Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Síða 16
16
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1990.
Menning
Hlutur íslands í kvikmyndasamstarfi Norðurlanda í ár í hættu:
Trúi því ekki að sagt verði
nei, takk við 50 milljónum
- segir Þorsteinn Jónsson, forstöðumaður Kvikmyndasjóðs íslands
Stærsta úthlutun í ár hjá Norræna
kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum er
til fimm kvikmynda sem er samstarf
Noröurlandanna um kvikmynda-
gerð. Hugmyndin er að kvikmynd-
imar fimm frá Danmörku, Svíþjóð,
Finnlandi, Noregi og íslandi verði
sýndar á öllum Norðurlöndum og
sameiginlegt söluátak gert til þess
að koma þeim inn á markaði annars
staðar í heiminum. Úthlutim nor-
ræna sjóðsins er 30-50 milljónir
króna á hveija mynd. auk þess sem
Kvikmyndasjóður Islands hefur
fengið norrænar kvikmyndastofnan-
ir til leggja 20 milljónir króna í ís-
lenska verkefnið.
Nú lítur aftur á móti út fyrir að
ísland geti ekki tekið þátt í þessu
samstarfi þar sem Svavar Gestsson
menntamálaráðherra hefur sagt að
engir peningar séu til fyrir aukafjár-
veitingu en Kvikmyndasjóður ís-
lands hefur farið fram á aukafjár-
veitingu svo hægt sé aö gera kvik-
myndina.
„Við bíðum nú eftir svari frá ríkis-
stjóminni hvort við fáum framlag
upp á 50 milljónir en það er nálægt
því að vera helmingi minni styrkur
en sá sem viö fórum fram á í júlí,“
sagði Þorsteinn Jónsson, forstöðu-
maður Kvikmyndasjóðs íslands, þeg-
ar hann var inntur eftir gangi mála.
Þorsteinn sagði að beðið væri með
allar framkvæmdir þar til svar feng-
ist: „Ef það svar verður jákvætt
munum við auglýsa eftir umsóknum
í þetta verkefni og velja svo úr þeim
fljótlega. Við erum alveg að komast
á síðasta snúning með að svara hvort
við verðum með í samstarfi þessu eða
ekki, eigrnn í raim að vera búnir að
því.“
„Ég trúi því ekki að ríkissljómin
geti sagt nei, takk viö 50 milljónum.
Það er búið að hafa fyrir því að fá
þetta framlag. íslenskri kvikmynda-
gerö væri gerður mikill óleikur með
því að hafna þessu,“ sagði Þorsteinn
að lokum.
-HK
Verðurvalinn
bæjarlistamaður
árlega
íHafnarfirði?
Með tilkomu menningarstöðv-
arinnar Hafnarborgar í Hafnar-
firði hefur listalíf blómstrað þar
í bæ og er mikill hugur í lista-
mönnum sem þar búa eins sjá
má á því að nú hefur bæjarstjóm
Hafnarflarðar fengið bréf sem
fjórmenningarnir Ami Ibsen,
Gunnar Gunnarsson, Gunnlaug-
ur St. Gíslason og Sverrir Ólafs-
son imdirrita þar sem þeir fara
fram á að árlega verði valinn
bæjarlistamaður úr hópi hsta-
maima sem búa 1 Hafnarfirði.
Sömu menn gera einnig að til-
lögu sinni að þrír listamenn fái
starfslaun 1 einhvem tíma og
gera einnig grein fyrir hugmynd-
um sínum um Lástahátíð Hafnar-
fjarðar sem yrði fyrst haldin 1991
og síðan reglulega annað hvert
ár.
íslenskir
myndlistarmenn
sýnaíBúdapest
í Búdapest í Ungverjalandi
stendur nú yfir sameiginleg sýn-
ing ungverskra og íslenskra hsta-
manna. Sýningin sem er í Tölgyfa
GaUerí hefur þemað sjálfstæði.
Verkin á sýningunni em að mest-
um hluta unnin 1 leir. Listamenn-
imir, sem taka þátt í sýningunni,
era fjórir Ungverjar og þrír ís-
lendingar sem era Jóna Thors,
Sigríður Erla og Vilma Ágústs-
dóttir. íslensku stúlkumar út-
skrifuðust ahar frá leirhstadeild
Myndhsta- og handíðaskóla ís-
lands síðasthðið vor. Þátttaka ís-
lendinganna í sýningu þessari er
tilkomin vegna tengsla Mynd-
hsta- og handíðaskóla íslands og
Alþjóðaleirvinnustofunnar í Kec-
skémet í Ungverjalandi, en þar
er rekin ein best búna alþjóða-
leirhstavinnustofa sem kostur er
á. Sýningunni hefur verið vel tek-
ið og þykir athyghsvert hve þess-
ir ungu hstamenn geta tjáð sig á
persónulegan hátt.
Listasafn
Sigurjóns
gertaðsjálfs-
eignarstofnun
Tvö ár verða liðin þann 21. okt-
óber frá vígslu Listasafns Sigur-
jóns Ólafssonar en það var vígt á
áttræðisafmæh hstamannsins
1988. Síðan þá hefur safnið verið
opið almenningi og sýnt verk Sig-
uijóns, bæði úr eigu safnsins og
annarra. Samhhða sýningunum
hefur safnið sinnt ahiliða menn-
ingarstarfsemi, svo sem tónleika-
haldi og bókmenntadagskrám og
tekið að öðra leyti beinan þátt í
menningarstarfi borgarinnar.
Safnið hefur hingað til verið
rekið sem einkasafn en að ósk
eiganda þess hefur það nú verið
gert að sjálfseignarstofnun. Sam-
kvæmt því stjómar stofnandinn,
Birgitta Spur, safninu ásamt tólf
manna fuUtrúaráði sem hún í
upphafi velur en endumýjar sig
sjálft er tímar líða.
Fimm manna stjóm hefur nú
verið skipuð og í henni sitja Birg-
itta Spur ásamt tveimur mönnum
sem hún tilnefnir og tveimur sem
fulltrúaráðið tilnefnir. Birgitta
Spur tilnefndi Aðalstein Ingólfs-
son og Hlíf Siguijónsdóttur í
stjórnina og tU vara Geirfmn
Jónsson og fuUtrúaráðið Önnu
Einarsdóttur og Gísla Sigurðsson
en Karólínu Eiriksdóttur til vara.
Mikil áhætta tekin þegar jafn-
viðamikil sýning er sett upp
- segir Ólafur Lárusson myndlistarmaður
Ólafur Lárasson myndlistarmaður opnaði
sýningu á myndverkum sínum á Kjarvalsstöð-
um síðasthðinn laugardag. Ólafur hefur haldið
fjölmargar sýningar hér heima sem og erlendis
allt frá því hann hélt sína fyrstu einkasýningu
í GaUerí SÚM 1974 þá nýbúinn að klára nám
við Myndlista- og handíðaskóla íslands.
Ólafur hélt síðan til framhaldsnáms í mynd-
list til HoUands og var þar í tvö ár. Á sínum
tíma var hann einn af stofnendum Nýhstasafns-
ins og sat í stjóm þess til 1981 og varð síðan
formaður þess 1984-1985. Þá var hann einnig
ritari í stjóm Myndhöggvarafélags Reykjavíkur
1982-1984. Auk þess kenndi hann um tíma við
Myndlista- og handíðaskóla íslands.
ðlafur hefur jöfnum höndum átt við málara-
hst og höggmyndalist og sýnt þessi hstform í
hvort í sínu lagi og saman eins og á sýningu
hans nú á Kjarvalsstöðum. Myndhstarsýningar
Ólafs eru orðnar íjölmargar, einkasýningar sem
og samsýningar.
Auk þess að hafa verið með margar einkasýn-
ingar í Reykjavík hefur Ólafur sýnt verk sín á
einkasýningum í Hollandi, PóUandi, Danmörku
og Finnlandi. Þá hefur hann tekið þátt í fjöl-
mörgum samsýningum utan landsteinnanna,
meðal annars Frakklandi, Svíþjóð, Belgíu, Nor-
egi, Bandaríkjunum og Spáni. I tUefni af opnun
sýningarinnar spjallaði DV stuttlega við Ólaf:
Þrjá sýningar á
Kjarvalsstöðum
„Það er ekki nema ár síðan ég hélt síðast
einkasýningu en þetta er þriðja sýning mín á
Kjarvalsstöðum. Eg hélt mína fyrstu sýningu
þar 1979, síðan var ég í austursalnum 1985 og
nú er ég með sýningu í vestursalnum.
Einkasýningin sem ég var með í fyrra fyrra
var í litlu gallerí, Einn, Einn, en bróðir minn
rekur það. Það myndaðist smágat í sýningarröð
gallerísins og ég hljóp inn í. Sú sýning var að
sjálfsögðu af allt annarri stærðargráðu en sýn-
ingin á Kjarvalsstöðum. Ég sýni nú bæði mál-
verk og skúlptúra sem gerðir eru úr steinsteypu
og stáli. Að megninu era myndverkin afrakstur
síðasta árs.“
Aðspurður hvemig verkin verða tU hjá honum
segir Ólafur að það séu formsspegúlasjónir sem
koma upp í huga hans við gerð verkana. „Þótt
formin virist vera tíglar, femingar og þríhym-
ingar þá hugsa ég þau sem landslag. Annars er
erfitt fyrir myndlistarmann að lýsa verkum sín-
um, þar verða aðrir að koma tU.“
„Að fara út í að sýna á Kjarvalsstöðum gerir
enginn með fullu viti,“ segir Ólafur um tilurð
sýningarinnar. „Þetta er gífurleg áhætta og
mikið lagt undir. Engin styrkur fylgir slíkum
sýningum frekar en öðram sýningum sem hsta-
maðurinn stofnar sjálfur tíl hér á landi. Maður
verður að taka alla áhættu sjálfur og það gefur
auga leið aö þegar jafnstór og viðamikU sýning
er komin á laggimar eins og sýning mín í vestur-
salnum þá er allt lagt undir. í raun er maður
kominn á höggstokkinn. En það þýðir lítið ann-
að en að vera bjartsýnn.
í Hollandi þar sem ég var í námi er það
minnsta mál að fá styrk til að geta haldið sýn-
ingu og það er þannig í öUum löndum í ná-
grenni viö okkur þar sem ég þekki til. Ég slapp
með skrekkinn á síðustu sýningu minni á Kjarv-
alstöðum, fór nokkurn veginn sléttur út úr
henni, en eins og þá rennir maöur alveg bhnt í
sjóinn með hvaða viðtökur myndverkin fá.“
Vinn myndverkin
með öðru hugarfari i dag
Ólafur segist vera sáttur við verk sín á sýning-
unni. Þessi sýning mín er aht öðravísi en sú sem
ég var með á Kjarvalsstööum fyrir fimm áram.
Ég vinn með aht öðru hugarfari í dag og því era
verkin öðravísi, aUa vega í mínum augum. Verk-
in þróuðust hægt hjá mér þar til hálft ár var í
sýninguna, þá lagði maður allan kraft í verkin
og mörg þeirra hafa orðið klár á síðustu misser-
um, segir Ólafur að lokum."
Sýning Ólafs Lárassonar verður opin til 21.
október og við yfirgefum Ólaf þar sem hann
vinnur hörðum höndum við að setja upp verk
sín um leið og hann kvartar yfir að fá ekki að
vera lengur en tíl kl. sex á daginn við að setja
myndverkin upp.
-HK