Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Síða 5
’ MÁNUDAGUR 8. ÖKTÓBER 1990.
Akranes:
ÍA fær 35,8 milljónir
króna á sex árum
Sigurður Sverrisson, DV, Akranesú
Bæjarstjórnin samþykkti á fundi sín-
um nýlega meö öllum greiddum at-
kvæðum samning á milli bæjarins
og íþróttabandalags Akraness um
framkvæmdir á íþróttasvæðinu á
Jaðarsbökkum.
Samningurinn felur það í sér að
Akranesbær leggur bandalaginu til
35,8 milljónir næstu sex árin en ails
nemur kostnaður við framkvæmdir,
sem fara á út í, rúmum 63 milljónum
króna að meðtalinni hönnun og
verkeftirliti. Inni í þessum kostnað-
artölum er ekki innrétting efri hæða
viðbyggingar íþróttahússins.
Þær framkvæmdir sem um ræðir
eru lenging íþróttahúss ÍA með bún
ingsklefa á neðstu hæð en félagsrým
á efri hæðum, anddyri fyrir íþrótta
miðstöðina og suðausturálmu, sen
er tveggja hæða bygging með bún
ingsaðstöðu fyrir íþróttavölhnn
neðri hæð en sal og veitingarými
efri hæð.
5
Hvammstangi:
Pólskar
stúlkur
ráðnar
í skelina
Þórh. Ásmundsson, DV, NorðurL vestra:
Það vantaði fólk til starfa á
Hvammstanga í sumar og enn
jókst eftirspum eftir vinnuafli
þegar sláturtíð hófst. Forráða-
menn rækjuvinnslu Meleyrar
brugðu því á það ráð að fá fólk
erlendis frá til vinnu - alla leið
frá Póllandi.
Um síðustu helgi hófu sex pól-
skar stúlkur störf hjá Meleyri og
möguleiki er á að þær verði fleiri,
segir framkvæmdastjórinn,
Halldór Jónsson.
Skelveiðar Hvammstangabá-
tanna tveggja hafa gengið þokka-
lega en skelin í Húnaflóanum er
nokkuö smá. Bjarmi hefur fengið
mest 14 tonn eftir tvo daga.
Presta-
skipti á
Hvamms-
tanga
Þórh. Asmunds., DV, NoröurLvestra:
Hvammstangabúar fengu nýj-
an prest fyrir skömmu þegar sú
breyting, sem gert var ráð fyrir í
nýjum lögum um skipan presta-
kalla, átti sér formlega stað. Við
það fluttist Hvammstangi úr Mel-
staðarprestakalh í Breiðabóls-
staðarprestakah.
Athöfnin átti sér stað við messu
á Hvammstanga á sunnudag.
Fyrrum sóknarprestur, séra
Guðni Þór Ólafsson á Melstað,
þjónaði fyrir altari fyrir prédikun
en síðan tók viö nýi sóknarprest-
urinn á Hvammstanga, séra
Kristján Björnsson á Breiðabóls-
stað. Fjölmenni var við messu,
rúmlega eitt hundrað manns. Eitt
bam var skírt og í messulok fór
fram altarisganga þar sem báðir
prestamir þjónuðu.
Að guðsþjónustu lokinni var
öhum kirkjugestum boðið upp á
kaffiveitingar í félagsheimhinu á
Hvammstanga. Þar voru séra
Guðna og frú færðar þakkir og
mynd af Hvammstanga frá safn-
aðarstjóminni í þakkarskyni og
nýju prestshjónin boðin velkom-
in. Þrátt fyrir prestaskiptin hafa
Hvammstangabúar ekki sagt
skilið við prestshjónin á Melstað
5ví að Guðni er prófastur þeirra
ennþá.
Hf. Eimskipafélag íslands býður nú til sölu á almennum markaði
hlutabréf í félaginu að nafhverði 41.315.802 kr.
ÚTBOÐÁ
HLUTAFÉ
EIMSKIPS
Bréfin eru seld með áskrift. Öllum er gefinn kostur á að
skrá sig fyrir hlutafé að nafnverði 5.000-25.000 kr. á
genginu 5,60. Þeir sem óska eftir að kaupa fyrir hærri
fjárhæð geta gert tilboð í hlutabréf á hærra gengi.
Eigið fé EIMSKIPS hinn 30. júní sl. var 3,2 milljarðar
króna. Áætluð velta félagsins árið 1990 er um 7 milljarð-
ar króna og fyrstu 6 mánuði ársins nam hagnaður samtals 257
milljónum króna.
Nánari upplýsingar um útboðið liggja frammi hjá Verðbréfa-
markaði íslandsbanka hf., Ármúla 13a, Reykjavík, útibúum
íslandsbanka hf. og Fjárfestingarfélagi íslands hf., Hafnarstræti 7,
Reykjavík.
EIMSKIP
Umsjónaraðili útboðsinser Verðbréfamarkaður (slandsbankahf., Ármúla 13a, 108 Fteykjavík, sími: 681530.
HVÍTA HÚSID / SÍA