Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Page 3
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1990.
3
pv___________________________________Fréttir
Norrænt samstarf:
Bréfaskipti milli
skóla með tölvum
Helgi Jónsson, DV, ÓlaMröi:
Átta kennarar sem mynda stjórn-
arhóp sem hefur yflrumsjón meö
Óðni, norrænum gagnabanka fyrir
skóla á Norðurlöndum, hittust ný-
lega á Ólafsfirði til að skoða hvern-
ig verkefni og vinna hópsins síð-
asta skólaár gekk og ekki síður til
að undirbúa allsherjarfund að
Hjarðarbóli í Ölfusi. Stendur hann
í sex daga.
Magnús Þorkelsson, kennari við
Menntaskólann við Sund og full-
trúi íslands í hópnum, sagði frétta-
ritara DV að með gagnabankanum
væri athugað hvort tölvan hentaði
sem samskiptatæki í skólakerfinu.
Meginmarkmiðið er að geta notað
tölvuna á hagnýtan hátt en ekki
sem sérfræðilegt fyrirbæri. Skól-
arnir á Norðurlöndum skiptast á
upplýsingum og hafa komið á bré-
fasamskiptum gegnum tölvurnar.
Sem dæmi um þá vinnu, sem unnin
hefur verið í gegnum tölvurnar, er
þemavinna. Bókmenntir á Norður-
löndum hafa verið teknar fyrir,
textar lesnir og gagnrýni og um-
fjöllun send milli skóla. Einnig var
þemað Að vera unghngur á Norð-
urlöndum tekið fyrir og umhverfis-
vernd er verkefni þessa hausts.
Magnús vildi taka það fram að
allir skólar á íslandi gætu tekið
þátt í þessu verkefni ef þeir vildu.
Þeir sem skipa stjómarhópinn
em Stellan Ranebo frá Kalmar í
Svíþjóð, Ebbe Schlutze og Jan Pagh
frá Kaupmannahöfn, Magnús Þor-
kelsson, Stina Ringbom frá Finn-
landi, Nic Furu frá Rörvik í Noregi
og Regin Ellingsgaard frá Færeyj-
um.
Tilraunaborun
í Hraf nkelsdal
Sigrún Björgvinsdóttir, DV, Egilsstööum:
Nú er farið að bora eftir heitu vatni
í Hrafnkelsdal í Norður-Múlasýslu.
Það er bor Orkustofnunar, sem hefur
veriö notaður uppi á Fljótsdalsheiði
í sumar til jarövegsrannsókna, en er
kominn niður í Hrafnkelsdal og þar
á að bora þrjár tilraunaholur.
Auk þess hefur Aðalsteinn, bóndi
Aðalsteinsson á Vaðbrekku, ákveðið
að fá boraða eina holu á eigin kostn-
að og vonast til að fá þar vatn til
heimilsnota.
í Hrafnkelsdal í Jökuldalshreppi
er lághitasvæði og vatnshitinn er í
kringum 40-45 gráður. Þessar til-
raunaholur þar eru meöal annars
boraðar með fiskeldi í huga.
HOLIDAYINN
Selfoss:
Sláturtíðin haf in
Regína Thorarensen, DV, Selfossú
Sláturbyrjun var hjá sláturhúsinu
Höfn á Selfossi fyrir helgi. Um fimm-
tíu inanns eru þar við vinnu og oft-
ast er það sama fólkiö sem kann vel
til verka. Að sögn Haraldar Gests-
sonar sláturhússtjóra verður slátrað
15.000 kindum á þessu hausti og er
það mjög svipað og í fyrrahaust.
Ég talaði við systur í sláturhúsi
Hafnar en þetta er ellefta haustið sem
þær eru við sláturafgreiðslu. Syst-
urnar heita María og Sigurbjörg
Óskarsdætur, bráðduglegar og áreið-
anlegar í hvívetna. Fyrstu dagana
sem þær seldu slátur nú í haust seldu
þær heldur meira en í fyrra. Slátrið
kostar nú 486 krónur.
Tíminn líður hraðar en þig grunar. Með haustinu hefst vertíð
árshátíða og fyrr en varir er kominn þorri. Hafðu tímann fyrir þér
og pantaðu sal sem hentar til hátíðahaldanna.
Salir okkar eru einkar glæsilegir
og við bjóðum allt frá 40 til 120 manns í sæti.
I boði er fjölbreyttur árshátíðarmatseðill, með tveimur, þremur
eða fjórum réttum, vínföngum og kaffi.
Verðhugmynd fyrir 100 manna árshátíð með þriggja rétta matseðli,
hljómsveit, þjónustu og öllum gjöldum 3.500,- krónur á mann.
A Holiday Inn sér fagfólk um alla framreiðslu og aðstoðar þig við
undirbúninginn. Kynntu þér hátíðarkosti okkar og hringdu
í síma 689000.
Strandir
Mikil aukning ferðafólks
Regina Thorarensen, DV, Gjögri:
Aldrei hefur eins margt ferðafólk
verið á ferð í Árneshreppi og í sum-
ar. Dáðust allir að því hve vöruúrval-
ið er mikið í kaupfélaginu og verðið
hóflegt.
Fólki sem ætlaði að vera eina og
tvær nætur í tjöldum fannst verst að
geta ekki fengið niöursagað kjöt.
Ekki var hægt að fá annað en hálfa
eða heila skrokka i kaupfélaginu.
Ferðamenn þurfa að útbúa sig með
sagir áður en þeir koma næst. Marg-
ir hættu við að versla þegar þeir gátu
ekki keypt niðursagað kjöt og fóru
inn á hótehð eða í Bjarnarfjörð. Kjöt-
ið á Ströndum er mjög eftirsótt því
það er bragðgott og fínt kjöt.
Margbúið er að samþykkja kaup á
sög á aðalfundi en kaupfélagsstjór-
inn er hræddur um slys og langt er
í næsta lækni.
vuv
SIGTÚNI 38 • SÍMI:689000
S?ENG
MJÓDD—
jGefjunar^
0 0 I < f
smn,
REYKJAVIK-i
HAFNAR
EB. NÝR DAGUR.