Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1990, Síða 13
FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990.
Þjóðarsál á þriðjudegi:
Enginn vildi menninguna
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
Patrekshreppur
Staöa sveitarstjóra Patrekshrepps er hér með auglýst
laus til umsóknar.
Skriflegar umsóknir um starfið sendist oddvita, Birni
Gíslasyni, Brunnum 18, Patreksfirði, fyrir 30. júní.
A
Smáauglýsing
í Helgarblað
þarf að berast -
fyrir kl. 17
föstudag!!!
27022
Dagný skrifar:
í þættinum Þjóöarsál, sem útvarp-
aö var sl. þriðjudag aö venju, kom
nokkuö eftirtektarvert fram, að
mínu mati, sem nú skal frá greint.
Það var nýlokið viðtali við konu sem
var að segja frá því hvemig bömum
vestur í Ameríku er kennt að lesa.
Var það gert með því að halda sífellt
bókum eða spjöldum með stöfum á
að ungbörnum og lærðu þau að lesa
undrafljótt með þeim hætti.
Þetta var meðal þess efnis sem
stjórnandi Þjóðarsálar benti hlust-
endum á þeir gætu rætt - eða hvað
annað sem þeim dytti í hug. En viti
menn! Fyrsta konan sem kom í sím-
ann var ekki aldeilis á þeim nótun-
um. Hún var að vandræðast yfir því
að vesalings drengurinn hennar
hafði ekki komist inn á ball í sveit-
inni vegna þess að hann var klæddur
í gallabuxur!
Þetta var nú fyrsta hringingin og
hún kom utan af landi. Konan var
yfir sig hneyksluð á þvi að drengnum
skyldi gert að mæta snyrtilega
klæddum á dansleikinn úr því að
hljómsveitarmenn máttu vera á
gallabuxum. - Þessi kona hafði eng-
an áhuga á menningunni, lestrar-
kennslu bama eða þess háttar.
Næst hringdi önnur kona og hún
haföi einnig allt önnur vandamál til
umræðu en lestrarkennslu ung-
barna. Sú hafði mestar áhyggjm- af
því að við værum ekki nógu góðir
viö aðra kynþætti sem hér ílentust.
Við ættum ekki að vera að ólmast
með þetta eins og eitthvert vanda-
mál. Og svo komu þeir hver á eftir
öðrum, karlar og kerlingar, óðamála,
ótalandi, sumar hverjar, með viskí-
rödd eöa farsímarödd. Oft vont að
greina þetta tvennt í sundur. Allt
vildi þetta fólk tala um eitthvað ann-
að en menningu.
Stjórnandi Þjóðarsálar benti inn á
milli á að lítið hefði verið fjallað um
Listahátíð á þessum vettvangi. En
allt bar að sama brunni, enginn vildi
ræða menninguna. Allt gekk út á eig-
in búksorgir og það hvernig hægt er
að „ná rétti sínum", aðallega af hinu
opinbera. Segið svo að við Islending-
ar séum menningarsinnuð. Fyrir
mér má hver og einn halda því fram.
Mér hefur hins vegar aldrei dottið í
hug eina mínútu að hér búi menning-
arsinnuð þjóð, aðeins einstakhngar
sem eru á kafi í því að afla sér tekna,
fljótt og örugglega, allt í sambandi
við fiskinn og þjónustu við þá er
hann veiða og svo hina sem aflanum
eyða. Einfalt þjóðlíf, einfaldar sálir,
sannar þjóðarsálir.
AUKABLAÐ
FERÐABLAÐ I
Miðvikudaginn 27. júní nk. mun aukablað um
ferðalög innanlands fylgja DV
Blaðið er hugsað sem nokkurs konar handbók fyrir ferðalang-
inn og þar mun verða fjallað um ýmislegt tengt ferðalögum,
t.d. hollráðvarðandíveíðiferðír oggönguferðir, tjald- og hús-
vagna, sumarbústaði o.fl.
Einnig kort með upplýsingum um gististaði
ogýmsaþjónustu.
Þeír auglýsendur, sem hafa áhuga á að auglýsa í Ferðablaði
I, vinsamlegast hafi samband við auglýsíngadeild DVhið
íýrstaísíma 27022.
ATH.! Skílafrestur auglýsinga er til 21. júní.
Auglýsíngar, Þverholtí 11, sími 27022.
Nú getur þú
komið oftar
á Mímisbar!
Mímisbar nýtur aukinna vinsælda eftir
breytingarnarog þess vegna höfum við
ákveðið að hafa hann oftar opinn en áður
-eða fjögur kvöld í viku: Fimmtudags-, föstudags-
laugardags- og sunnudagskvöld. Fáðu þér léttan
snúningádansgólfinu undir tónlist Stefánsog Hildar
á föstudags- og laugardagskvöldum.
Láttu sjá þig á nýja staðnum - og láttu þér ekki
bregða! ______
hóieV
-lofargóðu!