Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1990, Blaðsíða 2
18
MÁNUDAGUR 25. JÚNÍ 1990.
fþróttir
„Ævintýrið
er búið“
- sagði þjálfari Costa Rica eftir tap gegn Tékkum
Tékkar tryggðu sér í sæti 8 liða
úrslitum HM-keppninnar eftir að
hafa sigrað Costa Rica, 4-1, í Bari á
laugardag. Tomas Skuhravy skoraði
þrennu fyrir Tékka og er hann nú
markahæstur á HM með 5 mörk og
hefur skoraö þau öll með skalla. Lu-
bos Kubik bætti fjórða markinu við
stórglæsilegu skoti beint úr auka-
spyrnu en Ronald Gonzalez skoraði
eina mark Costa Rica í upphafi síö-
ari hálfleiks. Josef Venglos, þjálfari
Tékka, var að sjálfsögðu mjög
ánægður eftir leikinn.
Sálfræðilega
erfiður leikur
„Leikurinn var sálfræðilega mjög
erfiður fyrir okkur og þaö var ekki
fyrr en þriðja markið kom sem við
fórum að róast aðeins. Það er mjög
gott að þessi leikur er að baki því við
vorum vissulega smeykir fyrirfram.
Ef við hefðum tapað þá hefði öll sú
mikla vinna sem við unnum fyrir
mótið verið til einskis,“ sagði Veng-
los eftir leikinn.
Bora Milutinovic, hinn júgóslav-
neski þjálfari Costa Rica, sagðist vera
ánægður með árangurinn í keppn-
inni.
„Þrátt fyrir tapið á laugardag stóð-
um við okkur vonum framar og hðiö
lék miklu betur en nokkur hafði
búist við. Þetta var skemmtilegt æv-
intýri, eins og draumur. En nú er
ævintýrið búið og lífið heldur
áfram," sagði Júgóslavinn, sem nú
er þjóðhetja í Mið-Ameríkuríkinu.
-RR
• Tomas Skuhravy fær blíðar móttökur hjá félögum sínum í tékkneska landsliðinu eftir að hafa skorað þrennu
gegn Costa Rica. Símamynd Reuter
USA - USA - USA
TILBOÐ TILBOÐ TILBOÐ
Seljum nokkra framhjóladrifna Mercury Topaz bíla á tilboðsverði
Tækifæri sem ekki kemur aftur
Mercury Topaz GS 4dr Verð:_______________Sértilboð
Kr.i^eastfoíT 1.198.000
Aukagjald fyrir ,,metallic“ liti kr. 16.000 16.000
Innifalið m.a.:
Framhjóladrif * 2300 cc vél m/beinni innspýtingu, 98 hö. * Sjálfskipting *
Vökvastýri * Aflhemlar * Sjálfstæð Qöðrun * AM/FM stereo kassettuútvarp *
Rafdrifnar hurðalæsingar * Rafdrifnir speglar * Klukka, stafræn * Þurrkutöf *
Skyggðar rúður * Stórir hjólkoppar * Halogen ökuljós * 185/70x14 hjólbarðar
* Krómrammar um rúður * Lúxus innrétting * Snúningshraðamælir * Öflug
miðstöð * Rafhituð afturrúða * Læsing á smámunageymslu * Gleymskubjalla
v/sætabelta og ræsilykils *
Mercury Topaz AWD 4dr 4x4 Verð: _______________Sértilboð
Kr
Aukagjald fyrir ,,metallic“ liti Kr. UPPSELDIR
Söludeildin er opin: mánud.-föstud. kl. 9-18/laugard. kl. 10-17.
Bíllinn sem endist
og endist
Sveinn Egilsson hf.
Sími 685100
Framtíð við Skeifuna
• Azegho Vicini, hinn aldni þjálf-
ari ítala, er varkár í yfirlýsingum
um leik sinna manna gegn Urugu-
ay í Róm í kvöld. „Uruguaymenn
hafa tvisvar orðið heimsmeistarar
og eru því stoltir og metnaöarfull-
ir,“ segir Vicini. Hann hyggst tefla
fram bæði Roberto Baggio og Sal-
vatore Schillaci, sem báðir léku
frábærlega gegn Tékkum á dögun-
um. Gianluca Vialli er enn ekki
orðinn heill af meiðslum sínum og
verður ekki í byriunarhðinu. Oscar
Tabarez Washington, þjálfari Ur-
uguay, segir að það sé meiri pressa
á ítölum. „Þeir eru sigurstrang-
legri, það hvílir ekki á okkur að
verða að vinna leikinn, hvað sem
það kostar, segir hann.
Baresi vinsælastur
• Franco Baresi er vinsælasti leik-
maður ítalska hðsins, samkvæmt
skoðanakönnun sem 18 milljónir
ítala tóku þátt í aö lokinni riðla-
keppni HM. Salvatore Schillaci
varð í öðru sæti, síðan komu jafnir
þeir Gianluca Vialli og Walter
Zenga og loks Roberto Baggio, sem
aðeins lék síðasta leikinn, gegn
Tékkum.
Emmers ekki með Belgum
• Það er ljóst aö Marc Emmers,
miðjumaðurinn öflugi, verður ekki
með Belgum gegn Englendingum
annað kvöld. Hann er meö tognuðu
liðbönd í ökkla og hefur ekki náð
sér þó hann hafi hvílt í leiknum
við Spánverja. Það er einnig óvíst
hvort Georges Grún getur spilað
með Belgum en Leo Clijsters er
hins vegar orðinn leikfær.
Óbreytt hjá Spáni
• Spánveijar verða með sama hð
og gegn Belgum þegar þeir mæta
Júgóslövum á morgun. „Liöið spil-
ar betur og betur með hveijum léik
og það er engin ástæða til að gera
breytingar. Eg veit ekki mikiö um
Júgóslava en við erum ekki hrædd-
ir, þegar viö náum okkur á strik
getum viö unnið hverja sem er,“
segir Luis Suarez, þjálfari Spán-
verja. Júgóslavar hafa átt í vand-
ræðum því að markvörðurinn
Tomislav Ivkovic, Srecko Katanec
og Safet Susic eiga allir við meiðsli
að stríða en Ivic Osim þjálfari segir
að hann eigi von á að allir geti spil-
að gegn Spáni.
írar og Rúmenar vita
lítiö hverjir um aðra
• Jack Charlton, þjálfari íra, og
Emerich Jenei, þjálfari Rúmena,
telja sig vita htið um lið hvor ann-
ars en þau mætast í 16 liða úrslitun-
um í dag. „Ég kann engin deili á
rúmenska liðinu en veit að okkur
hentar alltaf mjög vel að leika við
lið frá Austur-Evrópu. Við erum
hálfgert bikarlið, ég vildi ekki
stjórna liðum sem mæta okkur!"
segir Charlton. Jenei hefur undir-
búið sína menn með því að sýna
þeim upptökur af leikjum íra í
keppninni. „Þeir eru mjög harðir í
horn að taka og nota mikið af háum
sendingum en ég held að við ráöum
við það,“ segir Jenei.
Lacatus í banni
gegn írlandi
• Rúmenar geta ekki teflt fram
sínu sterkasta hði í dag. Marius
Lacatus, sóknarmaðurinn skæði,
getur ekki leikið með. Hann tekur
út leikbann vegna tveggja gulra
spjalda. í hans stað leika annað-
hvort Rodion Camataru, fyrrum
markakóngur Evrópu, eða Florin
Raducioiu.
Forsætisráðherrann
neitaði írum um frí
• Charles Haughey, forsætisráð-
herra íra, hefur hafnað kröfum
stjórnarandstöðunnar þar í landi
um að dagurinn í dag verði frídag-
ur í landinu vegna leiks íra og
Rúmena. „Þetta er fáránleg tillaga
og best að þegja hana í hel,“ sagði
Haughey á laugardag. Talsmaður
verkalýössambandsins sagði hins
vegar að forráðamenn fyrirtækja á
írlandi yrðu að gera einhverjar
ráðstafanir til aö hliðra til fyrir
starfsmenn sína svo að þeir gætu
horft á leikinn, annars yrðu gífur-
lega mikil forfóll úr vinnu í dag!
Miðinn á 144 þúsund
á svörtum markaði
• Miðar á úrshtaleik HM í Róm
þann 8. júlí ganga nú kaupum og
sölum á svörtum markaði, sérstak-
lega í Rómaborg sjálfri. Um helgina
var miðaverðið hjá bröskurunum
komið í 3 milljónir líra eða 144 þús-
und íslenskrar krónur, um fimmt-
ánfalt það verð sem miðinn á að
kosta í besta stæði sem er um 9.600
krónur.