Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Side 6
6
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1990.
Fréttir
Sandkom
Flugbjörgunarsveitin 1 Reykjavik 40 ára:
400 manns tóku þátt
í björgunaræf ingum
- æfingin endaði með „stórslysi“ við Kiðafell á laugardag
Mjög umfangsmikil björgunaræf-
ing fór fram í nágrenni höfuðborgar-
svæðisins á laugardag. Töldu margir
vegfarendur að um slys væri að ræða
og lögðu sumir bílum sínum við veg-
kanta og fylgdust með þegar björgun-
armenn og þyrlur voru að athafna
sig með „slasaða".
Um 400 manns úr ýmsum björgun-
arsveitum af landinu og skólum tóku
þátt í æfmgunni sem var skipt niður
í 50 verkefni. Hún var skipulögð af
Flugbjörgunarsveitinni í Reykjavík í
tilefni 40 ára afmæhs hennar.
Sveitimar skiptu með sér verkefn-
um og tóku flestir hópamir þátt í
mörgum þeirra. Æfð var leit og
björgun úr sjó og á landi. Við æfmg-
arnar voru notaöar þyrlur frá Land-
helgisgæslunni og varnarliðinu, tug-
ir bíla, bátar og ýmis annar útbúnað-
ur.
Æfingarnar hófust um klukkan
fimm aðfaranótt laugardagsins og
voru þá björgunarsveitirnar ræstar
út. Var hópunum þá skipt niður.
„Slasaðir" vom flestir nemendur úr
skólum í Kópavogi og skátar úr
Breiðholti. í hverju verkefni fengu
björgunarmenn ekki nema takmark-
aðar upplýsingar um viðkomandi
slys, eins og gerist þegar tilkynnt er
um slíkt í raunveruleikanum. Æfing-
in var því einnig fólgin í að meta
aðstæður og þörf fyrir hvemig
bregðast á við í hverju tilfelli.
Fjórir stórir björgunarbátar,
Henrý Hálfdansson úr Reykjavík,
Ásgeir M frá Seltjarnamesi, Kristinn
Sigurðsson úr Vestmannaeyjum og
Klettur frá Hafnarfirði, ásamt fimm
gúmbjörgunarbátum og köfurum
tóku þátt í æfingunni. Þyrla Land-
helgisgæslunnar kom á æfinguna
fyrir hádegi og fór áhöfn hennar í 11
verkefni á rúmum tveimur klukku-
stundum - meðal annars lenti hún á
Kistufelli á Esju og náði þar í „sjúkl-
inga“. Þyrlur frá vamarliðinu feng-
ust við svipuð verkefni en þær fluttu
björgunarmenn á slysstaði.
Æfingin endaði svo með „stór-
slysi“ við Kiðafell í Kjós en þar áttu
tvær rútubifreiðar að hafa lent í
árekstri með þeim afleiðingum að 60
manns slösuöust. Að æfingu lokinni
snæddu björgunarmenn og sjúkling-
ar kvöldmat í Félagsheimilinu Fólk-
vangi á Kjalarnesi. Að sögn Jóns
Gunnarssonar, formanns Flugbjörg-
unarsveitarinnar, tókst vel til með
hana. -ÓTT
EyjaQöröur:
Þrír hreppar
sameinast
- samþykkt í atkvæðagreiðslu um helgina
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Úrslitin eru ótvíræð og ljóst að
fólkið vill sameiningu,“ sagði Birg-
ir Þórðarson, oddviti í Önguls-
staðahreppi í Eyjafiröi, í samtali
viö DV í gær, en á laugardag
greiddu íbúar í Öngulsstaðahreppi,
Saurbæjarhreppi og Hrafnagils-
hreppi í Eyjafiröi atkvæði um það
hvort sameina á þessa hreppa um
næstu áramót.
Af þeim sem greiddu atkvæði
voru ríflega 82% samþykk samein-
ingu en tæplega 17% mótfallin
henni. Kjörsóknin var 53,7% en
alls greiddi 341 atkvæði af þeim 635
sem voru á kjörskrá. Lítill munur
var á fylgi við sameininguna milli
íbúa hreppanna, 95 íbúa Hrafna-
gilshrepps voru með henni en 20 á
móti, 83 íbúa Saurbæjarhrepps
voru meðmæltir og 6 á móti og af
íbúum Öngulsstaðahrepps sögöu
102 já en 31 nei.
Sameiningin mun taka gildi um
næstu áramót. Núverandi sveitar-
stjórnir hreppanna þriggja munu
leggja fram sameiginlegan lista um
væntanlega sveitarstjórn en komi
fram annar listi eða fleiri munu
kosningar til sveitarstjórnarinnar
fara fram 17. nóvember.
Jafnhliða kosningunni um sam-
eininguna fór fram skoðanakönn-
un um nafn á hinh nýja hrepp og
höfðu kjósendur um nokkurn
fjölda nafna að velja. Þijú nöfn
skáru sig þar nokkuð úr. Þau eru
öll kennd við Eyjafjörð og eru Eyja-
fjarðarbyggð, sem hlaut 58 at-
kvæði, Eyjafjarðarsveit, fékk 57
atkvæði, og Eyjafjarðarhreppur,
fékk 52 atkvæði. Hin nýja stjórn
hreppsins mun síðar taka ákvörð-
un um hvaða nafn hreppurinn mun
bera.
Björgunarmenn komnir á vettvang í einu verkefninu á laugardaginn. A
æfingunni fengu hóparnir aðeins takmarkaðar upplýsingar um hve margir
væru „slasaðir" og hve mikið. Björgunarsveitarmenn eru vel þjálfaðir í
skyndihjálp og vita þvi hvernig á að bregðast við á vettvangi.
^ DV-mynd Brynjar Gauti
Þingeyri:
Tveir á sjúkrahús
eftir útafkeyrslu
Bíl með þremur mönnum var ekið
út af veginium rétt við Þingeyri að-
faranótt laugardagsins. Tveir voru
fluttir á sjúkrahús með lítils háttar
meiðsh en var sleppt þaðan fljóöega.
Grunur leikur á að ökumaðurinn
hafi verið ölvaður við stýri. Bíllinn
skemmdist mikið. Þá þurfti lögreglan
á ísafirði að hafa afskipti af öku-
manni á Flateyri sem einnig er grun-
aður um ölvun við aksturinn.
-HK
Halldóra HF var á síldveiðum út afBeruQarðarál í gær:
Fékk 300 tunnur af demantssild
„Við erum á leið til Noröfjarðar
með um þrjátíu tonn eða þrjú hundr-
uö tunnur af góðri síld. Síldin er
mjög góö, um og yfir 300 grömm, og
ætti að geta farið á Japansmarkað -
þetta er sams konar síld og Hamar
fékk í síöustu viku,“ sagöi Magnús
Ásgeirsson, skipstjóri á Hahdóru HF
61, í samtali við DV í gær.
Síldarvertíðin hófst á hádegi í gær.
síldarvertíðin hófst á hádegi í gær
Nokkur skip voru að leita að síld á
miðunum nokkuö djúpt úti af Beru-
fjarðarál, Höfrungur II., Hamar,
Ágúst Guðmundsson, Sæborg og
Stjörnutindur, að sögn Magnúsar.
„Þetta er eina síldin sem hefur
fengist ennþá. Annars var ekkert
magn í þessu sem við köstuðum á.
En þetta veit á gott og það verður
gott að eiga við þessa síld þegar hún
fer inn á firði. Það er hins vegar
spurning hvort þetta verður shdin
sem verður í veiðinni í haust.
Þama var bjart í nótt og svo er líka
stórstreymt. Það er ekki svo gott að
átta sig á síldinni nú þegar þegar ht-
ið er farið aö koma upp ennþá,“ sagði
Magnús, skipstjóri á Halldóru.
Kristinn Jón Friðþjófsson, skip-
stjóri á Hamri, segir að sjórinn sé
ennþá of hlýr upp við landið:
„Síldin er ekkert farin að hreyfa
sig til ennþá. Við erum 43 mílur úti
af Papey. Hún er ennþá hér í kaldari
sjó - sem er í kringum sjö gráður.
Við vonum bara að hún fari að færa
sig innar,“ sagði Kristinn Jón Frið-
þjófsson.
-ÓTT
Ömefnin færð
„Ég vona lwra
aðþlösklrið
Scibergshfið
eðaFjárhús-
holtaldrei
Hohywood"
vorulokaorð
EiríksJónsson-
ar, utvarps-
manns á Bylgj-
unni, cr hann hafði hlusl aö á skýr-
ingar Guðmundar Áma Stefánsson-
ar, bæjarstjóra í Hafnarfirði, á því
h vers vegna Hafnfirðingar ferðu Set-
bergshlíð til um eina tvo kflómetra á
Fjárhúsholt, en þar ætla þeir að
byggja nýtt íbúöahverfi. Það hefur
vakiö kátínu að verktakinn á nýj a
byggingasvæðinu hefur reist stórt
„Hohywoodskilti“ á Fjárhúsholti, og
stendur þar risastöfum „Setbergs-
hlíð“. Það þótti ekki fínt aö ætla að
byggja á Fjárhúsholti og því var nafn-
ið á nýja hverftð sótt um 2 km til
suðurs. En Guðmundur Árni víður-
kenndi aö sennilega væri betra aö
selja ibúðiri Setbergshlið heldur en
áfjárhúsholti. MÖrgum stendur
sennilega á sama um hvaöa naflt
nýja íbuðah verfið ber en öðrum
finnst þarna skemmtilegur Hafnar-
(jarðarbrandari á ferðinni.
Þingmennúr
stjórnarhðinu
ganga nú fram
hvcraföðrum
oglýsaþvíjftr
aðþeirhafl
ekkisamþykkt
eitinéneitt
varðandibýgg-
inguálversins
á Keilisnesi og ber að sjálfsögðu mik-
ið á þingmönnum Norðurlandskjör-
dæmis eystra í þeim hópi og harma
þeír m.a. staðsetningu álversins.
Þetta leiðir hugann aö því að kosn-
ingabarátta stendur fyrir dy rum og
þá þurfa þessir mcnn að raæta í kjör-
dæmi sitt og taka upp loforðasönginn
enn og aftur. Þeir ættu þá að hafa
með í farteskínu loforðalistann frá
þvi fyrír síðustu kosningar þar sem
m,a. voru fógur fyrirheit uro baráttu
þeirra fyrir byggðaþróun, uppbygg-
ingu atvinnulífs og fleira og fleira í
þeim dúr. Þeir geta notað listana sína
óbreytta því nánast ekkert hefur ver-
ið efnt af því sem á þeim var að finna.
Það er draumur margra aö nú verði
tekið á móti „loforðahstamönnun-
um“áviðeigandiMtt.
Hannesi
til heiðurs
Davíð Oddsson
borgarstjóri
brásérígervi
morgunhana
Ríkisútvarps-
insísíðustu
vikuogstjóm-
aöi morgunút-
varpirásar2
ásamtLeii
Haukssyni. Að sjálfsögðu fórst Óavið
þetta verkefni vel úr hendi enda van-
ur að stjóraa stærra „batteríí" en ein-
um útvarpsþætti. i þættinum var
m.a. rætt við Hannes Hólmstein hinn
eina og sanna. Umræðuefniö var Sov-
étríkin og heyrði ég ekki betur en
Hannes væri þar að tíunda ýmsa
fróðleiksmola úr heimsókn smni
þangað. En Davíö átti iokaorðin,
hann skellti plötu á fóninn, sagðist
hafa keypt hana sjálfur í Moskvu á
ferð sinni þar, og spilaði „Internati-
onaiinn" Hannosi Hólmsteini th heið-
urs eins og hann orðaöi það.
Fleiri hringi
Golfleikararí
körfuboha-
bænumSauð-
árkrókihafa
mikinnáhugaá
þvíaðstækka
goiiVöhsinnm-
9holumíl8og
viljafáland
úndirstækk-
unina. Það kann þó að vcra að slíkt
verði ekki auðsótt þ vi rohubændur
eru með starfsemi sina allt í kringum
völhnn og eru ekki tilbúnir að víkja.
I blaðinu Feyki á Króknum er sagt
að einn rohubænda sem kahaöur er
Obbi i Káhardal hafi s vör á reiðum
höndum þegar sfekkun golfvallarins
ber á góma. Hann segir einfaldiega
aö golfararnir geti bara sphað flelri
hringi á sínum 9 holu vehi svo stækk-
unin sé óþörf. Þetta ergeðþekk og
skemmtheg,Jausn“.
Umsjón: GyHi Kristjánsson