steinunn Símonardóttir, b. á Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal Jónssonar, b. á Efstabæ í Skorra- dal, Símonarsonar, ættfóður Efsta- bæjarættinnar, foður Halldóru, ömmu Sveinbjörns Beinteinssonar, skálds og allsherjargoða, og Hildar, ömmu Péturs Ottesen, alþingis- manns á Ytra-Hólmi, Jóns Helga- sonar ritstjóra, Magnúsar Ásgeirs- sonar, skálds og þýðanda, Leifs Ás- geirssonar prófessors. Móðir Stein- unnar var Herdís Jónsdóttir, systir Magnúsar, langafa Guðrúnar, móð- ur Hannesar Pálssonar bankastjóra. Móðursystkini Guðrúnar: Sveinn framkvæmdastjóri, faðir Ingimars arkitekts og Einars, forstjóra Sjóvá, fóður Ástu Sigríðar fegurðardrottn- ingar; Bjarni forsætisráðherra, faö- ir Björns aöstoðarritstjóra; Pétur, alþingismaður og bankastjóri; Kristjana, móðir Benedikts Blön- dals hæstaréttardómara tfg Halldórs Blöndals alþingismanns, Ragnhild- ur sem lést ung og Ólöf mennta- skólakennari. Guðrún er dóttir Benedikts, al- þingismanns í Rvík, Sveinssonar Víkings, gestgjafa á Húsavík, Magn- ússonar, bróður Björns, afa Guð- mundar Benediktssonar ráðuneyt- isstjóra, fóður Solveigar Láru prests. Móðir Benedikts var Krist- jana, systir Baldvins, afa Þóris Bald- vinssonar arkitekts. Kristjana var dóttir Sigurðar, b. á Hálsi í Kinn, Kristjánssonar, b. á Illugastöðum, Jónssonar, föður Kristbjargar, langömmú Jóns Múla og Jónasar Árnasonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún Pétursdóttir, b. í Engey, Kristinssonar. Móðir Péturs var Guðrún Pétursdóttir, systir Guð- fmnu, konu Hafliða Nikulássonar. GuðrúnZoéga. Afmæli Hjálmar Ágústsson Hjálmar Ágústsson, eftirlitsmaður Unufelli 31, Reykjavík er sjötugur í dag. Hjálmar Ágúst er fæddur í Bíldudal og ólst þar upp. Hann var verkstjóri hjá Niðursuöuverksmiðj- unni hf. í Bíldudal 1953-1957 og Hraðfrystihúsi Bíldælinga 1957- 1970. Hann var verkstjóri hjá Barð- anum í Kópavogi 1971-1972 og eftir- litsmaður hjá Sölumiðstöð Hrað- frystihúsanna frá 1972. Hjálmar var formaður sóknarnefndar í Bíldudal 1953-1967. Hann var í stjórn og for- maður Sjálfstæðisfélags Amfirð- inga 1960-1967 og Kjördæmisráði Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörðum 1960-1964. Hann fluttist búferlum frá Bíldudal til Reykjavíkur, eftir hálfrar aldar búsetu. Hjálmar kvæntist 3. mars 1945, Svandísi Ás- mundsdóttur, f. 28. júní 1925, skrif- stofumanni hjá SH. Foreldrar Svandísar eru Ásmundur Jónasson, verkamaður á Bíldudal og kona hans Marta Guðmundsdóttir. Börn Hjálmars og Svandísar eru; Jakob Agúst, fæddur 17. apríl 1947, dóm- kirkjuprestur, kvæntur Auði Daní- elsdóttur, aðalgjaldkera SH og eiga þau þrjá syni; Marta Ásdís, f. 27. febrúar 1951, meinatæknir í Rvík, gift Þorsteini A. Jónssyni, deildar- stjóra í dómsmálaráðuneytinu og eiga þau tvo syni, og Hera, f. 8. okt- óber 1954, lyfjafræðingur í Rvík, gift Hafsteini Hafsteinssyni verkfræð- ingi og eiga þau tvö börn. Systkini Hjálmars eru; Guðrún Sigríður, f. 23. maí 1914, d. 18. febrúar 1990, gift Gunnari Þóröarsyni, yfirfiskmats- manni á ísafirði; Unnur, f. 15. des- ember 1915, kaupmaður í Rvík, gift Kjartani Jónssyni, fyrrv. kaup- manni í Rvík; Arndís, f. 5. septem- ber 1917, gift Jóni Jóhannssyni, verkamanni á Bíldudal; Páll, f. 9. mars 1923, d. 2. september 1986, skólastjóri á Fáskrúðsfirði, kvænt- ur Hebu A. Ólafsson; Jakob, f. 12. nóvember 1926, rafveitustjóri á Ól- afsfirði, kvæntur Álfheiði Jónas- dóttur og Hrafnhildur, f. 27. mars 1934, kaupmaður á Patreksfirði, ekkja Ólafs Bæringssonar, verk- taka. Fóstursystur Hjálmars eru; Ingibjörg Ormsdóttir, f. 30. október 1936, verkakona á Bíldudal og Karo- lína Sigurðardóttir, f. 19. maí 1909, látin, gift Theodóri Ólafssyni, versl- unarmanni í Rvík. Foreldrar Hjálmars voru; Ágúst Sigurðsson, f. 13. ágúst 1886, d. 18. febrúar 1943, verslunarstjóri á Bíldudal og kona hans Jakobína Pálsdóttir, f. 15. október 1892, d. 18. febrúar 1943. Ágúst var bróðir Jak- obs, afa Gisla Alfreðssonar, þjóð- leikhússtjóra. Ágúst var sonur Sig- urðar b. á Desjamýri, bróður Sæ- mundar, langafa Björgvins, föður Sighvats alþingismanns. Sæmund- ur var einnig langafi Gríms M. Helgasonar, forstöðumanns hand- ritadeildar Landsbókasafnsins. Systir Sigurðar var Margrét, amma Elínborgar Lárusdóttur rithöfund- ar. Sigurður var sonur Árna, b. í Stokkhólmaí Skagafiröi, Sigurðs- sonar, og konu hans, Margrétar Magnúsdóttur, systur Pálma, lang- afa Helga Hálfdánarsonar skálds, og Péturs, föður Hannesar skálds. Móðir Ágústar var Sigríður Sigfús- dóttir, systir Katrínar, móður Ágústs Ármanns stórkaupmanns. Jakobína var systir Guðrúnar, ömmu Þórðar Þ. Þorbjarnarsonar borgarverkfræðings og Þorbjörns Broddasonar dósents. Jakobína var dóttir Páls alþingismanns og pró- fasts í Vatnsfirði, Ólafssonar, dóm- kirkjuprests og alþingismanns, Pálssonar, prests í Guttormshaga, Ólafssonar, prests í Eyvindarhól- um, Pálssonar, bróður Páls, langafa Guðrúnar, móður Péturs Sigur- geirssonar biskups. Móðir Páls var Helga Jónsdóttir, „eldprests", Stein- grímssonar. Móðir Ólafs á Mel var Kristín Þorvaldsdóttir, prófasts og skálds í Holti, Böövarssonar, langafa Finnboga, fóður Vigdísar forseta. Móðir Páls í Vatnsfirði var Guðrún Ólafsdóttir Stephensen, Hjalmar Ágústsson. dómsmálaritara i Viðey, og konu hans, Sigríðar Stefánsdóttur Step- hensen, systur Stefáns, langafa Þór- is Stephensen dómkirkjuprests. Móðir Jakobínu var Arndís, systir Ragnhildar, móður Kristjáns Thorlacius, fyrrv. formanns BSRB. Arndís var dóttir Péturs Eggerz, verslunarstjóra á Borðeyri, og konu hans, Jakobínu Pálsdóttur Melsteð, systur Ragnheiðar, langömmu Ástu, ömmu Davíðs Oddssonar. Afmælis- barnið er að heiman. Bjami lindal Gestsson Bjarni Líndal Gestsson, Engjavegi 7, ísafirði, er fimmtugur í dag. Bjarni fæddist á ísafirði og hefur búiö þar allatíð. Hann hefur unnið viö beitningu á línubátum frá ísafirði lengst af, en hefur auk þess starfað við fiskvinnslu og í glerverk- smiðju sem starfrækt var á ísafirði áárunum 1960-70. Bjarni var fyrsti forstöðumaður Lífeyrissjóðs Vestfirðinga árin 1970-75 og var jafnhliða störfum sín- um þar sýningarmaður hjá ísafjarð- arbíói. í dag er hann einn af stjórn- armönnum Lífeyrissjóðsins. Árið 1975 sneri hann sér aftur að störfum við sjóinn, réö sig í beitningu og hóf trilluútgerð á sumrin. Bjarni tók mikinn þátt í félagsmál- um á tímabili. Hann var um árabil í stjórn Sjómannafélags ísfirðinga, fyrst ritari, síðan varaformaður og formaöur, auk þess sem hann gegndi ýmsum öðrum trúnaöar- störfum fyrir félagið. Þá var Bjarni í stjóm Alþýðusambands Vestfjarða sem gjaldkeri í nokkur ár og átti sæti í stjóm Sjómannasambands Íslands. Hann tók þátt í stjóm- málum á ísafirði um tíma og var vara-bæjarfulltrúi fyrir Alþýðu- flokkinn eitt kjörtímabil. Bjarni kvæntist 21.10.1961 Ágústu Ragnhildi Benediktsdóttur, f. 28.11. 1941, dóttur hjónanna Símoníu Ás- geirsdóttur, ráðskonu í Neðri- Tungu viö Skutulsfjörð, og Bene- dikts Rósa Steindórssonar skip- stjóra sem nú er látinn. Börn Bjarna og Ágústu eru Krist- ján Þór, f. 14.5.1960, gítarleikari; Auður, f. 19.3.1963, húsmóðir, gift Ingibjarti Ingvarssyni sjómanni og eiga þau tvö börn, Ánton Bjarna, f. 8.1.1987 og Hugrúnu Ösp, f. 28.6. 1989; Jóna Símonía, f. 21.4.1965, en sambýlismaður hennar er Þor- steinn Traustason bílstjóri, og Guðný Kristín, f. 13.12.1978. Foreldrar Bjama eru Gestur Loftsson sjómaður, og Jóna Bjarna- dóttir fiskverkakona. Gestur og Jóna em nú búsett í Hlíf, dvalar- heimili aldraðra á ísafirði. Gestur er sonur Lofts Bjarnason- ar, vinnumanns á Dynjanda i Jökul- fjörðum, og Kristínar Einarsdóttur frá Dynjanda. Jóna er dóttir Bjarna Einars, járn- smiðs í Skálmarnesmúla og land- pósts, Kristjánssonar, járnsmiðs í Búðardal og síðar í Gautsdal í - Bjarni Líndal Gestsson. Geiradal og aö Kambi í Reykhóla- sveit, Erlendssonar. Móðir Bjarna Einars var Sólveig Einarsdóttir frá Klukkufelli. Móðir Jónu var Ólína ljósmóðir Guömundsdóttir, b. á Krossi í Barðastrandarhreppi og síðar á 111- ugastöðum, Arasonar, b. í Skálmar- nesmúla, Guðmundssonar. Móðir Ólínu var Ingibjörg Jóhannesdóttir, b. á Kirkjubóli í Gufudalssveit, Bær- ingssonar. Bjarni verður staddur erlendis á afmælisdaginn. Til hamingju með daginn 30. maí 80 ára Rannveig Jóhannesdóttir, Suðurgötu 87 Akranesi. 75ára Pólína Jóhannesdóttir, Hrísalundi 4E, Akureyri. 70ára Ásgrimur Stefánsson, Flögusíðu 5, Akureyri. 50 ára Sveinbjörn Axelsson, Hátúni 12, Reykjavík. Dóra Jónsdóttir, Gmndartanga 11, Mosfellsbæ. Anna María Aradóttir, f. Annikki Karhunen, Laxárnesi, Aðaldal. 40 ára Unnar Sigurleifsson, Langholtsvegi 124,Reykjavík. María Hannesdóttir, Gagnheiði 1, Kópavogi. BenediktÁ. Benediktsson, Melavegi 2, Hvammstanga. Amór K. Guðmundsson, Breiðvangi 46, Hafnarfirði. Þórdís Ragnheiður Malmquist, Hringbraut 128J, Keflavík. Erna Brynjólfsdóttir, Álfaskeiði 94, Hafnarfirði. Sverriir Friðþjófsson, Eyjabakka 9, Reykjavík. Sigrún Ámadóttir, Gullteigi 6, Reykjavik. Ottó Kolbeinn Ólafsson, Hverfisgötu 16, Reykjavík. Unnur Ágústsdóttir, Heiðarási 28, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.