Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1990, Side 5
MÁNUDAGUR 24. SEPTEMBER 1990.
21
Iþróttir
i gær:
Valur á möguleika þrátt
fyrir fjögurra marka tap
- Sandeíj ord sigraöi Val 25-21 í fyrri leik liðanna í Noregi
Hermundur Sigmundsson, DV, Noregi:
„Þetta er án nokkurs vafa versti leikur Vals á þessu keppnistímabili.
Það er góður möguleiki fyrir hendi á að komast í næstu umferð en
til þess að svo fari þurfum við góðan stuðning í síðari leiknum á ís-
landi. Við komum reynslunni rikari heim og við vituym hvað við
þurfum að laga fyrir siðari leikinn,“ sagði Jakob Sigurðsson, fyrirliði Vals í
handknattleik, en í gær lék Valur fyrrí leik sinn í Evrópukeppni bikarhafa gegn
norska liðinu Sandefjord. Norska liðið vann á heimavelli sínum, 25-21, eftir að
hafa haft þriggja marka forskot í leikhléi, 13-10.
Staðan varö íljótlega 5-5 en í kjölfarið
fylgdi afleitur leikkafli hjá Val og
Norðmennirnir skoruöu fimm mörk i
röð og staðan breyttist í 10-5. Þennan
mun náðu Valsmenn aldrei að brúa og
þessi góði leikkafli norska liðsins lagði
grunninn að sigrinum.
„Við gerðum of mörg mistök í varn-
arleiknum og lékum ekki vel. Við eig-
um góðan möguleika heima á íslandi
og við þurfum á öllum okkar stuðn-
ingsmönnum aö halda í síðari leikn-
um,“ sagði Jón Kristjánsson en hann
átti bestan leik Valsmanna í gær. Og
Jón bætti við: „Þetta norska hð er alls
ekki ósigrandi og ég myndi líkja því
við venjulegt l. deildar lið á íslandi.
Við munum gera okkar besta til að slá
þá úr keppninni.“
Jón var bestur S Valsliöinu en Brynj-
ar Haröarson var markahæstur með 7
mörk. Valdimar Grímsson gerði sex
mörk.
Hjá Sandefjord var markvörðurinn
Gunnar Fosseng bestur en sovéski
landsliðsmaðurinn, Sergei Demitov,
sem leikur með norska liðinu, var pott-
urinn og pannan f sínu liði og skoraði
7 mörk. Demitov þessi á að baki 62
landsleiki með sovéska landsliðinu.
Þess má geta að í norska liðinu leika
sex norskir landsliðsmenn.
Jón Kristjánsson var bestur Vals-
manna í gær gegn Sandefjord.
• Brynjar Harðarson var
markahæstur gegn Sandefjord
og skoraði 7 mörk.
Borgarferðir
vid a u ra hæfi
* GLASGOW
- 3 NÆTUR
Hospitality Inn/Ingram/Pond
október kr. 25.300,-
nóvember kr. 25.300,-
* LÚXEMBORG
- 3 NÆTUR
Hótel Ítalía
október kr. 30.960,-
nóvember kr. 29.640,-
* FRANKFURT
- 3 NÆTUR **
Hótel Arcade
október kr. 31.400,-
nóbember kr. 30.000,-
* HAMBORG - 3 NÆTUR
***
Hótel Graf Molke
október kr. 32.235,-
nóvember kr. 30.915,-
* PARÍS - 3 NÆTUR **
Hótel Grand de Malte
óktóber kr. 34.000,-
nóvember kr. 31.600,-
* KAUPMANNAHÖFN
Hótel Cosmopole
október kr. 34.100,-
nóvember kr. 32.600,-
* AMSTERDAM
- 3 NÆTUR ***
Hótel Eden
október kr. 34.500,-
nóvember kr. 32.600,-
* LONDON - 3 NÆTUR
Hótel St. Giles
október kr. 35.806,-
nóvember kr. 32.651,-
Innifalið er flugfar og gisting í tvíbýli með morg-
unverði. Verð er staðgreiðsluverð pr. gengi 6.9.90.
* Sérstök hópferð verður farin í nóvember
** Verðið gildir ekki á sýningartímum
*** Nóvemberverð er birt mcð fyrirvara um flug
FERÐASKRIFSTOFAN
x
;ó
in
S