Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.1990, Síða 11
MIÐVIKUDAGUR 30. MAI 1990.
11
Meiming
Fiðluleikarinn
Yuzuko Horigome
PEUGEOT
MEST SELDI
FÓLKSBlLLEVrV
Meðal erlendra gesta á Listahátíð
í Reykjavík að þessu sinni er jap-
anski og undirleikari hennar,
píanóleikarinn Wolfgang Manz.
Þau munu leika kammertónlist í
íslensku óperunni laugardaginn 9.
júní oghefjast tónleikarnir klukk-
an 17. Á efnisskránni er Sónata nr.
1 í D dúr eftir Ludvig van Beetho-
ven, Einleikspartíta nr. 2 eftír Jó-
hann Sebastian Bach, Fjögur
stykki eftir Anton Webern og Són-
ata eftir César Franck.
Horigome er fædd í Tokýo og
lagði stimd á tónlistamám þar í
borg við Toho Gakuen tónlistar-
skólann. Aðalkennari hennar í
fiðluleik var prófessor Toshiya Eto.
Lauk hún prófi 1980. Það sama ár
sigraði hún í hinni frægu og mikil-
vægu samkeppni, sem kennd er við
Elísabetu Belgadrottningu og hald-
in er í Brussel. Þar meö komst
skriður á frama hennar alþjóðlega,
en áður hafði hún notið mikillar
hylh í Japan. Síðan hefur Hori-
gome leikið á tónleikum með öllum
helstu hljómsveitum beggja vegna
Atlantshafs. Meðal hljómsveitar-
stjóra sem sýnt hafa mikið dálæti
á leik hennar eru Claudio Abbado
og André Previn.
Horigome hefur leikið inn á
margar hljómplötur, m.a. fiðlukon-
serta og einleikssónötur J. S.
Bachs. Þá er það talið henni til
vegsauka að hún kom fram í kvik-
myndinni „Testimony" sem fjallar
um ævi Dmitri Shostakovitsj.
Undirleikarinn Wolfgang Manz
er þrítugur að aldri og hefur unnið
til verðlauna í samkeppni ungra
tónhstarmanna víða um Evrópu og
komið fram sem einleikari með
virtum hljómsveitum, einkum í
Þýskalandi og á Bretlandseyjum.
Hann er tahnn í fremstu röð ungra
píanóleikara í heimalandi sínu
Þýskalandi.
Meðal þess athyghsveröasta sem
verður á efnisskrá þeirra skötuhjú-
anna eru „Fjögur stykki“ eftir Án-
ton von Webern og gefur það gott
tílefni til þess að fjalla nánar um
þetta tónskáld. Webern er enn lítt
þekktur meðal almennings en því
meir dáður af tónlistarfólki. Flutn-
ingur verka hans verður æ tíðari
og ótvírætt að þeirra er framtíðin.
Anton von Webern fæddist í Vín
1883. Hann hóf ungur tónhstarnám,
en litlum sögum fer af afrekum
hans á því sviði fyrr en hann gerist
nemandi Arnolds Schönbergs í tón-
smíðum 1904. Djúp vinátta með
gagnkvæmri virðingu varð milh
nemandans og kennarans, sem
haíði mikh áhrif á verk beggja.
Annar uppáhaldsnemandi Schön-
bergs, sem varð einnig mikill vinur
Weberns, var Alban Berg, höfund-
ur óperunnar Wozzek sem sýnd var
á Stöð 2 nú á dögunum. Til þessara
þriggja manna er oft vitnað sem
„Vínarskólans síðari" í viðurkenn-
ingu þess að engir menn hafa meira
mótað þróun tónhstar á tuttugustu
öld, ef frá er talinn Stravinsky.
Webern var tónfræðingur og
skrifaði doktorsritgerð sína um
flmmtándu aldar tónskáldið
Heinrich Isaac. Eftír að hann lauk
námi hjá Schönberg hóf hann ferU
sem hljómsveitarstjóri, þótt hann
hefði ekki sérstaka þjálfun tU þess.
Hann var framarlega í „Verein fur
Musikalische Privatauffurungen",
félagi sem Schönberg var einn höf-
uðpaurinn í og stofnað var til flutn-
ings á nýrri tónlist sem ekki var
hljómgrunnur fyrir hjá hefð-
bundnum stofnunum tónhstarlífs-
ins.
Hljómsveitarstjórn Weberns
leiddi tíl þess að hann fékk hluta-
stöðu við austurríska útvarpið.
Síðar fékk hann kennslu við
blindraskóla og eru þar í aðalatriö-
um taldar veraldlegar vegtyllur
hans. Valdataka nasista sviptí
hann fljótlega þessum störfum og
haíði Webern þá ofan fyrir sér og
fjölskyldu sinni með partaskrifum
fyrir útgáfufyrirtækið „Universal“.
Webern lét lífið fyrir byssuskotí
amerísks hermanns í stríöslok
1945.
Tónlist
Finnur Torfi Stefánsson
Tónsmiðar Webern voru í fyrstu
undir greinhegiun áhrifum meist-
arans þótt snemma komi fram ein-
kenni sem síðan héldust út feril
hans. Meðal verka frá þessum tíma
er Passacaglia op. 1 fyrir hljóm-
sveit þar sem fram komu ýmis per-
sónuleg séreinkenni, einkum í út-
setningunni.
Fyrstu alvarlegu tilraunir We-
bems tíl að losa sig undan hlekkj-
um hefðbundins tónamáls er að
finna í kórverkum og sönglögum
op. 2-4. í þessum verkum er ekki
hægt að tala um tóntegund lengur.
Rytmískur púls er vart heyranleg-
ur heldur er hljóðfalhð fljótandi í
breytilegum hraða, en lengd hend-
inga óregluleg. Verkin eru stutt,
htið um beinar endurtekningar og
yfirleitt með lágum styrk. Allt era
þetta einkenni sem héldust hjá
Webern.
Þegar Webern hafði þannig yfir-
gefið tóntegundir blastí við sá
vandi að finna aðra aðferð tíl þess
að skipuleggja hljóðfæratónlist. í
sönglögunum haföi texti Stefans
George gegnt að vissu leyti hlut-
verki undirbyggingar. Þessi vandi
varð enn erfiðari fyrir þá sök að
Webern leit svo á að ekki væri leng-
ur hægt að nota hefðbundin vinnu-
brögð um úrvinnslu á þemum, þar
sem þau voru í huga hans óaðskilj-
anleg tóntegundum og tónflutn-
ingi. Webern tekst á við þessi við-
fangsefni í Fimm þáttum fyrir
strengjakvartett op. 5, Sex stykkj-
um fyrir hljómsveit op. 6 og Fjórum
stykkjum fyrir fiðlu og píanó op.
7, sem Yuzuko Horigome og Wolf-
gang Manz ætla að flytja okkur eins
og áður er getíð. Verk þessi eru
stutt og byggja á andstæðum þar
sem annars vegar tónlistinni eru
nfiög þröngar skorður settar í
styrk, tónsviði, lit og hljómagerð,
en hins vegar eru þessir sömu
þættír hafðir mjög breytílegir. Úr-
vinnsla í venjulegum skilningi er
nánast engin.
Webern var ljóst að ekki yrði
mjög lengi haldið áfram á þessari
braut. Hann leitaði fyrir sér meö
frekari notkun texta, svipað og
Schönberg, og samdi lög við ljóð
Rilkes. Þá komu aftur verk fyrir
strengjakvartett og hljómsveit. í
verkum þessum hneigist Webern
th enn styttri og sparsamlegri tón-
smíða og í tílefni af því lýsti hann
því með töluverðum áhyggjum að
sér fyndust verk verða aö enda
jafnskjótt og hinar 12 nótur hefðu
birst. I þessum anda eru t.d. Fimm
stykki fyrir hljómsveit op. 10, þar
sem eitt verkið er aðeins sex og
hálfur taktur að lengd, og fyrirferð-
armesta efnið í hverjum takti eru
þagnir.
Fiðluleikarinn Yuzuko Horigome.
Webern tók fljótlega upp tólftóna
aðferð Schönbergs og verk hans
samin eftir þeirri aðferð höfðu gíf-
urleg áhrif á ung tónskáld sem
komu fram eftír síðari heimsstyrj-
öld og hafa enn. Það var einkum
fyrir áhrif Weberns sem Stravin-
sky, sem fram til þess hafði verið
í samkeppni og listrænni andstöðu
við Schönberg og fylgismenn hans,
sneri snögglega við blaðinu og tók
að semja tólftónamúsík.
frA vestur-
EVRÓPU
Á ÍSLANDI
SlÐASTLIÐUX
TVÖÁR
PEUGEOT 205
Sparneytinn 5 manna
fólksbíll með útlit eins og
það á að vera. Kjörinn
„Besti bíll í heimi“ síðast-
liðin fimm ár skv. „Auto
Motor und Sport“.
Verð frá kr. 599.800,-
JÖFURhr
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600
- þegar þú kaupir bíl -
u
Fjötdi bílasala, bíla-
umboða og einstakl'inga
auglýsa fjölbreytt úrval
bíla af öllum geróum og
í öllum veróflokkum meó
góöum árangri í DV-BÍLAR
á laugardögum.
Athugið aó auglýsjngar í
DV-BÍLAR þurfa aó berast
í síóasta lagi fyrir kl. 17.00
á fimmtudögum.
Smáauglýsingadeildin er
hins vegar opin alla daga
frá kl. 09.00 til 22.00 nema
laugardaga frá kl. 09.001 i I
14.00 og sunnudaga frá
kl. 18. OOtil 22.00.
Smáauglýsing í
HELGARBLAÐ veróuraó
berast fyrir kl. 17.00
á föstudögum.
Auglýsingadeild