Dagblaðið Vísir - DV - 11.10.1990, Blaðsíða 12
12
FIMMTUÐAGUR 11. OKTÖBER 1990.
Spumingin
Ætlarðu á námskeið
í haust?
Eyrún Magnúsdóttir nemi: Ekki
núna, enda er nóg að vera í skóla.
Ingvar Sigurðsson matreiðslumeist-
ari. Flest námskeið eru nú á þeim
tíma sem ég er að vinna en einna
helst hefði ég áhuga fyrir að fara á
ljósmyndanámskeið.
Hrólfur Sigurðsson skjalavörður: Já,
leiklistarnámskeið í MH.
Hilmar Sigurðsson skjalavörður:
Ekki í haust en kannski eftir áramót.
Elsa Jónsdóttir nemi: Ég er í skóla
og það er nóg.
Lesendur
Virðing fyrir
alþingismönnum!
25 þúsund krónur á dag í ferðapen-
inga erlendis.
Ekki nóg með það, heldur er
tekjutrygging lífeyrisþega skatt-
lögð ef fólk hefur meira en 14.800
kr. á mánuði úr lífeyrissjóði sínum
- á meðan ferðapeningar alþingis-
manna og ráðherra eru undan-
þegnir skatti! Mönnum er farið að
blöskra þessi mismunun. Ekki síst
við það að lesa um og heyra að
þess séu dæmi að ellilífeyrisþegar
sumir og skjólstæðingar Félags-
málastofnunar séu farnir að kaupa
gæludýramat í verslunum sér til
viðurværis vegna lélegrar afkomu.
Hvernig skyldi eiga að vera sú
virðing sem á að bera fyrir hinum
æðstu mönnum landsins, mönnum
sem alltaf hafa nógu úr að spila
fyrir sig og sína, hvort sem er til
veisluhalda eða utanferða, á meðan
þeir brosa blítt tO aumingja eldra
fólksins og hins lasburða sem ekki
kemst á sjúkrahús vegna þess að
engir fjármunir eru til í ríkiskáss-
anum?
Já, það er fint að verá „hæstvirt-
ur“ alþingismaður og skamma
landslýð fyrir að bera ekki nógu
mikla virðingu fyrir „dömu- og
herraþjóðinni" á Alþingi. - Er ekki
kominn tími til að fara að vinna í
þessu, Árni Gunnarsson, og þið hin
á þingi? Gera eitthvað til þess að
landsmenn geti borið virðingu fyrir
Alþingi og alþingismönnum?
Einar Bjarnason skrifar:
Einn alþingismanna okkar, Árni
Gunnarsson, sagði í útvarpsþætti
laugard. 6. okt. sl. að nú væri nóg
komið af lítilsvirðingu landsmanna
á Alþingi og alþingismönnum og
bað hann landsmenn með sterkum
orðum að hætta því og taka aðra
afstöðu. - En hvernig er hægt að
bera virðingu fyrir Alþingi og al-
þingismönnum á meðan það tekur
(svo dæmi sé tekið) allt að 17 mán-
uði að bíða eftir sjúkraplássi í sam-
bandi við bæklunaruppskurði. -
Þetta vandræðamál var í fréttum
sáma dag og Árni Gunnarsson út-
málaði hve alþingismenn ættu
mikla virðingu skilið.
Hvernig er hægt að bera virðingu
fyrir Alþingi og alþingismönnum á
meðan kjör ellilífeyrisþega hafa
ekki enn verið lagfærö? - Núver-
andi reglugerð um tekjutryggingu
er löngu úrelt (var sett um eða rétt
eftir 1970). Hvers vegna hefur Al-
þingi ekkert gert í málinu? Nú er
svo komið að tekjutrygging ellilíf-
eyrisþega er 22 þús. kr. á mánuði
- á meðan Alþingi skammtar al-
þingismönnum og ráðherrum yfir
„Hvers vegna hefur Alþingi ekkert gert i málinu?" spyr bréfritari m.a.
Hólgreinar um
hryðjuverkamenn
Halldóra Jónsdóttir skrifar:
Ég vil þakka Svavari Guðna Svav-
arssyni múrarameistara nýleg skrif
hans um hólgreinar um hryðju-
verkamenn, er birtust í Lesbók
Morgunblaðsins í ágústmánuði sl„
en þær íjölluðu um Palestínuaraba
fyrir botni Miðjarðarhafs.
Ég er sammála Svavari Guðna um
að einkennilegt er það með suma
þeirra, er stundað hafa ferðir til
Rússlands og annarra landa í Aust-
ur-Evrópu til að styrkja sig í trúnni
(enda hafa þeir hvorki fundið þar
blett né hrukku), að þeir hinir sömu
menn skuli nú missa svo rækilega
fótanna að halda rakleitt á vit araba
og syngja þeim síðan lof og prís.
Það mun að vísu heyra til algerra
undantekninga að prestar og læknar
sjáist í því slagtogi.
Börn í ruslaf ötum
G.G. skrifar:
Vegna þeirrar umræðu sem orðiö
hefur um umboðsmann Alþingis
flnnst mér ástæða til að nefna þau
verk hans sem snúa að réttlætis- og
velferöarmálum íslenskra barna og
unglinga. Er það ekki úr vegi nú í lok
barnaráðstefnu S.Þ. sem landið er
aðili að. Hérlendis deyja börn ekki
hungurdauöa á götum úti né þola illt
viðurværí í fangelsum landsins, eins
og gerist í fjarlægum löndum. Þetta
táknar þó ekki að öll íslensk börn séu
hamingjusöm og að ekki sé á þeim
réttur brotinn.
Á undanfornum árum hafa margir
orðið til þess hér á landi að vekja
umræðu um bága mannréttinda-
stöðu íslenskra barna og ungmenna
þegar á slík réttindi reynir á vett-
vangi stjórnvalda. Bent er á að mörg
ákvæði barnalaganna hafa reynst
haldlítil börnum, enda óskýr og túlk-
anleg á ýmsa vegu. Athygli hefur
v.erið vakin á að gildandi barna-
vemdarlög era mjög forneskjuleg og
byggjast á vanvirðandi afstööu fyrri
alda til barna og ungmenna.
Hvorug þessara laga tryggja börn-
um réttarfarsskilyrði né heldur ást-
vinum barna, komi mannréttinda-
málefni barna til umfjöllunar eöa
úrlausnar íslenskra stjórnvaldsfull-
trúa. Lögin girða fyrir að óháðir
dómstólar greiði úr álitamálum er
varða rétt barns!'
Umboðsmaður Alþingis hefur tekið
barnaverndaryflrvöldum og dóms-
málaráðuneytinu myndarlegt tak
með álitsgerðum sínum. Hann hefur
sakað umrædd stjórnvöld um alvar-
leg rangindi við meðferð og ákvarð-
anir á réttindasviði barna fráskil-
inna foreldra, sakað stjórnvöld um
óskilvirkni og að sniðganga þau
ákvæði laga sem tryggja eiga börn-
um rétt til faglegrar málsmeðferðar
og ástvinum slíkra barna lágmarks
aðildarrétt að máli.
Viðbrögð dómsmálaráðuneytisins
hafa falist í dramblátri þögn. Barna-
verndarráð snerist hins vegar önd-
vert gegn ábendingum umboðs-
manns Alþingis á síðasta ári og bar
jafnvel fram ásakanir um að hann
ógnaði hagsmunum barna þegar
hann gagnrýndi sleifarlag ráðsins.
Alþingi og öll þjóðin á rétt á að fá
fullvissu um að þeir sem gæta eiga
mannréttinda barna og unglinga séu
ekki lögbrjótar. Upp úr ruslafótunni
með álitsgerðir umboðsmarms Al-
þingis!
Illa unninn þáttur
Í.A. hringdi: Svona þættir eins og þessi sem
Ég var að horfa á fréttaþátt í Rík- hér er vitnað til, viðtöl við formenn
issjónvarpinu i gærkvöldi (8. okt.) þingflokkanna rétt fyrir þing, þeg-
og varð fyrir miklum vonbrigðum ar sannarlega var hægt að gera
með hvernig að þessum þætti var góðan og líflegan fréttaauka, eru
staðið. í fyrsta lagi hefói þessi þá(t- þess eðlis að þeir eiga ekki heima
ur átt að vera í beinni útsendingu í sjónvarpi nema vera í beinni út-
með alla þingílokksformennína sendingu. Þessar ellefu-fréttir
saman á staðnum. Þess í stað var Sjónvarpsins eru að öðru leyti
verið að klippa til viðtöl við for- orðnar afskaplega slappar og lítil
mennina og sýna í áfóngum eftir bót að þeim að öllu jöfnu.
'því hvaða spurningu var beint til Fréttir kl. 23 gætu þó verið einn
þeirra. Þetta er algjörlega úrelt fyr- besti sjónvarpsfréttatími kvöldsins
irkomulag og óþolandi. ef ahnennilega værí aö staðið. Og
í öðru lagi var mjög kastað til það væri margfalt betri kostur fyr-
þáttarins höndunum í mörgum ir Sjónvarpið en aö vera að streit-
greinum en kom kannski hvað ast við að hafa sjónvarpsfréttir kl.
greinilegast í ljós þegar Kristín 20 sem eins konar síðari útgáfu
Einarsdóttir, þingflokksformaður frétta Stöðvar 2. Góðar og ítarlegar
Kvennalista, varkynntsemMargr- ellefu-fréttir væru áreiðanlega vel
ét Frímannsdóttir, þingflokksfor- þegnar. Ég reikna með að flestir
maður Alþýöubandalagsins. Og lá- myndu hreinlega alveg geyma sér
tið óátaliö, þ.e. ekki afsakað eða sjónvarpsfréttirþartiláþeimtíma,
leiðrétt siðar heldur lét ums]ónar- byðist slíkur valkostur.
maður slag standa og búið mál!
Eitraðir
reykskynjarar
Reið húSmóðir hringdi:
Þegar ég las greininina í DV um
hina eitruðu reyskynjara varð ég
bæði sár og reið vegna þess aö þar
finnst mér koma fram ábyrgðarleysi
þeirra sölumanna sem selt hafa
þessa skynjara.
Þessir menn hafa vaðiö hús úr
húsi til að selja þessi tæki, vitandi
að innan í lokinu er aðvörun sem
segir til um hættuna sem er því sam-
fara að nota þau. Þessir aðilar ættu
að taka sig saman og safna þessum
stórhættulegu tækjum saman og
koma þeim til síns heima. Varla eig-
um við að sitja uppi með ósómann
úr því sem komið er!