Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1990, Side 3
r
— FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990.
Frestun á launauppstokkun BHMR:
Skylda ríkisstjórnarínnar
- segir Halldór Ásgrímsson, starfandi forsætisráðherra
„Það var mat ríkisstjómarinnar
að sú atburðarás sem hefði fylgt í
kjölfar hækkunar til BHMR hefði
leitt af sér eyðileggingu á þeim mark-
miðum sem stefnt var að með samn-
L ingunum í vetur,“ sagði HaUdór Ás-
grímsson, sjávarútvegsráðherra og
starfandi forsætisráðherra, þegar
hann var spurður um ástæður þess
að ríkisstjómin ákvað að fresta
hækkun á launauppstokkun til
Bandalags háskólamenntaðra ríkis-
starfsmanna.
-.En telur þú að ríkisstjómin hafi
beitt réttri aðferð?
„Ríkisstjórnin ákvað að beita fyrir
sig þeim samningi sem gerður hafði
verið. Aðrir hafa haldið því fram að
ríkisstjómin hefði ekki átt að beita
samningnum sjálfum heldur beita
bráðabirgðalagavaldi. Það er að
mínu mati fráleitt að beita slíku valdi
við þær aðstæður að gerður hefur
verið samningur sem gerir ráð fyrir
að staða sem þessi geti komið upp.“
- Finnst þér leiðinlegt að þúrfa að
standa svona að málum?
„Það er alltaf sársaukafullt að
framkvæma hluti sem allir eru ekki
ánægðir með. Ég taldi það mína
skyldu og skyldu ríkisstjórnarinnar
að standa þannig að málum að það
horfi tíl heilla fyrir þjóðfélagið í
heild. Ég er sannfærður um það að
ef þessi atburðarás hefði farið af stað
hefði verðbólga vaxið hér verulega á
nýjan leik. Ég sem stjórnmálamaður
og ríkisstjómin í heild vom ekki til-
búin til að bera ábyrgð á slíkri þró-
un.“
- Sú leiðrétting sem BHMR félagar
áttu að fá þama - kemur hún ein-
hvern tíma?
„Ríkisstjómin ætlar sér í einu og
öllu að standa við þennan samning.
Samningurinn gerir ráð fyrir
ákveðnu vinnuferli í sambandi við
samanburð á launakjörum. Þeirri
vinnu er ekki lokið nema að hluta
tíl. Það þarf að flýta þeim störfum
sem mest og sú niðurstaða sem þar
fæst verður hinn eini raunhæfi
grunnur fyrir endanlegri niðurstöðu
málsins,“ sagði Halldór. Hann sagð-
ist þó ekki geta tímasett hvenær
þeirri vinnu yrði lokiö.
- Þú óttast ekki að traust launþega
gagnvart ykkur sé brostið?
„Við erum að beita samningnum
með þeim hætti sem við teljum nauð-
synlegt og skylt. Við getum ekki gert
betur en það.“
- Er mögulegt fyrir háskólamenn
að búa svo um hnútana í samningum
sínum að launaþróun þeirra breyt-
ist?
„Þeir hafa þegar gert samning og
það skiptir mestu máli fyrir þá hvað
gerist hér í næstu framtíð. Það gat
enginn séö nákvæmlega fyrir þær
aðstæður sem nú eru komnar þegar
samningurinn var gerður. Samning-
urinn gerði hins vegar ráð fyrir því
og það verða menn að sætta sig við.“
- Það hafa komið upp efasemdir
um lagahlið málsins og lögfræðingar
Reykjavíkurborgar nefndir þar til
sögunnar.
„Lögfræðingar Reykjavíkurborgar
voru í samráði um þetta mál þannig
að sú yfirlýsing kemur mér á óvart.
Hér er ekki verið aö tala um löggjöf
heldur samning. Ef menn sætta sig
ekki við þá túlkun sem ríkisstjórnin
hefur á þessum samningi geta menn
að sjálfsögðu gert viðeigandi ráðstaf-
anir,“ sagði HaUdór Ásgrímsson.
-SMJ
3
Fréttir
Leiðrétting
í fyrirsögn á frétt af réttarhöldun-
um yfir Jósafat Amgrímssyni í DV
í gær féll niöur eitt núll sem brenglar
fréttina.
í fyrirsögninni sagði að um 120
milljónir króna væri að ræða en átti -
að vera 1200 milljónir króna.
Lesendur eru beðnir velvirðingar á
þessum mistökum. Fréttastj.
Smíðið
innréttinguna sjáif!
• Hurðir: • Límtré:
Stílhreinar í f beiki, eik
mörgum stæröum. og mahogni.
Hvítt MDF og beiki. Tilvalið í sólbekki,
borðplötur o.fl.
Lyftið eldhúsinu upp!
#alfaborg ?
ÐYGGINGAMARKAÐUR
SKÚTUVOGI 4 - SfMI 686755
NÚ ER HANN ÞREFALDUR!