Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 5. JÚLl 1990. Utlönd í Alhaníu má nú merkja aukna andstöðu við harðlinustefnu stjórnvalda. Simamynd Reuter Albönsk yfírvöld: Lofa andófsmönnum vegabréfsáritun Flestir þeirra tvö hundruö Al- bana, sem leitaö hafa hælis í sendi- ráðum erlendra ríkja í Tirana, höf- uðborg Albaníu, hafa neitaö að yfirgefa þau þrátt fyrir loforð stjórnvalda um að þeim sé frjálst að fara. Tugir Albana viku sér und- an kúlum hermanna í gær og leit- uðu á náðir erlendra sendiráða. Sumir klifu yfir veggi sendiráð- anna í Tirana og komust þannig inn á lóðir þeirra. Talið er að til átaka hafi komið og særðust nokkrir. Ungverski utanríkisráðherrann, Janos Herman, sagði í gær að alb- önsk yfirvöld hefðu lofað öllum þeim sem leitað hafa hæhs í sendi- ráðum möguleikanum á að sækja um vegabréfsáritun. „Þeir fjórir, sem eru í ungverska sendiráðinu, hafa ekki þegið þetta boð,“ sagði hann. „Þeir vilja frekari trygging- ar. Ég tel að lausn sé að finna á þessu máli.“ Herman sagði að ein- hverjir hefðu farið úr öðrum sendi- ráðum til að sækja um vegabréfsá- ritun. Talsmaður vestur-þýska sendiráðsins kvaðst í gær ekki geta staðfest að þeir sem þar hefðu leit- að hælis hefðu einnig fengið slíkt boð. Sumir vestrænir stjónarerind- rekar segja aö Albania, síðasta vigi harðlínukommúnismans í Austur- Evrópu, hyggist láta tíu þúsund í té vegabréfsáritun til að draga úr vaxandi óróa í landinu. Aðrir segja að óróinn nú muni auka enn á klofninginn innan forystu al- banska kommúnistaflokksins. Reuter Gorbatsjov Sovétforseti: Viss um stuðning við perestrojku - þingi sovéska kommúnistaílokksins haldið áfram Mikhail Gorbatsjov, forseti Sovét- ríkjanna og leiðtogi sovéska komm- únistaflokksins, er fullviss um að hann hafi nægan stuðning innan flokksins til að halda umbótaherferð sinni á réttum kih. Forsetinn reyndi í gær að draga úr greinilegum klofn- ingi innan forystu flokksins á þingi hans sem nú stendur yflr og sagði að enginn hefði dregið í efa pólitískan feril perestrojku eða umbótastefn- unnar. En hann lét jafnframt að því liggja að hann myndi segja af sér ef umbætur hans hefðu ekki borið ár- angur innan tveggja ára. „Eg held að ef engar breytingar hafa orðið eft- ir tvö ár víki forystan," sagði forset- inn í gær á 28. þingi sovéska komm- únistaflokksins. Með þessum orðum var forsetinn eingöngu að vísa til embættis síns sem leiðtogi flokksins, ekki sem forseti sem er mun valda- meira. Næsta víst er að Gorbatsjov nái endurkjöri sem leiðtogi flokksins í kosningum í næstu viku. Á þinginu í gær sögðu margir leið- togar flokksins í hinum fimmtán lýð- veldum landsins að þeir þyrftu aukið sjálfsforræði og frelsi. Pólitískri framtíð margra þeirra er nú ógnað af samtökum þjóðernissinna sem sí- fellt hafa aukið fylgi sitt. Jefrem So- kolov, harðlínuleiðtogi flokksins í Hvíta Rússlandi, sagði að flokkur sinn myndi nú hefja undirbúning að eigin reglum og stefnuskrá en það yrði þá í fyrsta sinn. Enn var rætt um umbótastefnu for- setans á flokksþinginu í gær. Leoníd Abalkin varaforsætisráðherra sagði að flokkurinn myndi missa völdin ef hann stæði gegn áætlunum um að innleiða markaðshagkerfi í Sovét- ríkjunum. Harðlínumenn héldu áfram gagnrýni sinni á stefnu so- véska forsetans og um tíma lá nærri að Abalkin myndi þurfa að stíga úr pontu því margir þingfulltrúar reyndu að drekkja oröum hans í lófa- taki. Abalkin gekk þó betur í pont- unni en miðjumanninum Júrí Pro- kofiev, flokksleiðtoganum í Moskvu, sem hvað eftir annað varð að gera hlé á ræðu sinni vegna truflana harðlínumanna sem hann var að gagnrýna. í dagblaðinu Komsomolskaya Pravda í gær mátti lesa harðorða gagnrýni frjálslyndra stjórnmála- manna í Sovétríkjunum á forystu hersins. Þar var forystan sökuð um að taka höndum saman með íhalds- mönnum til að standa í vegi umbóta innan hersins. í blaðinu hvöttu þeir til róttækra aðgerða til að koma hernum undir stjórn þingsins og losa hann undan áhrifum kommúnista- flokksins. Gorbatsjov Sovétforseti ræðir við fulltrúa á 28. þingi sovéska kommúnista- flokksins sem nú fer fram i Moskvu. Símamynd Reuter Reuter r ALVORUBILL Lágmúla 7, siml 91-84477. Flugstöð Leifs Eiríkssonar, síml 92-50300. 1 EVROPU KOSTAR OTRULEGA LITIÐ \ Þegar ekið er um hraðbrautir Evrópu er geysilegur munur að vera á stórum, kraftmiklum og þægilegum bíl. Þetta vita allir. Það sem kannski ekki allir vita er að hjá Arnarflugi er ótrúlega lítill verðmunur á Citroen AX og Ford Scorpio. lí Flug og Ford Scorpio í fimm daga kostar frá kr. 26.600.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.