Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Side 8
8
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1990.
Utlönd
Malaysía:
Atta hengdir fyrir
eiturlyfjasmygl
Han Tsui Ling, 32 ára að aldri, er fyrsta erlenda konan sem tekin er af lífi
í Malaysíu fyrir meinta tilraun til að smygla eiturlyfjum. Hún, ásamt sjö
öðrum, var tekin af lífi fyrir dögun í morgun.
Símamynd Reuter
Sjö menn og ein kona voru hengd
fyrir dögun í morgun í Malaysíu fyr-
ir meint brot á eiturlyfjalöggjöf
landsins. Konan var fyrsta erlenda
konan sem tekin er af lííi vegna þessa
í Malaysíu. Allt var fólkið frá bresku
nýlendunni Hong Kong.
Áttmenningarnir voru handteknir
árið 1982 fyrir að hafa í fórum sínum
12,7 kíló af heróíni. Þeir voru fundn-
ir sekir þremur árum síðar fyrir
meinta tilraun til smygsl. Öll átta
neituðu ætið sakargiftum.
Þrátt fyrir áfrýjun til æösta dóm
stigs í Malaysíu, kröfur um náðun
sem og beiðni um að aftöku þeirra
ENGINN
BÍLL
KOSTAR
yrðu frestað voru þau tekin af lífl
skömmu fyrir sex í morgun að stað-
artíma. Einn lögfræðinga þeirra
sagði að farið hefði verið fram á náð-
un við konung Malaysíu en að ekk-
ert svar hefði borist. Forsætisráð-
herra Bretlands, Margaret Thatcher,
fór einnig fram á náðun fyrir átt-
menningana en allt kom fyrir ekki.
Alls hafa níutíu manns verið teknir
af lífi í Malaysíu, þar af tveir Ástral-
ir og einn Breti, fyrir brot á eitur-
lyfj alöggj öf landsins. Samkvæmtlög-
um í Malaysíu fær hver sá sem hefur
á sér meira en 15 grömm af heróíni
dauðarefsingu.
Mikil eiturlyfjaneysla er meðal
ungs fólks í Malaysíu. Eitt hundrað
og þrjátíu þúsund íbúa landsins eru
á skrá sem háðir eiturlyfjum en í
Malaysíu búa sautján milljónir.
Sumir sérfræðinga telja að rúmlega
hálf milljón Malaysíubúa séu í raun
háðir flkniefnum. Reuter
Ingvar Carlsson, forsætisráðherra
Sviþjóðar.
Svlþjóð:
EKKI NEITT
( • • • netna bíllinn sem þúfærð til umráða þegar þúferð með Arnarflugi til Amsterdam)
Þú segir að þetta geti ekki átt sér stað. En líttu á málið með okkur hjá Arnarflugi.
j Þú greiðir 27.880 krónur fyrir farið með Arnarflugi til Amsterdam
» fram og til baka. Efþú ætlar að dvelja í viku í áfangastað, stendur þér jafnframt
til boða bílaleigubíll í flokki B (Ford Fiesta/Peugeot 205)
a til umráða án nokkurs leigugjalds. Tilboðið stendur til 15. júní og miðast við
k að ekki séu færri en tveir um bíl.
5 Með Arnarflugi margborgar sig að vera úti að aka.
O
*>
J
u.
ARNARFLUG
- Jlug og bíll ogferðalög
Hart deilt
um EB-aðild
Pólitískt stríð virðist nú vera í upp-
sighngu í Svíþjóð um aðildina að
Evrópubandalaginu, EB. Það þótti
augljóst eftir fund utanríkisnefndar
þingsins í gær.
Ingvar Carlsson forsætisráðherra
var mjög óánægður með yfirlýsingar
Hægri flokksins og Þjóðarflokksins
um að þeir væru hlynntir því að
Svíar sæktu um aðild að Evrópu-
bandalaginu á næsta kjörtímabili.
Forsætisráðherrann sagði aö nást
þyrfti póhtísk samstaða allra flokka
í málinu.
Eftir hörð orðaskipti við forsætis-
ráðherrann óskaði Carl Bildt, leið-
togi Hægri flokksins, eftir sérstökum
fundi í utanríkisnefndinni þar sem
rætt yrði um stefnu Svíþjóðar í utan-
ríkismálum og um EB-málin. „Við
verðum að fá að vita hvað stjórnin
hyggst fyrir eftir að samningur milli
Efta, Fríverslunarbandalags Evrópu
og EB er í höfn. Sá samningur er
engin lokalausn." Bengt Westerberg,
leiðtogi Þjóðarflokksins, tekur undir
þá kröfu Bildts að Svíþjóð verði að
sækja um aðild aö EB á næsta kjör-
tímabili að loknum kosningum 1991.
Forsætisráðherrann sagði að það
yrði fyrst raunhæft að ræða um aðild
að EB þegar stríðshættan væri horfln
og þegar EB heföi horfiö frá þeirri
stefnu að ætla að samræma utanrík-
is- og öryggismálastefnu aðildarríkj-
anna. Benti Carlsson á að Sovétríkin
væru enn hernaðarlegt risaveldi og
að alltof léttúðugar yfirlýsingar um
hlutleysisstefnu Svía hefðu veriö
gefnar að undanfórnu.
Olof Johansson, leiðtogi Miðflokks-
ins, tók afstöðu með forsætisráð-
herranum á fundi utanríkisnefndar-
innar.
TT