Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1990, Qupperneq 6
6
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990.
Viðskipti
Uppfimiingamaðurmn Jón Þórðarson fær uppreisn æru:
Islenskur hreinsibúnaður
að slá í gegn vestanhafs
- fyrir 10 árum var hreinsibúnaðurinn fordæmdur og sagður vita vonlaus
íslenskur lofthreinsibúnaöur,
fundinn upp og hannaöur af Jóni
Þórðarsyni, framleiöslustjóra á
Reykjalundi, er nú að slá í gegn
vestanhafs á tímum vaxandi
krafna um minni mengun og aukna
umhverflsvernd. Lofthreinsibún-
aðurinn hreinsar bæði gas og ryk
20 til 30 sinnum betur en nokkur
önnur tæki sem á markaðnum eru.
Þá er orkuþörf hans miklu minni.
Svo kann að fara að þessi íslenska
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
uppfmning eigi eftir aö velta millj-
örðum á næstu árum. Saga þessa
hreinsibúnaöar hefur þó til þessa
verið sorgarsaga fyrir uppfinn-
ingamanninn Jón Þórðarson. Hann
var tilbúinn með búnaðinn fyrir
meira en tíu árum. Á þeim tíma
fékk hann skít og skömm í hattinn
af nokkrum íslenskum sérfræðing-
um fyrir hugmyndina. Búnaðurinn
var bæði fordæmdur og sagður vita
gagnslaus.
„Ég varð mjög svekktur“
„Eg varð óskaplega svekktur á
sínum tíma og vil einfaldlega ekki
tjá mig um máhð,“ sagði Jón Þórö-
arson, uppfinningamaður og fram-
leiðslustjóri á Reykjalundi, vdð DV
í gær.
Jón fann upp og þróaði uppfinn-
ingu sína fyrir um fimmtán árum
í samvdnnu við Alusuisse, eiganda
íslenska álversins. Alusuisse gerði
starfssamning vdð Jón og studdi
hann í tilraunum hans. Ekki kom
þó til þess að ísal nýtti sér loft-
hreinsitæki Jóns þar sem mengun-
armálin voru leyst með öðrum
hætti. Engu að síður stóð vinnan
og uppfinningin eftir- tilbúin til
brúks.
Kjartan verkfræðingur
kemur til sögunnar
Það er íslenski verkfræðingurinn
Kjartan Jónsson, sem hefur verið
búsettur í Bandaríkjunum í yfir
tuttugu ár og rekur þar fyrirtækið
Energy And Value Consultants,
sem hefur komið auga á uppfinn-
ingu Jóns og vdnnur nú að því að
selja hana í stórum stíl í Bandaríkj-
unum. Kjartan hefur framleiðslú-
leyfi á uppfinningunni í Bandaríkj-
unum.
Icecon hefur áhuga
Fleiri en Kjartan hafa nú áhuga
á að selja lofthreinsibúnað Jóns út
um víða veröld. Fyrirtækið Icecon
hefur verið í sambandi vdð Kjartan
og hefur fyrirtækið sýnt mikinn
áhuga á að selja hreinsibúnaðinn
utan Bandaríkjanna.
Framkvæmdastjóri Icecon, Páll
Gíslason, sem nú er staddur í
Saudi-Arabiu vegna verkefna Ice-
con þar í landi, sagði vdð DV í gær
að hann hefði mikið álit á hreinsi-
búnaðinum og hér væri um magn-
aða uppfinningu að ræða sem mik-
ils mætti vænta af.
Páll segir að þaö sé framtíðarinn-
ar aö dæma um þennan hreinsi-
búnað og skera úr um það hvemig
honum verði tekið og hvemig hann
seljist. Hann segir ennfremur að
mikið verk sé óunnið og bjöminn
sé ekki unninn en engu að síður
sé ástæða til bjartsýni.
hafi hannað. Tækin voru sett upp
í verksmiðju Lýsis og mjöls í Hafn-
arfirði. Ævar Jóhannesson á Raun-
vísindastofnun gerði undir stjórn
Stefáns Arnórssonar prófessors
umfangsmiklar mæhngar á
hreinsihæfni búnaðarins. Niður-
stöðurnar voru síðan birtar í maí
1979 og gáfu þær marifalt betri nið-
urstöður en nokkur önnur tæki á
markaðnum gátu státað af. Segir
Sigurður orðrétt: „Enda hefði verið
einsýnt aö væru niðurstööur
skýrslunnar vdðurkenndar hefði
átt að skylda allar bræðslur af
þessu tagi - og raunar allar meng-
andi verksmiðjur - til að koma sér
upp tækjum sem þessum innan til-
skilins áraíjölda."
Lásu ekki skýrsluna en
sögðu hana lygi og skrum
Þá segir ennfremur orðrétt í
greininni í Fréttabréfi Háskólans:
„Árið 1980 boðuðu úmboðsmenn
Atlas-verksmiðjanna í Danmörku
til fundar í Reykjavík þar sem
kynnt vom hreinsitæki, sem fyrir-
tæki þetta var með á markaðnum.
Á fundinn var boðið framleiðslu-
stjórum bræðslna um land allt og
þar má segja að tekist hafi að
„drepa“ íslensku hreinsitækin með
sameinuðu átaki, og jafnframt þá
hugmynd að slík tæki ættu að vera
hluti af öllum verksmiðjum. Eink-
um höfðu tveir menn sig mjög í
frammi (sem síðar kom í ljós að
aldrei höfðu lesið skýrslu Raun-
vísindastofnunar) og fullyrtu að
allt sem í henni stæði væri lygi og
skrum, og hreinsibúnaöurinn
gagnslaus. Sem væntanlega hljóm-
aði sem fegursta tónhst í eyrum
þeirra sem eha hefðu hugsanlega
verið neyddir th að setja upp shk
tæki á verksmiðjum sínum. Hæfni
Atlas-tækjanna var aftur á móti svo
léleg að tæplega hefði þótt taka þvd
að skylda verksmiðjur til að setja
þau upp. Enda er vert að minnast
þeirrar hagfræðilegu staðreyndar,
að í samkeppni er hálfur sigur unn-
inn ef hægt er að sannfæra neyt-
endur um það að afurð keppinaut-
arins valdi hjartaslagi eða krabba-
meini - í eiginlegri eða óeiginlegri
merkingu."
Búnaðurinn20 til 30
sinnum betri en önnur tæki
Þá segir ennfremur í fréttabréf-
inu: „Nú, 10 árum síðar, hafa En-
vironmental Laboratories í Banda-
ríkjunum endurtekið könnun
Raunvísindastofnunar. Tækin
voru reynd fyrst vdð sorpbrennslu
við sjúkrahús og síðan vdð pappírs-
verksmiðju. Niðurstöðumar stað-
festa niðurstöður Raunvdsinda-
stofnunar en bæta að auki vdð ýms-
um upplýsingum sem ýmist var
ekki hægt að fá hér, eða ekki var
tilefni til. í stuttu máli hreinsa ís-
lensku tækin 20 til 30 sinnum betur
en nokkur önnur tæki sem á mark-
aðnum eru. Agnir frá hinum
smæstu til stærri hreinsast yfir 90
prósent."
Dæmi upp á milljarða
Loks segir Sigurður Steinþórsson
í grein sinni að svo kunni að fara
að íslendingar missi af lestinni í
framleiöslu hreinsitækja þessara
sem ella hefði getað orðið stór-
atvdnnuvegur hér á landi hefði
ólukkufundurinn 1980 ekki verið
haldinn. „Úr því sem komið er eru
allar hkur á því að Bandaríkja-
Alusuisse kom auga á Jón og gerði starfssamning við hann fyrir um
fimmtán árum til að hann gæti þróað uppfinningu sína. Ekki kom þó til
þess aö ísal notaði tæki hans.
Uppfinningamaðurinn Jón Þórðarson, framleiðslustjóri á Reykjalundi,
sem fann upp lofthreinsibúnaðinn. Fyrir tíu árum fékk hann skít og skömm
í hattinn fyrir uppfinningu sína og hún var sögð vita gagnslaus þrátt
fyrir mjög jákvæða umsögn Raunvísindastofnunar Háskólans. Nú, tíu
árum síðar, hefur Environmental Laboratories í Bandaríkjunum gert
úttekt á lofthreinsibúnaðinum og komist að þeirri niðurstöðu að hann
hreinsi 20 til 30 sinnum betur en önnur tæki.
Fréttabréf Háskólans
lætur máliö til sín taka
í nýjasta Fréttabréfi Háskóla ís-
lands skrifar Sigurður Steinþórs-
son um þetta mál Jóns Þórðarson-
ar. Sigurður nefnir grein sína: „10
ára skýrsla fær uppreisn - eða hag-
fræði siðleysisins."
í grein Sigurðar er baráttusaga
uppfinningamannsins Jóns Þórð-
arsonar rakin. Sagt er frá því að á
árunum 1976 til 1979 hafi veriö
gerðar á vegum Raunvísindastofn-
unar Háskóla íslands kannanir á
hæfni lofthreinsitækis sem Jón
menn muni sjálfir framleiða tækin
þegar búið er að setja upp nokkur
þau fyrstu til reynslu."
DV reyndi árangurslaust í gær
að ná í Kjartan Jónsson vestur í
Bandaríkjunum og spyrja hann um
stærð markaðarins vestanhafs, hve
fyrirtæki verji miklu á ári til kaupa
á hreinsibúnaði.
Eftir því sem DV kemst næst mun
vera varið um 120 milljónum doll-
ara á ári til kaupa á hreinsibúnaði
í Bandaríkjunum. Það jafngildir
um 7,2 milljörðum íslenskra króna.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 3,0 Allir
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 3-4 Ib.Sb,- Sp
6mán. uppsögn 4-5 ib.Sb
12mán.uppsögn 4-5,5 lb
18mán. uppsögn 11 Ib
Tékkareikningar, alm. 0,5-1 Allir nema Ib
Sértékkareikningar 3,0 Allir
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1,5 Allir
6mán. uppsögn 2,5-3,0 Lb,Bb,- Sb
Innlán með sérkjörum 2,5-3,25 Ib
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 7-7,25 Lb.Sb
Sterlingspund 13,6-14,25 Sb
Vestur-þýsk mörk 6,75-7,5 Lb
Danskarkrónur 9,25-10,75 Sb
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 13,5-13,75 Bb.Sb
Viðskiptavíxlar(forv.) (1) kaupgengi
Almennskuldabréf 14,0 Allir
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 16,5-17,5 Bb
'Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,5-8,25 Lb.Bb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 13,75-14,25 Bb
SDR 10,75-11 Bb
Bandaríkjadalir 10,10-10,25 Bb
Sterlingspund 16,8-17 Sp
Vestur-þýskmörk 9,9-10,5 Bb
Húsnæðislán 4,0
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 23,0
MEÐALVEXTIR
överðtr. júní 90 14,0
Verðtr. júní 90 7,9
VlSITÖLUR
Lánskjaravísitalajúní 2887 stig
Lánskjaravísitala maí 2873 stig
Byggingavísitala júnl 545 stig
Byggingavísitala júní 170,3 stig
Húsaleiguvisitala 1,8% hækkaði 1. apríl.
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 4,915
Einingabréf 2 2,683
Einingabréf 3 3,239
Skammtímabréf 1,665
Lífeyrisbréf 2,471
Gengisbréf 2,143
Kjarabréf 4,876
Markbréf 2,590
Tekjubréf 1,995
Skyndibréf 1.458
Fjölþjóðabréf 1,270
Sjóðsbréf 1 2,365
Sjóðsbréf 2 1,741
Sjóðsbréf 3 1,651
Sjóðsbréf 4 1,402
Vaxtasjóðsbréf 1,6680
Valsjóðsbréf 1,5700
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 650 kr.
Eimskip 420 kr.
Flugleiðir 168 kr.
Hampiðjan 159 kr.
Hlutabréfasjóður 180 kr.
Eignfél. Iðnaðarb. 159 kr.
Skagstrendingur hf. 367 kr.
Islandsbanki hf. 155 kr.
Eignfél. Verslunarb. 126 kr.
Olíufélagið hf. 449 kr.
Grandi hf. 166 kr.
Tollvörugeymslan hf. 105 kr.
Skeljungur hf. 441 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavixlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miöað við sérstakt kaupgengi,
kge.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb= Iðnaðarbank-
inn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnu-
bankinn, Úb = LJtvegsbankinn, Vb =
Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
inn birtast i DV á fimmtudögum.