Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1990, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 15.06.1990, Page 28
p 36 FÖSTUDAGUR 15. JÚNÍ 1990. Kvikmyndir Bíóhöllin: Utangarðsunglingar ★ 1/2 Rómantík í rúst Kyndugt innlegg í unglingaflóðiö er þessi úrelta út- gáfa af unglingsástum og afleiðingum þeirra. Byggð á nær þrítugri ástralskri bók kemur myndin áratugum of seint til að Rómeó/Júlíu sagan snerti mann. Auk þess neistar ekki beint af þeim bandaríska Charlie Schlatter og andfættu söngpíunni Kylie Minogue og raunasaga þeirra minnir frekar á sjónvarpsþáttateg- und sem best er að segja sem minnst um. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir fuðraði samúðin hrað- ar upp en mánaðarlaunin og lítið eftir annaö að gera en að horfa á hinn stórgóða nýsjálenska Bruno Law- rence, í aukahlutverki sjómanns. Kannski gæti yngri kynslóðin lifað sig betur inn í ástarsöguna, en fyrir hina eldri og reyndari er þetta banvænn skammtur af „déj-vu“. The Delinquents. Bandarisk/áströlsk, Warner/Village Roads- how, 1989. Handrit: Clayton Frohman, Mac Gudgeon eftir bók Crienu Rohan. Leikstjóri: Chris Thomson. Leikarar: Charlie Schlatter, Kylie Minogue (The Bruno Law- rence, Todd Boyce, Desiree Smith, Angela Punch-McGregor). Gísli Einarsson Hin unga söng/leikkona Kylie Minogue færir sig úr sjónvarpi yfir á hvíta tjaldið. Regnboginn: Að leikslokum Eitft högg enn Johnny Walker er boxari sem kominn er með báða fætur í ræsiö. Hann er varanlega skaðaður af ævi- langri barsmíð, sjón- og heymarskertur og tröll- heimskur og sljór. Þannig á sig kominn lendir har.n í litlum bæ við sjávarsíðuna þar sem flest er í niður- níðslu. Hann verður ástfanginn af bamungri stúlku sem dreymir um aö koma fomri hringekju í starfhæft ástand. Hann kynnist ennfremur upprennandi glæpa- mönnum þar í bæ sem dreymir um stóra ránið og vilja að Johnny hjálpi þeim að berja fólk. Læknir kveður upp þann dóm að vegna sprungu í höfuðbeinum geti hver bardagi Johnnys orðið sá síðasti. Hann leggur engu að síður ótrauður í hringinn gegn svörtu vöðva- fjalli á leið á toppinn. Þetta gerir kappinn í von um fé tíl þess aö endurreisa hringekjuna sem hann telur að muni vinna honum ást stúlkunnar. Mickey Rourke fer á kostum í hlutverki Johnnys. Hann dregur upp skýra mynd af manni sem lífið er gjörsamlega búið að eyðileggja, algjörum aumingja sem maður hefur þrátt fyrir allt talsverða samúð með. Rourke tekst að sýna persónuleika Walkers í skýra ljósi án þess að segja eitt einasta orð en lengi framan af myndinni þegir hann eins og steinn. Christopher Walken leikur smákrimmann Wesley og gerir það vel en Debra Feuer, sem leikur stúlkuna sem Johnny el- skar, er lítt reynd leikkona og ber það nokkuð með sér. Þetta er allt saman hin besta skemmtan. Litríkt bæjarlífið er forvitnilegt og mannfólkið íjölskrúðugt þótt varla sjáist þar ærlegur maður. Á köflum glæsileg myndataka ásamt grátandi gítar Erics Clapton ljá myndinni þann dapurlega blæ sem megnar að bera söguna uppi þrátt fyrir brotalamir í handriti. Aðdáend- ur Rourke ættu alls ekki að missa af þessari skraut- fjöður sem hann hefur bætt í kúrekahattinn. Homeboy, amerisk. Leikstjóri Michael Seresln. Aöalhlutverk: Mickey Rourke, Christopher Walken og Debra Feuer. Páll Ásgeirsson Fréttir Andlát Óvenjuleg staða frystihúsa á Akranesi: HB og CO fisklaust í fyrsta skipti Sigurður Sverrissan, DV, Akranesi: Enginn fiskur verður unninn hjá Haraldi Böðvarssyni og Co á Akra- nesi í dag og líklega ekki heldur á mánudag. Það sama gætí orðið uppi á teningnum hjá hinum stóru húsun- um hér, Hafeminum og Heimaskaga. Ástæðan er sú að fyrirtækin hafa engan afla til vinnslu. Sturlaugur Sturlaugsson, fram- leiðslustjóri HB & CO, sagði í sam- tali við DV í gær að þessi staða væri vægast sagt óvenjuleg hjá fyrirtæk- inu. Sturlaugur kvað sig ekki reka minni til að það hefði áður gerst að fyrirtækið hefði ekki afla tíl vinnslu. Til þess að hafa einhvem afla til að vinna í gær keypti HB & CO 12 tonn af ufsa á Faxamarkaði í gær- morgun. Heimaskagi gerði slíkt hiö sama. Hafórninn keypti hins vegar ekki. Fiskleysi húsanna nú má rekja til stoppsins sem varð hjá togurunum í tengslum við sjómannadaginn. Þeir héldu út til veiða á mánudag en þeir fyrstu eru ekki væntanlegir fyrr en eftir helgina. Örn Arnarson lést af slysforam 12. maí. Hann fæddist 6. október 1970, sonur Arnar Amarsonar og Stefaníu Gústafsdóttur. Öm stundaði nám við Fjölbrautaskólann á Selfossi. Síðustu tvö árin stundaði hann sjómennsku á ýmsum bátum. Útfór hans verður gerð frá Selfosskirkju í dag kl. 13.30. Sigurfljóð Olgeirsdóttir lést 6. júní. Hún fæddist 14. desember árið 1905 á Bíldudal, dóttír Olgeirs Kristjáns- sonar og Guðfinnu Amardóttur. Hún ólst upp hjá Kristjönu Hjaltalín og Pálínu Jónsdóttur. Sigurfljóð giftist Erlendi Guðjónssyni og eignuðust þau sjö börn. Útfor hennar verður gerð frá Bústaðakirkju í dag kl. 13.30. Sveinbjörn Kristjánsson, elli- og hjúkrunarheimilinu Grund, áður til heimilis á Viðimel 21, lést í Landa- kotsspítala 13. júní. Guðmundur Benediktsson frá Erps- stöðum, Eskihlíð 22, andaðist í Landspítalanum 13. júní. Jóhanna Sveinsdóttir, fædd 27. jan- úar 1925, andaöist þann 1. júní 1990 í Kaupmannahöfn. Jarðarfarir Gunnlaug Einarsdóttir verður jarð- sungin frá Landakirkju í Vest- mannaeyjum laugardaginn 16. júni kl. 14. Sveinbjörg Ormsdóttir lést 3. júní. Hún fæddist í Efri-Ey í Meðallandi 23. október 1889, dóttir Guörúnar Ólafsdóttur og Orms Sverrissonar. Sveinbjörg giftist Eiríki Jónssyni en hann lést árið 1940. Þau hjónin eign- uðust tólf börn. Tvö þeirra dóu í frambernsku. Útför Sveinbjargar verður gerð frá Keflavíkurkirkju i dag kl. 14. Sigrún Ólafsdóttir, Alftagerði, Skagafirði, verður jarðsungin frá Víðimýrarkirkju laugardaginn 16. júní kl. 14. Siguijón Sæmundsson og Nanna Hoj- gaard verða jarðsungin frá Víði- staðakirkju mánudaginn 18. júní kl. 13.30. Guðlaugur Magnússon frá Kolsstöð- um, sem andaðist föstudaginn 8. júní, verður jarðsunginn frá Áskirkju mánudaginn 18. júní kl. 15. Tilkyimingar Kvöldferð kvenfélags Neskirkju Hin árlega kvöldferð kvenfélags Nes- kirkju verður farin fimmtudaginn 21. þ.m. Lagt verður af stað frá kirkjunni kl. 18. Kaffi verður drukkið á Laugarvatni. Konur í sókninni eru velkomnar. Nánari upplýsingar gefa Hrefna, s. 13726, og Hildigunnur, s. 13119. Konur þurfa að láta skrá sig í ferðina fyrir þriðjudag. Fyrirlestrar Fyrirlestur með Betty Friedan Mánudaginn 18. júní mun bandaríska kvenffelsiskonan Betty Friedan flytja opinberan fyrirlestur í Háskóla íslands í boði Félagsvísindadeildar og Rannsókn- arstofu í kvennaffæðum. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „From the Feminine Mystique to the Second Stage: The Role of Feminist Thought in Socicty". Fyrir- lesturinn verður í Odda, Háskóla íslands, stofu 101, oghefst kl. 17.15. Allir velkomn- Tapað fundið Hálsmen tapaðist Hálsmen (nisti) með árituninni „Þín Inga Lind“ tapaðist á laugardaginn sl., annað- hvort viö Austurberg 20 eða við Gjafa- blóm, Eddufelli. Finnandi vinsamlegast hringi í síma 621977 eða 76547. Fundar- laun. Úrval tímarit fyrir alla DRÖGUM ÚR FERÐ ÁÐUR EN VIÐ BEYGJUM! IUMFERÐAR RÁÐ Fjölmiðlar Ólafsvik: Tilboð komin í vertíð- arbáta Stakkholts hf. Samkvæmt heimildum DV hefur fiskvinnslufyrirtækið Stakkholt hf. hafnað tveimur tilboðum heima- manna í eignir fyrirtækisins. Enn- fremur liggja fyrir tilboð í báða ver- tíðarbátana. Heimildir DV herma að tilboðið í Matthildi SH 67 hljóði upp á 90 milij- 'i, ónir og eiga þær að greiðast á einu ári. Tiiboðið í Steinunni SH 107 er upp á 107 milljónir en ekki er vitað um greiðslufyrirkomulag. Aðilamir, sem standa að þessu til- boði, era taldir vera utanbæjarmenn en ef af sölunni verður er ljóst aö mikill vandi steðjar að Ólafsvíking- um enda veitir Stakkholt lif. fjölda manns atvinnu. -GRS í hverri viku kemur út mikill Qöldi landsmálablaða hér á landi og ef tímabilið er teygt upp í mánaðar- blöð fjölgar þeim án efa mjög. Eitt þeirra kemur meira að segja út dag- lega. Útgáfa þessara blaða er í mörgum tilvikum athyglisverö og heima- menn biða sjálfsagt spenntir eftir hveiju eintaki. Þessi blöð flytja fréttír afheimavigstöðvum. - Þau segja frá mannamótum og ýmsu þ vi sem gerist og þykir til tíðinda. Oft má þar finna þjóðlegan fróðleik og handhægar upplýsingar. Siðast en ekki sLst flytja þau pólit- iskar langlokur því mjög oft eru þessi blöð tengd flokkunum og eru því hertekin af „efnilegustu“ pólit- ikusum hvers kjördæmis sem þurfa að koma boðskap sínum áleiöis. Þaö er fátítt að þessi blöð temji sér fréttatakta sem sjást á stærri fjöl- miðlum. Smæösamfélagsins gerir þaö sjálfsagt að verkum aö menn veigra sér við að taka á hlutunum af hlutlægni blaðamennskunnar. Oftar en ekki fylgja þessi blöð ákveðinni landsby ggðapólitik sem felur í sér jákvæða umræðu um . landsbyggðina en neikvæöa um höf- uöborgina. Fréttaumfjöllun virðist yfirleitt byggja á þeirri hugmynd að það þurfi aö minnka heiminn niður í viðráðanlega stærð. Sagt er frá því í hvaða sæti „okkar“ maður lenti og sigurvegaranumjafnvel sleppt- svipað og stærri fjölmiðlarnir gera þegar íslendingar keppa í útl- andinu. Þó aö þessir blöð séu sjaldnast í raunverulegri samkeppni við stóra fjölmiölana era þau fulfrar athygli verð. Það er síðan allt annar hand- leggur hvort þau er svo merkileg að þau eigi skilið ríkisstyrk eins og stundum hefur verið talað um að troða upp á þau. Þá er auðvitað spuming hvort það væri þeim yfir- leittnokkuötílgóðs. -Sigurður M. Jónsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.