Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Page 17
!Uf UUS J. I !)í{' ]JHí: '
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990.
25
Íþróttír
iverja
mun leiða iið sitt i annað
• Carlos Bilardo stefnir á annan heimsmeistaratitil sinn en undir hans
stjórn urðu Argentínumenn heimsmeistarar fyrir fjórum árum.
wir hreppa titilinn?
íóhannes Atlason og Inga Bjöm Albertsson til að spá um úrslitaleikinn
ínumenn og Vestur-Þjóðverjar sem mætast í úrslitum
ninnar í annað skipti í röð. Síðast mættust liðin á Azteka
xíkóborg fyrir flórum árum og þá unnu Argentínumenn
i úrslitaleik. Nú mætast þjóðirnar aftur í Rómaborg á
hafa tækifæri á að verja titilinn, yrðu þá heimsmeistarar
3 í röð undir stjórn Carlos Bilardo. Franz Beckenbauer,
iði fyrir fjórum árum, fær nú möguleika til að hefna ófa-
Þjóðverjar hafa tapað tveimur síðustu úrslitaleikjum í
rnuspekinga, þjálfarana Jóhannes Atlason og Inga Björn
irslitaleikinn.
„Caniggia skilur
eftir stórt skarð“
„Það sem gæti einna helst komið í
veg fyrir að Argentínumenn ynnu
úrslitaleikinn er að þeir verða án
framherjans Caniggia sem er geysi-
lega ógnandi og hættulegur. Hinir
þrír sem verða í banni eru ekki eins
milúlvægir og ég held að það verði
auðveldara að fylla þau skörð heldur
en það sem Caniggia skilur eftir sig.
Ég er hræddur um að Argentínu-
menn Verði bitlausir án Caniggia því
að samleikur hans og Maradona hef-
ur verið einn aðal styrkur Argen-
tínumanna og ófá skiptin sem þeir
tveir hafa valdið usla í vörn andstæð-
inganna," sagði Jóhannes Atlason,
þjálfari Stjörnunnar, þegar hann var
spurður álits á liðunum.
„Keppnin mjög
skemmtileg í heildina“
„Þýska seiglan vegur vissulega á
móti en mér finnast Argentínumenn
meira sannfærandi. Það kæmi mér
samt ekki á óvart þó að leikurinn
endaði með jafntefli og úrslitin yrðu
jafnvel útkljáð í vítaspyrnukeppni
eins og í undanförnum leikjum.
Annars finnst mér keppnin hafa
verið mjög skemmtileg í heildina og
því veldur meðal annars öll þessi
óvæntu úrslit. „Litlu hðin“ eru alltaf
að verða betri og betri, “ sagði Jó-
hannes að lokum.
„Tippa frekar
á Þjóðverjana“
„Ég verð að viðurkenna að mér
finnast Þjóðverjarnir sterkari og ég
myndi tippa frekar á þá. Þýska liðið
er gífurlega agað og spilar mjög
skynsamlega eins og gegn Englend-
ingum í gærkvöldi. Þeir voru mun
sterkari í leiknum en gleymdu sér
eitt augnablik og þá refsaði Lineker
þeim. Mér fannst réttlætinu fullnægt
í vítakeppninni. Þjóðverjar leika allt-
af best þegar þeir þurfa þess virki-
lega með og ég býst við þeim geysi-
lega sterkum í úrslitaleiknum. Þeir
hafa einnig harma að hefna frá því
í Mexíkó og munu leggja gersamlega
allt í þennan leik,“ sagði Ingi Björn
Albertsson, þjálfari Valsmanna, í
spjalli við DV.
„Argentínumenn hafa
komið á óvart“
„Mér finnast Argentínumenn hafa
komið mjög á óvart í keppninni. Þeir
virkuðu ekki sannfærandi í fyrstu
leikjunum en hafa sýnt þrautseygju
og eru nú komnir alla leið í úrslit.
Þeir hafa verið mjög heppnir en í
undanförnum leikjum hafa þeir sótt
í sig veðrið og leikið mun betur en í
byrjun. Argentínska liðið verður þó
án fjögurra lykilnmanna og það gæti
skipt sköpum. Það á eftir að muna
mikið um hinn ljóshærða Caniggia
sem hefur verið geysi öflugur í und-
anförnum leikjum. Ég efast um að
Argentínumenn nái að fylla skarð
hans þó að vafalaust hafi þeir marga
góða leikmenn á varamannabekkn-
um.
„Vona að ég sjái
opinn og góðan leik“
Argentínumenn eru til alls líklegir
en ef Þjóðveijar ná góðum leik ættu
þeir aö vinna. Annars er mjög erfitt
að spá einhverju um svona leik því
úrslitin hingað til hafa fæst verið
samkvæmt bókinni. Ég vona bara að
þetta verði opinn og skemmtilegur
leikur og vonandi fáum við að sjá
nóg af mörkum," sagði Ingi Björn.
-RR
• Ingi Björn Albertsson spáir Þjóð-
verjum sigri.
• Jóhannesi Atlasyni finnast Arg-
entínumenn meira sannfærandi.
-V. ■
sistaramót unglinga
m í Grafarholtinu
ngar hafa verið valdir til að leika á mótinu
átta efstu þjóðimar og keppa þær um
Evrópumeistaratitilinn. í þessum hluta
mótsins er keppt í holukeppni sem er
meira spennandi fyrir áhorfendur.
Keppt er tvisvar á dag í þijá daga.
Arið 1981 var haldið Evrópumót ungl-
inga á Grafarholtsvelli og mættu þar
margir kylfingar sem síðar meir hafa
getið sér gott orð á atvinnumannamót-
um í Evrópu. Það má því búast viö því
að rjóminn af efnilegustu kylfingum í
Evrópu keppi á Grafarholtsvelli.
islenska fiðið valið
Þeir sex kylfingar, sem munu keppa fyr-
ir íslands hönd á mótinu, hafa verið
valdir og þeir eru: Kjartan Gunnarsson,
Golfklúbbi Selfoss, Ástráður Sigurðs-
son, Golfklúbbi Reykjavíkur, Sturla
Ómarsson, Golfklúbbi Reykjavíkur, Öm
Arnarsson, Golfklúbbi Akureyrar,
Hjalti Nielsen, Golfklúbbnum Leyni,
Akranesi, og Júlíus Hallgrímsson, Golf-
klúbbi Vestmannaeyja. Varamaður er
Haukur Óskarsson, Nessklúbbi.
-GH
BREIÐABLIK -
ÞÚR. AKUREYR
KÓPAVOGSVELLI1KVÖLD KL. 20.0C FJÖLMENNIÐ Á VÖLLINN