Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Page 13
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1990.
13
Prófkjörs-
kynning
áRÚV
María Sigurðardóttir skrifar:
Mér finnst það engan veginn við
hæfi að Ríkisútvarpið sé að kynna
væntanlega frambjóöendur til al-
þingiskosninga eins augljóslega og
gert var á Rás 2 sl. laugardag.
Ég opnaði fyrir útvarpið þennan
morgun eins og ég geri venjulega og
þá var nýbyijaður þátturinn Þetta líf
þar sem stjómandinn hafði fengið
þingkonuna Salóme Þorkelsdóttur til
að ræða við hana um það helsta sem
gerst haföi þá vikuna.
Auðvitað fór ekki hjá því að talið
bærist að þingstörfum hennar og
framtíðarhorfum.
Nú er ég ekki að segja að það megi
ekki ræða við þingmenn í útvarps-
þáttum eins og aðra þjóðfélagsþegna,
en þegar dregur að kosningum eins
og nú eru allar líkur á að geti orðið
síðar í haust, er það ekki hlutverk
Ríkisútvarpsins að taka einstaka
þingmenn fyrir og bjóða þeim að taka
forskot á kynninguna. Ekki nema þá
að sérstaklega sé ætlunin að bjóða
ölfum þingmönnunum, hveijum á
eftir öðrum, 63 að tölu, í Ríkisútvarp-
ið og leyfa þeim að reifa það sem
þeim þykir markverðast og nauðsyn-
legast vegna komandi framboðs.
Þetta viðtal við Salóme Þorkels-
dóttur virtist ekkert vera annað en
augljós greiði við hana til að létta
undir með henni í hugsanlegum
prófkjörsslag eða óbein leiðbeining
fyrir kjörnefnd í hennar kjördæmi,
ef þannig æxlast að þar verður held-
ur ekki prófkjör, eins og víða er nú
farið að tíðka þar sem hinir þauf-
setnu þingmenn hafa tögl og hagldir.
Nú er það sem sé spurningin hvort
Ríkisútvarpið ætlar að halda áfram
á sömu braut og kynna alla hina
þingmennina og þá nýju kandidata
sem tilbúnir eru í framboösslaginn?
Svona einstakt tilvik eins og þama
var á Rás 2 sl.laugardag leiðir óhjá-
kvæmilega til frekari þingmanna-
kynninga eða þá útskýringa á því
hvers vegna þessi sésrstaki þingmað-
ur varð fyrir „valinu".
Hringið í síma
27022
milli kl. 14 og 16
eða skrifið
BILASPRAUTUN
ÉTTINGAR
5Jkk|ns'
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64-21 -41
UMBÚÐAPAPPÍR
Hvítur, 40 og
57 cm rúllur
Gjafapappír í úrvali
40 og 60 cm rúllur
FÉLAGSPRENTSMIÐJAN HF.
Spítalastíg 10 - Sími 11640
Myndsendir: 29520
Lesendur
Niðurlæging ríkisstjómarinnar:
Hvernig gátu þeir gert þetta?
ólmir ganga til kosninga nú hlýtur
orsökin að vera sú að þeir sjá að
því lengra sem líður á kjörtímabilið
fari atkvæðafjöldi þeirra sífellt
minnkandi. Nú sé þó lag á meðan
andstaðan ríkir gegn álsamingun-
um eins og þeir em settir fram í
dag. Andstaðan muni hjaðna í kjöl-
far frekari umræðu og breyttra
áherslna. Og gott ef ekki verður
hægt að ganga til liðs við Sjálfstæð-
isflokkinn að lokinni endurskoðun.
Svona er nú líklegt að þeir hugsi
í Alþýðubandalaginu, margir
hveijir. Og kannski er líka einhver
„annar" flokkur að rýna í sömu
spáspihn!
Krístján Kristjánsson skrifar:
Stimdum ofbýður fólki svo að það
á varla orð til að lýsa hneykslan
sinni. Þannig er áreiðanlega mörg-
um farið þegar þeir heyra fréttir
af því að nú hafi ráðherrar úr ríkis-
stjóminni gengið á fund formanns
Sjálfstæðisflokksins, Þorsteins
Pálssonar, til að kanna hvort flokk-
ur hans myndi ekki styðja við bak-
ið á ríkisstjóminni í álmálinu.
Ég held að margir hljóti að spyija
sem svo; hvemig gátu þeir gert
þetta?
Og að forsætisráðherra skuli hafa
staðið að baki hugmyndinni er þó
enn furðulegra. Það er því ekki aö
undra þótt formaður Sjálfstæöis-
flokksins haldi að „mennimir séu
ekki með réttu ráöi“, eins og fram
kemur í viðtah við hann. Eftir aht
sem á undan er gengið, brigsl og
svigurmæli 'í garð formanns Sjálf-
stæðisflokksins og sífelldar thvitn-
anir í „ríkisstjóm Þorsteins Páls-
sonar“ þegar þessum ráðherrum
veröur á í messunni - eins og nú á
sér stað varðandi álsamningana -
er varla hægt að ætlast til aö Sjálf-
stæðisflokkurinn fari að styðja rík-
isstjórnina sérstaklega í því að
blekkja hina erlendu viðsemjendur
eða þá íslensku þjóðina.
Á þessu stigi málsins liggur bein-
ast við að taka þessa umræðu alla
fyrir á Alþingi strax og það kemur
saman og að því búnu að ijúfa þing
og efna tíl kosninga þegar í stað.
Þær kosningar ættu að sýna hvaða
flokkum þjóðin treystir best th að
fara með völd í landinu á þessum
viðsjárverðu og óvissu tímum.
Ekki er samt ólíklegt að sam-
steypustjórn þurfi th að koma svo
að ipjög rúmur meirihluti og
stjómmálalega sterkur standi að
þeim ákvörðunum sem teknar
verða í stóriðjumálum og örlaga-
ríkum samningum sem framundan
eru um Evrópubandalagið.
Ef alþýðubandalagsmenn vhja
Sindri hefur tekið að sér umboð fyrir Otto C. Jensen, einn
stærsta seljanda loka á Norðurlöndum, fyrirtæki
sem er virt fyrir vandaðar vörur.
KÚLULOKI RENNILOKI
KEILULOKI SPJALDLOKI
Fyrirliggjandi eru í birgðastöð okkar fjölmargar gerðir loka
s.s. kúluloka, renniloka, keiluloka og spjaldloka í ýmsum
gerðum og stærðum. Sérpöntum eftir óskum.
SINDRI
BORGARTÚNI 31 ■ PÓSTHÓLF 880 • 121 REYKJAVIK ■ SlMI 62 72 22