Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Síða 4
20 MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1990.
íþróttir DV
íslensku landsliösmennirnir,
sem leika með erlendum félags-
liöum, komust allir heilir út úi’
leikjura helgarinnar. Þeir komu
á móts viö aöra landsliösmenn í
London á hádegi í dag og þaðan
flýgur liöið til Tékkóslóvakíu. ís-
lendingar mœta Tékkum í Evr-
ópukeppninni í Kosíce á miðviku-
daginn kemur og hefst leikurinn
klukkan 15.30 að íslenskum tima.
Guðni Bergsson lék með Tott-
enham gegn Crystal Palace og
skílaði sínu hlutverki með sóma.
Guðni slapp meö meiösli en auk
hans kemur frá Engiandi Sigurð-
ur Jónsson, Arsenal, en hann lék
ekki með félagi sínu á laugardag-
inn.
Sigurður Grétarsson sagði í
samtali við DV i gær aö hann
hefði sloppíð við meiðsli í leik
með Grasshoppers gegn Lugano.
Ólafiir Þórðar son hjá Brann fékk
spark aftan á hnéð gegn Tromsö
en hann sagði að þaö væri ekki
alvarlegt og hann yrði orðinn
góðurfyrir leikinn gegn Tékkum.
-JKS
• Lið ársins, Hörpulið sumarsins 1990, að mati Hörpu og DV. Hér sjást leikmenn liðsins með viðurkenningaarskjal
DV-mynd GS
Sævar bestur
Ægir Már Kárason, DV, Sudumes)um;
„Eg er alveg í skýjunum og
mjög ánægður með þennan
áfanga. Ég átti ekkert frekar von
á þessu og hélt alveg eins að Dani-
el bróðir minn myndi verða út-
nefndur," sagði Grétar Eínars-
son, knattspyrnumaður í Víði, en
hann var um helgina útnefndur
besti leikmaður 2. deiidar í knatt-
spyniu í sumar.
„Ég þakka þetta strákunum í
líðinu og frábærum þjálfara.
Annars var þetta skemmtilegur
endir á skemmtilegu keppnis-
tímabili," sagöi Grétar Einars-
son. Hann var að auki útnefndur
besti sóknarleikmaður 2. deildar
og einnig varð hann markakóng-
ur.
Lokahóf leikmanna í 2. deild fór
fram í Glaumbergi í Keflavík um
helgina og var þaö skipulagt af
þeim Eggert Jónassyni, Fylki, og
Sigurði Gústafssyni, Víöi, og þótti
takast mjög vel.
- mikið fjörá lokahófi knattspymimianna um helgina
Sævar Jónsson, Val, var um helgina kosinn besti leik-
maður íslandsmótsins 1 knattspyrnu. Sævar lék
marga frábæra leiki með Valsliðinu í sumar og skor-
aði mikið af mörkum fyrir félag sitt. Var hann mjög
vel að þessari viðurkenningu kominn. Lokahóf knattspyrnu-
manna fór fram með pompi og pragt á Hótel íslandi á laugar-
dagskvöldið og var margt um manninn.
• Hörpulið sumarsins 1990, valið af Hörpu og DV, var til-
kynnt. Liðið skipa eftirtaldir leikmenn: Bjarni Sigurðsson,
Val, Þorgrímur Þráinsson, Val, Kristján Jónsson, Fram, Sæv-
ar Jónsson, Val, Pétur Ormslev, Fram, Rúnar Kristinsson,
KR, Ragnar Margeirsson, KR, Andrej Jerina, ÍBV, Hlynur
Stefánsson, ÍBV, og Hörður Magnússon, FH, og Jón Erling
Ragnarsson, Fram.
• Steinar Guðgeirsson, Fram, var valinn efnilegasti leikmað-
ur 1. deildar.
• Vanda Sigurgeirsdóttir, ÍA, var valinn besti leikmaðurinn
í kvennaflokki.
Magnea Guðlaugsdóttir, ÍA, var valinn efnilegasti leik-
maðurinn í kvennaflokki.
-SK
• Sævar Jónsson, Val, besti leikmaður Islandsmótsins í 1. deild karla, og Vant
Sigurgeirsddóttir, ÍA, best í kvennaflokki. DV-mynd G
Dragostyttan
Stjaman í Garðabæ fékk Drago-
styttuna sem veitt er prúðasta liði
1. deildar. Stjarnan hlaut 18 stig en
KR-ingar urðu í öðru sæti með 20
stig.
• Grétar Einarsson fagnar glæsilegum árangri í sumar. Hann var kosinn
besti leikmaður 2. deildar og að auki bestiu sóknarleikmaðurinn og svo
varð hann markakóngur í 2. deild og hlaut Mitreskóinn í ár.
DV-mynd Ægir Már Kárason
• Markahæstu leikmenn 1. deildar 1990. Fyrir miðju er Hörður Magnússon, FH, markakóngur 1990, en hann hlaut gullsk
Adidas annað árið í röð og skoraði 13 mörk í sumar. Til vinstri er Ragnar Margeirsson og til hægri Guðmundur Steinssc
en þeir skoruðu 10 mörk hvor og hlutu silfurskó Adidas. DV-mynd G