Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1990, Qupperneq 32
>
► *
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 5.000
þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við
ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - AuQlýsingar - Askrifi - Dreifing: Sími 27022
Frjalst, óháð dagblað
MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1990.
Slöngubát
með tveimur
mönnum rak
Björgunarsveitir úr Reykjavík, Sel-
tjarnarnesi, Kjalarnesi og Akranesi
leituðu tveggja manna á slöngubát
af Zodiak gerð í gærkvöldi.
Mennirnir höfðu farið frá Reykja-
vík til Akraness með farþega. Vélar-
bilun varð þrisvar sinnum á leið-
inni. Farþegarnir treystu sér því ekki
til aö fara með bátnum til baka og
fóru með Akraborginni í bæinn.
Mennirnir á bátnum sáust síðan
norður af Engey þegar Akraborgin
átti skammt eftir ófarið til Reykja-
víkur. Þá virtist eitthvað vera að.
Klukkan 20.30 gerðu farþegarnir
Slysavamafélaginu fyrst viðvart en
þá voru bátsmennirnir ókomnir í
land. Björgunarsveitirnar voru strax
ræstar út. Klukkan ellefu var hringt
frá bæ á Kjalarnesi heim til eins af
farþegunum. Bátinn hafði þá rekið
vélarvana í suðvestan 4-5 vindstig-
um að Kjalarnesi. Mennirnir höfðu
hvorki árar, ljósabúnað, talstöð né
blys meðferðis. Þeir voru þó í góðum
hlífðarfötum. Þá sakaði ekki. _^tt
Harðurárekstur
á Árskógsströnd
Gylfi Kiistjánsson, DV, Akureyri:
Tveirslösuðustá
Reykjanesbraut
I gærmorgun varð það slys á
Reykjanesbrautinni, rétt austan við
Vogaafleggjarann, að fólksbíll keyrði
á kyrrstæðan valtara með þeim af-
leiðingum að ökumaður og farþegi í
bílnum slösuðust báðir, ökumaður-
inn þó sýnu verr. Voru þeir báðir
fluttir á slysadeild Borgarspítalans.
Valtarinn stóð í vegarkantinum en
verið er að vinna að endurbótum á
Reykjanesbrautinni á þessum slóð-
um. Rigning var og skyggni slæmt
og vegurinn mjög blautur. Er talið
að ökumaðurinn hafi ekki séð valtar-
ann fyrr en of seint.
-HK
LOKI
Mérsýnistál ætla
að verða þungmálmur
í pólitíkinni.
Senda frá sér krabba
meinsvaldandi agnir
„Rannsóknir benda til þess að
þeir reykskynjarar, sem seldir eru
hér á landi, sendi frá sér plútoníum
dioxíð sem eru mjög skaðlegar agn-
ir og eitthvað það mest krabba-
meinsvaldandi efni sem til er,“
sagði Raymond Urbschaft, þýskur
eðlisfræðingur sem búsettur er hér
á landi.
Raymond kom fram í sjónvarps-
þættinum Fólkið í landinu á laug-
ardagskvöldið. Það vakti athygli að
geislamælir hans sýndi mikla svör-
un þegar hann bar hann nærri
venjulegum reykskynjara sem er
að fmna í allflestum húsum á
landinu.
„Plútoníum díoxíð, sem er geisla-
virkt og baneitrað, berst út frá
reykskynjurunum og út í and-
rúmsloftið. Fólk andar þessum
ögnum að sér, þær komast í lungu
þar sem þær valda mönnum
lungnakrabba. Þjóðverjar eru
hættir að kaupa svona reykskynj-
ara, það eru til skynjarar sem ekki
eru geislavirkir og þeir eru notaðir
þar. Á þeim reykskynjurum, sem
seldir eru hér, er meira að segja
aðvörun inni á lokinu þar sem það
stendur á ensku að hann innihaldi
geislavirkt efni. Fólk veit bara ekk-
ert um þetta. Ef skynjarar eru hafö-
ir í litlum, illa loftræstumherbergj-
um eru miklar líkur á að þar safn-
ist saman skaðlegt magn af plúto-
nium díoxíð. Ég fann líka út með
mælingum mínum að þessi tæki
senda líka frá sér gammageisla.
Geislavarnir ríkisins voru beðnar
að mæla hvort reykskynjarar
sendu frá sér gammageisla, geislun
mældist en hún var sögð vera und-
ir hættumörkum. Ég þekki hvaða
áhrif gammageislar geta haft og
ætla í mínu tilviki ekki að bíða eft-
ir að þeir komist upp að þeim
hættumörkum sem einhver staðall
setur,“ sagði þýski eðlisfræðingur-
inn Raymond Urbschaft.
Hann sagðist ennfremur vilja
taka það mjög skýrt fram að fólk
mætti ekki undir neinum kríngum-
stæðum henda reykskynjurum á
haugana. Þeir væru umliverfinu
margfalt hættulegri en t.d. raf-
hlöður og rafgeymar og það bæri
að losa sig við þá með öðrum hætti.
-hge
Mjög harður árekstur tveggja bif-
reiða varð á Árskógsströnd í Eyja-
firði á fóstudagskvöld á móts við
Steinbakka.
Bifreiðarnar höfnuðu báðar utan
vegar við áreksturinn og önnur
þeirra valt tvær veltur áður en hún
staðnæmdist á hjólunum. Farþegi í
þeirri bifreið kastaðist út úr henni
og slasaðist. Hann var fluttur á
sjúkrahús og báðar bifreiðarnar eru
mjög mikið skemmdar eftir árekst-
urinn.
HM í skák að heQast:
Verðlaunaféð
85 mil|jómr
Heimsmeistaraeinvígið í skák hefst
í New York í kvöld og sem fyrr eru
það heimsmeistarinn Garry Kasp-
arov og áskorandinn Anatoly Karpov
sem mætast. Þetta er fimmta einvígi
þeirra um titilinn. Þeim er ekki vel
til vina eins og kunnugt er og hafa
skeytin flogið á milli þeirra undan-
farið.
Búist er við spennandi einvígi enda
hefur Kasparaov aðeins tveggja
vinninga forskot eftir 120 skákir.
Kasparov er nú 27 ára en Karpov 39
ára. Verðlaunaféð er 1,5 milljón doll-
ara eða um 85 milljónir króna. Fyrstu
12 skákirnar verða í New York en
næstul2íLyoníFrakklandi. -SMJ
__ Stykkishólmur:
Ölvaðirlokuðu
tveimur götum
íslandsmet var sett í fjölda þátttakenda á 90 ára afmælismóti Taflfélags Reykjavikur i Faxafeni 12 á laugardag-
innn. Tveggja ára gamalt met, 485 þátttakendur, var slegið en samtals 1.230 keppendur þreyttu keppni í tveimur
riðlum. í fyrri riðlinum sigraði Helgi Áss Grétarsson úr Breiðholtsskóla en Arnar E. Gunnarsson úr Æfingaskólanum
í þeim seinni. Þeir fengu utanlandsferð í verðlaun. Margir þátttakendur komu langt að af landinu til keppninnar.
Vegna mótsins á laugardaginn skráðu 130 nýir félagar sig í TR og fjölgaði félagsmönnum þannig um 25 prósent.
DV-mynd Brynjar Gauti
Ölvun var talsverð í Stykkishólmí
aðfaranótt sunnudagsins og lenti lög-
reglan í erfiðleikum með að hemja
ölvað fólk sem lét illa. Meðal þess
sem hinir ölvuðu gerðu var að loka
tveimur götum. Hlóðu þeir stórum
fiskkerum og netadræsum á göt-
urnar tvær og lokuðu þeim.
Lögreglan náði að taka vegartálm-
ana síðar meir en ekki fyrr en einn
bíli hafði skemmst. Lenti sá í neta-
dræsunum og vöfðust netin utan um
öxulinn og brotnaði drifið. -HK
Veðrið á morgun:
Norðanátt
með kóln-
andi veðri
Á morgun gengur í norðanátt
með kólnandi veðri. í fyrramálið
verður rigning um mestallt
landið en styttir smám saman
upp sunnanlands og vestan. Síð-
degis verða él á annesjum norð-
anlands en slydda á Norðaustur-
landi. Suðvestanlands léttir með
kvöldinu. Hiti á bilinu 1-6 stig.
| KOM I K I
— IleiMsöliiflmfiníF sínii:.9I- 41760
i
i
\i
\i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
Líffnijijiiii'ar Á
5
. ALÞJÓnv
LÍFTRYGGINGARFEIAGIÐ HF.
LÁGMÚLI5 - RKYKJ AVÍK
isíini 681644