Dagblaðið Vísir - DV - 05.07.1990, Side 28
36
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 1990.
Kvikmyndir
Stjömubíó - Fjölskyldumál
★ ★ lA
Fjölskylduvanda-
mál á ameríska vísu
Sjálfsagt þrá engin hjón jafnheitt aö eignast barn
og þau sem ekki geta eignast þaö af sjálfsdáðum. Um
þessa þrá og sterka móðurtilflnningu flallar Fjöl-
skyldumál (Immediate Family) sem leikstýrt er af Jon-
athan Kaplan en kvikmynd hans, The Accused, vakti
mikla athygli fyrir tæpum tveimur árum.
Kaplan hefur undir sinni stjórn úrvalsleikarana
Glenn Close og James Woods sem leika hjónin Lindu
og Michael Spector er hafa árangurslaust reynt aö
eignast barn í tíu ár. Þegar þau loks hafa gefið upp
alla von um að geta eignast barn af sjálfsdáðum ákveða
þau að ættleiða bam á þann veg að taka við því ný-
fæddu frá móðurinni.
Móðirin, sem verður fyrir valinu, er hin sautján ára
Lucy Moore sem er fátæk en vönduð stúlka sem ekki
sér fram á að geta annast barn sitt sjálf. Fer vel á með
Spector-fiölskyldunni og Lucy og kærasta hennar,
Sam, enda öll flögur ágætis fólk sem býr við misjöfn
lífsskilyrði. Þegar kemur að fæðingunni eru Spector-
hjónin viðstödd en málið tekur fljótt aðra stefnu þegar
Lucy hefur litið bam sitt augum...
Fjölskyldumál er raunsæ kvikmynd, eins raunsæ
og hægt er að ætlast til frá framleiðendum þar sem
fyrst er hugsað um hvort græða megi á myndinni áður
en innihaldið fær nánari skoðun. Glenn Close og Ja-
mes Woods eru einkar aðlaðandi millistéttarfólk, hjón
sem hafa allt til alls, nema hvað þau eru barnlaus.
Sérstaklega sýnir Close sannfærandi leik og þótt
ekki sé hávaðanum fyrir að fara í leik hennar þá skín
örvæntingin í gegnum hvert orð þegar hún reynir að
telja sjálfri sér trú um að hægt sé að lifa hamingju-
sömu flölskylduhfi án bams.
Glenn Close og James Woods leika barnlaus hjón
Fjölskyldumálum.
I heild hefur Fjölskyldumál frekar slakandi áhrif á
áhorfandann þrátt fyrir alvarlegan undirtón og mikla
tilfinningabaráttu. Myndin líður í gegn án mikilla
átaka á yfirborðinu en í lokin sleppur hún ekki við
melódramatískan endi og verður um leið nokkuð
væmin.
Fjölskyldumál (Immediate Family).
Leikstjóri: Jonathan Kaplan.
Aðalhlutverk: Glenn Close, James Woods, Mary Stuart Mast-
erson og Kevin Dillon.
Hilmar Karlsson
^ Jarðarfarir
Guðmunda Á. Jónsdóttir frá Þing-
eyri lést 30. júní sl. Guðmunda fædd-
ist í Dýrafirði 19. ágúst 1901. Hún var
dóttir Guðrúnar Steinþórsdóttur frá
Brekku í Dýrafirði og Jóns Jóhanns-
sonar á Þingeyri. Guðmunda giftist
Ágústi Jónssyni frá Granda í Dýra-
firði árið 1925 og varð þeim fimm
barna auðið. Guðmunda verður jarð-
sungin frá Akraneskirkju í dag, 5.
júlí, kl. 14.
Kristinn Brynjólfsson bóndi, Gelti,
Grímsnesi, er lést aðfaranótt 27. júní,
verður jarðsunginn frá Stóru-Borg-
^ arkirkju fóstudaginn 6. júlí kl. 14.
Útför Jens Hanssonar, Eiríksgötu 13,
Reykjavik, fer fram frá Bústaða-
kirkju fostudaginn 6. júlí kl. 14.
Trausti Sigurlaugsson forstöðumað-
ur í Sjálfsbjörg, Skólagerði 48, Kópa-
vogi, sem lést aðfaranótt 30. júní,
verður jarðsunginn frá Hallgríms-
kirkju fostudaginn 6. júlí kl. 13.30.
Benedikt Guðmundsson frá Eski-
firði, Hraunbæ 110, Reykjavík, sem
lést 29. júní verður jarðsunginn frá
Árbæjarkirkju fóstudaginn 6. júlí kl.
15.
BILASPRAUTUN
ÉTTINGAR
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64-21 -41
Sigurður R. Halldórsson frá Hraun-
gerði andaðist þann 26. júní sl. Sig-
uröur fæddist 9. febrúar 1909, sonur
hjónanna Halldórs Guðmundssonar,
bónda í Hraungerði í Álftaveri, og
Sigrúnar Þorleifsdóttur. Sigurður
verður jarðsunginn frá Fossvogskap-
ellu í dag, 5. júlí, kl. 13.30.
Andlát
Kristján Þórarinn Ingibergsson skip-
stjóri, Hamragarði 9, Keflavík, lést
3. júlí.
Pálína K. Guðjónsdóttir, Skipasundi
6, er látin.
Kristjana G. Þorvaldsdóttir Dvalar-
heimilinu Höfða, Akranesi, lést 3.
júlí.
Tilkynningar
Ný staðfræðikort af
Reykjanesskaga
Landmælingar íslands hafa gefið út níu
staðfræðikort í mælikvarðanum 1:25000
af Reykjanesskaga. Áður hafa komið út
í sama mælikvarða átta kort af Reykjavík
og nágrenni. Kortin eru unnin eftir nýj-
um samræmdum reglum um skráningu
upplýsinga á kort. Staðfræðikortin, sem
nú koma út, ná yfir Reykjanesskagann
vestan Straumsvíkur. Hvert kortblað
þekur 168,5 km- en kortblöðin níu þekja
1516 km2. Kortin eru prentuð á vandaðan
pappír og er hver örk 84 cm á lengd og
59,4 cm á breidd. Staðfræðikortin eru
prentuð í flmm litum, svörtum, bláum,
brúnum, grænum og rauöum. Alls eru
164 tákn notuð á kortunum, meðal ann-
ars eru öll mannvirki sýnd, svo sem
byggingar, vegir, veitur o.fl. Hæðarlínur
eru með fimm metra millibili. Kortin eru
seld almenningi í kortaverslun Land-
mælinga íslands að Laugavegi 178, 2.
hæð.
Húsfreyjan
3. tbl. tímaritsins Húsfreyjan er komið
út. Meðal efnis er grein um músík-
kennslu heyrnarlausra, handavinnuþátt-
ur og smásaga, auk fjölda annarra greina.
Listhús að Vesturgötu 17
opnar samsýningu í dag, fimmtudag, kl.
16. Sýnd verða málverk eftir 4 listmálara,
þá Einar Þorláksson, Elias B. Halldórs-
son, Hrólf Sigurðsson og Pétur Má Pét-
ursson. Sýningin verður opin frá kl. 14-18
alla daga fram til 31. júlí.
Fjölmiðlar
Svo æsispennandi var leikur Eng-
lendinga og Vestur-Þjóðverja í und-
anúrslitum heimsmeistarakeppn-
innar í gærkvöldi að hann hlaut að
valda spennufalli hjá sjónvarps-
áhorfendum loksíns þegar upp var
staðið eftir framlengingu og víta-
spyrnukeppni.
Hefðbundnu sjónvarpsefni, sem á
eftir kom, tókst svo að endurspegla
spennufallið þvi dagskráin var meö
daufasta móti á báðum stöðvum.
Ég hef nú orðið lúmskt gaman af
Grænum fingrum Hafsteins Haf-
líðasonar garðyrkjufræöings. Þátt-
um hans er ætlað aö veita fólki inn-
sýn í skipulagningu á görðum en
Hafsteinn viil helst ekkert skipu-
leggja þegar garðar eru annars veg-
ar enda aöhyllist hann augljóslega
einhvers konar náttúrufræðilegan
kaosisma í sínum skipulagsíræðum.
En sennilega er skipulagt kaos ekk-
Sviðsljós DV
Mimi Rogers hefur leikið i nokkrum kvikmyndum og þykir hafa staðið
sig ágætlega.
Fyrrverandi eiginkona Toms Cruise:
Líkar einveran vel
Mimi Rogers, sem gift var Tom
Cruise, líkar vel að búa ein í Holly-
wood. Hún og Tom eru nýlega skil-
in en hún vill sem minnst um sam-
band þeirra segja. Mimi finnst gott
að búa í Hollywood því þar getur
hún verið útivið og stundað áhuga-
mál sín, svo sem tennis og sund.
Mimi segist æfa til að halda sér í
formi. Hún byrjaði ung á því að
æfa reglulega og líkaminn gleymi
því ekki svo auðveldlega. Hún tek-
ur sér samt frí frá æfingum ef hún
er á ferðalögum eða annars staðar
þar sem engin æfmgaaðstaða er.
Rogers slappar best af í góðra vini
hópi. Hún á marga vini í Hollywood
en segir vera mikið um slúðursög-
ur á þeim bænum.
Frá félagi eldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag.
Kl. 14. frjáls spilamennska, kl. 19.30 fé-
lagsvist, kl. 21 dansaö. Göngu-Hrólfar
hittast að Nóatúni 17 kl. 10 nk. laugar-
dag. Dagsferð, Suðurlandsferð, 12. júlí.
Nánari upplýsingar á skrifstofu.
Sjálfboðaliðasamtök um
náttúruvernd
hafa nú ákveðið dagskrá sumarsins 1990
en samtökin skipuleggja vinnuferðir þar
sem unnið er að náttúruvemd. Starfað
er á friðlýstum svæöum og öðrum þeim
svæðum sem sérstæð em að náttúrufari.
Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að
vemda náttúruna en auk þess að stuðla
að bættri og auðveldari umferð fólks.
Með starfi sínu efla samtökin jafnframt
umræðu um gildi náttúravemdar. Á dag-
skrá sumarsins em nokkrar spennandi
ferðir: 13.-15. júlí Skógar, 27.-30. júlí Snæ-
fellsnes, 17.-19. ágúst Hrafntinnusker.
Fólk er hvatt til að leggja málefninu lið
með þátttöku sinni. Formaður samtak-
ana er Jóhanna B. Magnúsdóttir, simi
680019. Aðrir sem sjá um að veita upplýs-
ingar og skrá þátttakendur em Sólrún
Harðardóttir, sími 14815, Sólveig Bald-
ursdóttir, sími 46165, og skrifstofa Nátt-
úmverndarráðs, s. 27855. Heimilisfangið
er pósthólf 8468.
Tapað-fundið
Óskilahundur
Lítill svartur hvolpur er i óskilum hjá
Hundaeftirliti Kópavogs. Sími 41171.
Tónleikar
Porthátíð útideildar
verður haldin í portinu við Tryggvagötu
12 í dag, fimmtudaginn 5. júli. kl. 18-21.
Töfrabrögö og veitingar. Fram koma
hljómsveitirnar Sjálfsfróun, Strigaskór
nr. 42, Flintstones, Rotþró og Bara eitt-
hvað. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur.
ert verra en hvert annað skipulag.
Auk þess er Hafsteinn vel máli far-
inn og hinn áhey rilegasti
Á eftir Hafsteini í Ríkissjónvarp-
inu kom þáttur um hjartaknúsar-
ann góðkunna, Cary Grant, sem
fæddur var i Bristol á Englandiog
átti erfiða bernsku. Síðan var hann
frægur í Ameríku eins og allír vita,
kvæntist nokkrum sinnum og eign-
aðist eina dóttur á sínum efri árum.
Svona æviþættir um gengin stór-
stirni eru yfirleitt svo væmnir og
yfirborðskenndir að þeir minna
■ helst á íslenskar minningargreinar
og er þá mikið sagt. Þátturinn í
gærkvöldi var einmitt fráleilur aö
þessuleyti.
Svo var haldið áfram að níðast á
minningu þessa ágæta leikara og
nú með kvíkmynd kvöldsins sem
var áreiðanlega súlélegastaafþeim
sjötíu myndum sem Cary karlinn
lékí.
A Stöð 2 var breskur þáttur um
huglækningar og 1 kjölfar hans
umræður um málefnið. Valgerður
Matthíasdóttir stjómaði umræð-
unni og fékk til liös við sig þrjá ein-
staklinga sem virtust vera hjartan-
lega sammála og einnig sammála
öllu því sem fram kom i þættinum.
Það kom líka á daginn að umræðan
varð tilþrifalítil og gagnrýnislaus
þótt málefnið sé bæði umdeilt og
áhugavert.
Kjartan Gunnar Kjartansson