Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Blaðsíða 4
20 MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 1990. MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 1990. 21 Iþróttir • Hollendingar fóru halloka í baráttunni viö Vestur-Þjóðveija um miöa á leikinn í Mílanó í gærkvöldi. Vestur-þýskir áhorfendur vissu meö góðum fyrirvara aö liö þeirra myndi keppa í Mílanó og tryggöu sér 40 þúsund af þeim 78 þúsund miðum sem voru á boðstól- um. Hollendingar uröu aö bíöa þar til seint á fimmtudagskvöld, og því komu aðeins um 12 þúsund miðar í þeirra hlut. Hollendingar náðu miðborginni • Þó mun færri Hollendingar hafi komist inn á San Siro leikvanginn en Vestur-Þjóðverjar unnu þeir hollensku fyrsta sigurinn í Mílanó í gær. Vestur-þýsku stuðningsmennirnir hafa jafnan safnast saman viö gotneska kirkju í miðborginni fyrir leiki, en í gær voru þeir hollensku fyrri til og lögöu þann staö undir sig. Lögregla var meö mikinn viöbúnaö og handtók tvo Vestur-Þjóðverja sem voru á leið til vallarins. Annan fyrir að vera meö merkja- byssu en hinn fyrir að bera á sér kylfu. Vegna þess hve margir Hollendingar voru ekki með miða á leikinn, var dreift flugriti yfir miðborg Mílanó þar sem þeir voru hvattir til aö fara ekki til vallarins en horfa í staðinn á leikinn á risastóru sýningartjaldi sem sett var upp í miöborginni. Fimmtán úr ítölskum liðum • ítalskir knattspyrnuáhugamenn gátu sagt í gær aö þeir ættu hlut í liðunum íjórum sem þá voru á ferðinni í keppninni. Hvorki fleiri né færri en 15 leikmenn, sem spila með ítölsk- um félögum, voru í liðum Argentínu, Brasil- íu, Vestur-Þýskalands og Hollands. Sex á heimavelli • Sex leikmenn voru svo sannarlega á heima- velh í leik Vestur-Þjóðveija og Hollendinga á San Siro leikvanginum í Mílanó. Það er heimavöllur bæði Inter og AC Milan, en Hol- lendingarnir Gulht, Rijkaard og Van Basten leika með AC Milan og Þjóðverjarnir Klins- mann, Mattháus og Brehme með Inter. Brassar æfðu vítin • Brasilíumenn voru við því búnir að lenda í vítaspymukeppni gegn Argentínu. Þeir æfðu vítaspyrnur stíft á fóstudaginn og þar stóðu sig best þeir Ricardo Rocha, Careca, Alemao og Branco. Varamenn brasilíska hðsins léku æfingaleik gegn áhugamannaliðinu Asti og sigruðu, 13-0. Batista óhress • Sergio Batista, varnartengiliðurinn öflugi í liði Argentínu, var settur út úr hði Argent- ínu fyrir leikinn við Brashíu, og var reglulega óhress með það. „Hvað hef ég gert af mér framyflr aðra,“ sagði Batista, sem hafði leikið 40 leiki í röð með argentínska landsliðinu. HM-úrslit 16 liða úrslit Kamerún - Kólumbía.............2-1 (1-0, Roger Milla 106., 2-0, Roger Milla 109., 2-1, Bemardo Redin 116. Áhorfendur 50.026) Tékkóslóvakía - Costa Rica.....4-1 (1-0, Tomas Skuhravy 11., 1-1, Ronald Gonzalez 55., 2-1, Tomas Skuhravy 62., 3-1, Lubos Kubik 76., 4-1, Tomas Skuhravy 82. Áhorfendur 47.673) Argentína - Brasilía...........1-0 (1-0, Claudio Caneggia 81. Áhorfendur 61.381) Vestur-Þýskaland - Holland.....2-1 (1-0, Jíirgen Klinsmann 51., 2-0, Andreas Breh- me 85., 2-1, Ronald Koeman (víti) 89. Áhorfend- ur 74.559) Leikir í dag: írland - Rúmenía..............kl. 15 Ítalía - Uruguay..............kl. 19 Leikir á mo Spánn - Júgóslavía..... England - Belgía....... gun: ............kl. 15 ............kl. 19 Jr, 195, JVC MYNDBAND HM A ITALIU Iþróttir ^ __ Vestur-Þjóðverjar unnu Hollendinga í hörkuleik í Mílanó: STAÐGREIÐSLA 1990 Vw verðum meistarar“ sagði Franz Beckenbauer, landsliðseinvaldur Þjóðverja • Hans von Breukelen, markvörður Hollendinga, bjargar boltanum áður en Rudi Völler nær til hans. Völler var rekinn af velli í leiknum. Heimsmeistarakeppnin: j Markahæstir Fiomas Skuhravy, Tékk. Roger Milla, Kamerún Miguel Michel, Spánn ©©© Lothar Mattháus,V-Þýskal. Rudi Völler, V-Þýskal. ©<s>® Júrgen Klinsmann, V-Þýskal. <s>©<s> Vestur-Þjóðverjar hefndu ófar- anna frá því í Evrópukeppninni 1988 þegar þeir unnu Evrópumeistara Hohendinga, 2-1, í hörkuleik í Mílanó í gærkvöldi. Fyrir tveimur árum unnu Hollendingar Þjóðverj- ana, 2-1, í undanúrslitum Evrópu- keppninnar en nú sneru Þjóðverjar dæminu við. Tvö rauðspjöld snemma í leiknum Leikurinn var geysiharður og oft á tíðum fólskulegur. Argentínski dóm- arinn, Juan Carlo Lostau, hafði í nógu að snúast og varð að reka þá Rudi Völler og Frank Rijkáard af leikvelh eftir aðeins 22 mínútur eftir að leikmönnunum hafði lent saman. Rijkaard hrækti á Völler og á án efa eftir að fá strangan dóm fyrir vikið. Þrátt fyrir gífurlega baráttu beggja liða var leikurinn opinn og skemmti- legur og bæði lið fengu mörg mark- tækifæri. Jurgen Klinsmann skoraði fyrra mark Þjóðverja eftir sendingu frá Guido Buchwald og Andreas Brehme bætti öðru markinu við skömmu fyrir leikslok. Á síðustu mínútu leiksins náði Ronnie Koe- mann að minnka muninn úr víta- spyrnu eftir að Jurgen Kohler hafði brugðið í Marco Van Basten innan vítateigs. Sterkasta lið sem ég hef stjórnað „Þetta var harður og erfiður leikur og sýndi fram á að við höfum gífur- lega sterkt lið því það er ekki auð- velt að vinna Hollendinga. Við vor- um búnir að undirbúa okkur gífur- lega vel fyrir leikinn og leiktaktík okkar gekk alveg upp. Liðið lék frá- bærlega vel og þá sérstaklega á miðj- unni. Þetta er án efa sterkasta lið sem ég hef stjórnað og við ætlum okkur að verða heimsmeistarar," sagði Franz Beckenbauer, landsliðsein- valdur V-Þjóðverja, eftir leikinn. Beckenbauer bætti við að dómarinn hefði gert hárrétt þegar hann vísaði þeim Völler og Rijkaard út af en víta- spyrnudómurinn hefði verið alger brandari. Besti leikur okkar í keppninni „Það var verra fyrir okkur að missa Rijkaard en fyrir þá að missa Vöher, en þetta var besti leikur okkar í keppninni og þaö var hrikalegt að þurfa að tapa honum. Við vorum búnir að leika fyrstu þrjá leikina Ola en vorum þá ósigraðir en núna leik- um við vel og töpum. Nú er allt búið,“ sagði Hollendingurinn Ronnie Koe- mann, sár eftir tapið. Vestur-Þjóðverjar fógnuðu að sjálf- sögðu gífurlega eftir leikinn því þeir náðu að hefna tapsins frá því fyrir tveimur árum. Vestur-Þjóðverjar mæta Tékkum í 8 hða úrslitum keppninnar. Þrátt fyrir harðan og oft fólskuleg- an leik þá föðmuðust leikmenn beggja hða eftir leikinn. Stemningin á áhorfendapöhunum var gríöarleg og um 40 þúsund þý- skir áhangendur fögnuðu innilega á San Siro leikvanginum í Mílanó. -RR Brassar sendir heim eftir þjófnað Argentínumanna: Erum ekki dauðir enn“ - sagði Maradona eftir 1-0 sigur Argentínu 1 Tórínó „Þjófnaður aldarinnar" er kannski of djúpt í árinni tekið en argentínsku heimsmeistaranir frömdu að minnsta kosti þjófnað keppninnar í Tórínóborg í gær þegar þeir lögðu þar nágranna sína og erkifjendur, Brasilíumenn, að velli í 16 hða úrslit- um heimsmeistarakeppninnar. Brasilíumenn sýndu oft frábæra knattspymu og flugbeittan sóknar- leik, voru komnir í dauðafæri strax á fyrstu mínútu en á ótrúlegan hátt tókst þeim að komast hjá því að skora mark í leiknum. Argentínumenn nýttu hins vegar sitt færi, það fékk Claudio Caneggia óvænt níu mínút- um fyrir leikslok og skoraði þá sigur- mark Argentínu, 1-0, og tryggði heimsmeisturunum leik gegn Spáni eða Júgóslavíu í 8 liða úrslitum keppninnar um næstu helgi. Rétt á eftir var Ricardo Gomez, fyr- irhði Brasilíu, rekinn af velli fyrir að skeha Basualdo, sem var sloppinn upp að vítateig. Claudio Taffarel, markvörður Brasilíu, sýndi síðan heimsklassamarkvörslu þegar hann varði aukaspyrnuna frá Maradona. Aðeins annað liðið lék knattspyrnu „Svona er knattspyrnan en við erum mjög sorgmæddir yfir þessum úrslit- um. Við gerðum allt nema að skora en fengum að minnsta kosti 12 tæk- ifæri til þess. Argentínumenn fengu eitt færi og nýttu það. Aðeins annað liðið lék knattspymu og hefði átt sig- urinn skihnn, það var varla hægt að fara fram á að við gerðum meira,“ sagði Sebastiano Lazaroni, þjálfari Brasihu, eftir leikinn. Þetta er í fyrsta skipti síðan árið 1966 sem Brasilía kemst ekki í 8 liða úrslit heimsmeistarakeppninnar og þrátt fyrir að sýna oft á tíðum snilld- artilþrif í keppninni má búast við því að brasilísku landsliösmönnunum verði ekki vel tekið við heimkomuna sem varð mun fyrr en efni stóðu til. Verðum betri með hverjum leik „Lið okkar verður betra með hverj- um leik og sýnir nú 50 til 60 prósent af eðlilegri getu. Við erum á hægri en öruggri leið út úr ótrúlegum öldu- dal. Þrír leikmenn eru enn ekki bún- ir að ná sér af meiðslum en spiluðu samt, þeir Maradona, Ruggeri og Giusti,“ sagði Carlos Bilardo, þjálfari Argentínu. Fyrsti sigur Maradona gegn brasilísku liði Sigurinn í gær var kannski stærstur fyrir Diego Maradona. Hann hafði aldrei áður verið í sigurliði gegn brasilísku hði, hvorki með landsliöi né félagsliði, og gleymir því eflaust seint þegar hann var rekinn af velli í leik gegn Brashíu í heimsmeistara- keppninni á Spáni árið 1982. „Það er rétt, Brasilíumenn verð- skulduðu ekki að tapa þessum leik. En hvernig sem menn vilja líta á málið þá höfum við sýnt fram á að Argentínumenn eru ekki dauðir enn. Við getum enn bitið frá okkur," sagði fyrirliðinn Maradona. Hann komst lítið áleiðis í leiknum en brást ekki þegar mest lá við. Það var hann sem átti snilldarsendinguna sem skapaði sigurmarkið fyrir Caneggia. Fimm sprautur í hálfleik Maradona þurfti að fá fimm verkja- sthlandi sprautur í hálfleik vegna ökklameiðslanna og hann er líka meiddur á hné. „En mér líður svo vel að ekkert annað skiptir máh. Mér er sama um ökklann, mér er sama um hnéð - við unnum frábæra mót- herja,“ sagði Maradona. -VS • Claudio Caneggia himinlifandi eftir að hafa skorað sigurmark Argentínu í gær og fagnar ásamt félaga sínum, Gabriel Calderon. Simamynd/Reuter PERSÓNUAFSLÁTTUR HÆKKAR l JÚLÍ 'ERSÓNUAFSLÁTTUR VERÐUR 22.114 KR. Á MÁNUÐI ÓMANNAAFSLÁTTUR RÐUR 610 KR.Á DAG Þann 1. júlí nk. hækkar persónuafsláttur í 22.114 kr. á mánuði og sjómannaafsláttur í 610 kr. á dag. Hækkunin nemur6,06%. Hækkunin nær ekki til launagreiðslna fyrir júní og hefur ekki í för með sér að ný skattkort verði gefin út til þeirra sem þegar hafa fengið kort. Ekki skal breyta upphæð persónuafsláttar launamanns þegar um er að ræða: • Persónuafslátt samkvæmt námsmannaskattkorti 1990. • Persónuafslátt samkvæmt skattkorti með uppsöfnuðum persónuafslætti 1990. Ónýttur uppsafnaður persónuafsláttur sem myndast hefur á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 1990 ogverðurmillifærðursíðar hækkar ekki. Á sama hátt gildir hækkun sjómannaafsláttar ekki um millifærslu á ónýttum uppsöfnuðum sjómannaafslætti sem myndast hefur á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 1990. Launagreiðendurl Munið að hœkka persónuafsláft vegna júlílauna. RSK RÍKISSKATTSTJÓRI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.